FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Profile picture of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 9 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 257 total)
← 1 … 8 9 10 … 13 →
  • Author
    Replies
  • 24.03.2007 at 21:11 #585908
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir þurrkubræður,
    Á svona græjum eins og Patrol þar sem maður nær jafnvel að halda fullum ferðahraða þótt á móti blási fannst mér alveg vonlaust að nota gúmmíklædd blöð, því þau lyftust bara frá. Mér líkar hins vegar betur við svona þurrkureimar sem ég fékk í Stillingu, -þær lyftast ekki frá í roki eða á ofsahraða, það frýs minna á þeim en þessum hefðbundnu. Hins vegar þarf að passa að taka ekki sveigjuna úr reimunum ( þetta lítur jú út eins og lakkrísreimar eða lakkrísrör, bara verra á bragðið!).
    Hitt er náttúrulega algjör snilld að ferðast bara í frystikistu, þetta hlýtur að hlýja hverjum Landrover eiganda um hjartaræturnar, (ekki veitir nú af).
    Með kuldalegum kveðjum,
    Ingi

    Ps. það bara mökksnjóar á Gullfosshálendinu, og hellingskrapi undir niðri. Nú er lag fyrir þá sem vilja festa sig ærlega…





    20.03.2007 at 10:17 #585122
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sæll félagi,
    ég gæti átt nýjan kúplingsdisk (Stilling) handa þér fyrir lítið!
    Ingi 864 6489





    16.03.2007 at 22:11 #199940
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Á fimmtudeginum (15.03) heyrði ég á VHFinu í 10 bíla 4×4 Vestfirðingagengi sem var að berjast upp Langjökulinn frá Jaka. Færið þungt, meðalhraðinn um 2.2km/klst. og áætluðu þeir að vera á Hveravöllum um 9 leitið á laugardagsmorgninum! Ekki það að ég sé nein taugatrekkt mamma farin úr límingunum vegna fréttaleysis, -en gaman væri að heyra hvernig gengi ef einhver hefur verið í sambandi við liðið.
    Ingi





    28.02.2007 at 00:20 #582446
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Gæti einhver frætt mig auman
    um hvað þessi þráður fjallar???
    Ingi





    02.02.2007 at 08:55 #578304
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Smá innlegg í umræðuna,
    ég lét sandblása fyrir mig felgur og síðan polyhúða,
    húðin brotnar / flagnar auðveldlega af út frá miðjugati, út frá felguboltum, út frá köntum. Mattast ekkert síður en lakk.
    Ingi





    28.01.2007 at 13:38 #577718
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Gott sleðafæri.
    Ingi





    27.01.2007 at 00:16 #577488
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Gæti verið klaki á bremsudisknum eða innan í felgum, annað eins gæti nú gerst þarna uppi á jöklinum.
    Þetta fer bara að verða spennandi, hefði ég ekki séð til þeirra þarna ofan Íshellisins síðasta sunnudag hefði ég haldið að þetta væri bara plat, til að koma öllum i 4×4 á kaldann Klakann.
    Ingi





    22.01.2007 at 20:59 #576578
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sæll félagi,
    Kláraðu nú fyrst þennan pakka sem verið var að benda þér á að yfirfara. Gættu þess bara að þetta er rafstýrð vakumlæsing. -þ.e. það er vakum sem sér um að setja læsinguna sjálfa á, og af aftur. Fari hún ekki almennilega af þá er góð hætta á að þú stútir læsingunni.
    Ingi





    20.01.2007 at 20:58 #576190
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Æineiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
    Ingi





    19.01.2007 at 22:45 #576180
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Æi Gunnar,
    það liggur við að ég endurgreiði þér félagsgjaldið undan koddanum mínum, ég held að það hafi aldrei verið meiningin hjá 4×4 að selja þér svikna vöru.
    En -ef við lítum á aðra þætti í félagsstarfinu, svo sem barátta fyrir öðrum hagsmunum en afsláttarmálum, þá má kannski styðja við bak þeirra sem berjast fyrir VHF málum, vegslóðasöfnurum, björgunarsveitinni, skálasmiðum o.s.frv.
    Ég lít bara á það sem bónus að geta fengið afsláttinn, en ég lifi ekki fyrir hann.
    Ingi





    07.01.2007 at 10:47 #574140
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir,
    þetta svarar kannski spurningu Stefáns bara óbeint, -en fyrir nokkrum árum stóð fyrirtækið Ísfar (Íslensk farartæki) að útflutningi á breyttum jeppum og breytingarhlutum, aðallega til þýskalands. Með því að taka út og láta taka út hina ýmsu hluti s.s. styrkleika brettakanta (þurftu að þola að x-þung stálkúla félli á brettakant úr 10m hæð eða svo) þá fengum við skráða í þýskalandi 35" og 38" breytta Toyotur (og 38" og 44" í Lettlandi). Þýskaland, land reglugerða og bókstafstrúar var nánast talið óvinnandi virki í upphafi, en svo reyndist ekki.
    Ingi





    06.01.2007 at 11:37 #573520
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sjá þráðinn "Suðurlandsdeild"
    Ingi





    06.01.2007 at 09:52 #573518
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Já, þetta eru svo sannarlega kaldir karlar í krapinu!
    Ég reyndi svosum að láta vita af þessum aðstæðum á fjöllum í mínum síðasta pósti eftir að hafa lent í krapatjörn uppi á fjalli í um 800 metra hæð! En auðvitað eiga menn að láta á reyna hversu langt verði komist og láta ekki deigan síga fyrr en fullreynt er, annars sætum við alltaf heima. Það er bara synd hversu vatns-og klakatjónin verða mikil á tækjunum okkar nú til dags. Það eru um 30 ár síðan ég missti (rússa)jeppa almennilega niður um klaka síðast. Eftir að hafa brotið klakann í land, tappað vatni undan, þurrkað innan úr kveikjulokinu og hellt úr mottunni þá var bara sett í gang og keyrt heim. 5 eða 10 beyglur til eða frá breyttu engu í þá daga!
    Gangi ykkur vel með græjurnar,
    Ingi





    03.01.2007 at 21:47 #573286
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Ég held hann Hlynur sé að verða hálf "lynur", var þetta ekki ort um Stórasand?
    En, – í öllu falli þá ættu menn að upplýsa hvernig bifreiðum þeir aka er þeir forvitnast um færð eða ausa úr viskubrunnunum, ég fór Kaldadalsveg (þori ekki að segjast hafa farið Kaldadal ef vegurinn liggur nú ekki alveg um hann?!?!) á nýársdag, -sjaldan betri á þessum árstíma. Ótrúlega lítið skemmdur eftir rigningarnar og bara alveg rennifæri fyrir EðalPatról, Toy menn greinilega ekki á sama máli!!!!!!!!!. -Sama er að segja um Kjalveg a.m.k. upp á Bláfellsháls, einungis smá úrrennsli við Grjótá. Hins vegar er ekkert smábílafæri um gamla Kjalveginn framhjá Fremstaveri vegna nef-, frá- og úrrennslis. Vilji menn bleyta í þá er úrvals góð tjörn falin uppi á Geldingafelli við Bláfell, í tæplega 800 metra hæð, sem drekkt gæti heilu Fordurunum. Annars er alveg grjóthart færi undir púðrinu og fullt af grjóti sem bíður bananna (dekkjabana þ.a.s.).
    Ingi





    24.12.2006 at 16:48 #572402
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Skemmtilega fáir þekkja mig undir Varða nafninu, í öllu falli ekki hún móðir mín.
    En víst er löngu tímabært að ég komi sögu Reo Studebaker á fast form, helst er tíma- og tölvukunnáttuleysi auk framtaksleysis um að kenna. Reyndar tók ég einu sinni saman efni um bílinn sem birtist í þýska offroad blaðinu 4WheelFun ásamt myndum. Reoinn er í geymslu á Geymslusvæðinu hans Valda Vípon og er illa farinn rétt eins og hún Soffía. Hann er ´52 módelið af 6×6 Reo hertrukk, 2 1/2 tonn á vegleysum og 5t á vegum að burðargetu. Norðurleið lét byggja yfir hann 27 manna hús um ´61-´62. Hann viktaði 7,3 t klár í ferð með keðjum, verkfærum, varahlutum og olíu, eflaust yfir 10 t fulllestaður og þ.a.l. þokkalega yfirlestaður. Ég gerði trukkinn út frá ´85 – ´90. Ég gafst raunar upp á rekstrinum þega gírkassinn fór í fimmta skiptið, að þessu sinni í haustferð og rétt kominn yfir Hófsvaðið. Vel skiljanlegt að gírkassi byggður fyrir 120 bensínhestöfl lét ekki bjóða sér 210 Caterpillerdieselhestöfl!

    En svona til að geta sagt að ég sé byrjaður að skrá söguna þá fylgir hér vísa Ólínu í Skipanesi um bílinn:

    Rennivakur rauðskjóttur,
    reyndur í fjallaskaki.
    Heiðursnafnið hrystingur,
    hlaut með lófataki.

    *****************************************
    Gleðilega hátíð og snjóríkt nýtt ár.
    Ingi





    21.12.2006 at 18:59 #572082
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sem gamall vatnamælingamaður (þ.e.a.s. vann við þetta í gamla daga) þá er ekki alltaf að marka vatnshæðarmælana að vetrarlagi vegna grunnstinguls og /eða klaka. Það er ákveðið útreiknað samband milli vatnshæðar og rennslis (svokallaður rennslislykill minnir mig), en hann gildir aðeins ef rennslið er ótruflað. Þannig virtust hinar ýmsustu ár og sprænur vera vænlegar til virkjana, -þar til raunrennslið var mælt að vetrarlagi og skráning síritans leiðrétt handvirkt eftir á.
    Allt um þetta í "Vadd’útí" ,bók um Sigurjón Rist, vatnamælingamann.
    Ingi





    04.12.2006 at 21:23 #570010
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Maððður má vart bregða sér af bæ fyrr en búið er að ausa yfir maaann svívirðingum, skömmum og sönnum lygum. Hvað væri svosem gaman að lífinu nema því fylgdi smáræði af brasi, þrasi og beygluðum felgum, ónýtum dekkjum og særðu stolti.

    Ingi, -einn sem enn þorir að setja nafn sitt undir textann!!!





    04.12.2006 at 20:08 #570000
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Þið sem þekkið til Hlyns vitið að það má nú deila með tveim og draga svo tíu frá til að fá fram sannleikann. Dekkin myndu nefnilega drífa helvítis helling ef hægt væri að hleypa almennilega úr af öryggi. Mundi því mæla með blöðrulokk á felgunar.
    Ef þú leitar undir 42" iroq þá finnurðu eitthvað efni.

    Ingi





    04.12.2006 at 09:25 #569922
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Þetta er gríðarlega metnaðarfullt verkefni, en svo vel falið að þess er vart að vænta að það skili sér inn mikið af ferlum. Að mínu mati þarf að:
    a) Gera verkefnið (ferlasfnið) sýnilegt á aðalsíðu, þ.e. auðvelda aðgang að upplýsingunum.
    b) Koma á síðuna korti sem sýnir hvaða vegi / slóðir er búið að ferla, og líka þá sem eftir eru, -eftir því sem hægt er.
    c) Bjóða mönnum aðstoð (hvað með kvöldnámskeið eða leiðbeiningar hér á vefnum) við að vinna með ferlana, koma þeim í ferlasafnið.

    Það er pottþétt fullt af ferlum í tölvum ferðafélaganna sem ekki hafa litið dagsins ljós, það þarf bara að ná til þeirra.
    Ekki láta deigan síga, þetta er besti tíminn til að vinna í þessu, fullt af svartnætti og lítið af snjó.
    Baráttukveðjur,
    Ingi

    Ps. Ég skil það mæta vel og er ekki vitund sár :( þótt mér hafi verið hegnt með því að víkja mér úr starfshópnum fyrir það að ná engu sambandi við minn tengilið á suðausturlandi(?). Vona að ykkur renni reiðin með hækkandi sólu.
    Ingi





    26.11.2006 at 13:50 #569376
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Okkur Hlyni til hrellings þá fann ég áhugaverða lesningu á netinu, þar sem m.a. segir:
    "Frá Gjábakka er farið meðfram vegi yfir það sem í daglegu tali er nefnd Lyngdalsheiði og á Laugardalsvelli og þaðan á Laugarvatn. …"
    Ég hvet ykkur þegar veður gerir vond að lesa þennan texta um gamlar götur, vöð, og ýmsar frásagnir því tengdu:
    http://www.bokasafn.is/ferdavefur/gamlar_gotur.htm

    Hvað títt nefndan Haukadal snertir, þá vona ég að Geysir sé enn í Haukadalnum…

    Ingi





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 257 total)
← 1 … 8 9 10 … 13 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.