Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.12.2007 at 20:30 #201377
Sælir félagar,
hvernig get ég séð óyggjandi hvaða útgáfu af kortinu er í GPSinu? Kemur það einhverns staðar fram á GPSinu eða get ég séð það á framsetningu kortsins?
Ingi
13.12.2007 at 20:27 #201376Sælir félagar,
nú um áramótin tekur gildi reglugerð skilst mér,
þar sem bannað verður að setja framan á nýskráða bíla nokkuð það sem stendur fram fyrir bílinn, svo sem kastarar, spil eða grind.
Ég var að leita að efni á vefnum varðandi þetta mál en fann ekki, -getur einhver lóðsað mig eða frætt nánar um þessa reglugerð?
Ingi
17.11.2007 at 20:23 #602286Raðtengdu bara tvær 12 volta Fini, þá ertu eflaust í finum málum…?
Ingi
17.11.2007 at 20:14 #603562Sorry, smá klikk!
Kann ekki að eyða.
Ingi
17.11.2007 at 20:13 #603560Rétt tyllti framdekkjunum upp í Langjökulinn áðan, þar var 5 – 10m skyggni, -og sá í heiðan himinn. Bálhvass skafbylur semsé. Það er rennifæri veginn upp að Skálpaskálanum, og ágætis sleðafæri frá Bláfelli, en auðvitað grýtt á milli.
Sá svosum ekki hvort það var snjór af viti á jökli en þarna uppi var 7°frost og reikna með að hemað hafi yfir minni sprungur og svelgi. Gott sleðafæri, ekki komið harða harðfenni enn.
Góða ferð,
Ingi
16.11.2007 at 19:18 #603542Kíktu bara á Kaldadalspóstana 12 – 15 nóv. karlinn minn. Það á eflaust mikið vatn eftir að renna til sjávar…
Ingi
15.11.2007 at 21:04 #603024Sælir félagar,
vegna þess hve umræðan um færð á Kaldadal hefur verið heit og helgi er í nánd, þá vil ég endilega koma því á framfæri að vegurinn þar sem hann er niðurgrafinn er kjaftfullur af krapaskít og mjög seinfarinn. Ætlaði að fara norðanfrá í dag en snéri frá eftir nokkra kílómetra, -en ég er náttúrulega bara á 44" Patta.
Guð gefi oss gott frost.
Ingi
14.11.2007 at 10:02 #601012tek 4 stk 46" x 16"
Ingi
(Þorvarður Ingi Þorbjörnsson, 864 6489)
12.11.2007 at 23:21 #603014…verður oft lítið um svör.
Fór um Kaldadal sl. laugardag.
Svör við spurningum þínum eru já og já.
Vona að þetta nýtist þér eitthvað.
Ingi
11.11.2007 at 11:57 #602806Takk fyrir þetta félagar,
fann einmitt skálann sem ég leitaði að, Kirkjuból í Fjallkirkju. Veit einhver um ástand skálans?
Skrá yfir skála til útleigu/gistingar svo og neyðarskýli fyrir ferðamenn á hvorki að vera leyndarmál né söluvara heldur aðgengileg á vef 4×4.
Ingi
11.11.2007 at 11:12 #201148Sælir félagar,
hvar á netinu finn ég opna skrá yfir hnit helstu fjallaskála, og þá gjarnan með einhverri lýsingu á þeim?
Ingi
07.11.2007 at 09:15 #602374Já,
ég var fullseinn á að ganga inn í tilboðið hjá þórði, Garmin 292 á 40.000,-.
Fann 292 með útiloftneti á c.a. 30.000,- á Ebay en kann eitthvað lítið á þetta meir. Hef samt fullan áhuga á þessu. Eins er ég drulluspenntur fyrir skjálausu GPS tæki og síðan stökum ská, en hef bara ekkert heyrt hvernig það funkerar.
Ingi
06.11.2007 at 21:13 #201120Sælir félagar,
veit einhver hvaða tollur og vörugjöld oþh. er á GPS græjum?
Ingi
31.10.2007 at 23:13 #601580Sælir,
það er rennifæri upp að afleggjara (nýi vegurinn framhjá Tröllhálsi opinn), Kaldidalur er seinfær vegna rifskafla í veginum og trúlega er hið sama uppi á teningunum á Skjaldbreiðarvegi og hraununum þar í kring.
Ingi
18.10.2007 at 09:05 #600272Sæll félagi,
að aftan hef ég sett dálítið sverari enda, og nú síðast netta og ódýra stýrisenda. Þurfti örlítið að víkka gatið fyrir kóninn (glerhart), og þetta virðist bara ætla að endast.
Að framan tók ég balansstöngina úr.
Ingi
01.10.2007 at 23:27 #598394Vil endilega hlera hvort einhver hafi kynnt sér þetta GPS sem tengist við hvaða skjá sem er!
Mér finnst þetta vera forvitnilegt tæki sem gæti brúað bilið á milli fartölvu og GPS að nokkru.
Ingi
28.09.2007 at 21:30 #200875Þar sem tveim þráðum varð ofaukið hjá mér er ég vildi breyta eftir á þá ætlaði ég bara sisvona að eyða þeim, en ég bara kann það ekki!
Er hægt að hafa hér á aðalsíðunni leiðbeiningar um þetta, -og þá eins hvernig settar eru inn myndir.
Ingi
28.09.2007 at 21:13 #200874Sæl öll,
ég er nú trúlega einn þeirra sem á af og til í basli með samstarfið milli GPS tækisins og fartölvunnar í bílnum. Endrum og eins hef ég spurt hví ekki sé hægt að tengja bara skjá við GPSið til að stækka myndina/kortið. -Ekki hægt var alltaf svarið, …þar til ég sá ljósið!
Því loksins var mér bent á Garmin GVN Blackbox sem reyndar er skjálaust tæki, en tengist við fjarstýrðan skjá, og eftir c.a. mánuð mun nýja útgáfan vinna með hvaða snertiskjá sem er, -að sögn. Þetta tæki hefur ekki Trackback eða 3Deitthvað sem ég hef svosum ekki saknað hvort eð er síðustu árin.
Hafa menn (konur eru líka menn) eitthvað kíkkað á þetta?
Ingi
21.09.2007 at 09:59 #597506Frá Þingvöllum inn á Uxahryggja/Kaldadalsveg.
Í seinni tíð hefur Tröllhálsinn ekki verið mér til trafala, hins vegar hafa ítölsku og frönsku framdrifnu húsbílarnir sem silast um þjóðvegakerfið á þrjátíu iðulega átt í basli upp brekkurnar í Tröllhálsi. Þetta er mér svosum alveg að meinlausu, -hins vegar er framkvæmdin hálf tilgangslaus ef verið er að hugsa um flóttaleið frá Reykjavík og Kópavogi að vetrarlagi. Sneiðingurinn upp frá Hofmannaflöt yfir að Sandkluftavatni verður alltaf flöskuhálsinn.
Það er auðvitað allt önnur Ella, en að mínu viti hefði þurft á sínum tíma að leggja veginn um Goðaskarð, sem er u.þ.b. norðaustan við Hofmannaflöt og þar áfram norður hraunið meðfram Lágafelli.
Ingi
21.09.2007 at 09:13 #597480…verður oft lítið um svör.
Oft er til bóta að gefa meiri upplýsingar, s.s. hvaða vél er í bílnum, árgerð o.s.frv. Síðan má oft finna mikinn fróðleik á leitarvélinni okkar.
Baráttukveðjur,
Ingi
-
AuthorReplies