Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.01.2008 at 10:16 #201494
Sælir félagar og gleðilegt nýtt ferðaár.
Í sumar átti ég oftlega leið inn í Laugar, og sá að á Sigölduleiðinni í hálsinum norðan/vestan við gatnamótin Laugar/Dómadalur/Ljótipollur hafði þá um vorið verið keyrt á þvengmjóum dekkjum yfir mosaþembuna. Var svo seint um haustið á ferð á 44″ Patta og hafði tök á að framkvæma það sem ég hafði verið að mana mig upp í í hvert sinn sem ég ók framhjá. Ég hleypti vel úr og ók utanvega inni í Friðlandinu, og freistaði þess að loka sárunum, að pressa niður barmana. Þetta tókst aðeins að nokkru, þetta hefði þurft að gera miklu fyrr um sumarið meðan ennþá var blautt um.
En þetta sýndi þó og sannaði að vel má loka svona sárum með súperjeppum. Hvet ég Umhverfisnefnd til að bjóða Þjóðgörðum og Náttúruverndarstofnunum upp á þá þjónustu að við félagar í 4×4 tökum að okkur að laga eða minnka skemmdir eftir utanvegaakstur, í samstarfi við viðkomandi.
Það eru jú alltaf einhver okkar á ferðinni einhvern staðar!
Ingi
28.12.2007 at 21:22 #603576Og hvar fannstu þessar sprungur góurinn?
Ingi
26.12.2007 at 21:36 #607714Sæll Helgi,
nei, þetta er greinilega hálfkveðin vísa og rímar ekki.
Hvar ertu með grútarbrennarann?
Hefurðu prófað að hringja í Kidda Bergs 892 4030
Ingi
26.12.2007 at 20:04 #607710Ekki það að ég hafi séð svona vél, en ertu búinn að lofttæma síu og olíuverk? Þú ert klár á að hann dragi ekki loft?
Svona alvöruvél á bara að detta í gang fái hún start, loft og olíu! Hafi hún einnvertímann farið í gang áður þá gerir hún það séu þessar forsendur fyrir hendi.
Þarf kannski að forhita? Eða vantar kaldstart?
Ingi
26.12.2007 at 01:55 #607628Sagði ég á launum, meinti á lyfjum auðvitað. Og ég borga búsið.
Ingi
26.12.2007 at 01:30 #607690Það er ein, og aðeins ein leið til að komast að því hvernig færið er.
Ingi
26.12.2007 at 00:50 #607624Já Baddi,
líst vel á þessa daga. Þegar allir hinir lúsiðnu andskotarnir hanga í sinni hundleiðinlegu vinnu þá getum við farið út að leika, -á fullum launum vel að merkja.
Hönnum góða hálendisferð saman, og skiljum Hlyn hangikjétssauð heima.Andskotinn í Helvítinu hóar
hinum megin við Esjuna snjóar
Mýramenn í koppa sína kúka
og klóra sína lúsugu búka.Jólakveðjur,
Ingi
24.12.2007 at 15:33 #607612Baddi,
ég treysti þér til að halda utan um þetta.
Hljómar ekki illa. Höldum til fjalla!
Læt fylgja restina af hendingunni sem kom í byrjun þráðar:
Fagurt er á fjöllum, Halla!
Fönnin hylur veröld alla,
þótt sólarglætu gefi varla
þá gleði fyllir sali skalla.
G.Ó.
Ingi
23.12.2007 at 18:49 #201435Fagurt er á fjöllum Halla,
fönnin hylur veröld alla.
Svo voru Fjalla-Eyvindi lögð orð í munn.
Nú er ferðafæri fínt, Skálpanesvegur auður að skálanum og glerhart færi en lítilsháttar lausamjöll. Og meiri snjór auðvitað inni á jöklinum. Reyndar var einn ferðalangur á leiðinni upp á Grímsfjall í fyrradag held ég, en snéri frá eftir sundlaugarferð í rúmlega 1100m. hæð.
Semsé, fagurt færi en forblautt undir niðri.
Gleðilega hátíð, góðir samferðamenn!
Ingi
21.12.2007 at 00:27 #606600Skv. tækninefndarmönnum á kvöldfundinum nú áðan þá ku gildistöku grindarreglugerðarinnar hafa verið slegið á frest.
Gef þeim orðið.
Ingi
20.12.2007 at 09:26 #607356Og ekki gleyma að Fossberg gefur 4×4 10% og Byko 11% afslátt til félagsmanna!
Ingi
20.12.2007 at 09:22 #606594Sælir félagar enn og aftur,
þekkir einhver einhvern sem kann að lesa reglugerðir?
Skv. mínum skilningi á reglugerð um gerð og búnað ökutækja þá er torfærubifreið eða breitt bifreið ekki fólksbifreið og fellur þar með ekki undir reglugerðina varðandi bannaðar grindur á nýskráðum fólksbifreiðum (M1). Er hægt að draga einhvern með á fundinn í kvöld sem kann að lesa reglugerðir?
Ingi
19.12.2007 at 21:48 #606592Ég vil hvetja þá sem vilja leggja sitt af mörkum til að vakandi auga verði haft með væntanlegum takmarkandi reglugerðum hvað snertir notkun á breittum jeppum.
Einnig að hlera hvernig tækninefnd / stjórn / starfsmaður hafa fylgst með væntanlegum reglugerðarbreitingum.
Fundur í Mörkinni fimmtudagskvöldið 20.des kl. 20.30.
Ingi
18.12.2007 at 23:37 #607260Fyrir forvitni sakir,
hvað varð eiginlega til þess að þessir 3 nefndarmenn sögðu sig frá störfum og einn var rekinn eða ekki,-nennir einhver að upplýsa fávísan í örfáum orðum?
Ingi ekkijólasveinn.
18.12.2007 at 21:31 #607196Til að gera langa ferð stutta,
það er íshellir en ekkert kannski risalegur í Gígjökli á leið inn í Þórsmörk, 20 – 30 mín gangur frá vegi. Annar hellir í Sólheimajökli, örstutt frá planinu.
Hef mjög lítið hætt mér inn í þessa hella í sumar, en þeir gætu verið skoðunar verðir nú í vetur ef einhvern tíma hættir að rigna.
Þú ættir kannski að gera þér ferð til að athuga hvort þetta er raunhæft. Farðu bara varlega.
Ingi
17.12.2007 at 10:05 #607056Prófaðu að hreinsa loftflæðinemann, t.d með spritti, eyrnapinna og lofti.
Skynjarinn er staðsettur á lögninni frá lofthreinsara að vél, rétt við síuhúsið.
Ingi
15.12.2007 at 00:28 #606568Þetta mál er áfellisdómur fyrir 4×4 !
Það er ekki sjálfgefið að menn bjóði sig fram til sjálfboðastarfa í hinar ýmsu nefndir eða stjórn félagsins, en geri menn það ber þeim siðferðisskylda til að hafa hag félagsmanna í fyrirrúmi. Persónulegar skoðanir: varðandi drasl sem sumir festa framan á bílana sína (Eik), virðast hafa gegnsýrt störf tækninefndar varðandi þetta grindar/ljósamál. -Já Einar, það er allt í lagi að það gildi einhverjar reglur, en BANN er engin regla.
Ég tel flesta félagsmenn telja það til kosta og öryggisatriði að hafa ljóskastara framan á, og þeir sem ferðast mikið einbíla þekkja kosti þess að hafa jafnvel spil.
Til hvers er verið með starfsmann á launum hjá félaginu = OKKUR , ef hann (hún) fylgist ekki með þeim málefnum sem snerta okkur? Er það ekki eðlileg krafa að starfsmaðurinn sé vakandi, upplýsi stjórn um þau mál sem taka þarf á, og stjórnin komi verkefnum til hinna ýmsu nefnda eða deilda? Fylgist stjórnin ekki með starfi nefnda? Varla er það fullt starf að sleikja frímerki á greiðsluseðlana, eða hvað?
Það er ekki svo að ég vilji leggja félagið af, en er það ekki aðeins að týnast í sjálfu sér?
Það er búið að koma svo mörgu fjandi góðu í verk fyrir tilstilli félagsins, og þessi atlaga að jeppamennsku er aðeins ein af mörgum væntanlegum í þeim tilgangi að útrýma súperjeppum á íslandi! Ætlum við að glutra niður öllu því sem hefur áunnist?
Ingi
14.12.2007 at 19:49 #606612Og já hvernig fjarlægir maður skálann sem er sýndur á Langjökli milli Jaka og Geitlandsjökuls?
Mér kemur á óvart hve ónákvæmir vegir eru á þessu nýja korti, og að vegslóðar eru enn nánast ósýnilegir!
Er 3.5 kortið virkilega ekki betra en þetta?
Ingi
14.12.2007 at 09:03 #606548Hver var þáttur t.d. tækninefndar 4×4 í þessum ólögum?
Var leitað álits hjá 4×4 í þessu máli?Er þetta ekki bara byrjunin á aðför að séríslenskri súperjeppamenningu, -hvað verður bannað næst, -og svo, -og svo???
Ingi
13.12.2007 at 21:02 #606536Þetta verður ekki afturvirkt held ég heldur gildir fyrir nýskráða bíla eftir áramótin.
Fékk 4×4 þetta mál til umsagnar, hefur tækninefndin fjallað um málið?
Eru til einhverjir þræðir um þetta efni, aðrir en síðan c.a. 2002-2003 ?
Ingi
-
AuthorReplies