FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Profile picture of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 9 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 257 total)
← 1 … 4 5 6 … 13 →
  • Author
    Replies
  • 28.11.2008 at 20:17 #633532
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir félagar,
    hugsi menn sér til hreyfings um helgina þá en enn nánast snjólaust á Laugasvæðinu. Það litla sem er er glerhart, og alveg frábært færi á Heklu -Krakatindssvæðinu, og eflaust enn víðar. Skjólkvía-, Dómadals- og Frostastaðasneiðingarnir vel færir.
    Góða helgi,
    Ingi





    31.10.2008 at 21:47 #631908
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    umm,
    takk fyrir þetta. En súlumælarnir hafa ekki þetta svið, gefa oft vitlausan álestur auk þess sem stafirnir mást oft fljótt út við notkun.
    Hvað er BB, -og hefur enginn dottið niður á skotheldan nothæfan mæli?
    Ingi





    29.10.2008 at 22:02 #203132
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir félagar,
    getið þið bent mér á góða loftmæla sem mæla u.þ.b. 1 – 30psi, eru endingargóðir, nákvæmir, notendavænir og hagkvæmir í verði. Ég er að verða hálf leiður á haugum af hálf eða alvitlausum loftmælum. Virðast ekki þola að slá í botn og enginn veit svosem um nákvæmnina
    Ingi





    05.10.2008 at 09:56 #630504
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sæll,
    Sigurður í Bílasetrinu í Mosó er að koma sér upp glerblástursgræju,
    sími 8979242.
    Ingi





    19.09.2008 at 20:12 #629624
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Var að koma úr Þórsmörk í dag, gleymdi alveg að kíkja á Fljótið við Litlu-Dímon (þykir vænt um að heimamenn kvenkenni Dímonurnar tvær).
    Allir lækir hafa andskotast út um allt en það er búið að stinga í gegnum aurruddann með traktor þannig að það er ekki alvont inn á Þórsmörk. Steinsholtsá er búin að kasta sér til vesturs og hún ásamt Krossá þrengja sér inn á neðri veginn neðan Gígjökuls. Við Langadal liggur aðaláll Krossár meðfram "bílaplaninu" og haldi hún áfram að grafa sig þar niður verður fátt um fín vöð.
    Já, það er aldrei leiðinlegt að búa á Íslandi.
    Ingi





    12.05.2008 at 12:58 #622700
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sæll Bazzi,
    ég er svo fatlaður að ég bara tek stafrænar myndir af gömlu myndunum mínum á vél sem tekur nærmyndir. Ég er að vinna í að koma upp myndasafni m.a. af rútum, trukkum o.s.frv. Ég er alveg til í að vista rjómann af myndunum þínum á heimasíðunni minni ,a.m.k. kíktu á hana. Fljótlega kemur einhver gomsa af myndum til viðbótar.
    Ingi





    12.05.2008 at 09:49 #622696
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Jamm, það var líka alveg milljón að gera Reóinn út!
    Þú finnur myndir á vefsíðunni minni http://www.boreal.is/g/main.php
    amk í albúmunum "Rútuútgerð", "Reo Studebaker" og "Dr. Ulrich Münzer". Á heimasíðunni er ég líka búinn að skrá sögu Reosins að einhverju marki.
    Ingi





    10.05.2008 at 11:50 #622668
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Ég vil benda ykkur sem komin eru til vits og ára og hafið gaman af gamla dótinu, að á heimasíðu http://www.boreal.is
    undir "myndir", og síðan album: "Tæki, traktorar, tól, trukkar", – eru nokkrar myndasíður af misgömlum og -góðum tækjum.
    Ingi





    10.05.2008 at 09:49 #622804
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Prófaðu að leita á spjallsvæði undir t.d. iroq (efst í horninu vinstra megin á síðunni).
    Ingi





    09.05.2008 at 23:20 #622652
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Hálendingurinn var smíðaður upp á Selfossi fyrir nokkrum árum, hefur undan farna vetur verið skólabíll í Hrútafirðinum og notaður í hálendisferðir á sumrin. Þessir tveir Múkkar eiga það sameiginlegt að vera báðir tiltölulega rauðir.
    Ingi





    19.01.2008 at 08:26 #610306
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Ég legg til að:
    1) Þessi þráður sé héðan í frá helgaður miðjuferðinni sjálfri. Þetta er gagnmerk ferð rétt eins og allar ferðir, og það væri gaman að vita hvernig gengur og hverjir eru með í för.
    2) Umræða um vefnefndarmálefni fari yfir á þráðinn ALMENN SAMSKIPTI ‘A…….
    3) Að við höldum uppi merki félagsins og förum á fjöll! Það er mökksnjór víða og hið fallegasta veður a.m.k. hér sunnanlands.
    4) Málefnið verði tekið fyrir á fundi fljótlega.

    Ingi, farinn til fjalla.





    18.01.2008 at 22:49 #610684
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Svo ég leyfi mér án leyfis að copypeista obbann af orðsendingu vefnefndar. Minnir mig á söguna þar sem allir áttu að vera jafnir, en sumir jafnari en aðrir:

    Hvers kyns árásir, dónaskapur og ókurteisi í garð annara er með engu liðinn (sbr. 8. lið skilmála f4x4.is).

    Markmið spjallþráðanna er að hafa málefnalegar umræður þar sem virðing er borin fyrir öðrum spjallverjum. Ef menn fara út fyrir kurteisismörk mun vefnefnd veita viðvörun. Ef þeirri viðvörun verður ekki sinnt, er tímabundið lokað fyrir skrifaðgang viðkomandi að vefsíðunni. Ef viðkomandi lætur sér enn ekki segjast verður lokað fyrir aðganginn um lengri tíma.

    Vefnefnd tekur sér alræðisvald í þessu efni og ekki verður rökrætt um ákvarðanir hennar, heldur vísað til næsta aðalfundar klúbbsins um það efni. Hægt verður að senda póst á vefnefnd@f4x4.is ef senda þarf ábendingar um óviðunandi framkomu, eða ef menn vilja bæta ráð sitt og láta opna fyrir lokaðan aðgang.

    Og hafið það svo!
    Ingi





    18.01.2008 at 22:36 #610570
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Já,
    Mosfellsheiðin var rudd í gær.
    Ingi





    18.01.2008 at 21:39 #610566
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Nei,
    við nenntum ekki að draga Hlyn þangað uppeftir. Ekki gleyma hve stuttur hann er til hnésins, þess vegna var þetta svona djúpt á honum!
    En í hittiðfyrradag lentu flestir stefnuvirkir snorkelar í vandræðum í óskup temmilegri snjókomu, það stífluðust hreinlega loftsíurnar í hrönnum. Lausnin var að slá úr síunum, ræna sokkabuxum eða húfum eða lopasokkum af farþegum og bregða á göndulinn.
    Hafið þetta í huga ef þið ætlið að snorkla til fjalla í fannfergi.
    Ingi





    18.01.2008 at 21:29 #610674
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Þú ert ekki einn um þennan þankagang Baddi.
    Þeir sem halda um stjórnvölinn virðast hafa tekið sér alræðisvald til að útiloka heilbrigða umræðu og uppbyggjandi starfsemi innan klúbbsins okkar.
    Ekkert það sem er gert í nafni Ferðaklúbbsins 4×4 á að vera einkamál stjórnar eða starfsmanns klúbbsins.
    Sem félagsmaður fer ég fram á að stjórn/vefnefnd biðji Ellu afsökunar og opni fyrir aðgang hennar að vef 4×4. Ekkert sem hún skrifaði var meiðandi, dónalegt eða óviðeigandi.
    Aðgerðir gegn drífandi félagsmönnum sem hafa t.d. staðið fyrir innflutningi á jeppadóti á kostnaðarverði, eða þá ferðum fyrir óbreitta, – eru til þess eins að ala á sundrung og drepa niður vilja manna til góðra verka.

    Eða á að ráða fleiri starfsmenn til að vinna þessa vinnu?

    Ingi R2109
    (ef það er þá ekki búið að loka á mig, og Baldvin líka).





    18.01.2008 at 19:09 #610664
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Ég vil bara hvetja alla fjallamenn til að hafa dráttarmálin í lagi, -splæsa alla lausa enda og nota svona T – prófílbita eða annað það sem ekki þarf að þræða gegnum og hnýta. Jafnvel pelastikk hnútinn er djöfullegt að leysa sé vel tekið á og hnútarnir skemma og veikja tógið. Teygjuspottinn hreinlega bráðnar og límist saman í hnútnum.
    Það er helvíti aumt þegar menn biðja um drátt, -og það er bara ekkert til að krækja í.
    Ingi





    10.01.2008 at 23:08 #601090
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Var það ekki vegna þess Hlynur vinur að sumir drifu bara svolítið lítið!
    Á ég ekki annars óuppgerða spilaskuld við þig?
    Mig vantar reyndar bíl fyrir 46" mína. Maður fer víst lítið á dekkjunum einum?
    Ingi





    10.01.2008 at 20:25 #609824
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Þegar inn við Skjólkvíar er komin talsverð lausamjöll og ef þú getur þvælt þér þér upp einhverja brekkuna innan við Rauðuskál, t.d. upp gilslakka við 64.01.950-19.35.350 þá ertu kominn í talsverða lausamjöll með grjóthörðum snjó einhverns staðar undir. Það má vel finna leið gegnum hraunin þar fyrir norðan og austan. Allar brekkur eru þungar upp í móti.
    Ingi





    07.01.2008 at 23:06 #609400
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Þú ættir að hafa samband við Ara Arnórsson s-694 1974.
    Hann gæti eflaust komið með síðasta kaflann í ritgerðina þína.
    Ingi





    04.01.2008 at 22:04 #608968
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir,
    ég renndi rétt upp í jökulinn við Jaka í dag, og það er að gera alveg glerhart og fínt færi þarna neðan til a.m.k.
    Það verður væntanlega þrusufæri svo lengi sem frost helst.
    Ingi





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 257 total)
← 1 … 4 5 6 … 13 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.