Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.03.2009 at 08:03 #637824
Sælir félagar,
hópur 10 Boreal vill þakka þeim sem hafa lagt hönd á plóginn varðandi útreikning Miðjunnar, uppsetningu steinsins og alla aðra þá vinnu sem búið er að leggja af mörkum varðandi Miðjuna og Miðjuferðir. Þetta framtak er félagsskapnum til mikils sóma.
Bíðum spennt eftir næstu "miðjuferð", -verður það miður Langjökull eða Drangajökull eða…..?
Ingi
06.03.2009 at 09:30 #637810Fróðlegt væri að vita hvort eitthvert heildarskipulag er fyrir ferðina, aðeins hópur 1 var boðaður á kynningarfundinn! Eða er þetta keppni um hver verður fyrstur í Steininn? Hvernig hljóðar hinn opinberi gestalisti? Á 4×4 að leggja í púkkið svo að hægt verði að trekkja þyrlu í gang ef með þarf, eða verða dönsku herþoturnar til eftirlits? Hver er okkar forsvarsmaður í ferðinni, kunni að koma til samskipta við utan að komandi aðila, þannig að ekki séu allir að garga ofan í alla. Hvernig næst samband við hann?
Eða gildir bara "forvitinn má ekki vita"?
Ingi
06.03.2009 at 09:16 #637808Sælir,
Hópur 10 BOREAL notar ekki rás 53 heldur rás Boreal.
Í hópnum eru:91 Þorvarður Ingi Þorbjörnsson +1 44t Patrol hópsstjóri
34 Ástvaldur Óskarsson +1 Patrol 38t
96 Davíð Diego +1 LC. 90 38t
97 Finnur Stefánsson +1 Ford 49t
Erum hvorki í mat né gistingu í Hrauneyjum.
Ingi
05.03.2009 at 12:04 #637764Ekki málið Þröstur,
getum þess vegna bætt 105 bílum í hópinn.
Ég get hins vegar ekki boðið fleirum upp á gistingu, -og það er svo sem heldur ekkert "issjú".
Geturðu sent á mig Email addressu ykkar og símanúmer.
Ingi
05.03.2009 at 09:40 #637760Sælir félagar og vinir,
sem áður segir þá hefur hópur 10 Boreal sagt sig frá rás 53, og við eftirlátum ykkur að slást um gersemina.Og Eiki, ég finn örugglega förin eftir Finn á 49" Fordinum sem ég þorði ekki annað en að hafa með í hópnum!
Ingi
04.03.2009 at 09:48 #637728Sælir félagar,
Hópur 10 kallar sig Boreal og mun verða á einkarás Boreal (einnig Ísafoldarrás) þannig að 53 er laus.
Í hópnum eru:
Þorvarður Ingi + 1
Ástvaldur + 1
Davið Diego + 1
Finnur Stefánsson + 1Vil ég biðja GPS gúrúana um að fækka fyrir mig og aðra tölvufatlaða punktum í lágmarksfjölda, þannig að hægt sé að handslá inn kannski 10 punkta eða svo, þá sem máli skipta. Setja stutta lýsingu með þurfi að vara við einhverju sérstöku á leiðunum.
Einnig væri frábært að sjá þessa ferla á korti í stærð t.d. A4 sem hægt væri að prenta út á einhverju því formi sem gamall hugbúnaður ræður við.
Ingi
23.02.2009 at 23:59 #637634Einn alveg hóplaus 44+" Patrol, ásamt bílstjóra og kóara.
Færum gjarnan í nafni Samfarafélagsins og getum boðið litlum hópi (6 – 10 manns) gistingu t.d. á föstudagskvöldinu í kofa efst í Landssveit.Ingi
29.01.2009 at 09:11 #203673Sælir félagar,
ég ætla að deila með ykkur söngtexta sem vel er við hæfi að hafa í nýustu söngheftunum. Hann er mjög þjáll í munni og kitlar bragðkirtlana…
Textinn var soðinn saman fyrir eitt af þorrablótum Samfarafélagsins.ÞORRABRAGUR SAMFÓ Lag: Oft á haustin haldin eru héraðsmót.
Oft á Þorra haldin eru Þorrablót
í hópum sækja þangað bæði sveinn og snót.
Og allir éta mat á einhvern veg,
Ó, – nema ég.Troða þau í andlit á sér úldnum mat
sem einhver hafði óvart misst í vaskafat.
Og tyggja svo með gervitönnunum
Ó, -nema ég.Mér alltaf ill’ er við,
innmat, eistu og svið
Bringukolla, lundabagga og magál.
Svínasulta súr,
Svei, gimbrarpjás´ á túr
Kæstur hákarl, hangikjöt ja svei.Þorrablótin hverjum reynist þrautin ein
Sem þekkir ekk´ að naga eins og hundur bein.
En allir éta mat á einhvern veg,
Ó, – nema ég.Texti hálfstolinn og stílfærður,
Matti og Ingi
15.01.2009 at 10:10 #637352Sælir félagar,
ég vil heils hugar taka undir orð Braga, og vil hvetja okkur líka til að hafa titil auglýsinga með sama hætti, þ.e. láta þar koma fram hvað er verið að auglýsa. Það eykur áhrifamátt auglýsinganna og einfaldar leit lesendanna.
Dæmi: -Til sölu- , -Patról til sölu-.
Bestu kveðjur,
Ingi
01.01.2009 at 18:48 #635840Jamm,
og síðan kaupir maður 44" hjá þeim sem þeir hvorki felga né ballanssera, og er fyrir vikið á milli vita þegar hoppið byrjar, er það ballanseringin eða bara hoppudekk.
Oft fylgja dýrir bögglar skammrifjum.
Ingi
30.12.2008 at 22:09 #635706Sælir,
hef farið þetta nokkrum sinnum að hausti og einnig vetrarlagi. Slóðir, misgreinilegar, liggja bæði suður að Laka og eins að Fremri Eyrum frá austanverðum Langasjó. Er Skaftá þá farin fyrir innan Fögrufjöll, sem rennur ekki lengur í Langasjó heldur sunnan fjallanna. En sá sem allt um þetta veit er auðvitað GÓP, eða Gísli Ólafur Pétursson. Sjá heimasíðuna/ferlasíðuna hans.
Ingi
24.12.2008 at 12:47 #635300Viltu pls. útskýra nánar fyrir mér fávísum hvað Beadlock er að eyðileggja
Ingi
23.12.2008 at 22:32 #635322Takk fyrir þetta, þessi listi mætti vera auðfundnari fyrir fróðleiksfúsa á 4×4 síðunni, ekki satt?
Ingi
23.12.2008 at 22:24 #608622Sælir félagar,
orginal driflokurnar eru góður efniviður í fasta flansa, það þarf að hreinsa innan úr þeim og sjóða fast.
A.m.k. ef þið ætlið að henda þeim, hendið þá í mig.
Ingi
23.12.2008 at 10:53 #203403Sælir félagar,
hvar finn ég yfirlit yfir VHF rásir félagsins á f4x4 síðunni, annað en útbreiðslu endurvarpa. Mætti vera undir „fróðleikur“ í VHF útlistuninni?
Ingi
13.12.2008 at 22:59 #634678Í Skálpaneshrepp,
inn á Jakasvæðið á morgun.
Ingi
13.12.2008 at 21:02 #634674Heyrðu nú Hlynur
hvað sem á dynur
-hvað sem þú stynur
haltu þig á beddanum, vinur.
Ingi
13.12.2008 at 19:54 #203363Hvet ykkur félagar góðir til að nota góða veðrið til fjallakreppuferða, -fullt af lausasnjó, krapi í lægðum, flott sleðafæri, -krefjandi kreppujeppafæri.
Góðar festur,
Ingi
05.12.2008 at 21:43 #634248Sælir félagar,
mín reynsla hefur verið sú á Patrol að DC 44" er fín í akstri á 22 pundunum og ég hef aldrei mælt minni/meiri eyðslu heldur en með meiri þrýsting, -þó mæli ég oft og keyri allnokkuð. Standi bíllinn meir en yfir nótt þá ferkantast dekkin, og því fer ég almennt í 24 – 25 pund. Helgi Brjótur gæti verið að keyra á Súper Svamper sem eru eitthvað stífari dekk, og leyfir sér því eitthvað lægri þrýsting, -ekki satt Helgi?
Kveðja,
Ingi
29.11.2008 at 08:43 #633536Ekki yfir háveturinn held ég, nema það séu hópar á ferðinni. En það er opið inn í anddyrið!
Ingi
-
AuthorReplies