Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.01.2012 at 08:18 #695054
Sælir félagar,
það að loftþrýstingur í dekkjum aukist með aukinni hæð yfir sjávarmáli, væntanlega er málið það að loftþyngdin eða loftþrýstingur andrúmsloftsins minnkar með aukinni hæð og þ.a.l. breytist hlutfallslegur þrýstingur. Dekkið þenst út "eins og blaðra". En hvernig er þá með loftþrýstimæla sem eru inni í dekkinu og verða ekki fyrir beinum áhrifum frá loftþrýstingi andrúmsloftsins, breytist þrýstingur þar í dekknum við hæðarbreytingu, ef ekki er í myndinni hitabreyting?
Ha???Ingi
11.01.2012 at 21:30 #746655Þakka góða grein, mætti ekki bara senda hana til birtingar í einhverju Morgunfréttablaðinu?
Ingi
29.12.2011 at 08:52 #745055Takk fyrir póstinn!
Skil og skil ekki, þetta er reyndar meiri og skemmtilegri pæling en ég ætlaði.
Lengdarbaugarnir eru trúlega 24 og hver 60 mínútur að "breidd"? Sem stemmir þó varla því Island liggur 19 – 21 gráðu vestur, þ.e. vestan Greenwich sem er o gráður.Breiddarbaugarnir eru 2 x 90 og allir jafn háir, pólarnir eru þá 90 gráður norður og suður.
Sem sé, kerfið byggir á gráðum, minútum og sekúndum upp á einn aukastaf.Og veit einhver hvernig breytt er yfir í landmælingakerfi og öfugt, heitir trúlega Ínet.
Eru einhverns staðar loftmyndir á netinu þar sem hægt er að setja inn hnit og ferla?Ingi
28.12.2011 at 22:44 #221813Félagar góðir,
vinsamlegast fræðið ófróðan á hvaða einingum GPS hnitin sem við notum helst eru byggð, t.a.m. 64 00.000
Hvernig er hægt að færa það ínn í landmælingakerfið sem annars er notað hér?Ingi
28.12.2011 at 22:40 #745047Jú, þungur snjór í slóðinni, flestir lækir klammaðir og oft betra að fara út fyrir "vaðið" til að fara á haldi. Hafa með járnkarl og skóflu, kanna vel ísinn!
Ingi
24.12.2011 at 14:38 #744583Ég vil þakka ötulum baráttumanni fyrir ferðafrelsi góða og gagnmerka grein.
Sakna þess að sjá ekki umfjöllun um Hvítbókina og andmæli við henni í fjölmiðlum. Mæli með að stjórn 4×4 birti drög úr andmælunum t.a.m. í Fréttablaðinu, eina stutta grein á viku eða svo! Gaman væri að sjá lista yfir þá sem sendu inn andmæli, Jeppavinir voru a.m.k. þar á meðal.
Ferðafrelsið lifi!!!Ingi
10.12.2011 at 22:00 #743823Þakka þér afbragðs góða grein, -og áfram með smjörið félagar góðir!
Ingi
27.11.2011 at 21:29 #742373Félagar góðir,
þetta er með því ljótasta sem maður hefur séð síðustu áratugina. Sömu eða álíka villtir virðast hafa farið um Þúsundvatnaleið á Hellisheiði núna í enda vikunnar/byrjun helgarinnar, þar hafa einhverjir ótýndir þrjótar böðlast beint yfir mýrarfláka og skilið eftir sig verulega ljót sár hvað ég heyrði frá félögum mínum í bransanum. Ferðaþjónustan svo og allir 4×4 félagar hljóta að fordæma slíkan akstur, sem þó því miður kemur óorði á alla ferðalanga.Ingi
30.10.2011 at 12:34 #740389Góðir félagar, ég vil byrja á að þakka útgáfu þessa mikla og góða blaðs í nafni ferðafrelsis.
Hins vegar furða ég mig á hvernig aðilar hér vilja stilla upp ferðaþjónustunni í heild sinni sem einhverjum andstæðum pól við það sem 4×4 er að berjast fyrir. Vissulega hafa einhverjir aðilar innan ferðaþjónustunnar barist fyrir brúm og bættum vegum, rétt eins og aðrir berjast fyrir óbrúuðum ám og illfærum vegum til að verja landssvæði of miklu álagi ferðamanna.
Við erum líka ferðamenn í eigin landi, því skal ekki gleyma, -og viljum líka eiga vegi illfæra öðrum en fullbreyttum jeppum sem þá takmarkar sjálfkrafa álagið og uppfyllir ævintýraþrá þeirra sem leita krefjandi leiða. Viljum við virkilega loka hálendinu nema fuglinum fljúgandi og þeim fáu fótsterku sem hætta sér inn á öræfin. Eða hversu margir skyldu hafa t.a.m. gengið Vonarskarð – Jökulheima í sumar?
Ferðaþjónustan er komin til að vera og skilar verulegum gjaldeyri í þjóðarbúið og Bændagisting eins og t.d. á Stóru-Mörk er væntanlega búbót á tímum samdráttar í hefðbundnum landbúnaði.
Vegna áróðurs innan raða 4×4 og af hálfu ferðaþjónustunnar og fleiri aðila heyra landskemmdir vegna utanvegaakstur nánast sögunni til. Við skulum einmitt taka höndum saman og viðhalda þeim vegum sem þegar eru til, þannig þurfum við ekkert að rekast of mikið hver á annan og dreifum álaginu á landið. Að við og okkar afkomendur geti áfram fundið fyrir fyrir einsemd á fjöllum. Rétt eins og það vilja ekki allir arka "Laugaveginn" þá vilja ekki allir aka bara Laugaveginn.Ingi
01.08.2011 at 08:03 #734055Undirritaður biðst forláts á því hve lengi hefur dregist að svara að einhverju leiti pósti hins mæta manns Árna Alfreðssonar. Hef ég víst verið upptekinn við að " vaða um landið á skítugum skónum án nokkurra takmarkana".
Ég tek ofan fyrir þeim sem ruddu vegi um landið á sínum tíma, svo sem upp Skógaheiði og upp Hamragarðaheiði, að Langjökli við Jaka og Skálpanes. Þar sem vegur var ruddur að jökli eða vegslóðar liggja þarf að sjálfsögðu að lengja viðkomandi spotta þegar jökullinn hopar. Það er ekki krafa okkar Jeppavina sem ég er í forsvari fyrir að lagðir séu uppbyggðir heils árs vegir um hálendið, heldur er það ósk okkar að helstu ferðamannavegum sé þannig viðhaldið að þeir séu superjeppafærir helst allt árið um kring, þ.e. að vegstæðið sé sléttfyllt þannig að ekki sitji í því snjór, vatn og drulla. Hæfilega vondur vegur takmarkar umferðina um svæðin!
Að mínu mati á utanvegaakstur sér helst stað þar sem vegir eru illfærir, og vil ég taka Landmannalaugasvæðið sem dæmi, þar voru jeppar á mjóum dekkjum (væntanlega þá bílaleigubílar) farnir að reyna við Sigölduleiðina löngu áður en við í ferðaþjónustunni töldum reynandi við hana vegna aurbleytu. Þannig voru í sumarbyrjun mjög áberandi mjó og djúp hjólför fram hjá öllum pollum og sköflum og forarvilpum. Auðveldasta og ódýrasta og rökréttasta leiðin til að koma í veg fyrir þetta eru vegabætur og opna síðan leiðirnar áður en bílaleigubílarnir fara á kreik! Það þarf svo lítið til að það er bara ekki fyndið! Ég hef áður vikið að því í póstum að oft er hægt að loka þessum mjóu hjólförum með því að keyra yfir þau á hæfilega þungum jeppum á stórum dekkjum og hef ég stundað það þó nokkuð á þessu svæði.
Lokanir og takmarkanir á akstri okkar um valda vegi svo sem innan Vatnajökulsþjóðgarðs tel ég ekki fært að virða. Utanvegaakstur hefur ekki verið og mun ekki verða vandamál svo lengi sem við ökum þær leiðir sem þegar eru til!Jeppavinir hafa kosið að vinna að þessum málum í samstarfi við 4×4 og teljum að báðir hafi hag af. Persónulega tel ég vera tímabært að setja upp lokunarskilti við valda hálendisvegi þar sem segir: "Super Jeep only" eða eitthvað í þá veruna. Það að hræra upp drulluna í ónýtu vegstæði skemmir ekki veginn, -þótt við séum ekki alveg heilagir og skiljum stöku sinni eftir okkur för sem hefðu mátt missa sig þá er utanvegaakstur félaga í 4×4 og Jeppavina ekki vandamál í dag heldur undantekning!
Baráttukveðjur,
Ingi
10.07.2011 at 23:18 #733403Jæja Árni minn,
mig langar til að þakka þér svona almennt séð greinagóð svör og góðar greinar!
En heldurðu virkilega að þjóðin myndi lifa lengi á að þvo beljurassa og rýja rollur?
Það er nú einu sinni svo að ferðaþjónusta telst vera í þríðja sæti á eftir fiskútflutningi og stóriðju í gjaldeyrisöflun, -ef þá ekki í öðru sætinu. Helmingur tekna ferðaþjónustunnar kemur í júní-júlí-ágúst þannig að hætt er við að þetta hlaup komi við kaunin á ferðaþjónustufyrirtækjum vítt og breitt um landið. Er varla á hörmungarnar bætandi þarna sunnan lands eftir Eyjafjallajökulinn, auk þess sem talsvert var um afbókanir við Grímsvatnagosið.
Hvernig sem fer þá þarf að byggja nýja brú og það er hægt að lágmarka skaðann með því að spýta í lófana.
Árni bókhaldsbesserwisser Alferðsson fræðir kannski fávísan um hvaða atvinnugrein er þá þekkt fyrir að borga skatta og skyldur, fyrst að ferðaþjónustan er þekkt fyrir hið gagnstæða!Ingi óborganlegi
30.06.2011 at 21:01 #732511Jú, vissulega á ég trakkið, en hef ekki vit til að koma því frá mér úr GPSinu.
En, þetta er sú slóð sem liggur hvað næst jökulgarðinum að vestanverðu eftir að farið er yfir lænuna inni í lónsstæðinu. Slóð þessi liggur framhjá jökulkerjum og hefur reynst mjög traust. Hægt er að fara lang leiðina undir klettana sem hafa verið að koma undan jökli á allra síðustu árum. Síðan hægt að stikla yfir lænu sem kemur þarna úr gilkjaftinum, eða þá oftast nær hægt að ganga niður fyrir lænuna þar sem henni svelgist á til að komast að jökulsporðinum. Svæðið þar fyrir innan er æði "gloppótt".Ingi
[quote="rabbimj":1cdwhm19]Sæll Þorvarður
Áttu trackið af þessari leið sem þú hefur farið að gosstöðvunum? Er nefnilega mögulega að fara með útlendinga þarna uppeftir næstu helgi ef veður leyfir.
mbk
Rafn Magnús Jónsson[/quote:1cdwhm19]
24.06.2011 at 07:49 #732497Sælinú,
ég hef verið talsvert þarna á ferðinni eftir gos, og það hafa verið að myndast smá lón og hverfa aftur, með mjög mismunandi vatnshæð. Jökullinn hopar grimmt og undir hraukunum liggja jökulleifarnar. Ég hef "séð" landspildu hrapa niður á nokkrum dögum um c.a. 10 metra þarna neðan við jökulinn þar sem jökuláin hverfur oftast nær ofan í svelg.
Við í ferðaþjónustunni höfum notað örugga slóð inn með jökulgarðinum að vestanverðu, slóð sem hefur verið nógu ógreinileg til að sjást ekki í fjarska. Einn daginn var þarna kominn fjöldi óábyrgra í hópferð að því er virtist, og keyrði hreinlega út um allt. Nú hefur myndast leiðinlega áberandi slóð inn mitt lónsstæðið, sýnir kannski kosti þess að stika svona svæði! En, -skv. kortum erum við að aka á 100m dýpi í Gígjökulslóni!Ingi
22.06.2011 at 18:57 #732435Já, íslaust og mjög hátt í því.
Veiðimenn byrjaðir að kasta…Ingi
22.06.2011 at 08:01 #219518Félagar,
Búið er að hefla inn í Laugar frá Sigöldu og stynga í gegnum skaflinn sem hvað lengst stóð í Vegagerðinni, um bíllengdar langur og rúmlega meters þykkur skafl utan í Stútnum, gígnum austan við Frostastaðahálsinn. Það hvað þessu var lengi frestað hefur valdið mesta og ljóstasta utanvegarakstri á svæðinu sem ég hef séð. Í flestum tilfella hafa jeppar á mjóum dekkjum skorið landið við að fara eða reyna að fara framhjá sköflum og pollum og forarvilpum. Þetta er mest áberandi neðan við Hnausapoll og vestan við Frostastaðaháls, en einnig við Sigölduna og einbúa þann sem er mitt á milli Sigöldu og Bjallavaðs. Þessum sárum má að nokkru loka með því að keyra með þungum bíl á stórum dekkjum með fínu munstri í sömu förin. Ég hef átt leið þarna um síðustu tvo daga með ferðamenn og prófað þetta aðeins, rétt eins og ég gerði oftlega í fyrra. Spurning hvort ég fái þá á mig kæru fyrir utanvegarakstur?Þarna bráðliggur á að taka til hendinni til að loka ljótum sárum og til að koma í veg fyrir frekara tjón og frekari utanvegarakstur. Hvet ég félaga sem leið eiga þarna hjá og e.t.v. smá tíma aflögu að hafa hrífuna góðu með í för og leggja landinu lið. Ekki veit ég hvort prófað hefur verið að slóðadraga hjólför sem liggja um sanda og vikra en það væri vel reynandi.
Það er augljóst að óábyrgir ökumenn óbreyttra bílaleigubíla fara inn á þessa vegi og þessi svæði mun fyrr en opnanir vega gefa tilefni til og mun fyrr en við ábyrgir félagar leyfum okkur og ætti það eitt að vera áhyggjuefni. Við félagarnir sitjum aftur uppi með skömmina. Það að setja ekki efni í verstu vilpurnar og koma vegstæðinu upp úr drullunni, pollunum og sköflunum og opna leiðirnar á skynsamlegum tíma býður á hverju vori hættunni heim.Við skulu ekki láta Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra þurfa að éta ofan í sig orðin um „15-30% minni utanvegarakstur árið 2010 frá fyrra ári skv. tölum frá landvörðum og lögreglustjóraembættum“. Það sem hins vegar mætti kynna fyrir henni er að hvað orginal íslenskan utanvegarakstur snertir þá hefur hann að mestu orðið ósýnilegur fyrir tilstilli 4×4, vegna ferlunar og stikunar vega, kynningar og áróðurs, svo og lagfæringum á ljótum hjólförum.
Dómadalsháls er ófær vegna skaflsins góða, -og að auki stendur vatn í öllum dalnum sem gæti tafið þó nokkuð að leiðin opnist nema hefluð verði ný leið ofan vatnsins.
Hef engar aðrar fréttir af Kaldadal en að hann sé þurr, nema norðan til þar sem ennþá liggi snjór í veginum. Þetta er þó birt án fullvissu um ástandið vegarins.
Kvikmyndaverkefni er að fara í gang við Dómadalsleið innan við Valafell, en ég held að það muni ekki trufla umferð.
Ingi
11.06.2011 at 08:33 #731605Félagar,
að mínu mati lauk þessum mikla utanvegaakstri jeppa og íslenskra jeppabílstjóra fyrir margt löngu, -jafn vel fyrir áratug eða -tugum eða svo að mestu leiti. Hvað íslendinginn snertir er það mest að þakka starfi félagsskapar sem í samantekt Umhverfisstofnunar virðist hvergi vera minnst á, Ferðaklúbbsins 4×4. Nánast allar myndir yfirvaldsins eru af gömlum og sígildum dæmum um mistök bílstjóra sem sáu oft ekki fyrir um afleiðingarnar. Með tilkomu breiðu dekkjanna lauk þessari skurðagerð og sé varlega farið skiljum við alls engin ummerki eftir okkur, en getum notað jeppana til að loka mörgum þeim skurðum sem ökumenn bílaleigubíla skilja eftir sig, er þeir aka fram hjá pollinum eða skaflinum á lokaða veginum sem við almenn forðumst að aka á þessum árstíma, þó svo að við flest höfum til þess þroska að aka ekki utan vegstæðisins. Með ferlun vega og stikun er okkur næsta auðvelt að fylgja vegum landsins.
Kannski er komið að því að setja upp skilti þar sem segir "Super Jeep Only" á þá vegi sem almennt eru viðkvæmir eða þola ekki umferð þessarra óbreyttu bílaleigubíla, sumir hverjir með bílstjóra undir stýri sem hika ekki við að taka nokkra hringi utan vega, -af því að það er svo gaman eða bara eitthvað.
Ljóst er að við erum mörgum skrefum á undan Umhverfisstofnun í þessum efnum, -erum brautryðjendur, og það er ótrúlegt að fara skuli fram vinna tengd vegaflokkun utan alfaraleiða svo og varðandi utanvegaakstri, án náins samstarfs og samráðs við þá sem málið mest snertir, Ferðaklúbbinn 4×4 og ferðaþjónustuna.Ingi
15.05.2011 at 10:04 #730235Sælir félagar,
annars vegar er hér frétt úr Sunnlesnka.is
http://www.sunnlenska.is/frettir/6560.html
hins vegar efni af bloggsíðu Sigurðar Sigurðarsonar http://sigsig.blog.is/blog/sigsig/entry/1166671/Enn lokað fyrir umferð upp að Fimmvörðuhálsi
13.05.2011 13:40
Leturstærð:
Skógaheiði. Baldvinsskáli á miðri mynd. sunnlenska.is/Guðmundur Karl „Sú lausn sem við höfðum hugsað okkur gengur ekki upp,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri í Rangárþingi eystra. Sveitarstjórn hyggst falla frá tillögu um nýtt vegstæði upp á Fimmvörðuháls frá Skógum eftir að sumarhúsaeigendur mótmæltu fyrirhugðum framkvæmdum.Ábúendur í Skógum hafa lokað fyrir umferð um bæjarhlaðið vegna álags sem þar hefur skapast. Á meðan er núverandi vegur inn að Baldvinsskála lokaður.
Sigurbjarni Sveinsson á Hvolsvelli sem rekur fyrirtækið South Iceland Adventure segir að 90% allra fyrirspurna um ferðir komi frá erlendum ferðamönnum sem vilja komast í nánd við eldstöðvarnar. „Þetta er okkar gullnáma sem er algerlega vannýtt,“ segir hann.
Sex milljónum hefur verið úthlutað úr styrkvegasjóði í nýtt vegstæði og segir Ísólfur Gylfi að í bígerð sé að finna það.
Bloggsíða Sigurðar Sig;
Friðum Fimmvörðuháls fyrir bílaumferð
14.5.2011 | 09:37Vegurinn upp á Fimmvörðuháls hefur verið afskaplega slæmur undanfarin ár. Honum hefur ekki verið viðhaldið á eins og öðrum fjallvegum. Og til hvers á að hafa veg upp á Hálsinn? Hann á einfaldlega að vera lokaður nema fyrir lögreglu og björgunarsveitum.
Þeir sem áhuga hafa á að fara á Fimmvörðuháls eiga að ganga. Gönguleiðin er frábær og einstaklega falleg. Þeir sem vilja fara hraðar yfir geta sleppt því að gagna fossaleiðina með Skógá og farið eftir veginum.
Gönguleiðin frá Básum, um Strákagil, Kattahryggi, Foldu, Morinsheiði og Bröttufönn er líka stórkostleg og hún er styttri en að vísu nokkuð erfiðari.
Fimmvörðuháls á að friða fyrir bílaumferð. Svo einfalt og ágætt er það.
Lokað fyrir umferð að Fimmvörðuhálsi
Ábyrgðarmaður færslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook« Síðasta færsla
Athugasemdir
Augnablik… Vakta athugasemdir Þú ert að vakta athugasemdir við þessa færslu. Hætta að vakta
1Sæll Sigurður, tek undir málþitt. En veist þú hvað þetta borgmyndaða fjall hét, áður en farið var að kalla það Morinsheiði ?
Hrólfur Þ Hraundal, 14.5.2011 kl. 11:12
.2Takk staf þinn og gakk!
Vissulega væri það frábært ef Sigurður gæti komið þeim sem ekki geta gengið eða ekki vilja ganga, til að skakklappast upp á Fimmvörðuháls. En það er bara ekki á allra færi!
Vegurinn frá Skógum er hvorki betri né verri en hann hefur verið, en er ákaflega leiðinleg gönguleið og mér óskiljanlegt að göngufólk skuli endilega velja hann í stað þess að halda aðskilnaði við vélknúna umferð.
Einhver ljótari náttúruspjöll seinni tíma (fyrir utan Suðurstrandarveginn nýja frá Selvogi og vestur úr) er einmitt á gönguleiðinni upp á Fimmvörðuháls frá Básum. Það væri búið að loka leiðinni, kæra viðkomandi og sekta ef skurðirnir væru eftir vélknúna umferð.
Virðum rétt ALLRA til að ferðast um landið okkar góða, og vinnum að því að gera það í sátt og samlyndi.
Ingi
Þorvarður I Þorbjörnsson, 15.5.2011 kl. 08:39
.
29.04.2011 at 08:09 #729225Bragabót,
Ingi
20.04.2011 at 01:23 #700640Félagar,
á meðan við bíðum fullir eftirvæntingar þess að hægt verði að hlaða sprungukortunum inn í algengustu bílatækin, -þ.e. bátatækin, þá langar mig að benda á loftmyndir af Eyjafjallajökli teknar sl. sumar inni á ja.is undir kortagrunnur og loftmyndir, þarna er hægt að súmma inn og hægri smella til að fá hnit ofl. Alveg frábært til að velja sér leið eftir loftmynd, hvort sem farið er að sumri eða vetri.
http://ja.is/kort/#x=500000&y=500000&z=0&type=aerial
Með því að summa í botn sér maður hjólför eftir jeppana og getur því áætlað breidd sprungna eftir því. Fann þarna slóð eftir mig frá 17. júní 2010 og m.a.s.skóförin mín upp að öskjubarminum.
Þetta er svo flott að helst mætti halda að rússarnir hefðu tekið loftmyndina. Er þá hvergi hægt að fara huldu höfði lengur???Ingi
12.04.2011 at 23:57 #725869Hef grun um og hef heyrt og hef fyrir satt að þið ættuð helst að spyrja Helga brjót hvernig færðin hafi verið í Laugar.
Ingi
-
AuthorReplies