FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Profile picture of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 9 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 17 replies - 241 through 257 (of 257 total)
← 1 … 12 13
  • Author
    Replies
  • 06.12.2005 at 21:18 #534798
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Mér líst eiginlega ekkert á að hafa landsmiðjuna norðan jökla. Hvernig væri að vinna þetta í hina áttina, ákveða miðjuna fyrirfram, t.d. gott vörðustæði við Setrið, og reikna okkur svo þangað!!!
    Ingi





    04.12.2005 at 17:38 #534762
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Kíkið endilega á visindavefur.is og farið t.d. á "miðja íslands" og "leita".
    Þar kemur fram að miðjan landfræðilega er uþb. á 18.9°V og 64.6°N, 118,3 km frá sjó. Fróðlegt væri að fá þetta enn nákvæmar útreiknað. Getur verið að þetta sé í öðru hnitakerfi en við notum, á mínu korti er þetta inni á jökli en á teikningu vísindavefsins er þetta sunnan Hofsjökuls og skv. Skúla þá er þetta rétt suðaustan Blautukvíslarjökuls. í Jökulkrika milli Söðulsfells og Ólafsfells.
    Tökum veglega á þessu máli og reisum okkur bautastein!
    Ingi





    03.12.2005 at 18:08 #534690
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Einhvern tíman einhverns staðar las ég eða heyrði að landfræðileg miðja landsins, og þá miðað út frá útlínum þess væri undir Hofsjökli, trúlega milli Seturs og Kerlingarfjalla. Full ástæða væri til að grafa upp nokkuð nákvæmt hnit yfir stað þennan og hlaða þar MYNDARLEGA vörðu, nú eða þá snjókarl ef þetta er uppi á jökli. Verðugt verkefni fyrir 4×4, sérlega ef ekki má lengur stika fjallvegi. Slík framkvæmd þyrfti væntanlega að fara í umhverfismat???, ha?
    Ingi





    26.11.2005 at 19:55 #534076
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Fín færð upp á Bláfellsháls í dag (laugardag)þ.e. sunnanfrá, nema þú sért að fara á rjúpu. Held að það sé alveg búið að stráfella allt kvikt þarna. Þungt yrði fyrir þig á þungum bíl upp á Skálpanesið en þekki ekki færi áfram norður Kjöl, ætti að vera o.k. amk. niður að Hvítárvatni.
    Ingi





    07.11.2005 at 10:39 #531530
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Ég á handa þér nýleg 38" GH á felgum.
    Ingi 864 6489





    07.11.2005 at 10:37 #531484
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Gott væri að fá reynslusögur snorkelmanna. Klammar fyrir snorkelinn í skafbylsofankomuslydduskít, eða á snjórinn svo greiða leið inn að hann stífli síuna eftir sem áður?
    Er reynar á leiðinni með að saga gat á síuhúsið, -það má þá alltaf loka því aftur…
    Ingi





    06.11.2005 at 07:47 #196588
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir félagar,
    haldið þið ekki að ég hafi verið á mínum fína Patrol 2001 í skafbyl á Langjökli og hann bara dó. Loftsían kjaftfull og meira en það,- ég var ekki einu sinni á keyrslu heldur snéri bara snoppunni upp í vindinn. Algjörlega óþolandi!!!
    Á mínum gamla ´98 Pat hafði ég sagað gat fram úr síuhúsinu og lokaði hinu inntakinu og lenti eftir það ekki í brasi með þetta. Hins vegar þá gat ég auðvitað ekkert kafað dýpra í vatn en áður. Með snorkel er maður jú nokkuð öruggur í vatni,— en hvað með snjóinn. Er snorkel alveg vandamálafrír í snjó, hver er reynsla snorkelmanna.
    Ingi





    16.10.2005 at 20:51 #529462
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Það er nú einfaldlega þannig, ferðamenn góðir, að ef ekki fyrir frumkvæði Valda Víbon á þeim tíma hjá ‘Islenkum ævintýraferðum að mig minnir,- , þá væri einfaldlega enginn uppbyggður vegur frá Bláfellshálsi á Skálpanesið, og enginn ruddur slóði þaðan að jökli. Sem sé, við hefðum ekki þennan aðgang að Langjökli sem við höfum nú. Sama gildir um aðkomuna að jöklinum við Jaka, þó svo sá vegur hafi eflaust verið byggður fyrir almannafé þá var það aðeins fyrir atbeina þeirra sem gerðu út á jökulinn. Því er kannski í lagi að taka tillit til þeirra sem eru að vinna þarna flesta daga, -svo koma jepparnir um helgar aðallega og grafa sínar grafir. Ekki algilt auðvitað, -og ég bist forláts fyrir hönd þeirra sleðagæda sem fúlir eru orðnir, þetta er bara svo andskoti lýjandi að þurfa að kljást við hjól- og spólförin með sleðatúristana þegar þannig til háttar.
    Varðandi skemmdir á Kjalvegi að Bláfellshálsi, -ég sé bara ekki muninn á því hversu oft maður hrærir í sömu drullunni. Það sem skiptir máli er að vegurinn sé heflaður svona rétt þegar hann er að verða þurr. ‘Eg er hættur að trúa á lokun vega vegna aurbleytu, held að það sé bara betra að hræra svolítið upp í þeim og sökkva grjótinu.
    Ingi





    16.10.2005 at 11:20 #196464
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir félagar,
    Þeir sem gera út á vélsleðaferðir með túrista kvarta sáran undan því að jeppabílstjórarnir aki iðulega sleðaleiðirnar sem reynt er að halda úti fyrir þennan rekstur. Ef snjóalög eru mjúk þá myndast djúp hjólför og liðið sem er oftast að fara í sína fyrstu (og jafnvel síðustu) sleðaferð veltir gjarnan sleðunum við að lenda í þessum hjólförum, með tilheyrandi tjónum og töfum. Eruð þið virkilega svo aum að geta ekki farið ykkar eigin leiðir,- eða er ekki nóg pláss á jöklunum? Þurfi að fara yfir þessar sleðaslóðir þá endilega farið sem þverast á þær, og hið sama gildir reyndar um hundasleðaslóðirnar.
    Frá skálanum í Skálpanesi liggur um 2ja km. langur vegspotti niður að Suðurjökli, í eigu Afþreyingarfélagsins það ég best veit og notaður m.a. til að koma sleðaliðinu á jökul þegar lítill snjór er. Því má vel skilja gremju veghaldarans ef vegurinn er útspólaður og ónothæfur fyrir sleðatúristana. Jeppabílstjórar, vinsamlegast sýnið tillitsemi!
    Þess fyrir utan þá er ekki mikill snjór á Suðurjökli og stutt ofan á svelgina sem bíða eftir að svelgja í sig jeppana…- endilega hafið samband við sleðagædana í Skálpanesi ef þið eigið leið hjá. Þeir vilja gjarnan leiðbeina ykkur með hvar best er að fara.
    Ingi





    12.10.2005 at 08:10 #529062
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Ef þú á annað borð ætlar að fá þér rafmagnsdælu veldu þá dælu sambærilega að stærð og gerð og Fini dæluna. Þetta er dæla sem dugir þér e.t.v. það sem eftir er???… , líka þegar þú færð þér stóra jéppann. Ekki svekkja þig á því að kaupa lítið Rúmfatalagersgargan, fáðu þér þá heldur handdælu (og þá helst þessa gömlu, góðu, rússnesku), þú ert jafn lengi að dæla með henni og hún heldur þó á þér hita á meðan.
    Ingi





    08.10.2005 at 21:52 #528948
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Úff, andsk. er þetta dót dýrt. Ætli ending og gæði séu þau sömu hjá öllum? Ljónin hljóta líka að hafa smíðað eitthvað?
    Ingi





    08.10.2005 at 09:11 #196421
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir félagar, vitið þið hvaða milligírar eru í boði í Pat 2001, hvar þeir fást og hvað þeir kosta, kostir og gallar.
    Ingi





    07.10.2005 at 20:37 #528902
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Kíki á þig eftir helgi, get svosum skilið afstöðu stjórnarinnar á stundum. Hins vegar finnst mér í lagi að svara beinum spurningum á vefnum.
    Ingi





    07.10.2005 at 20:26 #528930
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    ‘I fyrradag fór ég um Dómadal í Laugar og til baka um Sigöldu, varla snjóarða nema í niðurgröfnu slóðunum. Hvergi þó til trafala, en þetta segir okkur að það þarf að fara að skila til baka öllu efninu sem hefur rykast úr vegunum svo ekki sé ekið utan vega við svona aðstæður.
    Ingi





    07.10.2005 at 00:08 #528898
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Værir þú ekki til í að segja okkur hvað þessi dekk heita og allt um það þannig að hægt sé að finna þau án þess að leita þurfi í öllum bunkanum. Hvað þau kosti og hvenær þessi væntanlegu komi og á hvaða verði.
    Ingi





    06.10.2005 at 08:13 #196408
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Spurning til Reisenhus,
    eru að koma ný ca. 40″ x 15 radialdekk?
    hvað er með 42″ x 15 diagonal?
    Er fleira á döfinni?
    Áttu myndir og öll mál til að setja á vefinn?
    Ingi





    29.09.2005 at 23:48 #528210
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Fyrir hönd okkar þeirra sem starfa við ferðaþjónustu og notum VHF sem leiðsögukerfi milli bíla, þá vil ég geta þess að aðeins er farið inn á þessa opnu rás 45 eða hinar 4×4 rásirnar þegar rásir viðkomandi afþreyingarfyrirtækja eru þegar í notkun. Flest okkar eru einnig hobbyferðamenn og félagar í 4×4 og erum því með 4×4 rásirnar inni. Ekki er verið að leiðsegja um endurvarpa, og ætti því enginn aukakostnaður að falla á klúbbinn hvað það snertir. Lausnin á þessu er greinilega að úthluta fleiri rásum til afþreyingarfyrirtækjanna, svo og fleiri opnum rásum. Kannski að stjórnin komi þessu áleiðis til Póst- og fjar…
    Ingi





  • Author
    Replies
Viewing 17 replies - 241 through 257 (of 257 total)
← 1 … 12 13

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.