Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.09.2006 at 18:50 #560354
Í augnablikinu er alveg fljúgandi hált upp að snjólínu, keðjufæri og ríflega það. En sæmilegt færi á toppnum já.
Ingi
20.09.2006 at 18:46 #559378Hafið þið nokkuð pælt í því hvað "innifalið" er í t.d. olíuverðinu hjá Esso? Ég tankaði áðan, olíulíterinn á 118.90. Síðan þvoði ég bílinn, ryksugaði og pumpaði í dekkin. Á sama tíma er líterinn hjá ÓB á 117.70 en engin viðlíka þjónusta í boði.
Ekki veit ég hvað bauninn býður upp á hvað slíkt snertir, en mér finnst króna og tuttugu per lítra bara sanngjarnt fyrir að þrífa og pumpa,-óháð því reyndar hvar ég tanka.Ingi
17.09.2006 at 22:12 #560512Nei Freyr, ég var ekki að skipta um bíl. Og ég veit svosum að það er ekki heil brú í þessum hugsunum mínum. En það ku bara allt vera til í henni Ameríku og ef það væri hægt að ná einhverju út úr þessari vél án teljandi eyðsluaukningar, -hvað þá V10 vélinni, þá væri það bara spennandi. Það er ekki svo auðvelt að finna góðan 7.3 diesel Econoline!!!
Hvað er annars að "stróka". Ég kannast bara við að strokka og strjúka og strekkja. Er ég heitur?
Ingi
17.09.2006 at 21:08 #560506Takk fyrir þetta Óskar, ætla að lesa í gegnum þetta.
Í gamla daga þá datt mér nú helst í hug að setja hárþurrku við Landrover dísilvélina sem ég illu heilli setti í rússaeppann minn. Og heldurðu ekki að ég hafi séð svipaða útfærslu í leit minni á netinu um daginn, -rafmótor settur inn í barkann að soggrein!
Kannski er þetta bara lausnin!!!Ingi
17.09.2006 at 19:18 #198562Sælir félagar,
þekkið þið til þess að hægt sé að tjúna upp V8 5.4L bensínvél t.d. í Econoline af einhverju viti. T.d. að hækka togið og sérlega þá á lægra snúningssviðinu. Hef bara fundið aðferðir sem auka hestöfl við tiltölulega mikinn snúning með opnara pústi, opnari síu og tölvukubbi. Ef einhver hefur grúskað í þessu……..Ingi
17.09.2006 at 19:02 #560474Já, ég þakka "Klakanum"hlý orð í minn garð. ‘Eg hélt reyndar sem snöggvast að ég væri dauður að lesa minningargrein um sjálfan mig, svo mjög var ég mærður!
En mig langar líka til að hnykkja á þeirri skoðun minni að tímabært sé að verða að 4×4 gefi út eigið hálendisvegakort, etv bara á CD??? Það er hálffúlt enn þann dag í dag að sjá sömu endalausu vitleysurnar á nýju kortunum. Vegir og skálar vitlaust staðsettir, hvað þá örnefni. Tækninni fleygir fram en metnaðurinn minnkar. Við eigum mýgrút af ferlum og búum yfir gríðarlegri þekkingu.Af hverju ekki?
Ingi
17.09.2006 at 10:47 #559764Í árbók Ferðafélagsins 1988 er lesning um Veiðivötn, og á síðum 136-138 er getið um nokkur vöð, svo sem Hófsvað og Bjallavað, en einnig Kvíslavað (Blautukvíslar) sem mun horfið vera undir Krókslón í Tungnaárkróki ofan Sigöldu. Einnig er minnst á vöð við Svartakrók eða ofar, -og Ballarvað gegnt Tröllinu sem Skaftfellingar notuðu á leið í Fiskivötn. Ekki sá ég hins vegar minnst á Tangavað sem var yfir Tungnaá við Sultartanga, það var held ég helst talið trukkavað en tæplega jeppafært.
Hafi Bjallavað verið bílfært eins og hér ofar er íjað að, hví var það þá ekki notað???Ingi
17.09.2006 at 10:34 #198560Góð er eflaust meiningin á bak við þennan ljóta límmiða sem mér barst í hendur um daginn, en ég ek ég nú alltaf utan vega í tveimur orðum!
Eðli málsins þá get ég samvisku minnar vegna ekki límt svona miða á mína bíla, -ég viðurkenni það bara hér og nú að ég hef ekið og mun aka utan vega. Hins vegar þá legg ég metnað minn í að aka ekki um viðkvæmt land þannig að ég skilji eftir mig för til frambúðar og valdi þannig landspjöllum eða tæli aðra á eftir mér. Mat mitt á aðstæðum hverju sinni er byggt á reynslu og þekkingu, þannig ek ég um sanda, frosna mela, -jafnvel vel gróið land sé ég ekki að spilla landi.
Á Sprengisandsleið hef ég ekið utan vegarins í förum þeirra sem líka hafa gefist upp á slóðahætti Vegagerðarinnar. Hins vegar þá er ég mjög heitur út í þá sem spóla og tæta og spilla og skemma, út um allt og einungis til að skemmta skrattanum.Það er stórt bil á milli skynsamrar ferðamennsku og skynlausrar. Frumskilyrði þess að við ökum vegina er að þeir séu til staðar, þeir séu merktir (amk. afleggjarar) og séu á kortum. Að aðalhálendisvegum sé þannig viðhaldið að þeir séu a.m.k. ekki niðurgrafnir og verði þ.a.l. fyrst ófærir á haustin og síðast færir á vorin.
Er kannski orðið tímabært að 4×4 gefi út sitt eigið hálendisvegakort, mér sýnist það vera eina leiðin til að koma réttum upplýsingum á kortið.
Ingi
17.09.2006 at 09:51 #559258Sælir félagar
Fjarri verð ég góðu gamni þessa helgina, en meir en full ástæða er til að reisa vörðu á miðju Íslands, eða kannski bauta(r)stein. Bautasteinn er minnisvarði eða legsteinn, sögnin að bauta merkir að berja í buff, -samanber Bautinn á Akureyri.
Og spurt er, -er búið að finna nafn á gjörninginn?
Til að vera ófrumlegur: Bautasteinn 4×4, 4×4 varðan, Miðja Íslands…..
Amk þyrfti 4×4 að spandera platta með áletrun á vörðuna, hægt væri að ganga frá límmiða með lógóinu á svipaðan máta og á vegvísinum í Kerlingarfjöllum að Setrinu, eða grafa á hefðbundinn máta í eitthvað efni sem stenst tímans tönn!Annað það sem mér liggur á hjarta, varða stendur um 2km vestur af suðurenda Fjórðungsvatns á 64.52.270 og 18.06.500 og heitir væntanlega Hallgrímsvarða. Ég kom að vörðunni síðasta vetur og þá var byrjað að hrynja úr henni. Það hvílir víst á okkur ekki síður en öðrum ferðamönnum að halda þessum vörðum/vegvísum/stikum/bautasteinum við, þarna þyrfti að eyða kannski klukkutíma og smá sementshræru og stynga steinum inn í vörðuna til að hún hrynji ekki. Ég veit að þetta er dálítið ódýrt hjá mér að reyna að koma verkum yfir á aðra, hins vegar þá yrði þetta 4×4 bara til sóma. Og þetta er eiginlega alveg í leiðinni!
Og það er nákvæmlega mál málanna, við eigum ekki að vera alltaf í varnarstöðu gagnvart öðrum landsmönnum hvað snertir utanvegaakstur, stóru hættulegu jeppana og allt það sem verið er að bögga okkur með, -4×4 þarf að hafa meira frumkvæði byggt á skynsemi, þekkingu og reynslu okkar í öllum þessum efnum og reisa okkur fleiri buffsteina og legsteina…..
Ingi
16.03.2006 at 08:47 #546472Og hver ætli eigi þá bílana sem standa á bak við gamla þýsk-íslenska á Tunguhálsinum???
Ingi
15.03.2006 at 18:48 #546470Og hvað ætlar svo tuddinn að gera með þessa bíla, ef ég má spyrja ???
Ingi
15.03.2006 at 18:45 #546422Sælir,
ég átti lengi í vanda með minn 2.8 Pat árg. ´98, -fór helst ekki í gang heitur. Oft var mér sagt að skipta um olíuverk (kostaði ekki nema ca. 150þ). ‘Eg þumbaðist við, fékk 3-4 sinnum tölvugreiningu (sem í raun gat ekki sagt um hvað var að) uns það kom villumelding frá fremsta spíss. Þá fékk ég þær upplýsingar að hann gefur merki til olíuverksins hvenær innspýting fari fram. Þ.a.l. ef tímamerkið frá spíssinum er vitlaust þá verður tíminn á olíuverkinu vitlaus
Spíssinn kostaði um 20þ. og málið var dautt.
Ingi
28.02.2006 at 09:00 #544972Sæll félagi,
ómögulegt er að segja um hvernig færi verður á jöklum um næstu helgi. Hins vegar þá ættir þú kannski að leita upplýsinga hvort þekktar séu öruggar leiðir yfir jökulinn, -ef svo er talið að fá feril og færa yfir í þín tæki. Vera má að þegar séu aðgengilegar upplýsingar til á vefnum, ég þekki það bara ekki.
Full þörf er á að hafa svona upplýsingar aðgengilegar á formi sem við tölvuidiótarnir getum sótt af 4×4 vefnum, og leiðréttar af kunnáttumönnum ef þurfa þykir. Með því má auka öryggi allra ferðalanga um jöklana.
Bestu ferðakveðjur,
Ingi
24.02.2006 at 09:09 #544254Siggi í Bílasetrinu, Flugumýri 18, Mosó, sandblæs og málar. Vandaður strákur.
S- 586 8685
Ingi
17.02.2006 at 08:05 #197340Sælir félagar,
verði einhver á ferðinni um Sprengisandssvæðið nú um helgina þá þætti mér vænt um að fá fréttir af færð og snjóalögum o.þ.h.
Ingi s 864 6489 , 852 0414
18.01.2006 at 22:01 #539506Nei,
það þarf engan fjarskyftabúnað til að setja Patrolinn á 38".
Hins vegar þá er VHF alltaf gott til samskipta við aðra ferðalanga. Og NMT klikkar sjaldan.
Ingi
24.12.2005 at 16:22 #536896Sælir félagar,
í umhleypingum eins og yfir okkur dynja þessa dagana, og jafn vel þótt ekki séu umhleypingar, þá er ákaflega erfitt að segja til um það hvernig færið verður á Eyjafjallajökli á jóladag. Jafn vel okkar tölvutengdu veðurfræðingum gengur nógu illa að spá fyrir um veðrið sólarhring fram í tímann. Núna áðan var farið að rigna í 500 metra hæð við Bragabót, trúlega snjóar þá í 1666 metrunum á Eyjafjallajökli.
Færið breytist frá degi til dags, frá klukkutíma til klukkutíma þess vegna!
Tak bíl þinn og ak, og seg þú okkur svo eftir á hvernig færið var.
Gleðilega hátíð,
Ingi
22.12.2005 at 22:46 #196910Sælir félagar,
er einhver ykkar að keyra á 42″ Irok frá Gúmmívinnustofunni. Veit bara um einn Lúlla Patrolling á þessu. Hann er nokkuð glaður með sig en soddan einfari að hann er oftast einn til frásagnar. Hvernig reynast þessi dekk hjá ykkur hinum???
Ingi
22.12.2005 at 22:33 #536786Það er kominn þæfingur alla leið frá Sandá á Kjalvegi og upp á Bláfellsháls og ekki gott 31" færi. Sæmilega hart undir á veginum en frekar laust undir utan vegar þegar ofar dregur. Hef ekki farið lengra norður úr, en allt er hvítt yfir að líta inn á Kjöl. Talsverður snjór kominn í Skálpanesið og jökulinn þar vestur af, skemmtilegt sleðafæri en þungt jeppafæri. Rennifæri á Gjábakkavegi.
Ingi
11.12.2005 at 13:20 #534848-Og þarna væri gaman að koma fyrir vegpresti með vegalengdum til helstu byggðra bóla, s.s. Kópavogs, Blönduóss, Ísafjarðar og Djúpavogs.
Hvernig er þessi miðja annars fundin, er það út frá raunvegalengdum eða hnitum? Styttra er jú milli lengdarbauga eftir þvi sem norðar dregur. Landakort sýna ekki alltaf raunútlit landa það ég best veit,- fer eftir því hvernig þau eru uppsett.
Hvernig er að komast að þessari ætluðu miðju á jeppa, þarf að fara þangað á snjó???
Ingi
-
AuthorReplies