Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.11.2006 at 10:17 #569370
Er ég orðinn algjör auli, hættur að rata um landið og hvað þá að átta mig á örnefnum? Ég verð að biðja ykkur sem skrifuðu inn á þráð þennan að skíra þetta betur út:
"Við keyrðum… línuveginn inn Haukadalinn og þaðan inn á jökul."
"ætlum að fara Haukadal og koma til baka Kaldadalinn."
Og hvað ætli vegur um Lyngdalsheiði verði kallaður þegar hann endanlega verður lagður, yfir dyngjuna Lyngdalsheiði nokkru sunnan þess svæðis sem mönnum í dag virðist tamt að kalla "Lyngdalsheiði"? Lyngdalsheiðin virðist vera farin að teygja sig allt inn undir Skjaldbreið.
Sá mun seint finnast sem segist vera villtur á Lyngdalsheiði!!!
Ingi
22.11.2006 at 18:11 #569068Svona svona, ég er ekkert viðkvæmur fyrir ábendingu Emils, hún er bæði réttmæt og fræðandi. Ég er semsé með ljósabúnaðinn löglega tengdan sýnist mér skv. reglugerðinni og verð með hann löglegan áfram, -nema þegar ég þarf að tryggja öryggi mitt og farþega minna með því að láta kastarana (sem ég er reyndar með stillta mjög neðarlega) lýsa mér leið einungis með parkinu eða lága ljósinu. Geisli aðalljósanna er full dreifður þegar á reynir þykir mér, þó það hjálpi verulega að geta stillt hæð aðalljósanna niður innan frá.
Þannig finn ég svo veginn, og hviss bang, -með relyinu hans sigga er ég bara í góðum málum.
Hins vegar þá sýnist mér að skv. reglugerðinni þá eru aðalljós æði margra bíla ólögleg nú til dags, því hvorki eru þau hvít eða gul…eða hvað?Ingi
22.11.2006 at 12:28 #569060Þetta virðist vera lausnin sem ég var að leita að. Stýristraumurinn frá tvöfalda relyinu fer þá inn á gamla relyið. Algjör snilld.
Ingi
22.11.2006 at 09:26 #569046Flensukveðjur,
Ingi
22.11.2006 at 09:24 #199018Vitið þið um upplýsingar um volvo c303 og c306, hvað t.d. hásingarnar meiga bera og hvaða mismunandi drifhlutföll eru eftir tegundum/útfærslum.?
Hver er reynslan af þessu krami?
Er einhvers staðar hægt að nálgast hásingar stakar, -og varahluti í þær?Ingi
22.11.2006 at 09:06 #199017Hefur einhver lausn á því hvernig best er að tengja kastara ólöglega, þ.e. inn á parkljósin?
Þeir eru þannig tengdir núna að þeir koma inn með háa geislanum (sem er mjög þægilegt á vegakeyrslu), en ég myndi vilja hafa rofa sem yfirtekur það þannig að þeir geti líka logað með parkinu eða lágu ljósunum.
Teikning eða góð ráð væru vel þegin.Ingi
17.11.2006 at 21:40 #568430Ég fór aðeins í gegnum þetta "geym" um daginn, mér skilst að ef geymarnir frá Stillingu tæmast þá er aðeins hægt að ná þeim upp með "hleðslutækinu þeirra". Henta því t.d. varla ef þú ert t.d. með spil eða ef Landinn lekur (rafmagni!).
Ingi
13.11.2006 at 08:28 #566656Það sem kemur mér leiðinlega á óvart er hversu lítill áhugi virðist vera fyrir þessu stórmáli hjá hinum almenna félagsmanni. Það er hægt að eyða þúsund orðum í brotin drif og beyglaðar felgur, en þegar kemur að einu stærsta hagsmunamáli okkar, rétturinn til að aka alla vegi landsins og utan vega ef ekki er valdið landspjöllum, þá þegja flestir þunnu hljóði. Vera má að það sé til bölvunar að ekki kemur fram um hvað er verið að fjalla í innanfélagsmálum þegar þráðurinn er lokaður, -ekki hefur verið slegið inn lykilorðum. En það er annað mál.
Ég hélt reynda að baráttumál þetta væri í raun tapað, en ljóst er að enn eru margir lausir endar. Við þurfum að hafa forsögu um þetta mál, -vera í fararbroddi en ekki í skotgröfunum í vörn, -eins og svo oft vill brenna við hjá okkur. Ég legg til að eitthvað af okkar digra 4×4 sjóði verði notað í þessari baráttu til kynningar á okkar málstað, við fáum varla fleiri tækifæri.Ingi
05.11.2006 at 14:35 #198893Umræða hefur verið af og til um kortamál, -bæði í tengslum við önnur mál svo sem meintan utanvega akstur, en einnig hvort 4×4 eigi að gefa út vegakort.
Ég tel tímabært að taka á þessu máli af fullri alvöru, við eigum nú þegar talsvert ferlasafn svo og lýsingar(flokkun) á fjölda leiða. Koma þarf þessu á aðgengilegt tölvutækt form a.m.k. fyrir alla félaga í 4×4, hins vegar er álitamál hvort við eigum að prenta kort og selja.
Það vantar rétt kort með réttum upplýsingum, það má gera svo miklu betur en gert hefur verið hingað til. Með réttum upplýsingum má koma í veg fyrir stóran hluta utanvegaaksturs. Ef slóð er þekkt þurfa ferðamenn ekki að leita annarra leiða!
Vissulega er ekki hægt að gera fullkomið kort í fyrstu atrennu, en það má alltaf bæta inn í. Spennandi kostur væri að hafa meiri upplýsingar á bak við veginn, kofann eða hvað sem er, -með því að klikka á vegslóðann fengist lýsing á honum o.s.frv.Í gegnum tíðina hef ég haft gaman af að grúska í kortum, og mér til gremju séð hvernig Landmælingar Íslands (LMÍ) hafa leyft sér að taka út / setja inn leiðir bara eftir dyntum einhvers og einhverra. Vegir, skálar og ár rangt staðsett. Og nú nýlega keypti ég Íslandsatlas Eddu. Kortagerðarmanni sem hafði aðgang að öllum okkar ferlum og allri okkar þekkingu tókst að klúðra fjölda atriða, t.d. er Fjallabaksleið syðri merkt sem sams konar leið og leiðin um Skófluklif-Hólmsárbotna, Þjórsá austan Búrfells er horfin, Hvanngilsskáli er austan vegar uppi í fjalli. Svo mætti lengi telja.
Mig langar til að vitna í grein í Fréttablaðinu 13.okt. 06, bls.8, „Arnar (Sigurðsson markaðsstjóri Loftmynda ehf.) segir að aðeins einn þriðji allra vega og vegslóða á landinu sé merktur inn á kort LMÍ. Aðeins helmingurinn af allri umferð á Íslandi fer um vegi sem sýndir eru á kortum Landmælinga…“ Einar Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra segir m.a. í sömu grein „Við erum á því að það þurfi að fara í frekari vinnu þar sem markmiðið verður að gefa út kort af slóðum og vegum sem heldur.“
Í Bændablaðinu 24.okt 06 er stutt grein um samstarf Loftmynda ehf. og Bændasamtakanna, -þar sem kynntur er tilraunasamningur um „vefrænt aðgengi BÍ að landfræðilegum gögnum Loftmynda“ (95% landsins). Þannig geri veftól ráðunautum mögulegt „að hnita inn útlínur túna og annars ræktaðs lands inn í gagnagrunn og geyma þar upplýsingar um stærðir túnanna ásamt margvíslegum grunnupplýsingum.“
Kannski er þarna kominn grundvöllur til að gera rétt og metnaðarfullt vegamyndkort (eða vegmyndakort) af hálfu 4×4, með fulltingi annarra hlutaðeigandi aðila.
Baráttukveðjur,
Ingi
Ps. Biðst forláts á því að nota ekki gæsalappir á réttan hátt, en kerfið virðist ekki gefa kost á því!
05.11.2006 at 09:39 #198892Eins og flestir nú vita þá geta krapahlaup komið niður jökulsporðinn í raun hvar sem er þegar snjórinn er orðinn gegnsósa af vatni, rétt eins og gerðist fyrir ofan Jaka nú fyrir helgina. Bíll, sleði, eða snjótroðari geta hæglega komið þessu af stað, þó það þurfi greinilega ekki endilega til.
Við akstur upp jökulinn Jakamegin hefur til að byrja með verið farið milli nokkuð djúpra vatnsrása, og síðan gjarnan milli tveggja svelgja sem merktir eru/voru með prikum.
Full ástæða er því til að fara varlega um þetta svæði.
Hef því miður ekki hnit svelgjanna.
Ingi
28.10.2006 at 20:59 #564812Sæll,
það er jepplingafært að Langjökli meðan ekki skefur í veginn, -upp frá Húsafelli. Þekki ekki færð á Kaldadal, en snjólína er í um 300 – 400 metra hæð og trúlega þæfingur á veginum.
Ingi
19.10.2006 at 21:50 #564414Sæll félagi,
kíktu á þráðinn "Ófært"
Ingi
18.10.2006 at 08:46 #563728Já þetta með örnnefnin okkar er stundum dálítið spúkí, er ekki talað um Tindfjallajökul og TindAfjöll, – en svo Tindfjöll á Þórsmörk???
Eitt leikur mér forvitni á að vita, Krakatindur er austan Heklu, en eru tindarnir einn með þessu nafni eða tveir?
Gaman væri að heyra í hagavönum!Ingi
17.10.2006 at 22:25 #563718Takk fyrir þetta Siggi & JÞJ. (En hvernig í ósköpunum er þetta gert???)
Vona að mér fyrirgefist þetta,-en engu var til logið.
Endilega kíkið á skiltið þegar þið eigið næst leið um.Ingi
17.10.2006 at 21:53 #563712gert mér þann greiða að setja myndirnar tvær og textann sem ég var að setja inn á myndasafnið hér inn á þráðinn. Ég bara kemst ekki lengra með þetta!!!
Ingi
Ps. Skv. heimamönnum þá kalla ég fellið hans Olgeirs Hattafell.
17.10.2006 at 09:24 #563698Já, -nei, segi og skrifa Innri-EmSTURá.
Ingi
17.10.2006 at 01:07 #198749Góðir félagar.
Nýlega var ég á ferðinni og rakst á örnefni sem ég ekki kannaðist við. Var þar um að ræða á sem nefnist „Emsturá“, -og reyndar var það „Innri-Emsturá“.
Hvar er þessi á, vinsamlega staðfestið myndrænt eða með tilvísun til t.d. landakorts.Ingi
15.10.2006 at 17:55 #563454Ég var rétt áðan að koma Markarfljótið, þ.a.s. þennan ál sem liggur að Þórólfsfellinu og frá því aftur, -það þarf því að fara í tvígang yfir. Með í för voru nánast óbreyttir
L 200 og Cheroke. Með aðgát var auðvelt að fara yfir undan straumi en leita þarf betur að vaði ef farið er innúr.
‘Eg vil bara minna á vegslóðann sem fer upp fyrir Þórólfsfellið, hann er í ferlasafninu, -ekki sem ferill heldur lýsing á honum. Ég hef komið að Markarfljótinu þarna kolófæru þar sem það lá upp að Þórólfsfelli, eina leiðin að fara inn fyrir það. Sýnir enn og aftur hversu mikils virði svona gagnabanki er.Ingi
13.10.2006 at 18:39 #563114að núna skal ég vera þér alveg sammála. Þú hlýtur "bara að vera eitthvað misþroska eða eitthvað"
Ingi
13.10.2006 at 07:56 #563096Til að gera langa sögu stutta…,-ég veit ekki hvort tölvukallarnir geri sér grein fyrir því hvursu lítið svona meðalheimskur maður sem ég skilur í þessum tölvupælingum. En takk fyrir innleggin í umræðuna eftir sem áður!
Þar sem ég er að leita að ódýrri, einfaldri og öruggri lausn þá líst mér einna best á snertiskjá.
Svo að : a)Getur einhver bent mér á góðan, ódýran og skýran skjá, -líka í mikillri birtu. Hverjir eru helstu vankantarnir í notkun?
b)Má fartölvan mín standa upp á endann eða upp á kant, -eða verður hún að liggja flöt?Ingi
-
AuthorReplies