Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.01.2009 at 21:59 #203665
Eru einhverjir hér á netinu sem vita hverjir eru að selja ný 38″ dekk. Veit um AT og N1 en hverjir fleirri?
Þröstur Ólafs
18.09.2008 at 21:41 #629574Er verið að tala um 2HO eða H2O? BMW notar í tilraunabíl frá sér vél með tvöfalt kerfi þar sem brennt er vetni annarsvegar og bensíni hinsvegar. Vetnissellur afturámóti nota lausa rafeind í vetninu, sem er (filteruð) úr með sérstakri membru og búið til rafmagn. Hliðar afurðin af þessu er vatn og ekkert annað. Við allan bruna myndast afturámóti mengandi efni. Spurningin er hvort vetnisinnskot sé peninganna virði því vetni kostar og búnaðurinn líka. Tankarnir undir vetni kosta líka (fullt fullt) og öll umgengni um þá vandasöm, átöppun og aftöppun. Gamla aðferðin með að skjóta vatni inn á velina er hinsvegar nothæf að vissu marki. Vegna þess að vatn 1700 faldast við að breytast í gufu er einnig til staðar mikið magn af súrefni í gufunni. Þetta súrefni er hægt að nota til að auka inndælingu á eldsnyti og ná að brenna það. Gæti komið sér vel á bílum sem teppaleggja með svörtum reyk, þar sem þeir bersýnilega eru í loftþurð.
21.09.2007 at 11:33 #597486Gekk illa að koma mínum patta 99′ árg þar til ég setti í hann nýan rafgeymir
Gangi þér vel
22.03.2007 at 13:18 #585428Ef snúið er öðru hjólinu með hitt fast á gólfi ruglar mismunadrifið talninguna. Þegar öðru hjólinu er snúið fer mismunadridið að snúast um sjálft sig og skilar hærri snúning út á hjólið sem er laust. Sennilega er best að tjakka bæði hjólin upp og snúa drifskaftinu og ganga úr skugga um að bæði hjólin snúist jafnt (ætti að gera það ef engin fyrirstaða er)Þá þarf þú að snúa drifskaftinu x marga snúninga til að fá 1 snúning á dekkin og er afgangurinn einföld stærðfræði eftir það. Þetta er rétt með merkingarnar á dekk og drifskaft sem kom hér að ofan.
Gangi þér vel
19.02.2007 at 16:32 #58091602.02.2007 at 09:27 #578650Er þetta ekki spurningin um þokkanlegt renniverkstæði. Ef þú ert með málin ætti ekki að vera erfitt að forrita tölvufræsara fyrir svona stykki.
02.02.2007 at 09:23 #578378Langir kapla sem liggja úr húddinu og inn í bíl auka hættuna á núningi á köplum. Sé kapalinn – skapast ekkert vandamál en hinsvegar er útleiðni á + hlið vandamál. Af þessum praktísku ástæðum er eðlilegra að tengja mínus inn í bíl. Yfir svona rofa getur legið tiltölulega mikið afl meðan þeir eru virkjaðir í straumlausu ástandi. Eigi að rjúfa eða tengja meðan aflnotkun er í gangi (t.d. start) er viðbúið að rofinn brenni yfir. Best er að nota fjaðurspennta rofa eða segulrofa (t.d. sambærilegt við startpung) því þeir rjúfa nógu hratt til að ekki myndist ljósbogi, en það er hann sem brennir snertunar. Annað með útleiðslu á plús hlið er að ryðmyndun eykst við spennumun þannig að útleiðsla er mjög slæmm á þeirri hlið
Baráttu kveðjur
Þröstur
Ps. hef oft verið með svona rofa en aðalega til að lenda ekki í því að koma að bílnum rafmagnslausum þegar honum hefur verið lagt allt of lengi.
-
AuthorReplies