Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.02.2004 at 15:36 #487604
Prófaðu að fara á þessa síðu til að kanna hvar í röðinni þín síða er (af meira en 16 milljón síðum).
04.02.2004 at 14:30 #193662Sælir félagar
Langaði til að láta ykkur vita af vef sem ég hef verið að vinna að.
Vefurinn er á ensku og er m.a. ætlað að koma betur á framfæri íslenskri þekkingu á jeppamennsku.
Ef þið hafið hugmyndir og athugasemdir er það að sjálfsögðu vel þegið. Eins væri gaman ef þið bendið erlendum vinum og samstarfsmönnum á slóðina.
Þrándur
05.12.2003 at 16:39 #482016Sæll Stefán
Það er nú sjálfsagt rétt hjá þér að maður ætti aldrei að alhæfa. Það er bara hið besta mál ef Brimborg er að bæta ráð sitt. Það hefur bara verið almennt rætt innan 4×4 að þeir væru frekar slappir og þeir hafa ekki staðið sig eins vel og t.d. Toyota í að styðja við breytingar á sínum jeppum(Fordum).
Mín reynsla af Brimborg er því miður þannig að í mörgum tilvikum eiga þeir ekki hlutina og afgreiðslan hefur oft verið mjög tímafrek, þ.a. ég hef leitað töluvert á önnur mið.
05.12.2003 at 15:29 #482118Væri líka gott ef einhver getur skýrt betur út hvað það er sem vantar helst á Landmælingakortin til þess að nota þau eingöngu…
05.12.2003 at 14:32 #48196205.12.2003 at 12:25 #482010Ég fór á Texas SUV Show í sumar og eru nokkrar myndir þaðan í albúminu. M.a. F-150 Harley Davidson ásamt stærri bílunum.
Annars hef ég átt F-150 ’87 í meira en áratug og hefur hann reynst mjög þægilegur í rekstri og viðhaldi og auðvelt að fá í hann varahluti (þó ég sé búinn að jaska honum mikið út og farinn að huga að skiptum). Gott er t.d. að versla við Benna en ALDREI VIÐ BRIMBORG.
Þar sem þessir bílar koma á blaðfjöðrum að aftan og eru gríðarlega burðarmiklir mæli ég líka með að setja undir þá loftbúðafjöðrun. Kosturinn við 150 bílana er að ekki ætti að þurfa 44 tommu dekk þar sem þeir eru ekki eins þungir.
05.12.2003 at 12:15 #482160Þetta er nokkuð sem alls ekki á að sjást í jeppaferðum. Það virðist augljóst af myndunum að þarna er farið yfir gróið land og ófrosið. Það er hætt við að áralangt starf klúbbsins við að auka vitund félagsmanna og almennings varðandi umgengni jeppamanna við landið skaðist verulega.
10.01.2003 at 09:59 #466230This is also a question of balance between the weight of the truck and tire sizes. Many customized 4x4s in Iceland weigh around 2 tons. For that we would typically use tires 38×15,5 and even ’44 for larger trucks. The ’44 (Dick Cepek Fun County) also seem to be better in loose or powdery snow like you might have in Russia.
Best luck !
14.12.2002 at 10:38 #465352Hér á þessum þræði hefur orðið mjög góð umræða um þessi virkjanamál og hvernig við nýtum landið okkar. Reyndar hefur lítið heyrst í s.k. virkjunarsinnum annað en órökstuddur skætingur, hreppapólitík og vilji til að þagga niður í þeim sem vilja nýta landið t.d. til ferðalaga og útivistar. Væri fróðlegt að heyra einhver betri rök. Þetta er prýðilegur vettvangur slíkra skoðanaskipta.
Helstu rökin gegn virkjun af þessari stærðargráðu á þessu svæði eru skýr:
– Óbætanlegt tjón á umhverfi landsins og ásýnd
– Fjárhagsleg áhætta og kostnaður sem almenningur þarf að borgaFyrir þá sem vilja mótmæla virkjunaráformunum bendi ég á að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar með því að fara á síðuna:
http://www.natturuverndarsamtok.is/emailrikisstjorn.asp
Kveðja,
Þrándur R-1610
27.11.2002 at 08:41 #462700Ég er á F-150 ’87 með 5 lítra vélinni. Hann er með húsi á palli en samt mun léttari og það munar a.m.k. hálfu tonni! 38 tommurnar sleppa ágætlega fyrir minn bíl en hann má ekki vera þyngri (2,2 tonn). Eyðslan er alveg viðundandi, fer niður í 14 lítra í langkeyrslu og er bara að eyða ca. 30% meira en hrísgrjónabrennararnir í ferðum
Það þarf alveg örugglega 44 tommu dekk í þessu dæmi…
Með kveðju,
Þrándur
13.08.2002 at 22:48 #46277607.05.2002 at 10:05 #460902Á aðalfundi Ferðaklúbbsins 4×4 í gærkvöldi voru þessi mál rædd nokkuð og stjórninni falið að senda út fréttatilkynningu þar sem þessi utanvegaakstur er fordæmdur. Þarna voru á ferð 6 bílar, 4 bandarískir og 2 íslenskir. Myndirnar sem Ómar sendi frá sér voru alveg skelfilegar og svona hegðun er alveg ólíðandi. Samkvæmt nýjustu fréttum í Bylgjunni í morgun var sendur út "björgunarleiðangur" í gærkvöldi þar sem flestir bílarnir voru losaðir og enn meiri spjöll unnin. Þetta er náttúrulega orðið lögreglumál og mér finnst sjálfsagt að beita þungum refsingum og láta þetta fólk laga til eftir sig.
Þrándur
R-1610
30.04.2002 at 14:09 #460694Ætli einhver sé kominn með umboð?
http://www.uazauto.com/products/models/2362/index.html
Þetta lítur út ósköp svipað og þessir japönsku pickupar…
22.04.2002 at 14:51 #460552Ég verð að játa að ég er hlynntur því að setja malbik á þessa helstu fjallvegi, eins og Kjalveg og Sprengisand. Þessir vegir eru þegar orðnir uppbyggðir að verulegu leiti og ár sem skipta máli eru brúaðar. Með því að malbika leiðirnar lengist sá tími á vorin þegar hægt er að aka þessa vegi að snjó. Það verður nóg af öðrum vegum fyrir okkur sem viljum ferðast torfarnari leiðar.
Þrándur
R-1610
22.04.2002 at 13:24 #460600Við megum ekki gleyma því að frelsi fylgir ábyrgð. Ef við ætlum að láta taka eitthvað mark á okkur verðum við að sýna gott fordæmi og hlýta þeim reglum sem settar eru. Jafnframt þurfum við að benda á þá galla sem eru á framkvæmd þeirra laga og reglugerða sem í gildi eru. Eins og sást á myndum Ómars Ragnarssonar frá Ströndum er mikill og góður snjór á þeim slóðum núna. Þar hefur sýslumaður kosið að túlka þröngt bókstafinn og verðum við að taka því. Ferðir á jeppum og vélsleðum á þetta svæði eru síður en svo einsdæmi. Ég var t.d. í gönguferð um svæðið sumarið 1994 og hitti þá Óla komma vitavörð á Hornbjargsvita. Hann lýsti því fyrir okkur hvernig menn hefðu komið á jeppum alveg að vitanum og að hann gæti ekki betur séð en punkterað væri á öllum dekkjunum! Auk þess hefur verið bent á að eigendur húsa á svæðinu fara gjarnan að vetri til á vélsleðum þvers og kruss um svæðið. Við hljótum að fara fram á að sömu reglur gildi um almenna ferðamenn.
03.04.2002 at 22:35 #460086Ég er sammála þeim sem hér hafa bent á að ferðaklúbburinn 4×4 verður að taka umræðu um umhverfismál upp. Það má vera að menn séu ekki sammála um hvernig nálgast eigi þessi mál og virðist sem einhver hreppapólítík sé komin í málið.
Það er mín skoðun að forsendur fyrir álveri og virkjun hafi ekki verið settar fram af nægilega traustum rökum. Aðgerðir stjórnmálamanna til að #bjarga# landsbyggðinni með #byggðastefnu# s.l. áratuga hefur skilað þeim #árangri# að straumurinn liggur æ meira suður. Ég held að fólk taki ákvarðanir um búsetu út frá mismunandi forsendum á ólíkum tímum. Aukin netvæðing gæti t.d. haft þau áhrif í framtíðinni að þróunin snerist við og fólk vilji heldur eiga heima í sveit og vinna þaðan. Pólítískar aðgerðir hafa þar lítil áhrif. Um þetta mætti hafa langt mál…
Virkjun á hálendinu hefur stórkostleg áhrif á náttúrufar til langs tíma. Við sem ferðamenn um hálendið höfum sjálfsagt einhverja hugmynd um að þar séu verðmæti sem ekki má glata nema að vandlega skoðuðu máli. Sanngjarnt er að við reynum að finna einhverja mælistiku á þau verðmæti. Þar þarf klúbburinn að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
20.02.2002 at 11:22 #459202Sælir
Ég er með svona F-150 bíl með Dana 44 klofinni hásingu að framan. Hún hefur reynst mér mjög vel síðustu 10 árin eða svo. Ég veit ekki hvort hún er reverse en hef allavega oft dregið bíla afturábak
-
AuthorReplies