Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.05.2005 at 19:56 #522720
Ég hef grun um að bílasölurnar fyllist af stórum og þungum dísel bílum í kjölfar kerfisbreytingarinnar.
Það ætti því að vera hægt að fá LandCrusera, Patrollur og Ford F bíla á góðum kjörum þegar menn losa sig við þá.
Þrándur
18.05.2005 at 19:55 #522988Loftpúðarnir eru keypir hjá: http://airgasmkustomz.com/
(Insane 13" Lift 2600lb)Olíupannan ætti að nást jafn auðveldlega og meðan bitinn utan um stýrisvélina var á sínum stað
Þrándur
17.05.2005 at 16:21 #522980Ég er nú einmitt að breyta svona bíl ([url=http://www.4x4offroads.com/custom-ford-explorer-sport-trac.html:393li1ke]http://www.4x4offroads.com/custom-ford-explorer-sport-trac.html[/url:393li1ke]).
Það er enginn af þessum íslensku framleiðendum sem gefur sig út fyrir að framleiða kanta sem passa. Mér sýnist þó að brettakantar.is séu með kanta fyrir Nissan Double Cab sem ætti að vera hægt að nota með smá föndri…
Þrándur
4x4OffRoads.com
08.04.2005 at 09:47 #520824Ég hef nú verið á amerískum bílum (sem bila reyndar alveg sáralítið eins og allir vita).
Annar kostur við þá er að það er auðvelt að útvega varahluti í þá beint frá bandaríkjunum með því að nota vefinn. Auk þeirra staða sem Einar nefnir (sem eru góðir fyrir smáhluti) er auðvelt að panta hluti hjá Benna. Varahlutaverð í USA er oftast mun lægra en í Evrópu þar sem meiri samkeppni ríkir.
Þrándur
21.03.2005 at 20:40 #519404Á ég að trúa því að menn hafi engar skoðanir á þessum pallhúsum?
Athugið – Ég er ekki að meina þessi stóru sem hægt er að sofa í, heldur svona skeljar á pallbíla…
Veit að Leer húsin hafa eitthvað verið notuð.
Finn ekkert um Brahma hús sem voru vinsæl fyrir nokkrum árum.
Kliptron eru að flytja inn SMM pallhús.
Önnur merki ???
Þrándur
19.03.2005 at 20:53 #195707Hvaða pallhýsi eru menn að nota hérlendis. Eru einhverjir til í að segja frá kostum og göllum, verði o.s.frv.
Þrándur
R-1610
18.03.2005 at 21:08 #519154Tek undir það að svona sendingar eru bara forboði miklu verri hluta.
Þegar netföng eru birt á vefsíðum eins og stjórn og nefndir á f4x4.is er bara tímaspursmál hvenær "kóngulær" vefsins finna síðuna og sía út öll netföngin. Næsta sem gerist er að þau eru seld til fjölmargra SPAMMARA sem nota þau óspart til að fylla öll pósthólf…
Mæli sterklega með því að netföngin verði ekki gerð svona aðgengileg og menn taki þessu sem hverri annarri lexíu.
Efast um að Ólafur frá HellyHansen hafi áttað sig á þessu, en umsjónarmenn síðunnar ættu að sjálfsögðu að ræða við hann og gera honum grein fyrir alvöru málsins. Þetta er ennþá í svo smáum skala að það er viðráðanlegt.
Á mínum vef ([url=4x4OffRoads.com]4x4OffRoads.com[/url]) er hvergi að finna tölvupóstfangið mitt. Eina leiðin sem boðið er upp á þar er að fylla út form á vefnum. Formið sendir síðan tölvupóst til mín án þess að það sjáist nokkurstaðar. Svipað væri hægt að gera hér.
Þrándur
R-1610
12.03.2005 at 20:59 #518416Setti líka inn myndir og lýsingar á vefinn minn:
[url=http://www.4x4offroads.com/4×4-hofsjokull-saturday.html:3uhvwgwb]4x4OffRoads.com – Hofsjökull 2005[/url:3uhvwgwb]
Þrándur
R-1610
10.03.2005 at 12:12 #518480Það er best að kaupa svona bækur á [url=http://www.Amazon.com:1oqaqskx]Amazon.com[/url:1oqaqskx]
Kostar sama í USD eins og Haynes vill fá í GBP!Þrándur
16.02.2005 at 21:31 #516980Sælir
Ég hækkaði bílinn sjálfur um 2 tommur á boddíi. Það er tiltölulega einfalt, 12 boltar sem halda boddíi á grind eru teknir úr, lengri boltar fengnir og plastkubbar á milli. Lengja þarf í sjálfskiptstönginni og skera úr hlíf utanum viftuspaða. Þurfti að klippa aðeins úr og setja kanta (Buschwacker). Síðar komu hlutföll og læsingar sem Jón Árni sem var með Jeppasport setti í og loks loftpúðafjöðrun að aftan sem er eiginlega alveg nauðsynleg eftirá að hyggja. Irok er ábyggilega skemmtileg stærð af dekkjum fyrir svona bíl.
Þrándur
15.02.2005 at 19:55 #516976Ég hef átt F-150 1987 í rúm 12 ár. Það er fyrst núna sem ég hef ákveðið að endurnýja og það er nú ekki stórar viðgerðir sem þyrfti (nema að boddíið er að ryðga í sundur). Í þessum bílum eru sterk drif og vél sem endist vel. Í mínum er Dana 44 klofhásing að framan og Ford 8,8 að aftan. Auðvelt er að fá hlutföll og læsingar í ameríska Ford jeppa og raunar tiltölulega lítið sem þarf að gera til að koma 38 tommu dekkjum undir svona bíl. 302 vélin með beinni innspýtingu hefur líka komið þokkalega út í eyðslu ca. 20 lítrar fyrir þetta stóran bíl.
Athyglisvert er hversu menn eru feimnir við að skoða ameríska jeppa yfirhöfuð. Tók t.d. eftir því að konurnar sem mættu í Ísland í bítið nefndu engan amerískan jeppa þegar þær nefndu helstu gerðir sem í notkun eru! Margir sem virðast halda að það séu bara japanir sem kunna að búa til bíla. Minni t.d. á að enn eru nokkrir Bronco jeppar um þrítugt í fullri notkun.
Almennt er auðveldt að fá varahluti í ameríska bíla, t.d. hjá Benna. Að mínu mati hefur umboðið reyndar verið frekar slakt, en vonandi stendur það til bóta…
Það er eitthvað af myndum á vefnum mínum:
[url=4x4offroads.com]4x4OffRoads.com[/url]Þrándur
12.02.2005 at 20:18 #516714Sæll Heiðar
Þú mátt gjarnan senda mér myndir og lýsingu á þessum Bronco II. Þ.e. ef þú hefur áhuga á að þær komi í blaðinu Bronco Driver Magazine.
Þrándur
thrandur(hjá)4x4offroads.com
11.02.2005 at 19:17 #516580Takk fyrir það strákar
Manni líður óneitanlega stundum svolítið eins og sendiherra…
Þrándur
10.02.2005 at 23:19 #195462Setti nokkrar myndir af jeppum úr sýningunni á vefinn minn:
Bestu þakkir til stjórnar og annarra þeirra sem stóðu að þessari skemmtilegu sýningu. Hún gefur góða mynd af því sem íslenskir jeppakallar eru að gera í breytingum og hvað það er sem virkar í reynd.
Væri upplagt að gera svona „mini“ sýningu að árlegum viðburði, þar sem lítið er haft fyrir og ekki er þörf á miklu utanumhaldi og styrktaraðilum.
Þrándur
4x4OffRoads.com
04.01.2005 at 01:46 #512164Það voru víst töluvert margir sem brugðu undir sig betri dekkjunum á Skjaldbreið:)
Setti nokkrar myndir og grein á vefinn hjá mér:
[url=http://www.4x4offroads.com/4×4-snow-pictures.html:33ib6i4q]Snjómyndir frá Skjaldbreiðarferðinni[/url:33ib6i4q]
(á ensku)
Þrándur
29.12.2004 at 20:17 #511900Ég held að við takmörkum okkur við þá bíla sem eru í notkun í dag.
Þrándur
29.12.2004 at 20:02 #511898Þakka fyrir góð viðbrögð.
Það er greinilega úr nokkru að moða.
Þrándur
29.12.2004 at 00:58 #195124Ég hef verið beðinn um að safna saman myndum og upplýsingum um áhugaverða breytta Bronco jeppa.
Upplýsingarnar verða notaðar fyrir grein í jeppablaðið „Bronco Driver“.
Ef þú veist um einhverja slíka væri gaman að frétta af því.
Það er hægt að svara þessum þræði eða senda mér póst á thrandur(at)4x4OffRoads.com. (Skipta (at) út fyrir @)
Þrándur
4x4OffRoads.com
11.11.2004 at 23:35 #508522Já, það var ábyggilega þessi Volvo sem við vorum að hugsa um. Svipaðir bílar tilsýndar. Ekki þessi dæmigerði fjölskyldusnattari.
Hann er all hrikalegur á 49 tommu dekkjunum!
Þrándur
10.11.2004 at 23:30 #508502Mig rámar í að hafa séð myndirnar hér. Ef myndaalbúmið væri í lagi væri kannski hægt að finna þær aftur og skoða þær.
Fróðlegt að vita hvort bíllinn hefur eitthvað verið notaður…
-
AuthorReplies