Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.10.2007 at 21:32 #601240
Það er ekki hægt annað en að verið sammála síðasta ræðumanni.
19.10.2007 at 12:11 #600348Í mínum huga er þetta einfalt, ef Ella kýs að tjá sig á opnum þræði, þá er það hennar mál. Umræða um fjármál klúbbsins eru ekki eitthvað sem við eigum að vera feimin við. Ef einhver telur þetta vera innanfélagsmál og vill tjá sig um þetta þar, þá hefur hann nýjan þráð og svarar Ellu. Að færa þráðinn finnst mér vera full gróft, ef Ella væri með dónaskap og bryti siðareglur f4x4, þá á vefnefnd að grípa inn í. Ef Skúli vill færa svarið sitt sem fór óvart inn á opinn þráð þá á hann að biðja vefnefnd um það. Ég styð það eindregið að þráður Ellu verði opnaður aftur.
13.08.2007 at 12:15 #590790Pistillinn að ofan er 100% réttur. Þessi vinna er forsenda þess að við getum ferðast í framtíðinni og notið náttúrunnar. Frumkvæðið að því að þessi vinna er unnin af f4x4, með Jón í broddi fylkingar, gefur okkur mjög sterka stöðu gagnvart embættismönnum eins og á Selfossi.
Jón, þarf ekki hjálp við meira en ferlun, þarftu hjálp við yfirlestur/skoðun á þeim ferlum sem eru komnir?
Hvar þarf að ferla (ég veit þetta er langur listi).
Baráttukveðja
Þorsteinn
04.08.2007 at 21:19 #594196Ég var að koman úr ferð á fjallabaksleið syðri. Ég sá 3 tilvik af utanvegaakstri þar sem útlendingar áttu í hlut. Ég ræddi við þá alla og reyndi að skýra málið fyrir þeim, hvað má og hvað má ekki. Ef NMT hefði virkað hefði ég ugglaust tilkynnt eitt tilfellið.
1) 2 LC 80 bílar á stórum dekkjum (fransmenn) voru að "sækja sér vatn" og keyrðu yfir sanda og gróður rétt við Emstruskála FÍ.
2) Unimog fór útaf veginum og keyrði í hálfhring/hring á sömu slóðum. myndaði ljótan hring
3) 4 Ural trukkar keyrðu til hliðar við veginn og ofan á gróðri sem markaði í, rétt fyrir ofan Markarfljótsbrúnna.Ég tel að í öllum tilfellum hafi þeir ekki vitað betur eða ekki áttað sig á þessu. Hvar er þeim kynnt að ekki megi aka utanvega? hafa þeir fengið ýtarlegan bækling einhversstaðar þar sem þetta er sýnt rækilega með myndum og texta?
21.06.2007 at 09:14 #200447Veit inhver hvernig framdrifin, legur o.fl. hafa verið að endast í Ram (1995). Þarf að yfirfara liðhúsin, legur og pakkdósir? Bíllinn er keyrður 70.000 og mikið notaður á fjöllum í sumarferðir.
Hvernig er farið að því að losa stóru rónna?Takk fyrir alla hjálp
Þorsteinn
31.05.2007 at 09:16 #591794Takk fyrir svörin
Við vorum búnir að leita og sýnir sig að vefurinn gerir mikið gagn. Getur björgunasveitin fengið meira pláss á vefnum og sett upp fríar auglýsingar eða dálk á vefnum fyrir þá sem bjóða aðstoð og björgunarbúnað. Það liggur oft mikið við og í þessu tilviki hefði skipt sköpum að hafa aðgang að kerru STRAX!!takk aftur
Þorsteinn
30.05.2007 at 21:39 #200375Sæl öll
Veit einhver um bílakerru sem getur tekið LC 90 jeppa og hægt er að fá lánaða/leigða í eina ferð?Fyrirfram þökk
Þorsteinn
16.05.2007 at 16:59 #591206Hversu þröng eru þessi dekk upp á felgunni? Er eitthvað um affelganir?
Kveðja Þorsteinn
17.04.2007 at 16:26 #588426Ég prófaði þessi dekk undir Patrol í fyrra, reyndar bara eina ferð sem ég hefði getað komist á 38". Ég var með hitamæli á sjálfskiptingunni og á afgasinu. Bíllinn eyddi 25 lítrum á hundraðið í langkeyrslu (90 km/klst). Hitinn á sjálfskiptingunni var 30-40°C meiri en á 38" dekkjum og hitinn á vélinni talsvert meiri. Þetta er eitthvað sem ég stillti mig inná í akstrinum og allt gekk vel. Ég færi hiklaust í 46" aftur. Vandinn er kannski sá á þessum dekkjum að hleypa nægilega úr, það á alls ekki að horfa á mælinn og bera sig saman við 44" bila, það á bara að horfa á dekkin. Þau belgjast varla í 3 pundum. Það þarf líka að fara nokkrar ferðir áður en þau fara að virka að ráði.
Þorsteinn
15.04.2007 at 21:15 #200131Getur einhver upplýst mig um hvernig Tacoman er að reynast með 38″/40″ breytingum. Endilega eitthvað málefnalegt. Heyrði af einhverjum bilunum, var það í upphafi eða heldur það áfram?
Takk
Þorsteinn
23.03.2007 at 17:30 #585624Sæll
Er Dodge Ram 2500 ekki nema 2.150 kg óbreyttur?
18.03.2007 at 20:08 #585028Sæll Dagur,
Þú sérð í gegnum holt og hæðir. Þetta var ekki komið inn í morgun (gert 20:01 í kvöld), greinilega mikið að gerast hjá öllum riturum þingsins. Þetta er ekki einu sinni komið inn í skrá yfir nýsamþykkt lög, hvernig fannstu þetta?
Nú er að tryggja okkar stöðu og okkar málefni innan þjóðgarðsins!
18.03.2007 at 08:21 #585024Lögin um Vatnajökulsþjóðgarð fóru ekki í lokaatkvæðagreiðslu í gær. Mikil færibandavinna var í gangi, en mörg lög náðust ekki í gegn.
Það virðist vera mikill stuðningur við lögin og allir sem voru í þingsal voru fylgjandi þeim. Umhverfisnefnd var jafnframt samstíga. Við verðum bara að vona að lögin verði samþykkt á næsta þingi án þess að staða okkar versni.
17.03.2007 at 23:46 #585022Rétt í Þessu (23.3x)var verið að greiða atkvæði um lögin og vísa þeim til þriðju umræðu. Atkvæði voru 53 til 56 samhljóða um mismunandi greinar laganna. Umhverfisráðherra óskaði þingheimi og Íslendingum til hamingju með þjóðgarðinn sem er greinilega að verða að veruleika.
16.03.2007 at 08:54 #584174Ég legg til að fjarskiptanefnd boði til fundar um stöðu fjarskiptamála, bæði í nútíð og framtíð. Ég þekki þetta lítið en veit að það er full þörf á að kynna stöðuna og ræða þá möguleika sem eru til staðar. Það sem ég vil gjarnan heyra er: Staða NMT, staða nýja kerfins, Tetra, VHF og HF með/án notkunnar yfir netið. Tökum þetta sem jákvæðan brainstormfund.
Þorsteinn
15.03.2007 at 11:27 #584160Þetta er flott. Hversvegna leggjumst við ekki á eitt að búa til kerfi þar sem hægt er að nota VHF og HF um allt land á þenna hátt. Yaesu er með svona fyrir VHF, http://c11gkixw.securesites.net/en/wiresinfo-en/.
Þó að skipt verði út NMT og annað fengið í staðinn þá leysir það ekki það sem við þurfum.
Snorri nefnir réttilega að það þarf að skoða lög og reglur. Ef þetta er ekki leyfilegt í dag, þá má reyna að hafa áhrif á lög og reglur.
14.03.2007 at 08:38 #584140Eru einhversstaðar til kort af dreifingu NMT kerfisins og VHF út frá endurvörpum 4×4. Það væri gott að gera sér grein fyrir því hvar venjuleg drægni er og hvar eru steindauð svæði.
Gaman að heyra af tilraunum og prófunum hjá þér Snorri.
13.03.2007 at 15:39 #584128Sæll
Það er einmitt gott að heyra þetta, að Landmannalaugar eru ekki alveg dottnar út. Af 6 bílum náði samt einn sambandi, þannig að þetta skýrir ekki allt. Það eru jafnframt dauðir blettir annarsstaðar sem ég hélt að væru inni.
Meginmarkmiðið með spurningunni er að fá að vita hvort einhverjir sendar eru að detta/dottnir út sem voru inni áður.
Ég talaði við mann hjá samgönguráðuneytinu. Hann sagði að verið væri að bjóða út þessa 450 MHz tíðni og það ætti að skýrast í júní hvert framhaldið yrði. (Einhver hefur sennilega vitað þetta, bara ekki ég).
Ég er ánægður með að þú ert að afla upplýsinga um stöðu NMT og hvar hægt er að ná sambandi og hvar ekki, takk fyrir það.
Þorsteinn
13.03.2007 at 11:06 #584122Gat Sturla eitthvað upplýst um það hversu stór hluti hálendisins yrði dekkaður með nýju kerfi og þá hvenær? Hver er framtíðin, er búið að ákveða hana, hef ég misst af einhverju í þessari umræðu?
13.03.2007 at 11:04 #584328Sæll
Félagi minn var með kubb frá Guðlaugi í þessari árgerð af bíl. Það sem hann gerði var að setja takka á kubbinn svo hægt væri að slá hann út við venjulegan akstur. Kubburinn var stilltur til að gefa mikið þegar á þurfti að halda. Það fer betur með vélina að geta slegið út kubbinum.
Menn eru ekki sammála um max hita, en mikið yfir 700°C held ég að sé ekki holt til lengdar.
-
AuthorReplies