You are here: Home / Þórir L. Þórarinsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Ég er einn af þeim sem var á þeim fundi sem Ægir vitnar til.
Yfir höfuð er ekki skynsamlegt að rekja deilumál á spjallrásum og það er mín skoðun að það leiði sjaldnast til lausna. En fyrst Ægir tekur málið upp vil ég að fram komi að í þessu máli er ekki um einstaklinga að ræða sem af neinum "annarlegum" hvötum eða illvilja grípa til þeirra ráða sem þarna var gripið til og ekki stórmannlegt að nafngreina einstaklinga og reyna að gera þá að blórabögglum.
Fyrir þessari samþykkt Suðurlandsdeildar eru ríkar ástæður og fleiri en ein.
Staðreyndin er sú, eins og sést af niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar, að nær allir fundarmenn voru sammála um að Ægir hefði brotið alvarlega gegn lögum félagsins og því ekki fært fyrir deildina að hafa hann áfram sem félagsmann, hvað þá í stjórn.
Þessar ástæður vil ég, af tillitsemi við Ægi, og með hagsmuni félagsins í huga, ekki rekja á opinberum vettvangi. Slíkt yrði eingöngu öllum til tjóns, þar á meðal Ægi, Suðurlandsdeildinni og félaginu í heild.
Kveðja,
Þórir L. Þórarinsson
félagi í Suðurlandsdeild sl. 15 ár.