Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.05.2008 at 23:16 #622382
Langar að fá útskýringu frá Sigurði vegna skýrslu Ritnefndar. Þingmannaferð í Bláfjöll og hvar er miðjan ferðar í framhaldi af því ? Hver fór í þessa þingmannaferð í Bláfjöll ? Stjórnin gerði það ekki.
Það væri kannski ekki vitlaust að vera með umræður um skýrslur nefnda á aðalfundi svo hægt sé að leiðrétta svona vitleysur.
Kveðja Þorgeir
08.05.2008 at 20:20 #622378Hvernig var það hver tók völdin af hverjum og hver var í spotta á eftir hverjum.
Kveðja Þorgeir
08.05.2008 at 09:28 #622350með ólíkindum þrautseigur í vitleysunni Einar.
Ég held að núverandi stjórnarmaður hafi komið með þessa tillögu um að ekki þyrfti að senda út skriflegt fundarboð.
Hvað landsfund varðar hefur hann ekki heimild til að gera lagabreitingar en hann hefur fullt leyfi til að koma með hugmyndir eða tillögur að lagabreytingum sem lagðar eru fyrir aðalfund.
Hvað frummælanda að lagabreytingartillögunum varðar þá var hver tillaga fyrir sig aldrei rædd heldur var þeim öllum vísað frá í einu lagi áður en til umræðu kom þannig að kanski var það skiljanlegt að enginn frummælandi kom framm.Kveðja Þorgeir
02.05.2008 at 08:45 #621718Jú ef ritnefnd og vefnefnd verða sameinaðar falla öll framboð í þær nefndir sjálfkrafa niður, það þarf samt að manna þessar nefndir þar sem ekki er búið að leggja þær niður, og svo vantar í nýju nefndina ef hún verður til eftir aðalfundin.
Kveðja Þorgeir
19.04.2008 at 01:24 #620808Vefnefnd og stjórn stjórna lokun á aðgang, Stefanía er að vinna gegn hagsmunum klúbbsins með því að ganga erinda Jóns Ofsa Snælands og Tryggvi er að því líka (og þar með er ég óvinur no. 1 hjá Jóni) [Texti fjarlægður – Vefnefnd].
En þar með er ég að hugsa um að kveðja klúbbinn eftir næsta aðalfund vegna þess að ég hef manndóm í mér að klára það sem ég tek að mér
Kveðja Þorgeir
18.04.2008 at 13:31 #619886hvað er að því að nýliðar í klúbbnum sitji í nefndum og stjórn ef þeir hafa áhuga á því???? akkurat ekki neitt, ef nýliðarni fá ekki að koma og spreita sig þá væri engin klúbbur.
Kveðja Þorgeir
17.04.2008 at 22:41 #619870þú þarft ekki að vorkenna mér enda á ég bara nokkra daga eftir og þá get ég sagt og gert það sem mér dettur í hug.
En spurningin Laugi ætlarðu ekki að svara henni eða er þetta eins og venjulega hálfkveðnar vísur og dylgjur sem engin inneign er fyrir.
Kveðja þorgeir
17.04.2008 at 19:22 #619866ertu farinn að semja um sjálfan þig.
Kveðja Þorgeir
17.04.2008 at 19:16 #619862Klaki, nafngreindu þennan stjórnarmann og hvar hef ég sagt að Skúli sé með rógburð ?
Skúli las það ekki úr skrifum mínum og er mér það óskiljanlegt hvernig þú getur fengið þá útkomu.
Ég hef ekki bannað neinum að hafa skoðun á starfi stjórnar og ekki er ég að reyna að breyta skoðunum annara. Bara benda mönnum á að það eru fleiri en ein hlið á hverju máli og gott væri að fólk kynnti sér málið áður en það dæmir.
Til dæmis undirskriftarlisti sem gegur þar sem skorað er á stjórn að segja af sér. Þið sem búin eruð að skrifa og þið sem eigið það eftir HALDIÐI virkilega að þetta sé leiðin til að koma á frið og ró og sameiningu í klúbbnum ? svo athugið það að núverandi stjórn hættir á næsta aðalfundi.
Kveðja Þorgeir.
Ps Alveg er þetta dæmalaust með viðkvæmni fyrir nöfnum maður má ekki einusinni hrósa fólki án þess að vera hótað kæru og lögsókn.
17.04.2008 at 15:34 #619856Nei stundum er gott að loka bæði augum og eyrum og þykjast ekkert skilja en að sjálfssögðu hefur það áhrif á starfið þegar menn ganga um og baknaga og stunda rógburð á hendur sitjandi stjórn mánuð eftir mánuð.
Bassi hvar eru þessir menn sem hafa sagt sig úr klúbbnum, mér vitanlega hefur fjölgunin í klúbbnum aldrei verið meiri en einmitt nú um þessar mundir, hinsvegar veit ég að nokkrir létu taka sig af félagaskrá þegar þeim var gert það ljóst að þeir gætu ekki lengur notað afsláttin og rásirnar í VHF kerfinu án þess að borga fyrir það.
Kveðja Þorgeir
Ps. Hvaða viðkvæmni er þetta með nafnið á [Nafn fjarlægt – Vefnefnd] hún ætti að vera stolt af því að vera boðin formansstóllinn.
17.04.2008 at 11:31 #619848Mér þykir þú vera fljótur að gleima Skúli, varst það ekki þú sem átti að reka sem formann af því að þú gerðir aldrei neitt og var það ekki [nafn fjarlægt – Vefnefnd] sem átti að taka við af þér sem formaður í þá daga.
Ég er eifaldlega orðin mjög pirraður á þessu endalausa baknagi og söguburði um það sem þessi stjórn hefur átt að gera eða ekki gera og það að bera út lygasögur og leggja einn stjórnarmann í einelti er ekki eitthvað sem á að líðast í neinu félagi og þeir menn sem haga sér svoleiðis ættu í raun að ganga úr félagin, það mundi vera það besta í stöðunni.
Ég veit vel að ég hef líka verið kallaður hinum og þessum nöfnum og sagt að ég gerði aldrei neitt en ég vil ekki láta stjórna mér eða nota hvork beint eða óbeint.
Kveðja Þorgeir
15.04.2008 at 21:12 #619824held að þessi þráður hafi átt að snúast um hverjir gefa kost á sér í hvað. En ekki óánægjuvæl einhverra örfárra sem aldrei eru ánægðir með eitt né neitt.
Kveðja Þorgeir
07.04.2008 at 12:11 #619722Ég held að þú verðir að bíða með þessa spurningu þar til eftir aðalfund.
07.04.2008 at 08:20 #619708Jú bensín afslátturinn er bara hjá Shell
28.03.2008 at 14:18 #618680Og nú eru þeir við Rauðavatn og loka suðurlandsvegi og á Reykjanesbraut í Hafnarfirði.
Við skulum vona að þeir hafi úthald framm að 1. apríl þegar þing kemur saman.
20.03.2008 at 17:41 #618190Nei það er ekki gert ráð fyrir opnu húsi í kvöld enda rauður dagur.
En ef einhver vill opna í kvöld þá er það velkomið allir formenn nefndanna eru með lykil.
Kveðja. Þortgeir
08.03.2008 at 11:36 #616414Ég er með
Þorgeir
06.03.2008 at 13:13 #615184ætlar þú að leggja niður VHF kerfið? ef svo er ekki skaltu hætta að láta liggja að því í skrifum þínum að það standi til því ekki er mér vitanlega neinn annar sem talar um það innan klúbbsinns. Það verður haldið áfram að byggja upp kerfið og laga eins og gert hefur verið undanfarin ár og þetta veistu vel.
Kveðja Þorgeir
28.02.2008 at 11:43 #615454Er ekki sjálvirkt innsog á honum?
Ef svo er mætti athuga hvort það sé fast á, ef hann reykir mjög mikið þá ætti hann að tæma olíuforðan strax.
Kveðja Þorgeir
19.02.2008 at 22:37 #614608Þú mætir bara og hefur gagn og gaman af.
kv. Þorgeir
-
AuthorReplies