FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þórir Haraldsson

Þórir Haraldsson

Profile picture of Þórir Haraldsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 12 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 30.08.2006 at 14:15 #558988
    Profile photo of Þórir Haraldsson
    Þórir Haraldsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 12

    Sæll.
    Ég framkvæmdi þetta fyrir nokkrum (mörgum) árum og það er ekki mikið mál.

    Á mótornum sem ég setti í (88 orginal turbo með 24 v. rafm.) var ádreparinn einfaldur vakumloki sem fékk rafmagn frá sviss. Í stað 24 volta lokans setti ég 12 volta loka sem ég fékk hjá Jamil og ættaður var úr stuttum Cruser og hafði það hlutverk að opna vakum inn á millikassa (sett í 4×4 með rofa inn í bíl og á þennan loka). Eina sem þurfti að gera var að "snúa honum öfugt" þe. að hann opnaði þegar hann fékk straum frá sviss en lokaði þegar svissað var af.

    Varðandi startara þá var ég með segulloka sem ég held að hafi verið ættaður úr Benz vörubíl sem skaut 24 v. inn á startið (af 2 geymum). Vera má að þú getir fundið 12 v. startara úr litla bílnum eða þá frá 6 cyl. bensínvélinni sem var 12 volta (amk. ´81 – ´87), en ég mæli með segullokanum því hann gaf mjög öflugt start. Athugaðu líka voltatöluna á startaranum, en ég er smeykur um að hann verði latur á 12 voltum.

    12 v. alternator er auðvitað hægt að fá víða, en t.d. af bensínvélinni.

    Ég man ekki eftir neinum erfiðleikum með hitakerfið, mig minnir að sömu hitakertin séu í báðum mótorunum en hjá mér þurfti hann mjög litla hitun en var reyndar með "undirslætti" undir olíuverkið. Það ætti líka að vera einfalt að skipta um rafmagnsdótið í stýringunni en á það reyndi ekki hjá mér.

    Ekki er útilokað að ég geti fundið eitthvað af þessu dóti þar sem bílnum var hent fyrir nokkrum árum en eitthvað hirti ég úr honum. Vertu þá í sambandi í s. 664 1890.
    kv.
    Þórir H.





    28.06.2006 at 15:06 #555418
    Profile photo of Þórir Haraldsson
    Þórir Haraldsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 12

    Ég er nú vanur því að panta tíma á verkstæði áður en ég fer með bílinn þangað og ætlast til að fá þjónustu. Þess utan getur það verið fullkomlega eðlileg skýring að á vélaverkstæði á Selfossi, sem mikið vinnur við búvélar og setur mikið saman af nýjum vélum til afhendingar, sé fullbókað á þessum árstíma og ekki dragi úr álaginu fyrr en rignir og bændum liggur minna á sínum tækjum heldur en þegar þurrkglenna gefst.

    Mér finnst ósanngjarnt að flokka þetta undir lélega þjónustu, amk. veit ég að ég þarf að PANTA TÍMA með amk. viku fyrirvara til að koma mínum bíl í þjónustuskoðun hjá umboðsaðila og vinna þeir þó eingöngu við eina tegund sem þeir þekkja mjög vel.

    Auðvitað er það "landlægur andskoti" að vanta viðgerð með stuttum fyrirvara og líklega eru bændur ekki barnanna bestir í því að uppgötva bilun þegar á að fara að nota vélina, en því má heldur ekki gleyma að tæki bænda, eins og okkar hinna, bila stundum þegar þau eru notuð! Þá liggur bændum eins og öðrum atvinnurekendum oft mikið á að fá gert við, enda eiga þeir mikið undir því að ná góðum heyjum. Þá er bóngóðum mönnum, eins og Þóri frænda mínum, mikið í mun að reyna sitt besta til að bjarga málunum og þegar mörgum liggur mikið á verður henn einfaldlega að byrja á að vinna við uppsöfnuðu verkefnin áður en hann getur tekið ný inn á gólf.

    Ég verð að viðurkenna að ég hef fullan skilning á þessari aðstöðu hans og flokka hana alls ekki undir lélega þjónustu.





    15.06.2005 at 09:49 #524102
    Profile photo of Þórir Haraldsson
    Þórir Haraldsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 12

    Fossáin er ekki hættuleg ef menn vita af hylnum sem í henni er, hún er reyndar óslétt í botninn en á ekki að vera hættuleg óbreyttum jeppum ef varlega er farið. Ég er reyndar einn þeirra sem hef séð jeppa, sem þá var af stærstu gerð, 44" Scout, nánast týna húddinu í hylnum í Fossánni. Það slapp slysalaust en fyrir uþb. þremur árum kom ég að Musso bílaleigubíl með nefið í sama hyl og hann var á kafi upp á framrúðu.

    Þegar komið er vestanað, þ.e. frá Gullfossi þá þarf að gæta að því að beygja til hægri um leið og komið er út í ána og fara þvert yfir hana þar til komið er nánast að eystri bakkanum. Hylurinn er nefnilega nánast beint framundan þegar ekið er niður í ána. Ég hef vanalega fikrað mig meðfram honum eftir broti sem er neðan við hylinn en full ástæða er til að fara varlega og annað hvort vaða ána til að finna hylinn eða fylgjast mjög vel með og fara varlega.
    Góða ferð.
    Þórir H.





    11.05.2005 at 13:00 #522424
    Profile photo of Þórir Haraldsson
    Þórir Haraldsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 12

    Fyrst fram er komið að greinin í FÍB blaðinu er efnislega samhljóða yfirlýsingu félaganna væri það alveg þess virði að benda fjölmiðlum á að yfirlýsing FÍB sé ekki eingöngu rangtúlkun og útúrsnúningur á samþykkt félaganna, hún sé einnig í andstöðu við afstöðu FÍB og jafnframt fagna því að í ljós sé komið að afstaða FÍB sé í fullu samræmi við yfirlýsinguna.
    Ég læt ósagt hvaða álit ég hef á viðkomandi einstaklingi eftir þessa umræðu en hvet þá sem eru virkir innan FÍB að vekja máls á hvort talsmaður samtakanna eigi að standa reikningsskil orða sinna.





    29.04.2005 at 15:55 #195886
    Profile photo of Þórir Haraldsson
    Þórir Haraldsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 12

    Á gömlu síðunni, neðarlega til vinstri, var tengill frá aðila sem er að selja trefjaplastkassa sem ætlaðir eru framan á tjaldvagn. Ég get ómögulega fundið þennan tengil á nýju síðunni og þrátt fyrir nokkra leit þá finn ég fyrirtækið ekki.
    Er ekki einhver þarna úti sem getur bent á þennan -eða annan aðila sem selur svona?





    01.04.2005 at 14:29 #520260
    Profile photo of Þórir Haraldsson
    Þórir Haraldsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 12

    Mér sýnist ljóst að verðið á díselolíunni m.v. núverandi forsendur verði hærra en til stóð þegar lögin voru sett, amk. í samanburði við núverandi bensínverð, þannig að fyrirhuguð skattlagning er þá í andstöðu við forsendur þær sem fyrir lágu þegar Alþingi setti lögin. Það eitt hlýtur að kalla á endurskoðun gjaldsins.
    Þess utan þá er það mín skoðun að klúbburinn eigi að álykta gegn þessari viðbótarskattlagningu á ferða- og fjallamennsku sem er eitt mesta aðdráttarafl erlendra ferðamanna á Íslandi og einn mesti vaxtarbroddur í íslenskri ferðaþjónustu.
    Það hlýtur að vera hagsmunamál fyrir alla félagsmenn að eiga raunhæft val milli orkugjafa, hvort sem viðkomandi einstaklingur velur að aka á bensín eða díselbíl. – Líka má benda á að þeir sem velja að aka á bensínbíl eru ekki að tapa neinu þótt einhver annar aki um á díselbíl sem hann telur hagstæðari fyrir sínar aðstæður. Mér þykir vegaslit ekki veigamikil rök í þessu efni þar sem amk. flestum þykir nóg um skattlagningu á bíla í dag, enda væri þá nær að byrja á stóru bílunum. Vinur minn sem vinnur hjá Vegagerð ríkisins sagði að fulllestaður flutningabíll af þyngstu gerð slíti vegunum meira en 1000 fólksbílar! Hvar eru þá rökin fyrir að byrja á "samræmingu" á skattlagningu á milli 2 – 4 tonna þungra bensín og díselbíla?
    Umhverfissjónarmið mæla ótvírætt með því að áfram verði hagstæðara að aka á díselbílum en bensínbílum og nægir þar að benda á að díselbílar eyða færri lítrum af olíu en samsvarandi bensínbílar, t.d. í fjallaferðamennsku, að ekki sé talað um að eyðsla díselbíla eykst minna, í lítrum talið, þegar ekið er í þungu færi að vetrarlagi heldur en á bensínbíl.
    Ég mæli því með því að ritfærir menn undirbúi ályktun sem borin verði upp á næsta félagsfundi – og benda má á að vefspjallið er fyrirtaks vettvangur til að undirbúa slíkt. Þá geta líka áhugasamar deildir gripið boltann á lofti og fylgt í fótspor Reykvíkinganna.
    kv.
    Þórir.





    18.03.2005 at 12:23 #519312
    Profile photo of Þórir Haraldsson
    Þórir Haraldsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 12

    Sæll.
    Ef trktorinn var á Gnúpverjaafrétti er eigandinn nánast örugglega Ólafur Jónsson í Geldingaholti, – ef það hjálpar.
    Þórir H.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.