Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.09.2008 at 18:46 #629530
…þessar upplýsingar. Gott að vita þetta.
17.09.2008 at 11:58 #202926Hefur einhver farið sandinn nýlega og veit hvernig færðin þar er?
11.09.2008 at 11:59 #629182Eru þau leigð út líka, hjá klúbbnum eða annars staðar? Á hvaða verði þá?
23.06.2008 at 11:23 #624594Eru skuldahalarnir að þvælast fyrir ykkur í Mörkinni?
10.06.2008 at 16:04 #623604Mér yfirsást innleggið hér á undan, en spurningin um dagskrána stendur.
10.06.2008 at 16:03 #623602Sælt veri fólkið. Klukkan hvað á að fara af stað (mæta?) Er komin einhver dagskrá?
28.05.2008 at 23:38 #202484Og snúið þannig á hinn þríhöfða þurs olíufélaganna, sem hefur samráð um að okra eins og þeir geta á okkur?
Samkvæmt þessari frétt FÍB (http://www.fib.is/?ID=1757&adalmenu=13) hækkaði álagning olíufélaganna um 11 kr. á bensínlítrann frá apríl 2007 til október 2007.
Miðað við brjálæðislegar hækkanir undanfarið má bóka að þessi álagning blóðsuganna í olíufélögunum hefur ekki lækkað.
Hvað eru olíufélögin að taka í álagningu? 20-30 krónur á lítrann? Meira? Miðað við 2000 lítra notkun á ári eru olíufélögin að kosta bifreiðaeigandann 40-60.000 krónur á ári. Það munar um minna.
Hvernig væri að 4×4 gerðist innflytjandi díselolíu og bensíns? Atlantsolía er að auglýsa allt að 5000 lítra díseltanka.Er ekki þarna ágætis möguleiki til að lækka olíukostnað jeppamanna?
06.05.2008 at 10:52 #622446Kostar segl á Double Cap í dag hjá Seglagerðinni, segja þeir. Síðan eflaust einhverjir hundraðkallar, þúsundkallar fyrir að hanna festingu á pallinn.
05.05.2008 at 22:14 #622442Ég á eftir að tala við Seglagerðina, en mér leist nú ekki á verðin á skyggnunum hjá þeim á heimasíðunni. Kannski eru einfaldar yfirbreiðslur ódýrari, en ég ætla að heyra í þeim á morgun.
Það eru oft sniðugir, ódýrir, praktískir hlutir til í byggingarvöruverslununum. Kannski eru þeir saumaðir eða gerðir af indverskum börnum lokuðum ofan í myrkrastofu 16 tíma á sólarhring. Ég reikna hinsvegar með að Seglagerðin selji sig ekki eins ódýrt!
04.05.2008 at 23:11 #202403Sælt veri fólkið. Ég tók palllokið af Hilux sem ég á, til að geta flutt stóran hlut. Ég er bara svo ánægður með bílinn svona að ég vil draga það í lengstu lög að setja pallhúsið aftur á hann.
Bíllinn nýtist mér vel svona, ég gat meira að segja notað hann í heyskap nú um helgina.
Ef ég hinsvegar þarf að flytja farangur, töskur, tjöld o.þ.h., á pallinum, hvaða leið er best að fara? Er það segl, járnkistur (sá það einhvers staðar á bíl) eða eitthvað annað?
Einhverjar tillögur? Einhver?
12.04.2008 at 16:23 #619996Hann er fáum líkur, Árnesingurinn Óskar Helgi Helgason.
26.03.2008 at 18:42 #618554Veit einhver ca. hvað kosta brettak. fyrir Hilux 33?
08.03.2008 at 16:52 #616802Þetta átti að vera snjóRímur nr. 40, þ.e. að menn kveðist á (með snjógrímurnar á sér!) til að létta sér lundina. Gaman að þessu.
En takk fyrir góðar athugasemdir og góða ferð þið sem eruð að fara/farin í jeppaferð í góða veðrinu.
07.03.2008 at 11:57 #616772Takk fyrir svarið Samúel og það er ekkert fúlt við það. Ég er eins og ég hef sagt áður viðvaningur í þessum málum og þigg allar ábendingar. Ég byggði einmitt listann að miklu leyti á ábendingum frá þér.
Það er sennilega rétt með fartölvuna. Listinn er eins og ég segi engan veginn tæmandi eða á við allar ferðir, margt þarna sem má taka út, a.m.k. í styttri ferðum.
Ég setti olíubrúsana inn þar sem ég er ekki með aukatank. Strappar, ekki stroffur, auðvitað, smá hugtakaruglingur hjá mér! Eflaust kunna einhverjir enn betri aðferðir við að skorða lausa hluti í bílum.
07.03.2008 at 01:01 #202041Sælt veri fólkið. Ég hef spurt hér áður hvaða útbúnað þarf að hafa með sér á fjöll og fengið ágætis svör.
Ég er nú ýmsu nær og með hliðsjón af svörunum sem ég fékk og smá rannsóknarvinnu, m.a. úr bókinni Jeppar á fjöllum, hef ég tekið saman lista yfir það sem þarf að vera með.
Þetta er langur listi, en sennilega ekki tæmandi, eflaust er hægt að bæta við. En á svona bíl væri eflaust hægt að aka um á Gazasvæðinu, ef skotheldum rúðum er bætt á listann!
1. GPS-tæki
2. Fartölva
3. Sjúkrapúði/kassi
4. Topplyklasett, helst verkfærakista
5. Dráttarkaðall
6. Stuðaratjakkur, eða drullutjakkur
7. Tappasett og óþornað lím
8. Loftdæla og -slanga
9. Loftmælir, 0-20psi og 5-50psi
10. Slökkvitæki
11. VHF-talstöð (Tetra?)
12. Auka smurolía
13. Auka frostlögur
14. Startkaplar
15. Snjókeðjur
16. 2 olíubrúsa, fyrir lengri ferðir
17. Landakort
18. Gulir plastpokar til að merkja, ef farmur stendur út fyrir
19. Malarskófla eða álskófla
20. Sólgleraugu, helst jöklagleraugu
21. Sólarvörn
22. Snjógríma
23. Höfuðljós
24. Sterkt límband
25. Teppi
26. Kuldagalli
27. Ullarnærföt – aukapar, a.m.k. 1
28. Ullarsokkar – aukapar, a.m.k. 1
29. Bakpoki
30. Göngustafir
31. Svefnpoki, þægindamörk helst í kringum frostmark
32. Dýna, ef þarf að sofa í bílnum
33. Nóg af nesti, fyrir lengri ferðir
34. Gönguskór
35. Vöðlur
36. Lambhúshetta
37. Góðir hanskar eða vettlingar
38. Húfa
39. Trefill
40. Snjógríma
41. Stroffur til að skorða lausa hluti niður
04.03.2008 at 10:17 #616026Þú getur flett upp í tollskránni á tollur.is. Mér sýnist að varahlutir í bíla séu í Flokk XVII, 87. kafla undir númeri 8708 í tollskránni.
Ég fletti upp gírkössum og hlutum til þeirra (8708.4000), almenur tollur 7%, vörugjald 15%, úrvinnslugjald á pappírsumbúðir 7 kr/kg og plast 3 kr/kg og að sjálfsögðu VSK 24,5%.
03.03.2008 at 13:09 #615866Vil bæta við að það er algjör hneisa að vísa fólki frá sem búið er að panta, vegna handvammar þess sem tók pöntunina niður.
Ferðaþjónustuaðilar eiga bara að vera skaðabótaskyldir í svoleiðis málum.
03.03.2008 at 13:06 #615864Ég held það sé allt í lagi að fara með ung börn á fjöll, svo lengi sem barnið á sér ekki sögu veikinda eða ofnæmis og er líklegt til að þola ekki þunna loftið.
Ef eitthvað kemur alvarlegt kemur upp, þá er alltaf þyrla Landhelgisgæslunnar neyðarúrræði og fyrstu hjálpar búnaður er í skálunum, auk þess sem margir eru með sjúkrakassa í bílum sínum.
27.02.2008 at 20:48 #615426Mjög gott hjá þér að koma þakklæti til skila til bjargvættanna.
Vindkælingin er lúmsk, tala ekki um þegar krapi og frost bætist við. Eins gott að vera vel búinn (reikna með að þú hafir verið það, en slys gerast.)
Var á byrjendanámskeiði fyrir vélsleðamenn nýlega og mér fannst sláandi hvað hitastig líkamans getur verið fljótt að falla í köldu ísvatninu.
27.02.2008 at 20:42 #615436Hellisheiði þegar ég á erindi í borgina. Takk fyrir svörin. En dýr er dropinn orðinn svo líklega mun ég stilla óbyggðaferðum í hóf.
-
AuthorReplies