Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
31.05.2006 at 18:51 #553516
Ekki myndi ég kalla þetta læsingar. Þetta heitir
"Limited Slip" á frummálinu. Það á að standa "LS" á hásingunni ef þetta er í henni. Virkar ekki rassgat.
En það þarf að vera sérstök olía á drifunum til að þetta virki. Gírolía sem er merkt "LS".Kveðja
Þengill
04.05.2006 at 17:41 #551870Jeremy Clarkson er bara snillingur.
Að íslenskt landslag sé eins og Skotland á sterum.
Bara snilld.Kveðja
Þengill
03.05.2006 at 00:35 #551658Ég skil þetta þannig að fyrirtækjum er BANNAÐ að setja inn auglýsingar. Óheimilt = bannað!!!
Ég er greinilega einn mjög fárra sem finnst þetta pirrandi. Mér fannst þetta bara auðveld lausn á litlu vandamáli.
Kveðja
Þengill
01.05.2006 at 18:56 #551650Það er kannski rétt. Það er nú samt ekki allir félagar í klúbbnum þó að þeir setji auglýsingar þarna inn. Ég er t.d ekki félagi, en það er nú bara aulaskapur í mér.
Svo er nú greinilegt að bílasalar eru farnir að setja inn auglýsingar hérna.
Enda er ég ekki að tala um að það þurfi að mata allt ofaní okkur. Það bara flýtir fyrir leit ef maður er að leita að jeppa. Líka ef maður er að leita að fólksbíl.Þetta var bara svona hugmynd.
Kveðja
Þengill.
01.05.2006 at 18:19 #197885Hvernig væri að vera með sér þráð fyrir fólksbíla?
Mér finnst það mjög sniðugt. Er ég kannski sá eini sem er pirraður yfir öllum fólskbílunum í auglýsingunum?Kveðja
Þengill
26.03.2006 at 22:38 #547448Ég var nú kannski ekki að tala um kveikja í bílum. 😉
En allavega loka og tefja og svoleiðis.
26.03.2006 at 17:59 #547438Við íslendingar kunnum ekki að mótmæla. Ekki nema þegar á byggja stórt hús einhversstaðar í andskotanum sem skyggir á útsýnið. Þá fer allt í gang og allir vitlausir. Safna undirskriftum og þess háttar.
Hingað til hefur ríkistjórnin ekki hlustað á það sem þjóðin hefur til málana að leggja. Fólk bara gefst upp og lætur taka sig í rassgatið aftur og aftur.
Samanber Kárahnjúkavirkjun.
Við þurfum að taka okkur Frakka til fyrirmyndar. Þeir kunna að mótmæla!!!
21.03.2006 at 17:06 #547140Það er nauðsynlegt fyrir bíla sem eru mikið á fjöllum á veturna að vera með syntesíska olíu á öllu. Hún er eina olían sem þolir mikið frost.
Og í miklum kulda snýst þetta einfaldlega um, þynnri því betra."Olíur með mismunandi seigju við sama hitastig fá ákveðna SAE tölu sem gefur til kynna seigjusvið olíunnar."
"Lægri SAE tala, þynnri olía; hærri SAE tala þykkari olía.
Olía með bókstafinn "W" gefur til kynna að seigja olíunnar er mæld við -18°c en olía án bókstafs er seigja olíunnar mæld við +100°c.
Þetta þýðir að fjölþykktarolía SAE 10W/30 hefur seigjuna við -18°c sem liggur á SAE 10W sviðinu en seigjan við +100°c liggur á SAE 30 sviðinu.""SAE 10W/30 olía nær því yfir svið frá SAE 10W, 15W, 20W, 25W, 20, 30."
"Hafa skal í huga að SAE talan gefur ekki til kynna seigju heldur seigjusvið."
Upplýsingar úr dagbók Olís 2006.
Olís selur líka syntesíska olíu sem heitir Visco 7000 0W-40 og er frá BP. Hún er með sama seigjusvið og Mobil1 en er aðeins ódýrari.
Það eru líka til syntesískar gírolíur t.d. Multigear S 75W-90 frá Texaco, fæst í hjá Olís.Syntesískar mótorolíur frá Olís eru t.d:
BP Visco 7000 0W-40
Havoline synthetic 5W-40
Vanellus E7 Supreme (hönnuð fyrir diesel, fæst aðeins í 20ltr og á smurstöðvum)Kveðja
Þengill
21.02.2006 at 17:55 #543718Svona varaaflsgeymir kostar ekki 21þús hjá Olís.
115ah kostar 15.229.- V.nr. 25092.
21.02.2006 at 17:36 #543826Fáðu allt sem tryggingafélagið segir við þig skriflegt. Það hefur komið upp sú staða að þegar það er beðið um eitthvað skriflegt um það sem þeir hafa sagt. Þá draga þeir það til baka. Þeir reyna allt þessir andskotar.
Hvernig er þetta með fornbíla? Það væri kannski ráð að tala við fornbílaklúbbinn. Ég trúi ekki öðru en að þeir séu með bílana sína kaskótryggða.
Þinn er 26ára gamall og orðin löglegur fornbíll. Ekki satt?Kveðja
Þengill
28.01.2006 at 17:36 #540528Hvernig fóru þeir inní bílinn? Brutu þeir rúðu?
Það er nefnilega töluvert erfitt að komast inní svona bíla nema með réttu græjunum. Og þær græjur á ekki nokkur maður nema lásasmiður.
Ég vann sem slíkur í nokkur ár. Þekki þetta þar af leiðandi aðeins.Nema að þetta hafi verið Grand Cherokee. Þeir eru mun auðveldari.
Kveðja
Þengill
20.01.2006 at 13:23 #538822Ég man ekki hvað minn er skráður þungur. Minnir að hann sé eitthvað í kringum 1400kg. En ég var einu sinni á ´87 bíl sem var búið að setja HO vél í og var á 31". Hann var einmitt skráður eitthvað svona lítið. En ég fór með hann á vikt. Þar mældist hann 1810kg með mig innanborðs(83kg), hundinn (35kg), hálfur af bensíni og eitthvað fleira drasl.
En tölurnar í skráningarskirteininu eru, held ég, tölur frá framleiðanda. Þeir vikta bílana algjörlega tóma. Ekki með kælivatni eða olíu á neinu.
Nema auðvitað ef bílarnir eru jeppaskoðaðir.
20.01.2006 at 09:15 #538818Það er greinilega ekki samræmi í hestafla tölum í Grandinum.
Ég get verið sámmála því að Grandinn er örugglega skemmtilegri á grófum malarvegi.
En skiptingin og vélaraflið finnst mér betri í XJ bílnum.
En það er misjafn smekkur manna auðvitað!!! 😉
19.01.2006 at 18:04 #538862Það er líka til Syntesísk koppafeiti. Fjallabílar sem eru á jöklum og geta átt von á miklu frosti eiga að vera með syntesískar olíur (ekki hálf syntesískar) á öllu. Mótorolíur sem eru 5-40 eða 0-40 og gírolíur sem eru 75-90. Syntesískar olíur þola frost mikið betur en aðrar olíur. Þær eru líka þynnri. Því þynnri sem olían er því fljótari er vélin að ná upp smurningu í kaldræsingu. Það á líka við um drif, gírkassa og millikassa.
19.01.2006 at 17:36 #538814Ég á Cherokee ´91 4,0ltr HO. Hann er skráður 181 hestafl. Pabbi gamli á Grand Cherokee ´94 4,0ltr. Hann er skráður 185 hestafl.
Þannig að hestafla talan er mjög svipuð en Grandinn er ekki næstum því eins skemmtilegur og minn. Skiptingin mun skemmtilegri og mun meira afl í mínum.
19.01.2006 at 17:12 #538812Félagi minn á Cherokee ´94 4,0ltr HO beinskiptan.
Og er til sölu. Er 31". Fínn bíll.Sendu mér mail thengillo@hotmail.com
Kveðja
Þengill
19.01.2006 at 16:57 #539306Sám Dekkjahreinsir er langt bestur í þetta. Hann er til í 1ltr og 5ltr á öllum betri bensínstöðvum (Olís).
Það er ekki gott að nota Terpentínu (White spirit). Hún er svo feit. Hún leysist ekki upp í vatni eins og Dekkjahreinsirinn og Olíuhreinsirinn.
Ef þið fáið terpentínu á hendurnar og reynið að skola hana af með vatni þá sjáiði hvað ég á við. Vatnið perlar af. Þið viljið ekki hafa svoleiðis húð á dekkjunum.Þetta skiptir mjög miklu máli, þ.e.a.s að hreinsa dekkinn. Sérstaklega ef þið eruð mikið í Reykjavík eða þar sem saltað er. Því saltið leysir upp asfalt úr malbikinu og það er það sem sest á dekkin hjá ykkur.
En þið sem eruð úti á landi, þar sem ekki er saltað, finnið náttla engan mun. Því að það er ekki nein tjara á dekkjunum ykkar. 😉Kveðja
Þengill
18.01.2006 at 23:15 #539352Mótorinn kannski brunninn!!!
23.12.2005 at 14:00 #533646Hann getur bara sofið eftir hann deyr!!! (Vona nú samt að það gerist ekki í bráð) 😉
En ég óska öllu jeppamönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Kveðja
Þengill
Selfossi
13.10.2005 at 02:38 #528982Það er sitthvor bíllinn sem fyllir á lituðu og ólituðu olíuna hér á selfossi. Þeir sem fylla á lituðu olíuna eru eingöngu með litaða olíu á sínum bílum.
Kveðja
Þengill
-
AuthorReplies