Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.01.2010 at 05:52 #209667
sælir spjallverjar, mig er farið langa alveg svakalega mikið í að skipta um mótor í Isuzu Troopernum mínum og mig langar í stærri dísel mótor en ég vil alls ekki fá mér mótor með tölvudraslli og helst sem minst af rafmagnsdraslli. Ég hef verið að spá svolítið í 4L úr 60 cruiser (og kanski einhver geti sagt mér kosti og galla við þá mótora) en ef einhver er með uppástungu endilega að skella henni hér inn.
29.12.2009 at 19:07 #673292[quote="ingi2bio":3qpwm73b]Bara rúlla þetta eins og búið er að stinga upp á með lakkrúllu. Ef þetta er gert sæmilega þá getur það komið mjög vel út, ég t.d. rúllaði bara Súkkuna hjá mér og það kom bara þokkalega vel út.
[url:3qpwm73b]http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_itemId=217915[/url:3qpwm73b]
Eins og hér sést þá er þetta bara í lagi[/quote:3qpwm73b]Þessi súkka er bara í lagi, mikið svakalega er þetta orðinn flottur fjallabíll og það er sjaldan sem ég segi að súkkur séu fallegir bílar.
29.12.2009 at 14:52 #673442En svo er ég líka að spá hvernig sé með það að snúa klöfunum, er þetta erfitt? Ef einhver á teikningar eða getur sagt mér hvernig þetta á að framkvæma?
29.12.2009 at 04:57 #209392Er að spá í að breyta 35″ Toppernum mínum og setja hann á 38″ en vill samt ekki eyða of miklum pening í það né tíma svo ég spyr ykkur spjallverjar hvernig sé best að gera þetta? Ég er búinn að heyra með klafa síkkun og líka að snúa klöfunum og ætllaði að ath. hvort væri sniðugara?
05.11.2009 at 12:13 #208025Sælir spjallverjar, getur einhver sagt mér hvernig 38″ eða 42″ Dodge ram með cummins 5,9 dísel rokknum hafa verið að virka á fjöllum?
12.08.2009 at 12:33 #205732Sælir spjallverjar, ég er með Isuzu Trooper ´99 sem vill ekki í gang. Hann var settur við tölvu og eina villan sem kom upp var einhver olíu-þrýsti-skynjari í ventlalokinu. Nú er ég búinn að skipta um hann en fæ hann ekki í gang, ég er búinn að heyra að maður verði að starta þeym í 15-20 min. til að dæla inn á railið og allt hitt drasllið en ég held að ég hafi startað honum í um 10 min í gær og fann aldrei neinn mun. Ég er búinn að tékka hvort það komi hráolía og hún kemur, ég er búinn að fara yfir öll öryggi og relai og það tikkar allavega í þeim. En nú stend ég allveg á gati og veit ekki neitt hvað er að. Ef einhver er svo vitur eða hjálpfús í þessum blikkdósum má hinn sami hafa samband við mig annaðhvort í síma 865 3162 (eftir kl.16.00) eða senda mér mail á: svennisaeti69@hotmail.com.
Með fyrir fram þökk Sveinn Gíslason
13.02.2009 at 04:19 #640624takk fyrir þetta, ég tékka á þessari manual bók.
11.02.2009 at 04:26 #203790Málið er að ég fæ troopann ekki til að fara í fjórhjóladrifið. Það kemur eðlilegt ljós í mælaborðið en hann er samt ekki að grípa á hvorugu hjólinu. Er eitthvað öryggi sem gæti verið að klikka??? Ef einhver hefur reynslu eða vit á þessu drasli endilega skrifa það hér.
K.Kv. Svenni
08.01.2009 at 19:42 #636452Ég bara nenni ekki að vera alltaf að standa í því að brjóta drif eða annað slíkt.
07.01.2009 at 18:54 #636434Nú er ég ekki mjög fróður maður um hlutföll, en virkar þetta þannig að eftir því sem tölurnar eru lægri því lægri hlutföll eru þau? Einsog t.d. 4:62 eru lægri hlutföll en 4:88? og eitt enn ekki vitið þið um hásingar undan patroll á ekki mikinn pening?
07.01.2009 at 01:08 #636426Vinur minn er góður í smíða 4 link undir jeppa, hann á sex hjóla Hiluxinn sem var á F4x4 bílsýninguni í haust. ég held ég endi allavega að aftan í 4 link. Og þetta með að hafa púða eða gorma er svo sem ekkert heilagt fyrir mér, það er bara ekki verra að geta stillt stífleikann í fjöðruninni eftir hentugleika.
06.01.2009 at 18:52 #636418er að spá í 350 chevy og hafa hann á loftpúðum að aftan, en það verður litið kanski öðrum augum á Trooper en einhverja bilanadollu ef þetta gengur allt upp.
06.01.2009 at 02:09 #203486Er að spá í að breyta Troperinum mínum og setja 38″ undir hann. Ég er samt mikið að spá í að setja 8 gata bensinmótor ofan í hann, ekki minni en 350 og er að spá hvaða hásingar og hvernig fjöðrunarkerfi ég ætti að hafa? Ef einhverjir eru með uppástungur endilega að koma með þær en allt óþarft skítkast er afþakkað.
12.08.2008 at 16:28 #202772Hvar er hægt að fá ódýrustu þennslu múffuna og túpu úr stáli í bænum, er búinn að heyra að maður þurfi að hafa þennslu múffuna úr stáli er eitthvað til í því?
12.08.2008 at 12:02 #202770Er einhver hér sem getur soðið fyrir mig samann 3″ stálpúst, á allar beyjur, vanntar bara að koma þessu undir fyrir helgina. Ef einhver er laghentur endileg að hafa samband í síma: 865 3162.
Kv. Svenni
01.08.2008 at 10:40 #202730Er með ´99 trooper sem tók upp á því um daginn að slá út dagljósa búnaði og og kveikja öll viðvörunarljós í mælaborðinu, aðal ljósin dofnuðu og hann er bara ná að halda hleðsluni mitt á milli 8 og 12 á hleðslu mælinum í mælaborðinu. Ef einhver getur sagt mér hvað þetta gæti verið þá væri það óskandi.
Ég er búinn að tékka á relay-inu fyrir hleðsluna og það er í lagi. Ef þetta er altenaitorinn er einhver sem getur mællt hann fyrir mig? Er í Kópavogi.
09.03.2008 at 12:40 #615508Ég er allveg til í að fara upp á Langjökul einhvern laugardaginn ef ég kem drossíunni í gang. En einsog er ég að reyna koma bílnum í gagnið (skipta um öxul og hjöruliði í ´99 Trooper sem er ekki að gera sig hjá mér þar sem ég kem ekki nýja öxllinum beynt að).
09.03.2008 at 03:11 #202059Ég er í feitu veseni með að koma nýjum öxul í Trooperinn hjá mér sem er árg. ´99. Var að spá hvort ég þyrfti að rífa stýrisstöngina úr til að geta tjastlað þessu drasli samann? Ef einhver getur séð af smá tíma til að leiðbeina mér við þetta eða hjálpa mér við þetta drasl á morgunn sunnudag þá verð ég verkstæði sem heitir J.K. Bílasmiðja upp á Eldshöfða 19.
04.03.2008 at 23:38 #615500Já þetta eru fínir sleðar að því leitinu til, en ég kemst nokkurn veginn það sem ég vill komast á mínum (þegar hann er í lagi) og hann kemst nú aðeins hraðar en 50kmh.
04.03.2008 at 19:46 #615496Þakka ykkur fyrir þetta, ég prufa þetta með bensínið og að blása í tankann.
-
AuthorReplies