Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.12.2014 at 15:58 #774780
Sælir bara að prufa hvort ég geti svarað hér.
26.11.2014 at 21:27 #773325Á ekki að mæta áí vinnuferð um helgina
13.11.2014 at 18:20 #77300511.11.2014 at 22:22 #772984Já nú er það þannig að mig langar að gefa þér Nýtt GPS tæki. En þú þarft að vinna fyrir því. Hvernig?
Jú koma á árshátíð klúbbsins og ÞÁ GETUR ÞÚ UNNIÐ!!!!!
Garmin Dakota 10 með Íslandskorti
Tachyon OPS HD hasarmyndavél
ARVA snjóskóflu
ARVA snjóflóðastöng
ARVA Bakpoki
Og allt þetta frá GARMINI búðinni á aðeins 7.000 kr.Ef þig langar í þetta þá kostar það ekki undior 140.000 kr. Pesónulega þá meira að segja keypti ég tvo miða bara til að vinna þennan vinning.
04.11.2014 at 15:42 #772897Hér fyrir neðan er linkur á samtal sem Reykjavík síðdeigis átti við Jónas Guðmundsson hjá Landsbjörgu.
Hlustið endilega á viðtalið og komið með ábendingar.
http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP30914
28.10.2014 at 12:45 #772784Miðasala er hafinn á árshátíðina sem haldinn verður 15. nóvember í Rúbín Öskjuhlíðinni. Miðasalan er í höndum Rögnu á skrifstofu klúbbsins og einnig á fimmtudagskvöldum á opnu húsi. Einnig er hægt að panta miða í netföngum f4x4@f4x4.is og skemmtinefnd@f4x4.is. Síminn á skrifstofunni er 568-4444 einnig er hægt að hringja í 844-5000 og ég kem skilaboðum á réttan stað.
Við ætlum að reyna að merkja öll sæti fyrir kvöldið þannig að allar upplýsingar um hverjir vilja sitja saman til borðs verða að liggja fyrir.
Kv.
Skemmtinefndin
10.10.2014 at 11:46 #772732Ég rakst á áhugavert spjall inn á Hugi.is og spurning hvort þetta eigi ekki enn við þó að klúburinn sé orðin 30 ára. Hér er spurningin óbreytt en endilega gefið kommennt á spurninguna.
Jæja hvernig finnst ykkur nú að Ferðaklúbburinn 4X4 sé orðinn 20 ára?
Finnst ykkur að hann hafi gert eitthvað fyrir jeppamenn yfir heild?
Og hvað helst þá?
Það væri gaman ef menn myndu svara mér og segja mér hvað þeim finnst um þennan klúbb og hvað mæti laga (ef eitthvað er)
08.10.2014 at 14:12 #772134Opið hús verður föstudaginn 10. október upp á HÖFÐA. Húsið opnar kl. 20:30 – 24:00. Koma svo mæta, möguleiki á óvæntum uppákomum. Fer eftir því hverjir mæta.
Ungir og nýjir félagsmenn eru hvattir til að mæta eldri og gamlir félagsmenn mega koma.kv.
Skemmtinefndin
04.10.2014 at 13:42 #772079Sæl.
Leiðinlegt að enginn skyldi mæta til að opna húsið á fimmtudaginn, ég viðurkenni það að ég hugsaði ekkert út í opna húsið upp á Höfða. Auðvita á þetta ekki að gerast en því miður þá gerðist þetta. En sá sem sér um opna húsið var veikur en lét okkur í stjórninni ekki vita þannig að við gætum hlaupið í skarðið. En eins og flestir vita þá fer mesti kraftur starfsins í Síðumúlan en þar erum við að vinna öll mánudagskvöld og miðvikudagskvöld. En það er svo sem engin afsökun, ef auglýst er opið hús á að vera opið hús. Við munum sjá til þess að þetta gerist ekki aftur og bið enn og aftur afsökunar á að engin skyldi opna á fimmtudagskvöldið.Kveðja
Sveinbjörn
01.10.2014 at 16:14 #771923Glæsilegt hjá þér Rúnar. Þetta er ekkert smá flott, greinilegt að ég þarf að s´pita í lófana ef við eigum að geta farið saman þremenningarnir á fjöll…..
kv.
Sveinbjörn
28.09.2014 at 13:46 #771865Á miðvikudeginum síðast byrjuðum við að setja upp vegginn fyrir skrifstofuna, Biggi málari er að skrapa veggi í kjallara og á efri hæð. Á mánudaginn mætir Haddi múrarmeistari frá Múrlínu til að skoða gaflvegginn og leiðbeina okkur með hvað við þurfum að gera til að gera hann kláran fyrir veturinn. Mér skilst að á mánudagskvöldið eigi að halda árfram með vegginn við skrifstofuna og byrja á pípulögn. Teikningar eru að verða klárar þannig að vinna fer á fullt strax á mánudaginn. Sjáumst hress.
kv.
Sveinbjörn
22.09.2014 at 11:34 #771806Sæl.
Í kvöld á að ráðast á pípulagnir og fjarlægja ofna. Þau verkfæri sem vantar í þá vinnu eru Rörtangir allar gerðir og slípirokkar með skurðarskífum. Sjáumst í kvöldFasteignanefndin
19.09.2014 at 15:48 #771678Árshátíð Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldin á Rúbín (Keiluhöllinni) Laugardaginn 15. nóvember 2014. Dagskrá verður aulýst síðar en hún verður glæsileg að vanda, þríréttað, skemmtiatriði og dúndur dansleikur…..
Skemmtinefndin
15.09.2014 at 12:16 #771610Sæl.
Nú er aftur kominn mánudagur og vinna í Síðumúlanum. Í kvöld þurfum við að klára að þrífa og gera klárt fyrir uppsetningu milliveggja og málningu í kjallara. Við þurfum að sópa og setja í kerrurnar allt sem á að henda þannig að það verði ekki fyrir okkur. Mæting kl. 18:30 eins og venjulega.
ATH. það er alltaf heitt á könnunni fyrir þá sem vilja kíkja….Kv.
Sveinbjörn
10.09.2014 at 16:01 #771566Sæl.
Nú er kominn miðvikudagur og þá er vinnudagur í Síðumúlanum kl. 18:30. Í kvöld á að klára að brjóta niður steypta veggi og henda múrbrotum út í gám. Á staðnum verða sleggjur, grímur og kaffi…… Hlakka til að sjá ykkur. Endilega kíkið við og heilsið upp á mannskapinn.—
Með kveðju
Sveinbjörn HalldórssonKveðja
Sveinbjörn
09.09.2014 at 15:38 #771550Sæl.
Það var líf og fjör í Síðumúlanum í gærkvöldi. Ótrúlega mikið hreinsað til, allir timburveggir farnir í burtu og byrjað á að brjóta niður steyptu veggina. Það var ótrúlegt hve brotaviljinn var sterkur hjá okkur þar sem nánast heill veggur var sleginn niður. Verkið miðar vel og verður mikið fjör á miðvikudaginn þegar steyptu veggirnir verða kláraðir og steypubrotunum mokað út í gám. Þá er í raun hægt að hefja uppbygginguna.
03.09.2014 at 12:53 #771387Sæll Sturla.
Skil vel pælingarnar hjá þér varðandi þetta mál. Held að það verði erfitt að fá botn í það. En eins og Snorri benti okkur á á fundinum þá verðum við að sýna Viðbragðaðilunum skilning í því sem þeir eru að gera og virða allar þær lokanir sem settar eru upp. Af hverju svona mikla lokanir er sennilega vegna þess að þeir vita ekki hvað getur gerst og loka meira svæði en minna. Ég vona að félagsmenn Ferðaklúbbsins fylgi öllum þeim reglum og lokunum sem settar eru þó að við séum ekki kanski sátt við þær, en það er allt annað mál.
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
03.09.2014 at 12:46 #771386Sæll Sigurður Bjarni og velkominn í klúbbinn. ég er sammála Jóni G. um að þú hafir samband við Vefnefndina vegna prófílsins þíns á vefnum og eins með innanfélagsmálin. Mig langar að benda þér á að á mánudögum og miðvikudögum þá verðum við að vinna inn í Síðumúla 31 i nýja félagsheimilinu (eins og þú hefur tekið eftir) og hvet ég þig til að koma og hitta þar aðra félaga í klúbbnum og eins taka þátt í starfinu með okkur. Þannig kynnist þú okkur og við kynnumst þér.
Sjáumst hressir.
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson formaður Ferðaklúbbsins 4×4
25.08.2014 at 16:56 #771171Sæl.
Við Hjörtur fórum á fund Umhverfisstofnunnar og létum þá vita af þessari heimasíðu.
25.08.2014 at 16:51 #771169Sæl Jón.
Þú mátt bæta inn leiðinni að Hraftinnuskeri. Þar á að stika, leiðin að Dalakofanum er bætt við ef við höfum tíma.
-
AuthorReplies