Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.09.2008 at 15:50 #202953
Núna fyrir helgi tók ég eftir því að einhverjir óprúttnir náungar hefðu ákveðið að eignast hásingarnar mínar, án míns samþykkis. Þetta eru Dana 60 hásingar undan Dodge. Ef einhver hefur heyrt af einhverjum sem nýlega fékk svona hásingar þá má hann endilega láta mig vita með pósti á klettas8@simnet.is .
Kveðja
Sveinbjörn R-043
14.09.2008 at 14:30 #202912Eftirfarandi bréf barst klúbbnum:
ATH!
Kvikmyndafyrirtækið Pegasus leitar eftir fólki á aldrinum 18-100 ára til þess að vera aukaleikarar í glænýjum sakamálaþátt fyrir RÚV.
Við verðum í tökum 15., 16. og 17. september næstkomandi.
Áhugasamir fá frekari upplýsingar eða skrá sig með því að hringja í síma 664-6308 og tala við Katrínu.
Spennandi vinnustaður, skemmtileg hlutverk og góð laun í boði.Kveðja
Stjórn
11.09.2008 at 10:39 #629180Ferðaklúbburinn 4×4 á talstöðvar til útleigu, í þeim eru allar rásir klúbbsins, leiga á stöðvunum eru að mig minnir 3.000,- fyrir félagsmenn. Stjórnin verður í kvöld upp á höfða þannig að ef þú villt þá getur þú komið upp á Höfða um 8 leitið og fengið stöðvar.
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður f4x4
08.09.2008 at 21:27 #628818Vinnsamlega gættu að orðalagi þínu á vefnum.
Eins og þú veist hefur klúbburinn starfað í áraraðir að bættri náttúruvernd og verið leiðandi í mörgum góðum málum er varða náttúruvernd. Það er ekki rétt að vera með svona ummæli, það líka er markmið klúbbsins að verja náttúru Íslands og hafa hana eins ósnortna og hægt er.
Það er ein að forsendum frjálsra ferðamennsku.Kveja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður Ferðaklúbbsins 4×4
08.09.2008 at 13:20 #628916Sæll Gísli
Ég lenti í svipuðum vandræðum með Cherokee hann var í lagi í smá tíma en þá missti hann afl. Eftir að vera búi að skipta um helling af dóti í vélinni, skera hvarfakútinn úr þá kom í ljós að bensíndælan missti þrýsting og þá fúskaði bíllinn og missti afl.
Kveðja
Sveinbjörn R-43
04.09.2008 at 14:34 #628762Sælir
Ég hef notað fyrirtækið Blástur í Hafnarfirði þeir eru mjög sanngjarnir.
Kveðja
Sveinbjörn R-43
24.08.2008 at 11:25 #628014Það var víst ekki falleg að koman að skálanum. Búið að brjóta rúður og skemma hurðir, þannig komust þeir inn. Við þurfum að vera dugleg að finna út hverjir voru á ferli á þessu svæði og afla upplýsinga. Þessum ribböldum þarf að ná og láta þá borga tjónið. Ég vona að einhverjir viti að ferðum á svæðinu á þessum tíma og láti vikomandi yfirvöld vita.
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður f4x4
22.08.2008 at 21:39 #627928Það mætti halda að það þyrfti að ræða stór mál á Landsfundi. Hann tók hvorki meira né minna en eitt ár. Fyrir einhver ótrúleg mistök(sem ég geri bara stundum) þá sló ég inn 19.09.2007 – 21.09.2008 sem segir Landsfundur í eitt ár, ég er viss um að við yrðum orðnir rosalega leið/ir á hverjum öðrum eftir eitt ár lokaðir inn í fjallaskál, ekki hugsa lengra …….
Enn að öllu gamni slepptu þá er búið að laga þetta og biðst ég afsökunar á þessum mistökum.
Kveðja
Sveinbjörn R-43
19.08.2008 at 15:01 #627812Sæll Heiðar
Það var nú aðl ástæðan fyrir því að farið var í þessa framkvæmd. Við verðum að tryggja að við getum byggt við Setrið.Kveðja
Sveinbjörn R-43
19.08.2008 at 13:51 #627806Það er eingöngu gert til að kynna þeim málið. Formenn deilda eiga að hafa aðgang að skýrslum stjórna og nefnda. Það er engin hefð fyrir því að gera þetta svona en ef við ætlum að auka upplýsingaflæði og leyfa félagsmönnum á landsbyggðinni að fylgjast með þá er þetta góður staður til þess. Ef byggja á félagið upp og efla það þá er gott að hafa aðgang að skýrslum fyrrverandi stjórna og nefnda til að varast það sem miður fór og geta farið aðrar leiðir. Ég vona að þetta geri einhvað til að upplýsa hvað um er að vera ef ekki þá lætur þú mig vita og ég hringi í þig.
Kveðja
Sveinbjörn R-43
19.08.2008 at 13:09 #627798Sæl
Það er ekki verið að breyta neinu, skýrslur stjórna og nefnda eru til og verða til. Þeir sem vilja fá að kynna sér innihald skýrslu stjórna og nefnda geta fengið að lesa skýrslunar á skrifstofu félagsins, einnig verður skýrslan borinn upp á Landsfundinum. Aðalfundargerð er að verða tilbúin, hún á ekkert skylt með skýrslunum en segir frá því sem gerðist á aðalfundinum í hnotskurn.
Þetta framtak Stefaníu er frábært, það var kominn tími til að upplýsingaflæði yrði frá stjórn og nefndum út til félagsmanna. Að fá álit annarra en stjórnar á fundum er miklu betra og gefur góða mynd af starfi klúbbsins.
18.08.2008 at 12:16 #627450Sæll Ólafur
Jú það er hugmynd um að allar landsbyggðadeildirnar hafi sérstakann bás á sýningunni til að kynna þar allt er viðkemur störfum deildanna. Skálamál verða vonandi ofarlega sem og kynning á svæðum í kringum skálana. Hugmyndin hjá sýningarnefnd er að fara yfir 25 ára sögu Ferðaklúbbsins í máli og myndum. Sýningarmálið verður eitt af þeim málum sem farið verður yfir á Landsfundinum í September og þá verður kannað hvað deildirnar vilja gera.
Það er alveg öruggt að með samstilltu átaki þá getur klúbburinn haldið flotta sýningu í Fífunni (sem er 9600 fm).
kveðja
Sveinbjörn R-43
17.08.2008 at 14:59 #627442Sælir félagar
Það er gott að sjá hve margir svara kalli þegar á reynir, það hafa einnig borist fjöldi pósta frá félagsmönnum sem hafa áhuga að hjálpa til. Á fimmtudaginn næsta verður opið hús upp á Höfða og verður þemað sýningin. Gott væri að þeir sem hefðu áhuga á að starfa í undirbúningi kæmu á milli 20 – 22 til að fara yfir skipulag og fl.Kveðja
Sveinbjörn R-43
14.08.2008 at 14:52 #202782Eins og flestir vita verður Ferðaklúbburinn 4×4 með sýningu í Fífunni dagana 10 – 12 október. Mikill áhugi hefur verið hjá fyrirtækjum og eru þegar komnar nokkrar panntanir um pláss. Þeir sem hafa áhuga á að fá sýningarpláss geta haft samband við mig í síma 899-1205 (Sveinbjörn). Einnig væri gott að fá að vita hverjir hefðu áhuga á að vinna við sýninguna, endilega látið vita hér á netinu eða á stjorn@f4x4.is. Nafn og netfang. Fundur vegna sýningarinnar verður haldinn fljótlega upp á Höfða og verður þá fariðýfir ýmisleg mál er viðkoma sýningunni. Til að sýninginn verði að veruleika þá er þörf á miklum mannskap í ýmis störf. Gerum þessa sýningu flotta og sýnum að Ferðaklúbburinn 4×4 sé lang flottastur.
Kveðja
Sveinbjörn R-043
11.07.2008 at 12:57 #625766Sælir
Ég leit aðeins á dagskránna fyrir Mærudagana og sá að það yrði nóg að gera fyrir alla aldurshópa. Þetta er flott framtak, að blanda saman hátíðinni okkar og Mærudögunum á Húsavík. Við verðum líka að muna að Húsavíkurdeildin er tuttugu ára á þessu ári þ.e.a.s. það eru tuttu ár síðan hún gekk inn í f4x4. Ég vona að félagsmenn fjölmenni á hátíðina, það verður klárt mál að þar á engum að leiðast.
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður f4x4
11.07.2008 at 10:02 #625738Sælir
Gaman að sjá að þú sért aftur komin í tölvusamband. Það er að sjá að Ferlamálin ganga vel og allt á góðum tíma.
Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður 4×4
10.07.2008 at 17:53 #625576Sælir
Þetta er flott framlag hjá ykkur. Vonandi verður þátttakan góð.Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður f4x4
06.06.2008 at 14:23 #623194Dagskrá
10:30 Fundur settur, fundarstjóri: Sveinbjörn
10:45 Hópastarf kynnt.
11:00 Hópastarf hefst, umræða um stöðu klúbbsins út frá:
.Tæknimálum
.Vefsíðu
.Skálamálum
.Skipulögðum ferðum
.Umhverfsmálum
.Innanfélagsmál (mánudagsfundir, o.fl.)
.Fjárskiptamál og VHF-kerfið
12:30 Hádegishlé
13:00 Samantekt hópa.
13:20 Hópastarf heldur áfram: Áfanga í starfi klúbbsins næstu 12 mánuði.
14:00 Með hvaða hætti getur klúbburinn nýtt sér stöðu sína í dag eða
lagfært hana til að ná þeim áföngum sem ætlast er til að hann nái næstu 12 mánuði?
15:15 Samantekt.
15:30 Fundi slitið
06.06.2008 at 11:59 #623192Er að bíða eftir dagskránni læt hana inn um leið og ég fæ hana
Kveðja
Sveinbjörn
31.05.2008 at 18:26 #623762Hefur þú prufað láta mæla þrístingin á bensindælunni. Ég lenti í þessu með Cheeroky og bensíndælan var biluð, hann gat verið í lagi í töluverðan tíma þar til allt fór til fjandans, ekkert afl og vandamál að halda vélinni í gangi. Ég fór með bílinn til Bogga í Mótorstillingu í Garðabænum og hann mældi dæluna hún hélt þrýstingi í smá tíma en fór svo að slúðra.
Kveðja
Sveinbjörn R-043
-
AuthorReplies