Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.11.2010 at 22:56 #710948
Komiði sæl
Ég heiti Hrefna Bryndís Jónsdóttir, frambjóðandi nr. #4074
Spurning nr. 1
Mér finnst athyglisbert og vel athugandi að binda í stjórnarskrá ákvæði um rétt almennings til að fara um landið og lúta þar reglum um umgengni og varðaðar leiðir.
Spurning nr 2.
Hvað nýtingu varðar þá kemur til eignarrétturinn til, en sem landsbyggðakona ver ég hann. Eignarrétturinn er einnig sterkur lagalega séð.
Ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því að ákvæði um almannarétt til ferða um landið verði sett í stjórnarskrá.
b.kv.
Hrefna B. Jónsdóttir, #4074
22.11.2010 at 22:55 #710946Góðan daginn gott fólk.
Hér á eftir fylgja svör mín sem frambjóðanda til stjórnlagaþings við spurningum ykkar sem ég fékk í tölvupósti á dögunum.
Því viljum við spyrja þig, ágæti frambjóðandi, um afstöðu þína til þessa.
1. Finnst þér rétt að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar? Já, það styð ég svo sannarlega. Ég er fatlaður og treysti á fjórhjól til að geta stundað mína útivist s.s. við veiðar og ferðalög um okkar fagra hálendi.
2. Munt þú beita þér fyrir því að ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar verði sett í stjórnarskrá? Já, það mun ég ótvírætt gera nái ég kjöri!
Með bestu kveðju / Best regards
Jón Gunnar Benjamínsson
Chief Executive Officer
22.11.2010 at 22:52 #710944Marianna Bergsteinsdottir
til ferdafrelsiSælir
Gott að þið sýnið stjórnlagaþinginu áhuga.
1. Finnst þér rétt að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar?
2. Munt þú beita þér fyrir því að ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar verði sett í stjórnarskrá?
Þetta er mjög mikilvægt atriði sem mér finst þess virði að skoða vel. Fólk á að geta ferðast um allt landið. En á sama tíma verður að hafa í huga að náttúra Íslands er viðkvæm. Ef ferðast er á virðingarfullan hátt, þannig að umhverfið hlýtur ekki skaða af þá er rétt að fólk geti farið þangað sem það vill. Ísland fyrir Íslendinga.
Kær kveðja Maríanna Bergsteinsdóttir
3953
22.11.2010 at 22:51 #710942Svar frá Þorsteini
Blessuð
Þar sem að ég er mikið fyrir að fara til veiða þá finnst mér það vera í rétti mínum að fá að ferðast um allt landið hvort sem að ég fer fótgangandi eða á bíl að uppfylltu því að ég brjóti ekki lög.
Virðingarfyllst
Þorsteinn/5746
22.11.2010 at 22:50 #710940Svanur Sigurbjornsson
til ferdafrelsiSæl ágæta nefnd 4×4 um ferðafrelsi
Hér eru svör mín:
1. Finnst þér rétt að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar?
Já, tvímælalaust. Réttur almennings til umgengni um víðlendur er mikilvægur. Hvað "nýtingu" varðar er e.t.v. svolítið annað mál og það þarf þá að skilgreina hvað er átt við með því. Það þurfa að vera ákveðnar umgengnisreglur svo í lögum. Þó að umgengni sé tryggð er ekki þar með sagt að nýting sé sjálfsögð, nema að takmörkuðu leyti (berjatínsla og eitthvað slíkt þar sem við á).
2. Munt þú beita þér fyrir því að ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar verði sett í stjórnarskrá?
Já, ég mun beita mér fyrir því að skynsamlegu ákvæði um slíkt verði sett í stjórnarskrána. Þetta er mikilvægt mál í mínum huga.Bestu þakkir og kveðjur
Svanur Sigurbjörnsson (4096).
22.11.2010 at 22:49 #710938Sæunn Þorsteinsdóttir
til ferdafrelsiÁgætu Ferðafrelsismenn og konur
Ef ég verð kosin á stjórnlagaþing þá lít ég svo á að mitt hlutverk þar sé að gæta þess að niðurstöður Þjóðfundar verði hafðar að leiðarljósi við endurskoðun á stjórnarskránni okkar.
Eins og þið vitnið til í bréfi ykkar þá er vilji Þjóðfundar skýr í þessu máli.
,,Náttúra og auðlindir landsins eru óframseljanleg þjóðareign sem ber að vernda, umgangast og nýta á sjálfbæran hátt þannig að aðgengi almennings sé tryggt."
Ég mun beita mér fyrir því að aðgengi almennings að náttúru landsins verði tryggt í stjórnarskrá. Þess vegna er svar mitt við báðum spurningum ykkar, já.
Góðar kveðjur,
Sæunn
13.11.2010 at 01:05 #701726Sælir
Ferðaklúbburinn 4×4 er með 6kr. afslátt að dæluverði hjá Orkunni og 7 kr. af dæluverði hjá Skeljungi.Þær afsláttatölur sem ég hef fengið upplýsingar um hjá öðrum eru oft settar upp þannig að þú sért með 10 – 12 kr. afslátt af bensíni en það verð er miðað við það verð sem er á hæðsta verði (verði með þjónustu) en okkar samningur gildir um það verð sem dælan sýnir. Ef þú lætur dæla bensíni á bílinn þá er líterinn dýrari.
[b:23e5mgxe]Tökum dæmi: [/b:23e5mgxe]
Þú lætur dæla á bílinn bensíni og líterinn kostar 200 kr. þú færð 7 kr. í afslátt þá ert þú að fá líterinn á 193 kr.
Ef þú dælir sjálfur þá kostar líterinn 193 kr. (minnir mig) þú færð 7kr í afslátt þannig að líterinn er kominn í 186 kr. Þetta virkar þannig á Orkustöðvunum líka, þú sérð réttann afslátt strax.Aðrir aflættir sem ég hef kannað eru alltaf miðaðir við hæðsta verð á viðkomandi stöð, menn verða að vara sig á því að láta upphæðir afsláttar ekki plata sig, það er miklu betra að finna ódýrasta verðið og þá er auðvelt að finna út réttann aflsátt.
Þegar miðað er við hæðsta verð á stöð þá er hægt að hækka krónutölu aflátt klúbbsins á Shell úr 7 kr. í lágmark 14 kr. Þannig hafa önnur félög lagt upp með afláttinn, setja út háa krónutöli í afslátt en afslátturinn er reiknaður frá hæðsta verði.Skoðið málið og ég er viss um að þið fáið sömu útkomu og ég.
Kveðja
Sveinbjörn
13.11.2010 at 00:42 #709994Sælir
Þú verður ekki fyrir vonbrygðum, þessar vélar virka. Var með svona vél í Bronco 76 í gamla daga það var vél úr Mustang 69 með ál milliheddi og 700 Quarter tor og svínvirkaði.Kveðja
Sveinbjörn
08.11.2010 at 19:20 #708234Takk fyrir frábæra árshátíð, hún var svo skemmtileg að það tók heilan daga að jafna sig (reyndar eru harðsperrurnar ennþá).
Kv.
Sveinbjörn
05.11.2010 at 19:33 #708220Hey Árshátíðin er á morgun…….
05.11.2010 at 19:32 #705904Sæll Karl
Hafðu samband við mig strax vegna upplýsinga um spilið
Kveðja
Sveinbjörn 844-500
03.11.2010 at 17:06 #708216Halló
Hvernig er stemmingin fyrir árhátíðinni???Núna eru seldir um 70 miðar þannig að enn eru miðar eftir.
KOMA SVO.
03.11.2010 at 16:54 #707672Sæll Villi
Ég er búin að tala við þá hjá N1 og afláttarkjör eiga ekki að hafa breyst. Ef svo er þá gæti það legið í kerfinu hjá þeim, ef einhver verður var við röng afsláttarkjör þá verða þeir að láta okkur í stjórn vita og gefa upp kennit. þannig að hægt sé að rekja málið og sjá hvað er að.
Varðandi eldsneytiskjör þá höfum við almenn afsláttarkjör af eldsneyti hjá n1.
Einnig verða menn að ath. að hluti afsláttar hjá N1 fer í safnkortspunkta ef veittur er 10 % afsl þá minnir mig að við fáum 7% strax og 3% í safnkortspunkta.Kveðja
Sveinbjörn
01.11.2010 at 09:54 #708210Miðar verða til sölu á fundinum í kvöld.
Hér má sjá upplýsingar um hljómsveitina sem verður á ballinu http://www.myspace.com/silfurNú er bara að drífa sig og kaupa miða
Kv.
Sveinbjörn
28.10.2010 at 22:16 #215462Nú er farið að líða að Árshátíð klúbbsins. Miðaverð verður aðeins kr. 5000,- (1 miði), flottir skemmtikraftar og veislustjóri. Hljómsveit kvöldsins verður hljómsveitin SILFUR sem Skemmtinefnd og stjórn fundu eftir langa leit og heilluðust af hressilegri dansmússik sem þeir spila.
Nú er að taka fram Bingógallan og dönsku tjúttarana og panta miða.
þegar eru fráteknir um 30 miðar en eftir eru 80 miðar.
Látið vita hér á síðunni hverjir ætla að mæta.
Þeir sem eru komnir.
Stjórn = 12 miðar
Skemmtinefnd = 7 miðar
Friðrik H = 2
Birgir Sig = 2
Óli og DIdda = 2
Einar Berg = 2
Magnús Guðmundsson= 2
Steini bróðir = 1
Júlíus Hafseinn = 2
Sigurður Trausti = 2
Sigurður Egill = 2
Magnús N = 1
Guðmundur Kristinn = 2
Árni Bergs = 2
Seinagengið = Talan er á reiki
Túttugengið = Ekkert hefur heyrst frá þeim
Sóðarnir = Hér borgar sig ekki að segja neitt.
Heimsgir = Verið að leita af þeim
Rotturnar = Ekki komnur úr holunni
Sterarnir = Hér er allt á huldu
Djöflagengið = Verið er að reyna að ýta þeim í gang
Fastur og félagar = Orðin segja allt.
Fúlagengið = Þetta er gleði stund þannig að hér er sett spurningarmerki ?
Ginnesfélagið = Mæta örugglega því Ölver selur Ginnesbjór
Flugsveitin = Spurning hvort þeir láti sjá sig (alltaf á fartinum)
Vinalausir pappakassar = Panta örugglega einn miða hvor.
Jepp gengið = Svona höfðingjar láta sig ekki vanta þegar svingið verður tekið.
Strumpagengið = Hér mæta þeir báðir örugglega (búnir að panta miða)
25.10.2010 at 15:15 #706908Sælir hér er greinin hans Einars frá Skotvís.
Fyrir hvað stendur Þjóð í Þjóðgarður?
Vangaveltur eftir E.HarÉg hef eftir lestur tillagna um verndaráætlun vatnajökulsþjóðgarðar verið að velta fyrir mér fyrir hvern er Vatnajökulsþjóðgarður. Á tyllidögum er rætt um aukið aðgengi almennings, uppbyggingu ferðaþjónustu í nágreninu og svo framvegis. Við lestur tillagna um verndaráætlunina hafa síðan runnið á mig tvær grímur. Hún er ekki í nokkrum takt við þá stefnu sem kynnt var í upphafi. Í upphafi var markmiðið að þjóðin fengi að nýta garðinn sinn á sjálfbæran og vistvænan hátt, en garðinum og stórbrotnu landslagi hann yrði skilað áfram til komandi kynslóða, í sem minnst breyttri mynd. Það virðist einhvern vegin hafa verið snúið af þeirri braut, hvort sem um stefnubreytingu eða slys er að ræða. Notkun almennings á þessari perlu er allavega verulega takmörkuð, oft á grunni lítilla eða engra ástæðna, jafnvel bara falsraka!
Fyrir hvað stendur Þjóð í þjóðgarður?
Þjóð stendur alavega ekki fyrir Reiðhjólafólk. Bann við því að hjóla mela, sanda ber þess glöggt merki.
Þjóð stendur ekki fyrir stangveiðimenn. Lokun á vegum að vötnum sem eru jafnvel utan þjóðgarðsins segir sína sögu.
Þjóð stendur ekki fyrir íslenskt göngufólk. Bann við akstri inn að Kerlingu og almenn aðkoma sýnir það þó látið hafi verið undan þrýstingi með Heinabergsdal.
Þjóð stendur ekki fyrir þá sem ferðast á jeppum að sumarlagi. Miklar lokanir á vegumsýna það, liðlega 18 algengar ferðamannaleiðum er lokað!
Þjóð stendur ekki fyrir fjölskyldu fólk sem til að mynda má ekki tjalda lengur, ekki einusinni fyrir utan fullan skála!
Þjóð stendur ekki fyrir Hreindýraveiðimenn. Bann við veiðum á Snæfellssvæðinu og meira að segja út á Vesturöræfi tekur af öll tvímæli um það.
Þjóð stendur ekki fyrir vélsleðamenn. Talmörkun á aðgengi að jökli bendir til þess.
Þjóð stendur ekki fyrir hreyfi hamlaða. Takmörkun á aðgengi synir það.
Þjóð stendur enn síður fyrir þá sem ferðast á þungum ferðamótorhjólum. Slóðalokanirnar taka af öll tvímæli um það.
Þjóð stendur ekki fyrir Hestamenn. Lokanir á fjölda reiðleiða jafnvel margra alda gamalla sýnir það glögglega.
Þjóð stendur ekki fyrir Gæsaveiðimenn. Takamörkun á veiðum og styttur veiðitími á Snæfellasvæðinu bendir á það.
Þjóð stendur ekki fyrir Rjúpnaveiðimenn. Bann við rjúpnaveiðum á Snæfellssvæðinu talar sýnu mála. Þó menn hafi keppst við að koma með allskonar málamyndarök sem engin standast nánari skoðun!
Þjóð stendur sennilega ekki heldur fyrir kaffidrykkjumenn! Þar sem það kemur skýrt fram að bannað er að hella niður heituvatni í Þjóðgarðinum, án tillits til hvort þu ert á jökli, sandi, urða og grjóti eða grónu landi!
Þjóð stendur sennilega ekki fyrir fugla og hreindýr. Takmörkun á refaveiðum á fellisvæði heiðargæsa og burðarsvæði hreindýra bendir allavega ekki til þess.
Þjóð stendur varla fyrir ferða- og gistiþjónustu í grennd garðsins. Takmörkun á aðgengi flests alls almennings getur ekki verið til þess fallin að ýta undir ferðaþjónustu!Fyrir hvað eða hverja stendur þjóð þá eiginlega? Sennilega þjóðverja með bakpoka og engan gjaldeyri!
Þeir mega tjalda við hliðina á skálum, labba um viðkvæman mosagróður . Erlendir göngu túristar er sá hópur sem sennilega þarf hvað mesta þjónustu. Það þarf að byggja mannvirki eins og skála með hæfilegu millibili og setja upp klóset við allar náttúruperlur meðan Íslendingurinn kemur venjulega á jeppa og fer á klóset á næstu bensínstöð! Það má alls ekki skilja þessar hugleiðingar mínar á þann veg að ég hafi eitthvað á móti göngufólki! Ég hef hinsvegar mikið á móti þeirri mismunum sem aðrir hópar verða fyrir. Af hverju á að stefna á fjölgun göngufólks við Snæfell en fækka rjúpnaveiðimönnum sem sækja þangað nokkrar helgar í Nóvember. Af hverju má göngufólk tjalda við fullan skála en fjölskyldufólk ekki!
Mér skilst að það hafi verið gerð könnun austur á héraði fyrir nokkrum árum á hvaða ferðamenn skilja mest fé eftir. Veiðimenn skildu mest eftir, keyftu veiðileyfi, leiðsögn og allan viðgjörning. Næst komu hestamenn og mótorknúinn umferð. Minnst skilja þeir skiljanlega eftir sem ferðast með brauðbita og banana í bakpokanum. Þess vegna er mér meðal annars óskiljanlega hvað þeim er hampað.
Hvað varðar hættu á röskun eða skemmdum á garðinum þá skil ég ekki að reiðhjólandi menn á jökli, kaffiþyrstir einstaklingar, rjúpnaröltarar, gæsaveiðimenn eða bara einhverjir að þessum útivistarhópum sem í sameiningu myndu kallast almenningur sé einhver hætta fyrir garðinn! Fyrir utan að garðurinn er orðið vaktaður af þjóðgarðsverði og ef í óefni stefnir á einhverju svæði eða á einhverjum slóða þá er einfallt mál að taka á slíkum tilfellum.
Verum skinsöm. Leyfum áfram hefðbundna vistvæna notum alls almenning á garðinum. Rétt eins og lofað var í upphafi. Þjóð í þjóðgarður á að standa fyrir íslendinga. Þjóðina sem á að fá að nýta garðinn sjálfbæran hátt um ókomna framtíð.Einar Kristján Haraldsson
Fjallakall.
24.10.2010 at 22:03 #707666Sæll ég skal vera í sambandi við þig á morgun mánudag og skoð’a málið.
kveðja
Sveinbjörn
12.10.2010 at 22:01 #705820Sælir
Er ekki kominn tími til að jeppamenn láti heyra almennilegha í sér, þetta er hagsmunabarátta okkar og baráttan er hörð (aðalega hinumeginn). Við þurfum að láta heyra í okur vera sýnileg það gefur okkur mikið. Komið með hugmyndir hér á vefnum látið heyra í ykkur, þessi vefu er ekki ritskoðaður eins og aðrir vefir.
Kveðja
Sveinbjörn (sem skrifar sem útivistarmaður, veit ekkert um stjórnarstöðu)
03.10.2010 at 18:34 #704990Sæl öll og takk fyrir frábæran dag á Kistuöldu.
Eins og Guðmundur bendir réttilega á þá viljum við halda þessu á þeim nótum sem við höfum verið að gera, þ.e. að nota fjölmiðla og tákræn mótmæli. Við höfum haldið okkur frá öllu umtali um einstalklinga og viljum ekki persónugera mótmælin. Eins og er er verið að skoða málin og eftir fund með ráðherra lofaði hann okkur að hann myndi skoða málið mjög vel. Við skulum fara varlega í mótmælum og ekki gera einhvað sem kemur í bakið á okkur. Eftir síðasta fund með Svandísi Svavarsdóttur gáfu við henni loforð um að hún fengi vinnufrið. Það loforð munum við halda. Allt sem heitir mótmæli í nafni Ferðaklúbbsins þarf að samþykkja af stjórn klúbbsins, eins er góður undirbúningur fyrir mótmæli nauðsinlegur svo mótmælin hafi einhvað að segja. Allar hugmyndir að aðgerðum til mótmæla eru vel þegnar og verða skoðaðar. En þangað til skulum við vera róleg og vinna frekar að því að undirbúa okkur, það er nægt starf frammundan. Við verðum að standa vörð um ferðafrelsið og gera það friðsamlega.
Á fundinum á morgun (mánudagskvöld) verðum við með umræður um ferðafrelsið og hvað sé næst á dagskrá.Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður.
01.10.2010 at 22:50 #704644Sæl
Hvenær er brottför hjá ykkur og hvenær?
kv
Sveinbjörn
-
AuthorReplies