Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.01.2008 at 22:55 #201611
Veit einhver hvort það er hægt að skoða lagnirnar fyrir bensíndæluna innan úr 4Runner, dælan sjálf er ofaní tanknum og einnig hvort það sé hægt að skoða dæluna án þess að rífa tankinn undan?
Kv einn þreyttur eftir að hafa komist að því að relayið var ekki vandamálið með hálft mælaborð í sundur
11.01.2008 at 11:23 #609908Ertu búinn að prófa googla þetta?
10.01.2008 at 21:49 #201585Ég er að fara til U S and A Florida nánar tiltekið í mánuðnum, er mikið að pæla í að fjárfesta í GPS, hvaða tæki eru menn að mæla með og veit einhver hvar er best að versla slíkt í Florida?
10.01.2008 at 21:26 #609814Atli takk kærlega fyrir það, ég var reyndar bara sjá þetta núna, spurning hvort ég heyri í þér á morgun eða laugardag..
Varðandi verðin þá hélt ég að fyrra relayið væri í raun þetta bensín relay og googlaði það og sá verðin.
Hitt virðist vera nokkuð dýrt almennt í heiminum.
10.01.2008 at 17:15 #609808Sæll
Þetta byrjaði á því að ef hann stóð í nokkra daga þá var eins og hann fengi ekki neista, svo ég þurfti að spreyja inná hann startara gasi..
Svo hætti þetta alveg í nokkra mánuði ug hann fór í gang þó hann stæði í 2-3 vikur.
Svo er þetta allt í einu byrjað aftur og ég náði honum tvisvar í gang með miklum herkjum með gasi og nú hrekkur hann í gang en drepst á honum eftir eina secundu.Ég veit nú samt ekki með raka eða vatn því þetta er bakvið hanskahólfið og hann hefur ekki drukknað hjá mér og er alveg þéttur.
10.01.2008 at 09:02 #609804Relayið sem ég er að leita af er víst fest bakvið hanskahólfið hægra megin og ber númerið 85910-14020
10.01.2008 at 08:41 #609802Ég er með vitlaust relay í höndunum svo það þarf að skoða þetta betur
10.01.2008 at 08:35 #584408Iceman hvaða fornleifauppgreftri ert þú eiginlega í!? Eldgamall þráður
10.01.2008 at 08:11 #609800Ég veit ekki hvort það passi úr 91 en ég ætla kynna mér það, annars er þetta relay staðsett bakvið hanskahólfið til vinstri í mínum.
09.01.2008 at 22:59 #201577Ekki vill svo skemmtilega til að einhver liggur á Relay sem ég get fengið lánað til að útiloka bilun í bílnum mínum, Toyota rukkar 10.000 fyrir þetta og þetta kostar 30 dollara í kanahreppi….
Þetta er í 1988 4Runner og ef einhver getur kippt úr sínum og leyft mér að plögga í minn eða einhver á þetta til og getur lánað mér þá væri það afskaplega huggulegt..
07.01.2008 at 21:44 #609392Takk fyrir ábendingirnar allir saman, og Davíð gljúfrin hljóma spennandi
07.01.2008 at 16:11 #201549Ég hef í hyggju að ferðast innanlands næsta sumar, 2-3 vikur. Það er svo margt sem ég á eftir að skoða og sjá á okkar fallega landi.
Einnig hef ég aldrei ekið hringin góða og ég sá fyrir mér að aka hann með stoppum á helstu nátturuundrum okkar íslendinga, ætla semsagt að verða innlendur túristiÉg var að festa kaup á Hálendishandbókinni eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson og hún ætti að geta lagt grunn að þessu ferðalagi mínu.
En mér datt í hug að menn og konur gætu mælt með stöðum sem maður má ekki missa af á ferðalagi um landið.
Allar ábendingar vel þegnar, einnig ef einhver hefur gert beinagrind af svona ferðalagi að skýna smá ljósi á þetta.
Kv Benni R-3370
01.01.2008 at 19:11 #608452Vá hvað ég visi að einhvermyndi væla yfir þessu!!
30.12.2007 at 17:27 #607908Ég fór og keypti mér útivistarföt fyrir 30.000 á 15.000, menn eru varla meira en klukkutíma að keyra þangað niðureftir svo einn dagur ætti að duga til að nýta kortið!!
Setrið var flott og veglegt kv Benni í Regatta frá toppi til táar!
29.12.2007 at 18:34 #607988Ég var aðeins búinn að kynna mér þetta nátturulega sterkur leikur að Googla þetta en hérna er ein góð t.d http://www.well.com/~mosk/
08.12.2007 at 16:32 #606032Við erum tveir á sömu buxunum
36" 4Runner 38" Discovery
08.12.2007 at 13:41 #605842Einhverjar fréttir af færi?
03.12.2007 at 16:31 #201307Sælir félagar.
Það virðast svo margir hér inná vera getspakir um bilanir svo ég ætla skjóta á ykkur einni spurningu.
Ég er með Toyota 4Runner 1988 módel með 2.4 efi bensínmótor (orginal) heitir 22-RE.
Þetta er aukabíll hjá mér svo hann stendur stundum hjá mér í einhverjar vikur.
Í sumar fór hann að taka uppá því að starta endalaust en hrökk aldrei í gang.
Svo ég spreyjaði startaragasi inná hann og hann fer í gang og svo er hann keyrður í smá stund og startar og fer í gang eftir það ekkert mál.
Svo hætti þetta vesen þar til núna.
Á föstudaginn síðastliðinn setti ég hann í gang í fyrsta sinn í 3 vikur c.a, ég átti von á veseni en hann flaug í gang, en svo á laugardeginum byrjar hann aftur með sama vesen!!Mér dettur helst í hug kveikjuhamar og lok eða bensíndæla….
Með kveðjum Benni R-3370
04.11.2007 at 20:37 #201101Jæja eru ekki allir búnir að kaupa neyðarkall af björgunarsveitunum?
Allaveganna kominn einn á jeppalyklakippuna mína!
20.10.2007 at 12:29 #600516En á þetta að vera V8 diesel eða bensín mótor?
-
AuthorReplies