FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristján Logason

Kristján Logason

Profile picture of Kristján Logason
Virkur síðast fyrir 9 years, 6 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 378 total)
← 1 … 4 5 6 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 06.05.2010 at 01:45 #692612
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Færð þú semsagt 10 krónur í afslátt??? Eða hvað??

    Miðað við verðið sem einmitt virðist vera um 210 kall á flestum stöðum þá gerir afslátturinn af því 5 krónur og verðið því 205 krónur. Miðað við að versla hjá Orkuni með Ferðaklúbbskorinu.

    Ég er ekkert að dissa Select eða neitt þannig, þetta eru allt sömu glæpahundarnir þannig það skiptir engu máli hvar maður verslar, en 5 krónur af 210 kalli er bara djók, en þetta er kannski bara væll sem á heima í stofu en ekki hérna á netinu.

    Kv, Kristján





    03.05.2010 at 19:14 #212519
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Sælir félagar,

    skellti mér á Burnout sýninguna hjá Kvartmíluklúbbnum og vil hrósa þeim fyrir flotta sýningu.

    Það er nú sammt ekki umræðuefnið, heldur eru það afsláttarkjör Kvartmílufélaga hjá Skeljungi eða Select eða hvað þetta heitir.

    Sá þarna bleðil frá þeim og sá að þeir eru að fá sama afslátt og við af eldsneyti hjá Skeljungi og Orkuni. Sem er kannski ekkert athugavert nema fyrir okkur. Þarna eru klúbbur sem er með töluvert færri borgandi meðlimi heldur en Ferðaklúbburinn og tekur oft á tíðum ekki 200 lítra eða hvað það er í einu.

    Auðvitað fær 4×4 klúbburinn pening frá olíufurstunum og má ekki gleyma því, en það gerir ekkert fyrir budduna mína, okkar. Þarna er Kvartmíluklúbburinn aldeilis búinn að gera (gott) fyrir sína meðlimi ef gott má kalla….. en engu að síður (jafngott) og verið er að bjóða okkur

    þannig ég hef enga trú á öðru en að við getum gert betur. Það er alltaf hægt að gera betur, kannski eru olífurstarnir pirraðir að fáir nýti sér þessi kjör, en þegar kjörin eru lítið betri en annarstaðar þá nenna menn og konur ekki að vera standa í einhverju veseni. AÐ vera fá 5 krónur af 210 kalli er bara djók, maður fékk allavega 10 krónur fyrir flöskuna af kók í gleri sem kostaði 85 k´r…………….. eða hvernig sem það var 😉

    Auðvitað er alltaf eitthvað verið að grenja útaf þessu og örugglega þessi þráður líka. En fannst alltílagi að nefna þetta hérna þar sem þetta vakti athygli mína.

    Kv, Kristján
    Sem eyðir alltof miklum tíma í vitleysu





    01.05.2010 at 17:30 #692316
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    haha ekkert rugl 😉
    komdu og kíktu á Patrolinn minn

    ekkert fáránlegt við þetta bann, nema jú jón og séra jón. Ef að Gunni ICECOOL má fara með eitthvað fréttahyski þá er ekki hægt að banna mér að fara þarna, það er bara fráleitt, allavega myndi ég ekki láta stoppa mig að fara ef ég hefði áhuga á því……………

    Ef að þetta er staðan sem er kominn upp þá fá þeir bara puttann frá honum jóni

    Kv, Kristján





    01.05.2010 at 17:20 #692312
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    [quote="Danfox":qb49icym]Það er ekki verið að mismuna nokkrum, bara lesa fréttirnar

    http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/0 … annsvaedi/

    Kv Siggi[/quote:qb49icym]

    held að þú verðir að lesa betur, miðað við þetta kort er bannað að fara á Eyjafjallajökul þar sem Gunni er…………

    Kv, Kristján
    Sem finnst þetta fáránlegt…





    26.04.2010 at 19:53 #212381
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    http://spolur.is/index.php/frettir/frettir2010/428-sodaakstur-i-sumarbyrjun

    Kv, Kristján
    Toyota rules





    25.04.2010 at 13:57 #691512
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Sælir félagar.

    Að stækka skálann er eitthvað sem við þurfum ekki held ég. Aðsóknin virðist ekki vera það mikil, sýnir sig allavega ekki í skálagjöldum eða aðsókn að ferðum eða umferð um hálendið eða hvað?? Að stækka þurfi skálann… Burtséð frá einhverju byggingarleyfi.

    Einnig er ekki verra að geta notað þessar nokkrar vinnuferðir í viðhald og lagfæringar skálans í stað þess að eyða öllu púðrinu í nýbyggingu.

    En það væri gaman að vita hvaðan þessi hugmynd kemur, ekki það að ég hef ekki mætt á alla fundi eða viðburði en man ekki eftir stækkunarumræðu um Setrið, og hefði fundist það eðlilegt ef hún hefði komið upp að sú umræða hefði endað hérna á netinu, sem hún er kannski núna en þetta virðist hafa komið upp á borðið fyrir löngu síðan.

    Er miklu frekar hlynntur því að að nota þennan pening og púður að reisa annan skála eða bara gera ekki neitt. Það er ekki eins og byggingarefni sé fríkeypis þessa dagana.

    Og í orkumálum er löngu kominn tími á að gera eitthvað, kaupa temmilega stóra ljósavél sem er sparneytin og setja við hlið þeirra gömlu. Flott að nýta hana þá sem varavél þennan eyðsluhák sem hún er. Hægt er að taka helling til í þessum rafmagnsofnum sem eru á staðnum. Að ætla að fara stíla inná eitthvað 12V kerfi með sólarsellu og geymum er ég ekki alveg að sjá fyrir mér ganga þarna.

    Úr því það þarf að vera vél í gangi til að keyra dælur þá getur hún auðveldlega keyrt nokkur ljós. Einnig er dæla sem sér um hringrásina á vatninu fyrir kyndinguna ekki satt. Þetta er eitthvað sem þarf að leggjast vel yfir og ekki gera neitt í fljótheitum og kasta peningum í einhverja vitleysu.

    Kv, Kristján
    Ef það á að byggja væri gott ef það væri bónstöð fyrir okkur Toyotu strákana.





    24.04.2010 at 13:49 #691662
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Sæll,

    Samrás hefur verið að selja kubba þeir sem þeir hafa hannað, hefur verið að koma vel það sem maður hefur heyrt.

    Kv, Kristján





    18.04.2010 at 23:09 #690946
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Hehe flottur Logi. Þetta er allavega næstum því "satt".

    Kv, Kristján
    Sem skaut kannski fullharkalega á Cruiser lúðana





    18.04.2010 at 23:00 #691094
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Þó að eldsneytishækkun spili örugglega stórann þátt þá er bara margt sem spilar inní þetta, að lenda í því að skemma eitthvað er orðið fokdýrt og setur fjölskylduna á hliðinina næstu mánuði ef það gerist, tankurinn dýr, og svo er bara kannski ekki til neinn peningur fyrir þessu. Hvort sem fólk er með lán á bílunum sínum eða ekki.

    Og held ég að þetta sjáist bara best á bílaauglýsingum, menn virðast mikið vera að leita sér af minna breyttum jeppum eða jepplingum í skiptum fyrir þessa meira breyttu.

    En þessi eldsneytishugmynd er örugglega sniðug!!!

    Kv, Kristján





    18.04.2010 at 22:52 #690896
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    kom ekkert fram hvað var að bila á þessum upplýsingum á netinu?? Eða var það bara sambandsleysi??

    Kv, Kristján





    18.04.2010 at 22:47 #691128
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    ekki spurning um pólýhúðun.

    duft.is

    Kv, Kristján





    18.04.2010 at 16:20 #690942
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Já það virðast vera fjórir staðir sem menn geyma þessar Tacomur, á vörubílspalli, inní skúr, fyrir utan Breyti eða Artic.

    Kv, Kristján
    Sem segir að Cruiser eigendur geti ekki sagt að þeir eigi jeppa.





    17.04.2010 at 13:49 #690936
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    hehehe

    Já er alltaf að segja þetta, Patrol er það eina sem virkar. Bjarki er ekki farinn að trúa því ennþá…

    Já þetta er sama ruslið og 120 cruiser enda er þetta sama druslan. Cruiserinn er þó öllu verri….

    Annars halda menn kannski að því að Toyota World eru farnir að viðurkenna vandamál í bílum af Toyotu tegund þá eigum við ekki að gera það, Toyota er mátturinn og dýrðin og bilar aldrei, bara ómerkilegt viðhald.

    Það er bara eigendum að kenna að vera alltaf með stífann fót á bensínsgjöfini og hinn á bremsuni og öfundsjúkir aðrir eigendur sé að skera skarð í afturdrifið svo það brotni, eða setjast framan á þá svo nöfin bogni eða haldi framdekkinu þannig frammdrifið brotni eða hella sjó yfir þá svo þeir ryðgi eða dragi þá á öryggisbeltunum þannig það teygist á þeim eða……..

    Kv, Kristján
    Tacoma er eina vitið





    16.04.2010 at 21:55 #212161
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Hvernig er það,

    eru þessar Tacomu druslur bara druslur eða hvað er málið??

    Það er annar hver þráður um bilaða Tacomu, eða Tacomu sem er alveg að fara að bila, eða Tacomu sem er biluð en ekki biluð…

    Hverjum datt í hug að flytja þetta drasl inn….

    Eða eru þetta allt bara sögusagnir til að koma óorði á Tacomuna svo hún lækki í verði og þessir öfundsjúku geti nælt sér í eina til að geta prófað og séð máttinn og dýrðina.

    Kv, Kristján
    Sem er alltaf fyrstur





    16.04.2010 at 21:51 #690792
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Já Atli, það var ekki fríkeypis að fá svona pæju fyrir Tacomuna, enda eru fáir sem vilja þessar Tacomu druslur. Upphæðin verður ekki nefnd…….

    Var ekkert öskufall á jöklinum??

    Kv, Kristján





    15.04.2010 at 00:00 #690772
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Stálumst nokkrir félagar í gær, flott færi og flott skítfínt veður. Aðeins um sprungur og það stórar en ekkert sem ekki er hægt að varast.

    Kv, Kristján

    [attachment=0:5b0trj0q]67540001.jpg[/attachment:5b0trj0q]





    08.04.2010 at 21:24 #689782
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    þetta er flott hjá þeim,

    flott kynning fyrir landið,
    flott kynning fyrir ArticTrucks

    og snillar þáttur sem er verið að taka upp fyrir.

    Missum okkur ekki í einhverju pissudúkkuvælukeppni. Hættum þessu biturleika útí allt og alla og reynum að hafa svolítið gaman af lífinu.

    Kv, Kristján
    Sem er ánægður með þetta.





    06.04.2010 at 01:04 #689298
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Það er alveg rétt að það er eitt að rúlla á malbiki og annað að torfærast, en maður finnur engu að síður hvort þetta sé að heilla mann eða sé ómögulegt.

    Maður er ekkert að snúa í sundur þó það sé kraftur í bílnum, þetta er bara gamaldags hugsanaháttur.

    Auðvitað er ekki kraftur allt, það skiptir allt máli i svona dóti. En þeir sem segja að kraftur skipti litlu máli eru þeir sem ekki hafa prófað það eða eiga musso pg patrol og fleirra sambærilegt og eru að réttlæta þetta fyrir sjálfum sér. Drifmikill bíll drífur miklu meira ef það er kraftur í honum.

    Fjöðrun er náttúrulega alveg kapituli útaf fyrir sig. þar kemur af því hvernig bíll þetta er.

    Málið er nefnilega, ég hef rosalega gaman af því að fara á fjöll, en það er ennþá skemmtilegra að fara á fjöll og getað haft gaman. Það verður rosalega fljótt þreytt að vera á hilux eða patrol eða álíka, það er gaman fyrst tala nú ekki um ef maður er að byrja í þessu, en svo verður það þreytt, nema þú sért bara í þessu til að ferðast, þá geturðu alveg verið á túrbólausum hilux og þarft ekkert að spá í þetta meira, léttur, hægt að smíða fínt fjöðrunarsystem undir hann og málið dautt og gott fyrir budduna.

    Kv, Kristján





    06.04.2010 at 00:27 #689294
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    ´Svo er þetta líka stór spurning, hvað ætlarðu að gera??

    Ætlarðu að fara á fjöll til að ;

    hafa gaman,, bensín power drifgeta og skemmtilegur bíll Tacoma 😉
    bara ferðast,,, Tacoma ;), hilux, patrol, musso
    eða bæði hafa gaman og ferðast,, Tacoma 😉

    Þarna fellur Tacoma í alla flokkana, bara sem dæmi, en það gerir patrol, musso eða hilux ekki………

    Annars er mikið til í þessu hjá Agnari, ekkert annað en að fara og prófa. Maður sér mjög fljótlega þegar maður er að prófa bíl hvort þetta sé að höfða til manns eða ekki…..

    Að finna bíl með sem mestum aukahlutum og bíl sem er í góðu lagi og eitthvað sem maður er sáttur með skiptir mestu máli held ég. Annars verður grasið alltaf grænna hinum megin og verður maður að prófa það líka

    Kv, Kristján
    Sem bítur ekki gras





    05.04.2010 at 23:31 #689286
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Held að það sé fullmikil einföldun að setja upp einhverja töflu, og finna það út að bíll yfir 2 sé ónothæfur í snjó…… þó það búi eflaust einhver hugsun á bakvið þetta, en fullmikil einföldun.

    Ef þetta væri svona einfalt, ja þá veit ég ekki hvað.

    Eflaust alltílagi að hafa svona apparat sér við hlið til gamans þegar skoða er verið jeppa.

    Kv, Kristján

    Stór vél, bensín og hestöfl og mikið af því er það sem virkar.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 378 total)
← 1 … 4 5 6 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.