Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.12.2007 at 00:17 #606818
Það að 90 Cruiser hreyfi hitamæli er ekki eðlilegt. Og hvað þá að hann geri það í kömbunum. Þá er eitthvað bilað eða orðið lélegt.
kv Kristján
15.12.2007 at 22:04 #606752Ætli það sé ekki hann Gummi í síma nr 6907514
kv Kristján
15.12.2007 at 21:28 #605550Setja bara Hiclone á græjuna, hahahah
Verðum að taka með í reikninginn að þetta er uppgefinn eyðsla miðað við full afköst. Miðað við það að hún sé að skila 30kw sem er fjarstæða. Enda er engin slík notkun í gangi þarna. Það getur ekki annað verið en að hún sé bara eyða brotabroti af þessu á klukkutíma miðað við afköstin sem hún þarf að skila þarna uppfrá.
Hvað er gamla vélin, 5, 10 eða 15kw?? Skot útí loftið??
Miðað við að einhver reiknaði með 50 tímum í keyrslu um helgi. Og að gömlu vélini hafi dugað 70 lítra tankur í þennan tímafjölda gerir það c 1,4 líter per klukkutíma.
Þó að nýja vélin detti í 3 lítra á klukkutíma erum við sammt að tala um tvöföldun á olíunotkun sem er talsvert.
Það hlýtur þó að vera að stjórn og skálanefnd sé búin að skoða öll þessi mál.
kv Kristján
PS. kannski er þetta hluti af nýja olíusamningnum 😉
13.12.2007 at 18:31 #606332Ertu búinn að athuga hvort að snúran frá mótor uppí grind sé í lagi. Hún getur verið að svíkja
kv Kristján
11.12.2007 at 19:54 #606316Ingi, þú átt email
kv Kristján
11.12.2007 at 17:50 #606310Annars á ég svona rafmagnsmótor sem er 2 ára gamall og kemur úr 2006 Tacomu. Lítur vel út og virkar vel. Og er til sölu 😉
29.11.2007 at 19:10 #599416Þetta er akkurat það sem mig langaði að sjá, að þetta væri að stefna eitthvað. Að eitthvað væri búið að ræða málin, sem er bara frábært.
Held að það sé enginn að tala um að hann hafi verið svikinn eða sjái eftir einhverju, og held að menn séu ekki að reyna kenna neinum um en það sem mig langaði að sjá og lesa, er akkurat komið framm.
Að það sé búið að taka einhverja sameiginlega ákvörðun um hvað eigi að gera sem er að hluta í höndunum á okkur. Finna einhverja dagsetningu þar sem allir eða flestir komast og gera aðra tilraun.
Veður snýst bara um heppni og þarf ekkert að vera leiðinlegra þó að það sé vont veður. En getur verið miklu skemmtilegra að hafa gott veður bara eins og var á föstudeginum og sunnudeginum. Alveg meiriháttar flott.
Kv Kristján
26.11.2007 at 20:46 #599396Hvernig er með þennan mat sem var keyptur fyrir tugþúsunda.
Eða er svo sem sama um matinn. Enda langar mig ekkert sérstaklega í hann núna eftir allann þennan tíma.
En er að pæla í peningunum, veit að það var keyptur matur og borguð gisting. Vegna veðurs var ekki að hægt að grilla og ekki gekk betur að fá rafmagn eða hita.
Fyrir þetta borgaði ég og ferðafélagi minn 8 þúsund krónur. 4 þúsund á mann. 2 þúsund í mat og 2 í gistingu.
Það sem ég fékk út úr þessum 2000 kalli í mat var ekkert nema samloka og skyr sem ég hafði meðferðis sem var ekki inní þessari upphæð.
Og úr þessum 2000 kalli í gistingu fékk ég kalda og hráslagarlega gistingu og kaldann og langann dag.
En allavega, ég fékk þó gistinguna og skjólið og get því ekki kvartað. En kvöldverð fékk ég ekki og henti því 2000 kalli útum gluggann + annarr 2000 þúsund kall hjá ferðafélaga, einfallt reiknisdæmi sem hljómar uppá 4000 þúsund krónur. Ég kannski græt þetta ekki en finnst fúlt að fá hvorki mat né pening eða útskýringu um hvað varð um draslið. Þó það sé auðskiljanlega ekki auðvelt dæmi að endugreiða öllum þessum fjölda eða hreinlega ógerningur. Enda búið að spandera þessu fé.
En að það, að stjórnendur ferðarinar skuli ekki sjá sóma sinn í því að tjá sig hér á vefnum, ropa því útur sér að þeir hafi haldið ærlega veislu 2 kvöld í röð og haft það gott eða hvað það er sem þeir gerðu við þetta finnst mér lélegt. Ég get ekki betur séð en að menn séu í einhverjum feluleik.
Mig langar bara að fá svör þá er ég sáttur, vil ekki vera með nein leiðindi en finnst þetta lélegt.
En allavega, takk fyrir ferðina. Maður heyrði lítið af því á leiðini heim. Enda voru menn á misjöfnum tímum og kannski lítið að þakka fyrir. Spyr sá sem ekki veit.
Kv. Kristján
26.11.2007 at 20:07 #604616hefur víst hækkað mikið. Þó að dollarinn hafi lækkað mikið á móti. Veit ekki hvernig það virkar. En allavega, AT dekkið er búið að kosta þetta mikið núna í langann langann tíma. Stykkið af AT kostar 48.900, hvað kostar Mudder?? Er það ekki 45-46.000?? Finnst það nú enginn stórmunur.
Kv. Kristján
20.11.2007 at 23:18 #599378Já vil taka undir með Bazza og Hafsteini. Þakka Ísaki, Gunna Sean og Gísla R fyrir aðstoðina og hinum.
Kv. Kristján á Speedway Blue
18.11.2007 at 23:26 #603896Ég get ekki sagt að vélin hafi verið að bila, hún er búin að vera biluð í nokkrar vikur. Alveg sama hvað einhverjir kallar segja sem hafa átt að vera þarna síðustu helgi og komið henni í gang.
Að sjálfsögðu getur allt bilað, en að það sé vesen með allt er ekki hægt að taka með í reikninginn. Eina sem hefði vantað væri að gasið hefði verið búið líka. Sem var reyndar að skornum skammti.
kv Kristján
16.11.2007 at 00:22 #599320Held að það hljóti að vera í lagi. Veit ekki betur en að það verði fleirri hundar þarna á ferð.
Held sammt að menn séu ekki ánægðir ef að púðluhundar séu á sveimi. 😉
Svo mæli ég fyllilega með því að þeir sem eru ekki með vhf stöðvar reddi sér svoleiðis að láni. Að vera ekki með svona stöð þá ertu að missa af heilmiklu. Þú ert alveg að missa 50% af ferðini og ert hálf útundan.
kv. Kristján
14.11.2007 at 23:58 #603254Samanlögð þyngd með venjulegt próf má ekki fara upp fyrir 3500kg.
Ég má draga kerru sem er þyngri en 750 kg svo framarlega sem leyfð heildarþyngd bíls og eftirvagns fari ekki upp fyrir 3500kg
Almenn ökuréttindi veita rétt til að stjórna:
* fólksbifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna og með sæti fyrir 8 farþega eða færri, auk ökumanns,
* sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna,
* fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd,
* fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins,
* dráttarvél,
* vinnuvél,
* léttu bifhjóli og torfærutæki, s.s. vélsleða.kv Kristján
14.11.2007 at 00:46 #599264Icom=AMG Aukaraf Kópavogi
Yeasu=RS R.Sigmundsson
Tait=Nesradíó
Kenwood=Radíóraf KópavogiÞar sem þú ert með Yeasu þá kemurðu við hjá R.Sigmundss. Með stöðina tengda og fína í bílnum, eða bara staka og þeir henda þessu inn fyrir þig.
Eru við hliðina á Flytjanda í Sundahöfn. Sömu götu og Hringrás, Hjólbarðaverkstæði Heklu
Eða bara N1 eins og Tryggvi bendir á 😉
14.11.2007 at 00:35 #599256Ef þú ert skráður í klúbbinn þá geturðu komið við hjá umboðsaðila/þjónustuaðila og þeir græja rásirnar í á no time
Kv Kristján
11.11.2007 at 21:58 #599244Það er frábært
11.11.2007 at 21:12 #599240Allt að verða klárt. Bara eftir að taka smá bón yfirhalningu og þá er allt klárt.
En hvernig er með setrið. Verður maður að hafa kerti með og sofa í bílnum eða?? 😉 Er ljósavélin´komin í gang eða er allt í rugli??
kv Kristján
29.10.2007 at 23:31 #599142Hva, er maturinn 3 rétta sérpöntuð máltíð frá perluni??
2900 kall fyrir einn kvöldverð??, spyr sá sem ekki veit??
Kv Kristján
11.10.2007 at 19:49 #581346Hvað kosta nýju spennarnir, stakir??
10.10.2007 at 22:18 #599024Kristján Logason +1
Toyota Tacoma 38"
6964403
-
AuthorReplies