FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristján Logason

Kristján Logason

Profile picture of Kristján Logason
Virkur síðast fyrir 9 years, 5 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 281 through 300 (of 378 total)
← 1 … 14 15 16 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 09.04.2008 at 21:16 #591226
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    hafa 38" radial Baja Claw dekkin verið að koma út. Hafa menn eitthvað prófað þetta??

    Kv, Kristján





    07.04.2008 at 21:41 #619316
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Jæja, ég held að þetta sé ekkert leyndarmál, var allavega ekki beðinn um að þegja.

    Þetta dekk sem umræðir, þessi bíll og þessi ökumaður er ég. Lenti í þessu óskemmtilega atviki á leiðini á fjöll. Kominn upp ´Búrfellsbrekkuna og gott betur þegar þetta gerist. Hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum ef þetta hefði skeð nokkrum mínútum fyrr í Búrfellsbrekkuni sjálfri.

    Þetta eru fín dekk og hafa ekki verið að heyrast draugasögur um þau, allavega ekki sem mín eyru hafa náð til. Tala nú ekki um hvað það eru margir bílar sem eru á þessum dekkjum, en það má ekki gleyma því að ég hugsa að meirihlutinn af þessum bílum sem eru á svona dekkjum fara aldrei útaf malbikinu þó það séu virkilega margir bílar á þessum dekkjum sem virkilega nota þau til fjallaferða.

    Fór uppí Artic og var tjáð að þetta væri ekki galli. Þetta væri pjúradæmi um það hvernig væri búið að böðlast á þessum dekkjum og láta þau finna fyrir því, aka á of litlu lofti, bæði of hratt miðað við loftmagn og einnig hafði felgan að framan náð að berja í dekkið með þeim afleiðingum að strigalagið byrjar að trosna og svo myndast kúla og kabúmm. En þetta átti við um öll dekkin. Þau voru öll sprungin að innanverðu. Og kanturinn á einu dekki sem leggst að felgu var marinn á leiðini niður í striga þannig það hélt ekki lofti nema að 10 pundum og er ekki hægt að ústkýra það. Einu útskýringarnar, búið að keyra á of litlu lofti og þá hugsanlega of hratt. Ég myndi allavega passa mig á því að hleypa ekki niður fyrir 2 pund og passa það rækilega, það gæti verið hægt að troða því niður í kok á ykkur.

    Þetta eru ekki hálfslitin dekk eins og Eyþór bendir á, örfáir mm búnir að munstri og´sér ekki á þessum dekkjum. Manni finnst hálf fúlt að gangur sem sér ekki á sé ónýtur. Að gangur sem er ekki búið að fara neitt öðruvísi með en aðra ganga sé bara ónýtur. Þetta vekur mann til umhugsunar um það að menn ættu kannski að láta taka eitt dekk af hjá sér og sjá hvernig þau er að innan. Ef það má ekki nota þetta eins og menn hafa verið að nota Mudderinn og önnur dekk þá er spurning um markaðinn fyrir þau.

    Mér var sagt að það væri aldeilis búið að prófa þau og allt það, en ég greinilega búinn að prófa eitthvað sem einhver annar er ekki búinn að.

    Að sjá svona dekk töluvert slitin er ekki algeng sjón, hef allavega ekki rekist á marga svoleiðis ganga en þó einhverja. En það hvað þau eru slitin segir ekki margt, heldur hvernig þau eru notuð, ef þetta eru notuð sem malar og malbiksdekk er ekkert mál að slíta svona gangi vel og vera ægilega ánægður. Það að einhver dekk séu orðin sköllótt segir mér ekkert, veit ekki hvernig þau er búin að vera notuð.

    Vil þó benda á það að Artic menn komu til móts við mig í þessu máli og keypti ég annan gang og vil ég þakka fyrir það og þjónustuna., og varð AT aftur fyrir valinu þannig ég ætla nú ekki að segja bless við þetta strax þó ég hafi verið alvarlega að hugsa um að ná mér bara í gang af Mudder.

    Ætla ekkert að fyrra mig því að vera búinn að taka á þessum dekkjum, og fyrri eigandi örugglega ekki heldur. En það er ekki búið að nauðga þeim og ekkert búið að fara öðruvísi með þau en undir öðrum bílum. eða aðrir sem keyra á þessum dekkjum eða öðrum, ef þau hafa verið í 2 pundum þá hefur verið það útaf færinu, ef það er 5 punda færi þá hafa þau verið í 5 pundum. 2 pund fannst mér þó orðið algert lágmark undir þessum létta bíl, dekkin vel mjúk.

    Þetta eru fínustu dekk, frábær á malbiki, frábær í möl, og frábær að vetri til hvort sem er hálka eða snjór. Mjúk og fín, gripið fínt og hljóðlát, en þetta atvik setti stórann svartann blett að mér finnst, ég vil allavega ekki upplifa þetta aftur og vona það gerist ekki.

    Kv, Kristján





    07.04.2008 at 21:05 #619614
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Gaman að þessu 😉

    Kv, Kristján

    Sem finnst að hækka eigi olíuverð og lækka bensínið





    06.04.2008 at 14:31 #202259
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Eftir að vera búinn að vera virkur neytandi í þessum samfélagi hefur ekki farið frammhjá neinum allar þessa hækkanir og blabla.

    Síðasta dæmi var að ég þurfti að kaupa dekk, seljandinn er allavega búinn að hækka verðið 2 sinnum um ansi marga 5 þúsund kalla og síðasti gámur kom þegar allt gekk eins og í sögu. Sem er ekkert annað en hræsni en auðvitað eru allir að nota tækifærið og hækka meðan það er hægt,. Öll viljum við jú græða og það verður ekki gert nema svindla og græða á náunganum. Og er ekkert við þessu að gera.

    Og að Ferðaklúbburinn 4×4 skuli hafa skrifað nafn sitt við mótmæli um of háar álögur á eldsneyti eða hverjar kröfurnar eru að mínu mati mestu mistök sem klúbburinn hefur gert. Jeppafólk á nú ekki það auðvelt uppdráttar. Annar hver íslendingur sem hefur ekki áhuga á þessari vitleysu vill koma okkur öllum í burtu. Og hvað gerir þetta annað en að kveikja undir þeim málstað. Að eitthvað hobbýfólk sé að væla undan eldsneytisverði sem það notar til að komast á fjöll og firnindi, menga og gera spólför útum allt.

    Fólk er misskilið og fólk misskilur, ekkert búið að breytast við það. Þó að við tönglumst á einhevrju sem okkur þykir rétt er meirihlutinn sem hlustar að misskilja allt saman, bæði af því þau vilja misskilja og óafvitandi. Eina sem ég heyri þegar ég er að vinna einhversstaðar, hleyp út í búð eða sjoppu eða er að borða á veitingastað þá er verið að tala um mótmælin. Og síðan Ferðklaúbbinn og að þeir vilji eiga ísland og hálendið. Hvað hobbýkallar séu að rífa kjaft, að það séu bara vitleysingar í þessum að klúbb. Að mótmælin sem voru daginn eftir mótmælin sem Ferðaklúbburinn stóð fyrir var klúbburinn bendlaður við og ennþá meira rætt um að þetta væru bara vitleysingar og geta bara verið heima hjá sér. Fólk skilur bara hlutina eins og það vill. Þó að við segjumst vera tala fyrir almúgann, þó við segjumst vera berjast fyrir að einhverjar gufur séu að spóla utan vega, þótt við segjumst hitt og þetta þá er bara meirihlutinn sem er að hlusta bara ekkert að hlusta og ef hann er að hlusta þá er hann að misskjilja.

    Að mínu mati hefði klúbburinn ekkert átt að skipta sér af þessum mótmælum.

    Kv, Kristján

    Ps, þetta er mínar skoðanir og mér er frjálst að hafa mínar skoðanir, þær þurfa ekki endilega að vera réttar eða endurspegla annara mann álit.





    06.04.2008 at 13:40 #619580
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Þetta að vera með xenon í frammljósunum er bara snilld. Munurinn á birtinu halogen vs xenon er þvílíkur.

    Það er svona í bílnum hjá mér og búið að vera í ágætis tíma eða frá því þegar Benni Ak tók fyrstu sendinguna held ég og er bara að virka fínt. Hefur ekki verið neitt vesen. Það hrímar ekkert meira á ljósin þegar það er xenon frekar en halogen þó helst kannski neðst á ljósið eins og Benni bendir á.

    En eftir að vera búinn að vera með svona þá finnst mér aðrir bílar bara hálf ljóslausir þegar maður keyrir þá.

    Kv, Kristján





    06.04.2008 at 13:34 #619590
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Ekki veit ég hvar menn fá þessar eyðslutölur, 85 lítra á sólarhring?? Er þetta í manualnum sem fylgdi vélini þegar hún var ný og menn höfðu ekki hugmynd um hvernig menn gætu reiknað út eyðslu, ekki nema þeir hafi gert það eins og bílaframleiðendur í dag.

    Er búinn að vera þarna þar sem ég hef sjálfur´séð þetta gerast að olían á tanknum klárist bara og vélin deyi eða sé við það að deyja. Fyrra skiptið var þorrablótið, þá var komið hús einhvern tíma eftir hádegi á laugardegi um 3 held ég, fyllt á tankinn og vélin dó um nóttina.

    Seinna skiptið var þarna um páskana, komið í hús einhvern tíma eftir hádegi á laugardegi einhvern tíma milli 3-5 minnir mig, fyllt á tankinn og vélin dó fyrir hádegi á sunnudegi næsta dag. Eða þá drap ég á henni þar sem hún varla hékk í gangi og hélt ekki þeirri vinnuspennu sem þurfti.

    Eftir því sem ég best veit þá er tankurinn 100 lítrar og fer því eittvað meira en 100 lítrar á sólarhing……

    Kv, Kristján





    04.04.2008 at 01:04 #202239
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Jæja, það er opinbert,

    Eru kannski allir hættir að pæla í fjarskiptum og bara búnir að kaupa Tetra?? Benni Ak. og EIK eru allavega komnir með einn. 😉

    3G

    Þannig það verður ekkert cdma. Þetta verður bara slagur á milli Vodafone og Símans….

    Kv, Kristján





    02.04.2008 at 00:08 #618888
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Borgar sig að kaupa þetta að utan?, hugsa að munurinn sé ekki svo mikill, minnir að einhver hafi verið að skoða það og munurinn hafi verið það lítill að það tók því ekki að standa í þessu.

    Ég er að nota ARB dæluna hjá mér til að dæla í púðana. Það virkar fínt hjá mér, bíllinn hoppar ekkert upp einn tveir og bingó en er mjög sáttur. Ef þú ert með ARB dælu sem þú ætlar að nota er ég ekkert viss um að það sé sniðugt að setja kút á hana þar sem hún dælir miklum þrýsting en litlu lofti og svona púðar þurfa ekki mikið þannig dælan virkar fín eins og sér.

    Kv, Kristján





    01.04.2008 at 23:55 #618838
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    K2 á Akureyri hafa verið með eitthvað svona kitt held ég líka, tjakk með öllu tilheyrandi held ég fari rétt með.

    Persónulega fyndi ég mér notaðann mótor eða nýjann og skellti á þetta. Þetta er fínn búnaður ef þú opnar þetta einu sinni á ári og þrífur þetta aðeins upp. Heldur ljósinu fyrir læsinguna og ekkert vesen.

    Kv, Kristján





    01.04.2008 at 23:49 #618870
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Auðvitað, hópur 1 stóð sig með prýði, það verður ekki tekið af honum en skáldaleyfið var nú ekki mikið notað að þessu sinni, einungis 1 sinni eða 2 til að krydda frásögnina. 😉

    Kv, Kristján





    31.03.2008 at 01:50 #202213
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Jæja, eftir hamfarir páskatúrsins sem urðu fyrir rúmri viku þá voru auðvitað afleiðingar. Hægt er að skoða tildrög og ferðasögu páskatúrsins hér þar sem Ofsinn er mikill; Ferðasaga

    Allavega, það var ákveðið að fara í skollaleik. Aðalástæðan var nú sú að við erum svo skemmtilegir og skildi því Kalli Skolla eftir helgina áður til að hafa afsökun fyrir að fara á fjöll aftur með okkur. Upphaflega ætluðu bara tveir bílar að fara að ná í skolla. Þeir Magni og sonur á 4runner og Gísli og félagi á Patrol. Ástæðan var sú að Kalli þorði ekki að hringja í mig og fá mig með. Það hafði eitthvað með konuna hans að gera, best að Kalli segi bara sjálfur frá því. Ég hringdi í hann og sagði að þetta gengi aldrei nema ég kæmi með á Tacomuni. Þeir myndu aldrei drífa alla leið, og eflaust ekki ná heim fyrir mánudagsmorgunn þar sem sonur hans Magna þurfti að ná flugi. Kalli tók vel í þetta en sagði konu sinni ekki að ég færi með fyrr en hann var farinn út í bíl hjá Magna.

    Ferðin var skipulögð með miklum og ýmsar pælingar. Kalli fór í Bónus og keypti handa heilum bekk mat og drykk, þó voru drykkirnir fengnir á öðrum stöðum. Eftir mikla visku og ráðleggingar frá Gísla fór Kalli á stúfana og keypti „ALLT“ sem til þurfti til að koma Skolla í gang og í bæinn. Ferðin var sett og ekkert annað en að bíða eftir Laugardeginum. Ákveðið var að leggja af stað í þremur hópum á mismunandi tímum. Ákveðið var að Magni og sonur myndi rúlla örla morguns til Kalla og þrusa uppeftir. Hópur 2 sem var ég og hópur 3 sem var Gísli og félagi tókum því þannig að þeir ætluðu að bruna uppeftir uppí skála sem var Illugaver, (Rottuholan fræga), moka frá inngangi og kynda kofann og koma Scout í gang. Þeir þrusa af stað og fannst mér Kalli hringja heldur oft í mig á leiðini, skýringin á því átti eftir að koma í ljós. Jæja, hópur 2 lagði af stað um 11:30 og var með ýmiss ráðabrugg á pallinum. Þegar ég er kominn upp Búrfellsbrekkuna hringir Kalli og spyr um gang mála. Þá segist ég hafa eyðilagt dekk og muni ekki koma. Þá þóttist ég nú vera öruggur um að þeir myndu kynda og moka skálann. Gísli pikkar upp dekk fyrir mig á leið úr bænum þegar hópur 3 lagði stað sem var um 1,2 eða 3. Þegar ég er búinn að vera einhverja 5 tíma á leiðini í Hrauneyjar kemur Gísli með dekk og hefst hið mikla púsla að finna dekkjunum pláss á réttum stöðum. Eftir nokkra mínútna leik tókst þetta. Brunuðum af stað og þóttumst nú vera nokkuð vissir um að ráðabrugg okkar hefði heppnast. Að 4runner gengið væri búið að moka frá inngangi, hita upp og gera við Scout. En hópur 2 og 3 ákvað sammt að slappa af þrátt fyrir að klukkan væri að verða 5 og ekki nema 9 tímar síðan hópur 1 lagði af stað.

    Hópur 2 og 3 detta á kvíslaveituveginn, hleypa úr og þrusa uppeftir. Gísli í dauðabotni með 45 lítra á hundraði meðan ég trallaði þetta í 2000 snúningunum og komum við á sama tíma. Vorum ekki nema 15 mínútur frá Hrauneyjum að Skolla. Þar beið hópur 1 ægilega roskinn og voru búnir að dvelja þar allan daginn. Komumst við af því að þeir voru búnir að vera á sumbli í allan dag. Scoutinn ennþá læstur og ekkert búið að gera. Hóparnir reyndu með öllum tilþrifum að koma drusluni í gang en ekkert gekk þrátt fyrir meistar Gísla. En það vantaði einn varahlut, sem Gísli sagðist hafa nefnt en Kalli sagt að hann væri ekki til, „allstaðar“ sem reyndist þýða að Kalli mundi ekki eftir því, hluturinn var pickup og var einn á staðnum en ekki hægt að nota hann að þessu sinni. Gísli hengdi spotta í Scout og byrjaði að draga með Magna í farabroddi og ég síðastur til að tryggja hópinn. Scoutinn hoppaði eins og skopparakringla aftann í pattanum þrétt fyrir lítinn ferðahraða. Fljótlega koma í ljós að Magni og Gísli drifu lítið og þurfti Tacoma að vera fyrst til að allir kæmust, mátti sammt ekki fara hraðar en hægaganginn, sammt voru förin sem ég bjó til fyrir extra góð. Skildum Scout eftir við kvíslaveituveg og brunuðum uppí Illugaver, á leiðini hafði ég mig rólegann og var óspart gert grín að mér fyrir það, dreif sammt mest og það á þremur dekkjum. Magni var hafður fremstur, enda þurfti Gísli að huga að olíbirgðunum fyrir dráttinn næsta dag. En þvílík skelfing greip hópa 2 og 3 þegar í skála var komið. Hópur 1 sem lagði af stað klukkan 8 um morguninn og voru búnir að vera á hálendinu í 11 tíma og voru að skila sér á sama tíma og við sem lögðum af stað eftir hádegi. Þar af leiðandi var hvorki búið að kynda skálann né moka innganginn eins og um var samið.

    Tók því við 3 tíma mokstur og hellagerð. Núna skildum við sumblið á þeim hjá Skolla, þeir nenntu ekki að moka innganginn. En þar sem þetta var allt fyrir Kalla þá létum við Kalla moka þetta allt. Grilluð var svínasteik, 12 ára viský drukkið með og veigar og drykkir fyrir tugi manna. Aldrei hefur sést önnur eins drykkja og skildi ég bindindismaðurinn og leynidrykkjarinn þá eftir í drykkjuni og drakk þá alla undir borðið. Nýr dagur, ný ævintýri. Gleymdum næstum Skolla en höfðum rænu á að binda hann í pattann og dóla niðureftir. Þar var einnig Tacoma höfð öftust svo allt færi vel framm. Pjökkuðum þarna niður að Hrauneyjum allann daginn. Hefðum betur hengt Scoutinn á Tacomuna, því þá hefðum við náð seinna kaffinu í bænum. Þrátt fyrir mikla jeppaveiki eða þynnku hjá sumum þá gekk þetta eins og í sögu. Ertacoma orðið og setningin var mikið notuð í þessari ferð. Þessir díselkallar fatta það náttúrulega ekki að maður getur ekki rassskellt þá allar helgar. Það fannst þeim rosa gaman, að fá að vera stundum fyrstir á uppbyggðum kvíslaveituveginum.

    Kv, Fararstjórinn sem þakkar fyrir góða helgi





    17.03.2008 at 22:58 #617660
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Jæja, virkilega flottur og skemmtilegur dagur á fjöllum. Veðrið var bara frábært. Sól og blíða á jökli, hreyfist ekki hár á höfði. Færið alveg þokkalegt og fór skánandi með deginum. Algjört Tacomu færi 😉

    Frosti sá auðvitað framm fyrir tærnar og hætti við að koma, enda sá hann að þegar hann væri að skríða að jökli þegar ég væri á leiðini heim 😉

    Tacoman rasskellti auðvitað alla sem voru þarna, naut sín virkilega vel. En það voru greinilega margir sem hættu við að fara á jökul þegar það fréttist að SpeedwauBlue yrði þarna því traffíkin var ekki mikil þrátt fyrir frábært veður og ágætis færi. Það voru nokkrir fararmenn þarna á ferð og fannst ekkert að færinu, en föttuðu örugglega ekki að þeir voru alltaf í förunum nema stundum en þá voru þeir kannski í háadrifinu og skildu ekkert í drifleysinu og hitavandamálum.

    Auðvitað stóð ameríska deildin fyrir sínu, bilerí og fleirra, Jeep og Dodge þar fremstir í flokki en áttu þó flestir bara góðann dag held ég.

    Kv, Kristján

    PS, Logi´, þú verður orðinn helvíti góður næsta vetur, ekkert spottavesen 😉 Ekki það að Tacoman hefði farið létt með að draga þig jökulinn þverann og endilangann.





    15.03.2008 at 21:55 #617652
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    að vera á Select milli 8 og 9, og verður stefnan tekin á Langjökul eða á Skjaldreið og svo kannski jökul.

    Kv Kristján
    6964403





    15.03.2008 at 21:42 #617650
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    er kannski nýja viðurnefnið…

    En þetta er þá allavega svona:
    Eyþór Bónari ÞARF að bóna á morgunn en notar það sem afsökun til að gera við Baby Cruiser
    Gísli Hringari hugsaði allt í einu skýrt og fannst þetta kannski svo ekkert alltof góð hugmynd en ætlar að hugsa málið
    Teddi Skúramaður fer hvort eðer aldrei neitt þannig það er ekkert að sakast við hann. En er þó með hugann og viljann á réttum stað
    Ingi Pípari sófariddari í litlunefndini
    Benni, enn einn Benninn sem hefur dug og kjark og ætlar að koma af því hann er á stærri dekkjum og heldur að hann drífi meira
    Bjarki Sá sem þorir ekki en langar með á Baby Cruiser
    Og svo Samúel sem er bara öfundsjúkur og þykist ætla vinna á Sunnudegi, segðu annan betri

    kv, Kristján

    PS. Þetta fer að minna bara á Þorrablótið…… nema þá þóttist ég festa mig svo menn gætu haft gaman.





    15.03.2008 at 19:03 #617678
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Já takk fyrir daginn, bara frábært veður og gaman. Hefði verið gaman að sjá fleirri þarna, en engu að síður flott ferð.

    Kv, Kristján





    15.03.2008 at 00:30 #202102
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Jæja, hverjum langar að vera rasskelltur um helgina, er einhver sem þorir eða eru þetta allt bara pappakassar sem þora ekki í sunnudags bíltúr með Tacomu.

    Skil það svosem alveg ef menn þora ekki. Eftir síðustu ferðir hafa menn verið að finna sér allskonar afsakanir, bílar standa á sölum, eru bilaðir og þar eftir götunum.

    En er einhver sem ætlar að kíkja á Langjökul á Sunnudag.? Eða eitthvað annað. ´Spáir alveg sultu fínu veðri og alveg kjörið að þrusa eitthvað á jökul??

    Kv, Kristján





    10.03.2008 at 00:07 #617156
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    þekki þetta nú ekkert sérlega vel, en hvað með tolla, skatta og allt þetta drasl sem getur lagst á þetta við heimkomu. Þetta er varla undanskilið því eða hvað?

    Ætli það sé ekki hægt að bæta við 10-15 þúsund kalli við þetta verð, komið í hendurnar á þér??

    Spyr sá sem ekki veit.

    Kv, Kristján





    09.03.2008 at 21:43 #617152
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    er það eitthvað lítið, gerði nú enga leit en kíkti á 3 staði á netinu og lægsta verð sá ég þar 470 dollara. Hvar fannstu þetta verð sem þú miðar við?

    kv, Kristján





    09.03.2008 at 19:45 #617148
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Hvað kostar svona græja úti, hvað kostar svona græja hingað komin?? Langar að benda á að nýtt svona tæki í R. Sigmunds kostar fullu verði 59.900. Þá vantar svo Íslandskortið.

    Annars er ég með Garmin 292C og mjög sáttur. Það er margfalt flottari skjár í tækinu sem þú ert að pæla í en hann er töluvert minni líka. Og mér finnst skjárinn á tækinu mínu ekki meiga vera minni. En það er náttúrulega misjafnt hvað mönnum finnst um það.

    Kv, Kristján





    09.03.2008 at 14:31 #617046
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    [img:128epozn]http://www.4x3aflugi.com/Bland/DSCF0004.JPG[/img:128epozn]





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 281 through 300 (of 378 total)
← 1 … 14 15 16 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.