Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.08.2008 at 00:17 #628064
var ekki einhver týndur um daginn einhversstaðar, var í símasambandi við björgunarvseitir, get ekki munað að hann hafi verið miðaður út frá símanum, heldur gat hann sagt eitthvað til staðhátt eða eitthvað slíkt, held ég fari með rétt mál. Ef einhver man betur eftir þessu má hann segja.
Þetta er kannski hægt í CSI…. en maður veit aldrei.
Annars líst mér vel á að setja myndavélar uppeftir, svona big brother show. Gæti orðið spennandi, hver liggur uppí koju alla vinnuferðina, hver er að drekka í laumi, hvar eru slagsmál og hver er að rífast, gæti komið skemmtilega vel út 😉
Annars er ömurlegt að nokkrum geti dottið í hug að ganga svona um og ætti ekki að vera stórmál að finna svona fólk, ef fleirri en einn vita þá spyrst þetta fljótt út.
Kv, Kristján
Sem horfir svoldið á CSIPS,
fann fréttina;
[url=http://www.visir.is/article/20080819/FRETTIR01/333631317:nxnnq1cq][b:nxnnq1cq]frétt1[/b:nxnnq1cq][/url:nxnnq1cq][url=http://www.visir.is/article/20080819/FRETTIR01/976562172:nxnnq1cq][b:nxnnq1cq]frétt2[/b:nxnnq1cq][/url:nxnnq1cq]
[url=http://www.visir.is/article/20080820/FRETTIR01/981779572:nxnnq1cq][b:nxnnq1cq]frétt3[/b:nxnnq1cq][/url:nxnnq1cq]
Ef það væri hægt að miða út símann hefði það ekki verið gert þarna, eða tekur það kannski ár og aldir, spyr sá sem ekki veit??
18.08.2008 at 23:37 #627550var vitamál að Kalli myndi fá sér Toyotu. Hann er sennilega mesti Toyotukallinn af okkur inn við beinið þó hann rugli bara um Nissan Scout.
Hef aldrei séð hann kátari en þegar hann fær að ferðast í Toyotu. Hef orðið vitni af því alltof of oft, dásamar bara þessa dásemd..
Kv, Kristján
Toyotukall
11.08.2008 at 01:05 #626360ég fylli minn bíl hjá Shell spara ég mér um 1400 krónur á tank sem mér finnst alveg þokkalegt. En þó er það kannski ekki neitt miðað við upphæðina sem ég tek. Hægt væri að minka muninn með því að vera með dælulykil hjá ÓB sem dæmi sem eru oft nokkuð ódýrir. Þá væri þessi krónutala ekki alveg svona há. Þetta verð sem við fáum er þó lægsta verð sem þú getur fengið þó þú notir öll trixin í bókini, sama hvort það er dælulykill, viðskiptakort, fyrirframgreitt kort eða hvað það heitir hjá öðrum félögum. Stundum kannski munar ekki miklu en tilviljunakennt þó hvar þú ert staddur þá stundina og tíma. Þar sem félögin eru missdýr. En þetta er þó alltaf lægsta verð sem við getum fengið hvar sem við droppum inn sem er kostur. Og þetta er ekkert vesen, ferð á kassann, réttir kortinn og bingó, þarft ekki standa úti að berjast við einhvern sjálfsala með pinnúmer og kvittun eða hvað það er.
Einhver hér að ofan fannst sniðugt að afsláttatalan sé af sjálfsafgreiðsluverði en ekki þjónustuverði sem er alltaf það sama, það finnst mér ekki sniðugt. Þá er þetta orðið eins og hin olíufélögin. Mismunandi verð á mismunandi stöðum á mismunandi tímum. Stundum ertu heppinn og stundum óheppinn. Getur verið að fá meiri afslátt en getur líka verið að borga meira heldur en hinum megin við götuna hjá AO eða hverjum sem er. Það meikar ekki sens. Kannski fyrir þá sem telja sig heppna en ekki hina 😉
En þetta veltur allt á stað og stund, maður fer ekki að keyra á ákveðinn stað til að taka bensín ef þú átt ekki leið framhjá. Þá er ódýrara að rúlla bara við á næstu sjálfsagreiðslu stöð og dæla, það borgar sig engann veginn að fara keyra eftir bensíni, þó það séu hugsanlega einhverjar örfáar krónur sem hugsanlega sparist. Sem þó nokkuð margir gera sér ekki grein fyrir… En auðvitað ætti afslátturinn að vera þannig að það myndi hvetja fólk til að koma versla við félagið, þó það þyrfti að keyra smá spotta, að þó væri það virkilega að spara.
EF það borgar sig ekki, eða er mjög naumt að sækja afsláttarkjör þá eru þau ekki að virka. Þá er afslátturinn ekki nægur……
En þrátt fyrir þetta mætti afslátturinn vera miklu meiri. Bæði útaf magni og fjölda. Kannski eru svona fáir sem nýta sér þessi kjör að þeir sjái sér ekki fært að gera betur við okkur….
Þessi afsláttur ætti miklu nær að vera 20-25 krónur.
Kv, Kristján
11.08.2008 at 00:22 #627124Svissbotn kostar ekki svo mikið í Toyota i Kópavoginum ;), kannski eitthvað búið að hækka í dag en ekkert okurverð. Örfáir með 1000 króna merkinu.
Eins og Kári bendir á þarf ekkert að huga að lyklamálum.
Kv, Kristján
04.08.2008 at 19:02 #626782þetta og finnst þetta góð hugmynd. Galli að nýjar myndir í gömlu albúmi birtist bara efst í nýjustu myndunum en albúmið ekki. Að sjálfsögðu ætti albúmið að færast upp í samræmi við það.
Svo smá þráðarán um leitarvélina, spurning um að breyta uppsetninguni á henni. Það er fáránlegt að þegar þú leitar að einhverju færðu elstu færsluna fyrst, auðvitað á maður að fá þá nýjustu. Eða það finnst mér…
Kv, Kristján
14.07.2008 at 21:01 #626036punktur hjá þér Freyr, ég var með 90 Cruiser sem var alltaf með titring í stýri og ekkert athugavert að sjá við búnað bílsins nema það að stýrismaskínan var orðin léleg. Var einmitt svona, kom og fór, áberandi í kringum 75-100, veit ekki hvort það lagaðist eftir að skipt var um maskínu eða hvað var gert en kæmi mér ekki á óvart.
Þá var ég búinn að vera ballancera og græja og gera í tíma og ótíma.
Kv, Kristján
14.07.2008 at 20:55 #626014Get ekki betur séð en að það sé 7,5" framdrif, þá er þetta alveg spurning um eldri Tacomuna sem nær til 2005 sem hann gæti átt eitthvað sameiginlegt af þessu dóti.
Kv, Kristján
14.07.2008 at 20:33 #626010Eitt kannski sem vantar í þetta sem ég pældi ekki í, er þetta nýi eða gamli bíllinn??
Er búinn að sjá hvaða bíll þetta er, upplýsingarnar hérna að ofan frá mér gilda ekki um þennan bíl heldur nýja.
Kv, Kristján
13.07.2008 at 00:27 #626008Tundran er frekar eitthvað í ætt við LC 200. Stærri vélar, stærri bíll, allt eitthvað stærra. Allt annar flokkur en Hilux, 4runner, LC 120 og Tacoma sem eiga eitthvað sameiginlegt, meira og minna allt sama draslið.
Framdrifið í Tundruni er 8,7". Afturdrifið er 9,5" með 4,0 V6 og 4,7 V8 og 10,5" í 5,7 V8 trukknum.
Stærri vélar, stærri bíll, stærri bremsur, sem dæmi kemur hann á 18" felgum dekkjum held ég.
Sömu gormar og demparar í miklu þyngri bíl meikar ekki sens.
Held að það gildi ekkert önnur lögmál um stýribúnað heldur en allt annað í bílnum.
Þetta er eitthvað sem einföld google leit bjargar á nokkrum sekúndum.
Kv, Kristján
10.07.2008 at 16:56 #625662Enda eru tölurnar sem þeir gefa upp hjá Toyota alveg fáránlegar.
Ef maður flettir upp hjá þeim á síðuni þá kemur þetta;Bensín / Dísel
Innanbæjar (l/100km) 19.1 / 12.1
Utanbæjar (l/100km) 11.7 / 9.3
Eyðsla (l/100km) 14.4 / 10.3Ég hef keyrt svona 200 Cruiser með díselrokknum og þar stóð eyðslutölvan ekki undir 25 lítrum á hundraði.
En í sambandi við 100 bílinn,
En þá er nú ágætt að vita hvort þú sért að pæla í bensín eða dísel bíl, þó munurinn sé kannski ekki ýkja mikill, miðað við það sem maður hefur heyrt.En hérna er þráður um bensín
[url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/12149#96401:3nbjw636][b:3nbjw636]Cruiser eyðsla[/b:3nbjw636][/url:3nbjw636]Kv, Kristján
10.07.2008 at 16:40 #625666er greinilega bara alltof mikið, og einhver þörf á að beisla það betur 😉
Það gæti alveg verið rétt hjá þér að hásingin sé bogin, AFTUR, ef svo er þá er það sorglegt. Þá fer þetta að verða spurning um að skrúfa bara gamla draslið undir aftur og eiga bara varaköggul á pallinum reddý sem hægt er að skella í ef maður brýtur drif….
Kv, Kristján
Og sagan endalausa
10.07.2008 at 01:23 #202647Jæja, er að kljást við eitt vandamál þessa dagana. Það er söngur í afturdrifi.
Þetta byrjaði sem smá svona söngur sem heyrðist einhversstaðar eftir 70 kmh og var ekkert að trufla mann. Hækkaði bara aðeins í græjunum og málið dautt, þetta kom leið og ég setti draslið undir.
Núna er það komið að að maður glittir í þetta fljótlega eftir að tekið er af stað og eftir 70 er farið að heyrast ansi mikið í þessu og á bilinu milli 80-100+ er þetta orðið ansi þreytandi og ekkert sem maður getur látið fram hjá sér fara, enda dugar ekki að hækka bara í græjunum.
Þetta er einungis þegar það er álag, semsagt ég á gjöf eða vélin að halda við, ef það er ekkert álag heyrir maður þó í því en ekki nándann eins og þegar maður er á gjöf. Þegar ég tók þetta úr í annað sinn þá skoðaði ég það og virtist það ekkert vera taka vitlaust á, hvorki framm né aftur, innstillingin virðist semsagt vera fin.
Þannig er komið að þetta er 9,5″ Cruiser köggull, lenti í smá veseni þegar ég setti draslið aftur í eftir að hafa rifið það í annað sinn að ég þurfti að berja annann öxulinn í, og skipti engu máli hvor færi á undan, það var alltaf seinni öxullinn sem var erfiður í. Ætli þetta tengist eitthvað.
Ætli hlutfallið sé bara lélegt og allt verði æðislegt með nýju hlutfalli og stillingu, ætli þetta sé í leguni, einhver skekkja eða álag eða hvað. Einhver sem kannast við svipað vandamál.
Kv, Kristján
05.07.2008 at 00:00 #625462Er ekki málið að láta balancera bara aftur. Þetta er rosalega misvel gert og heppnast misvel og oft þurfa dekkin að fá að setjast aðeins. Hvernig felgur ertu með?
Hef alveg ósjaldann lent í því að balancera og þurfa jafnvel að fara aftur daginn eftir og er þá til friðs. Sakar allavega ekki að prófa áður en menn fara skrúfa allt og gera.
Kv, Kristján
04.07.2008 at 23:18 #625082hvað nýtt tæki kostar en lét yfirfara tæki hjá mér hérna í iðnaðarhverfinu í Kópavoginum sem man ekki hvað heitir en það var rétt um 2-3 þúsund krónur sem mér finnst ekki mikið. Var svona 2kg bíltæki minnir mig.
Það er kannski ekki langt frá því hvað nýtt tæki kostar en er ekki óþarflega mikið bruðl að versla nýtt tæki í hvert sinn sem það þarf að endurnýja??
Kv, Kristján
28.06.2008 at 17:02 #624454Bara hittast og ræða málin, þarf enga skipulagningu til þess nema stað og tíma sem er ekki flókið, hægt að hafa þetta á sama tíma og opið hús er uppá höfða, sem fyrsta hitting, sem síðan má bara breyta eftir þörfum.
Kv, Kristján
Sem ætlar að mæta
28.06.2008 at 16:58 #624908Náttúrulega kemur sér virkilega vel þegar það þarf að skrúfa og gera undir trukknum. Svo er líka ljósahundurinn orðinn þreyttur af allri þessari notkun, enda ætlaði ég að kaupa tvö stykki, eitt fyrir þig Kalli minn 😉
Kv, Kristján
Sem er þreyttur á að skrúfa í myrkri
26.06.2008 at 15:15 #624992Þetta ættirðu að geta fengið í Artic Trucks ef þeir eiga þetta ennþá til, þar að segja lokin. En miðjan í miðjuni(kokinu) er eiginlega bara límmiði og getur einnig fengið uppí Artic en þá sem Artic Trucks límmiða og þyrftir því að skipta út á öllum felgunum ef vel á að vera.
Kv, Kristján
25.06.2008 at 22:50 #624904Það vantar ekki ýmindunaraflið, það er alveg á hreinu 😉
Benni hitti naglann á höfuðið enda vita þetta þeir sem hafa. Akkurat sem ég þurfti. Takk fyrir upplýsingarnar Benni.
Kv, Kristján
Með engla augun
25.06.2008 at 00:12 #624894ég er ekki að tala um neon ljós,
þetta er ekki Honda Civic, ekkert "riceboy" hérna. 😉 Ég er meira að tala um svona kastara undir bílinn, hálfgert flóðljós. Er bara að pæla hvenrig ljós menn eru að nota í þetta sem þola að vera undir bílum og endast eitthvað.
Kv, Kristján
24.06.2008 at 19:00 #202587Núna hef ég séð menn með svona englaljós undir bílunum hjá sér. Finnst þetta nokkuð töff fyrir utan að ég sé ágætis notagildi í þessu.
Hvernig ljós eru menn að nota í þetta. Þarf væntanlega að þola ýmislegt þó staðurinn fyrir það sé valinn af gaumgæfni.
Kv, Kristján
Englabarn
-
AuthorReplies