Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.04.2009 at 00:10 #645176
löngu búinn að rífa túrbínuna úr og kom í ljós sprunga í afgashitahúsinu og sogkuðungurinn brotinn eða laskaður, eða hvernig sem nöfnin eru á þessu öllu.
Ný túrbína kostar ekki nema 363 þúsund, í Toyota, geri aðrir betur en það. 😉
Kv, Kristján
Sem langar bara í bensín
19.04.2009 at 14:03 #646054er það, er æskilegra að vera búinn að græja cooler í bílinn áður en maður setur svona kubb??
Kv, Kristján
12.04.2009 at 12:07 #645606Er búinn að vera með 2 svona dekk undir tveim mismunandi bílum, var smá víbringur í stýri ef ég var með þau að framan, enda ek ég bara um á Toyotu druslum. En er annars með þau að aftan og finn ekki fyrir neinu, gætu verið A dekk fyrir mér. Enda eru B AT dekk bara eins og góður Mudder eða Gound Hawq eða álíka. Svo er hægt að huntera þetta á felguna sem var að vísu gert hjá mér sem ætti að koma í veg fyrir eitthvað hopp eða skopp.
Kv, Kristján
09.04.2009 at 21:29 #644020veit einhver hvað orginal 3,0 vélin er þung, væri gaman að hafa hana til viðmiðunar.
spurning um að skoða 5,0 Mustang eins og Óskar setti í Patrolinn hjá sér.
Þetta er 99 módel og sannarlega ekki common rail, þá væri þetta ekki til umræðu 😉
DRif eru spurning, lítið mál að stækka afturdrif ef það verður ekki til friðs en spurning með frammdrifið, gæti verið snúnara að eiga við það.
Kv, Kristján
07.04.2009 at 23:22 #645174Jæja, hreyfði eitthvað við wastegateinu,, sprautaði á þetta og græjaði og gerði, virtist ekki hafa verið fastur en eflaust einhver tregða, bíllinn er allt annar og er hann byrjaður að blása eitthvað og er aðeins frískari. Túrbínan byrjar að snúast snemma og vælir aðeins í henni, allavega talsvert betri.
Þó finnst mér vanta eitthvað sem gæti verið vitleysa í mér, það er kannski ekki meira í boði úr þessu.
Kv, Kristján
05.04.2009 at 12:23 #645166Ætla skoða þetta,
Kv, Kristján
04.04.2009 at 13:50 #204172Góðann daginn,
er í smá veseni með 90 Cruiser 99 módel, það lýsir sér eiginlega þannig að það er eins og að túrbínan sé ekkert að gera, að keyra bílinn er eins og að keyra turbo lausann bíl, finnur lítið sem ekkert þegar túrbínan kemur inn, ekkert tog, heldur ekki gírum og þar eftir götunum, reykir ekki krónu sama hversu mikið maður pínir hann, ný hráolíusía, loftsía og undravökvi frá Toyota til að byrja útiloka einföldu hlutina.
Ekkert athugavert við lausagang, góður í ræsingu, engar gang truflanir eða neitt slíkt
Hefur einhver lent í svona böggi??
Kv, Kristján
02.04.2009 at 21:46 #644858er búinn að finna lausnina, losa CB stöngina og skrúfa VHF loftnetið í staðin.
Kv, Kristján
Sem samkjaftar ekki
31.03.2009 at 22:39 #644840Grunnti það nú, sakar ekki að reyna ef menn kunna eitthvað á spliff donk og gengju 😉 En já, bara bæta við loftneti, þá verða þau orðin sex, sem er bara gott fyrir dótastuðulinn.
Takk fyrir þetta,
Kv, Kristján
31.03.2009 at 21:51 #204149Hvernig er það, ef ég ætla að vera með tvær VHF stöðvar í bílnum hjá mér. Get ég notað sama loftnetið fyrir báðar stöðvarnar eða þarf þetta að vera aðskilið.
Kv, Kristján
23.03.2009 at 18:58 #644260er að tala um ceck engine ljósið en ekki servise ljósið.
Kv, Kristján
23.03.2009 at 18:55 #644256getur líka tekið mínusinn af geyminum í 15 eða 20 sekúndur og þá núllarðu tölvuna sjálfur og þarft ekki að borga kóng né prest fyrir.
þú getur beðið Toyota um að nota bara evróputölvuna eða hvað þeir kalla þetta og þá kostar þetta bara 2500, þeir láta þig borga 12500 fyrir tölvu sem var sérkeypt fyrir ameríku Toyotur sem á ekki að þurfa til að eyða út villuboðum.
Kv, Kristján
23.03.2009 at 17:21 #644154KE málmsíði hafa verið að græja svona cooler.
Kv, Kristján
21.03.2009 at 12:56 #644012Kalli, ég er sko alveg meðvitaður um það, væri alveg til í blower á 4,0 vélina, það er eitthvað sem er ofarlega á listanum, þú verður að bjóða mér í bíltúr í eðalvagninum.. 😉
Svo er það spurning, willis, það er bara ekki til neitt af því eða hvað, eða ekki sem liggur til sölu og er tilbúið til notkunar eða í niðurníslu eða hvað,, þá erum við komnir í hardcore stuff og til afgangur
Kv, Kristján
Sem er á leiðini til læknis
20.03.2009 at 23:33 #644000það já.
Hlynur hefur ástæðu, segir að ef maður ætli að fara hratt og drífa eigi maður bara að fá sér Imprezu Turbo, sennilega eitthvað til í því…….
2,4 Turbo kemur sterklega til greina, hef allavega heyrt að hann sé skárri heldur en þetta 3 lítra sull sem er original. Skjóti þessum common rail tíkum ref fyrir rass og rassskeli þá hægri vinstri um allt.
Þetta er jú til í Lexus útgáfu af 120 Cruiser en þá er 120 Cruiserinn með V6 vélini sem fæst hérna talsvert skemmtilegri þó hitt heiti V8….
Sennilega er talsvert vit í að taka hann bara með 3,4 og fara sömu leið og Halli. En þá er maður samt bara ennþá næstflottastur.
Næsta skref er klárlega bara að fá sér Tacomu, þar hefur Eyþór rétt fyrir sér, eina vitið ef maður ætlar að stíga í það, er annars búinn að finna eina 350 chevy sem er rétt um 420 hestöfl fyrir einhvern smáaur, spurning um að finna milliplötur og læti.
Bensín er klárlega málið í dag, ódýrara, og ódýrara og er bara svo miklu ódýrara.
En það er aldrei neitt of stórt í bensínheiminum, þannig mopar hemi ætti að komast, lengja og breikka húddið, stærri dekk og…
Kv, Kristján
Sem er strax orðinn þreyttur á afleysi og vantar refsara
20.03.2009 at 18:38 #204071Jæja spjallverjar, hvernig er það, er enginn búinn að setja alvöru vél í 90 Cruiser, er enginn kominn með V8 rokk í húddið á þessu, og hætta þessum díselleik??
Væri gaman að heyra ef einhver hefur framkvæmt eitthvað svoleiðis og þá hvaða vélar væru hentugar í svona swap.
Eða er kannski þægilegast að taka orginal 3,4 Toyota og setja blower á kvikyndið.
Kv, Kristján
19.03.2009 at 17:34 #643944Sæll,
Gummi hefur verið í þessu;
G J járnsmíði
Suðurhrauni 4
210 Garðabæ564 2195
Kv, Kristján
13.03.2009 at 17:49 #643368hvernig er það, get ég ekki áfram sýnt bara kortið og fengið afsláttinn þó ég borgi með debet, kredit eða með peningum, þarf ég að borga með kortinu??
Kv, Kristján
08.03.2009 at 20:05 #20398901.02.2009 at 23:45 #638010Fyrir frábæra helgi, með frábæru fólki og góðri skemmtun.
Kv, Kristján rassskellir……… 😉
-
AuthorReplies