FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristjón Jónsson

Kristjón Jónsson

Profile picture of Kristjón Jónsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 7 replies - 101 through 107 (of 107 total)
← 1 … 5 6
  • Author
    Replies
  • 19.08.2002 at 14:18 #462628
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Fyrri eigandi skifti um vatnskassa árið 2000 og sett í orginal stærð,nýlega skifti ég um kassa setti í þriggjaraða kassa.Ekki var nokkur breyting sjáanleg,við sama tækifæri færði ég kassann neðar svo að sama afstaða væri á viftuspaðanum miðað við vatnskassann væri og er orginal.
    Eins og ég hef sagt áður þá var skorið úr trektinni aftan á kassanum þegar bíllinn var hækkaður á boddýi.Þegar ég færði kassann lagaði ég trektina svo að nú er ég með stærri kassa og meira loftflæði en ekkert breyttist.Einnig er búið að mæli bústið frá túrbínuni og er það eðlilegt.
    Kveðja Stjóni





    14.08.2002 at 21:08 #462620
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Ef ventillinn er tekin úr er framhjáhlaupið framhjá kælielimentunum alltaf opið og því má ekki taka hann úr.
    Ég fiktaði aðeins við hann og nú hitnar kælirinn sem þýðir að nú fer olían í gegnum kælinn.

    Vatnskassinn er nýr þriggjaraða frá Stjörnublikki.

    Ég hef ekki haft tíma til að gera neitt í þessu síðan ég skrifaði síðasta póst en ég held ég kíki í Kistufell og tékki á því hvort þeir komi auga á eitthvað sem öðrum hefur yfirsést.
    Kveðja Stjóni





    13.08.2002 at 00:24 #462612
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    takk fyrir ábendingarnar,ég þykist viss að kúplingin er í lagi,nýja kúplinginn sem ég setti í er úr umboðinu og ætti því að vera að gera rétta hluti,prófaði líka um daginn að taka gömlu kúplinguna og festa hana það breyttist ekkert nema hljóðið í bílnum.
    Ég fór með bílinn upp í Vélaland um daginn og fullyrtu þeir að ekkert væri að heddinu.
    Ég held að næst sé að athuga betur það sem Óli benti á hvort að mælirinn sé réttur og hvort það sé örugglega eitthvað vandamál.Annars er ég mikið að hugsa um hvort málið sé eitthvað tengt olíuverkinu,hvað gera bílar sem fá of mikla olíu eða getur verið of mikill þrýstingur frá túrbínunni.Annars rakst ég á eitt um daginn,í olíukælinum er hitastýring þannig að ef olían er köld fer hún ekki í gegnum kælielimentin heldur beint út af kælinum aftur.Engu líkara var að einhver hefði fiktað eitthvað í þessu svo að kælirinn var ekkert að virka.
    kveðja Stjóni





    29.07.2002 at 23:19 #462602
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Ég er eiginlega búinn að panta tima hjá Vélalandi,mælið þið frekar með Kistufelli.Sá sem ég talaði við í Vélalandi hljómaði eins og hann vissi um hvað hann væri að tala.
    Kveðja Stjóni





    29.07.2002 at 19:58 #462594
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Doddi þú talar um að athuga hvort hann sé að blása út í vatnið,mundi maður sjá loftbólur eða eitthvern lit á kælivatninu.Ég ekki séð neitt slíkt og hann hefur ekki verið að ryðja vatninu af sér.Hitinn er það eina sem er athugavert við vélina,eðlileg vinnsla,eðlilegur reykur o.s.f.v.
    Kveðja Stjóni





    28.07.2002 at 22:07 #462588
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Líklega er hann í lagi fyrst hann sýnir eðlilegan hita við snattið hérna í bænum en rýkur upp í brekkum





    28.07.2002 at 19:22 #191627
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Mig langaði að vita hvort einhver kann einhverjar skýringar á vandamáli sem hefur verið að plaga Patrolinn undanfarið.
    Hann má varla sjá brekku þá byrjar hitamælirinn að stíga.Ég hef ekki leyft honum að fara upp að rauða strikinu en hitamælirinn sveiflast upp og niður t.d. ef ég ek upp Kambana fer hann upp 2/3 en dettur niður í 1/4 þegar ég fer niður Skíðaskálabrekkuna.Ég hef prófað ýmislegt eins og skifta um vatnslás,lokið á vatnskassanum, kúplinguna á viftuspaðanum ,sett í hann þriggja elementa vatnskassa og lagað tektina aftan á vatnskassanum sem einhver sérfræðingur klippti hressilega úr þegar bíllinn var hækkaður á boddíi.
    Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort vanstilling eða bilun í olíuverkinu geti valdið þessu.
    Annað sem mér finnst athyglisvert er að þó að hitamælirinn sýni að vélin sé heit þá er olíukælirinn kaldur viðkomu.

    Vonandi getur einhver galdrakall skírt þetta út fyrir mér.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 101 through 107 (of 107 total)
← 1 … 5 6

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.