Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.11.2010 at 23:36 #215801
Hvernig er það ætla menn eitthvað á fjöll um helgina..?
Ég ætla að fara snemma í fyrramálið inn í Landmannalaugar, þaðan Gljúfurleitina upp í Stetur og þaðan vonandi upp á Hveravelli.
Svo er spurning hvernig ferðin gengur og hvort maður sefur í Setrinu eða á Hveravöllum.Ef einhverjir eru á svipuðum slóðum á morgun eða Sunnudag endilega verið í sambandi annað hvort í gegnum VHF eða síma 899-6699.
Kv
Steinn Kari
06.12.2009 at 22:22 #208951Við kíktum í dag á Langjökul á 2 bílum, fórum töluvert upp á skaflinn. Færið var ágætt eða þannig. Púðursnjór og smá skel frosin ofan á honum, ef maður náði að hanga ofaná var þetta fínt en sykurinn undir var frekar erfiður.
Áttum frábærann dag í æðislegu veðri.hér eru nokkrar myndir.
http://www.facebook.com/album.php?aid=126802&id=773794630&l=7e1a023cd9kv
Steini
05.12.2009 at 22:41 #208919Nú eru bremsurnar í Hiluxnum orðnar slæmar, getið þið bent mér á gott bremsuverkstæði..?
Kv
Steini
05.11.2009 at 13:10 #20802703.11.2009 at 12:20 #207957Góðann daginn, ég er frekar nýr í þessu sporti og hef aldrei fengið sent til mín félagskort 4×4.
Ég var að versla í Toyota í morgun og gat ekki nýtt mér félagsafsláttinn þar sem að ég gat ekki sannað það með korti. Hvernig sný ég mér í þessu..?
Kv
Steini
01.11.2009 at 20:10 #207911Jæja nú er verið að spá í Tetra stöð í bílinn, hvernig hefur þetta verið að reynast.? Nær maður sambandi við Tetra kerfið á flestum stöðum á fjöllum.?
Það væri gaman að heyra frá mönnum hver reynslan er.
kv
Steini
31.10.2009 at 14:55 #207881Góðann daginn veit einhver eitthvað um þessi ljós..?
Það væri gaman að heyra ef einhver hefur prufað þessi ljós og sagt mér hvernig virkar.
kv
Steini
30.10.2009 at 22:01 #207868Ég gafst upp í gær og ákvað að kíkja inn á hálendi og kanna hvort að ég fyndi einhvern snjó, eða smá ævintýri. Fór frá Reykjavík, inn á Þingvelli, þaðan yfir Haukadalsheiðina, þaðan sem leið liggur beint inn að Búrfelli, Landmannalaugar voru næstar, síðan upp að Setri um Gljúfurleit, þaðan upp á Hveravelli. Gistum þar um nóttina í skítköldum skálanum á Hveravöllum, -1 gráða um nóttina. í dag föstudag fórum við norðurfyrir Langjökul upp á Arnarvatnsheiði og síðan aftur til Reykjavíkur…
Af færðinni er það að frétta að það er enginn snjór sem neinu getur numið, skafl á stöku stað og smá bleyta…
Engin teljandi vandræði… því er nú verr og miður.
hehe
Já ég missti þolinmæðina varð að kanna þetta aðeins.
Gæti trúað því að það sé ástatt um fleiri eins og mér… Deyja úr óþolinmæði.
Já ég vil vetur…hehe
Varð að láta ykkur vita.
Kv
Steini
30.10.2009 at 21:54 #207866Jæja nú er ég búin að komast að því að ég vil fá mér kastara á toppinn á bílnum. Einhverjur sem lýsa mikið og vel, einhverja mjög öfluga.
Já VÉLSÓLIR…hehe
Með hverju mælið þið.
kv
Steini
27.10.2009 at 22:59 #207774Sælir, er ekki einhver þarna úti sem lumar á góðum tikningum af aukarafkerfi. Mig daulangar að smíða mér nýtt aukarafkerfi í bílinn, þannig að ég geti breytt, bætt, stækkað og stílfært.
Það væri frábært ef sá hinn sami gæti annaðhvort póstað henni hérna á netið eða sent á mig tölvupóst á steinn@rekkjan.is .
Með fyrirfram þökk fyrir frábær viðbrögð
Steinn Kári
25.10.2009 at 19:19 #207699Hvernig er það fóru menn eitthvað á fjöll um helgina..?
Mig langar svo djö að vita hvort að það er kominn einhver snjór og hvernig færðin er.Endilega smellið inn svörum ef þið hafið farið eitthvað um helgina.
Kv
Steini
02.10.2009 at 14:48 #206983Hvernig er það eru menn almennt eitthvað byrjaðir að leita að snjó á hálendinu..?
Ætla menn eitthvað á fjöll um helgina.?Það væri gaman að heyra frá ykkur.
kv
Steini
26.09.2009 at 21:17 #206796Sælir, ég er að spá í að fara í smá skrepp á mánudag inn í Landmannalaugar, veit einhver hvernig færðin er núna þangað…?
Það væri æði að fá upplýsingar frá einhverjum sem veit hvernig staðan er þarna núna.
kv
Steini
22.04.2009 at 15:10 #204292Ég fór í smá skrepp um helgina með tilheyrandi festum og affelgunum. Ég þurfti aðeins að beita járnkarlinum og hann endaði sem „L-KARL“.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því að þetta væri hægt, hvar kaupir maður sterkann járnkarl.ps mig langar ekkert sérstaklega í álkarl.
kv steini
21.04.2009 at 11:42 #646226Sæll ég fór þarna um á sunnudag og færið er ágætt ekki mikill snjór en vegurinn smá skorinn sumstaðar og pínu drulla hér og þar.
Það var enginn snjór sem heitið getur nema í síðustu brekkunni áður en þú kemur að Jaka.
kv
Steini
20.04.2009 at 21:35 #204282Kvöldið, ég vildi bara segja ykkur það að ég er búinn að ég er búinn að vera að leita að alvöru teygjuspotta og þykku spottarnir hafa ekki fengist í Bílanaust, Arctic Trucks o.s.frv… Ég fór að leita að þessu og það tók nokkurn tíma en ég fann fyrirtæki sem þjónustar útgerðir landsins „ÍSFELL“ og þar fékk ég frábæra þjónustu. Nákvæmlega spottann sem ég vildi, þykkann djöful með lykkjum á báðum endum, helmingi ódýrara en mér var sagt að samskonar kostaði í Bílanaust ofl stöðum.
Vildi bara láta ykkur vita, þetta kostar víst nóg…hehe
kv
18.04.2009 at 10:26 #645766Endilega þeim mun fleiri þeim mun skemmtilegra…
16.04.2009 at 22:20 #645762Já það væri gaman að hafa þig með, endilega reyndu að ná þeim snemma á lappir…hehe
Annars verðuru bara í bandi við okkur á leiðinni.
kv Steini
16.04.2009 at 20:59 #645758við förum allaveganna á 2 bílum á sunnudag, það væri mjög gaman að hafa fleiri með.
1 stk Hilux á 38" og 1 stk Land Rover á 38".
Nú er bara að taka góða skapið með og kíka já Hveravelli á sunnudag.
kv
Steini
15.04.2009 at 13:55 #204245Góðan daginn, mig dauðlangar inn á Hveravelli á Sunnudag og vantar ferðafélaga. Langar að fara yfir Langjökul niður á Hveravelli. Er á Toyota Hilux á 38″ dekkjum, læstum með þessu helsta.
Legg af stað kl 08:00 á Sunnudagsmorgun frá Select uppi á höfða.Ef þú ert í stuði endilega vertu í bandi.
kv
Steini
899-6699
steinn@rekkjan.is
-
AuthorReplies