Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.08.2009 at 01:01 #653666
Það er einhver þyngdarmunur á 22RE og 2LT. Hiluxinn minn lækkaði amk. töluvert að framan við það að fá diesel vélina í húddið.
22.07.2009 at 23:56 #205373Í gegnum Landsbókasafn Íslands er nú hægt að skoða gömlu f4x4.is síðuna (og myndalbúmið!) alveg aftur til 2004. Þeir eru nefnilega búnir að búa til svokallaða veftímavél. Þú semsagt slærð inn slóðina sem þú vilt á þessa síðu http://www.vefsafn.is og getur séð hvernig hún leit út í „gamla“ daga og skoðað hana.
Vildi bara deila þessu með ykkur.
Kv. Stefán Dal
08.05.2009 at 18:40 #647300Ef hann reykir ekkert áberandi þá er allt í lagið að skrúfa aðeins upp í olíuverkinu. Myndi ekki láta hann blása meira.
07.05.2009 at 20:28 #647144Ég frétti af einum á Snæfellsnesinu sem var stundum á vegheflinum með Toyota Hiace pickup aftan í og svo olíukálf aftan í honum.
06.04.2009 at 16:02 #645246Hvar ert þú staddur á landinu Robbi? Það er nefnilega einn bóndi hérna fyrir vestan sem að er í sömu sporum með sinn Patrol.
31.03.2009 at 13:27 #644662Já mikið rétt hjá þér nafni þetta er fyrrverandi bensín Hilux með 2.4 dísel úr LC70.
Ætla að fara á stúfana að reyna finna spennustilli úr hræi hérna í sveitinni..
Hvernig er það með þessa GM alternatora? Er vacum dæla á þeim eða er hægt að færa hina yfir?
30.03.2009 at 21:14 #644656Fór suður og tilbaka á frúarbílnum.
Nú vantar mig bara að vita hvort að það sé ekki hægt að tengja spennustilli eitthverstaðar við alternatorinn. Er hægt að kaupa svona sér eða? Og á hvað á hann að tengjast?
29.03.2009 at 22:26 #644650Ég hélt alltaf að það væri innbygður spennustillir í alteratornum. Ætti ég þá ekki að fá mér alternator með spennystilli eða redda mér utanáliggjandi?
.
Hvernig í ósköpunum tengji ég hann?
27.03.2009 at 23:33 #204125Svo er mál með vexti að eftir ævintýraleg vélaskipti í Hilux er alternatorinn að stríða mér. Hleðslan rýkur upp í 17 ef ég stend hann en hangir í 13.8 í lausa gangi. Er að spá í því hvort það sé í lagi fyrir mig að keyra hann þannig suður til Reykjavíkur í fyrramálið til að láta sérfræðing lýta á þetta. Það er ca. 160km.
.
Hvað haldið þið? Klára ég geymana eða steykji ég gpsið á leiðinni? Ég get haldið honum í kringum 15 með hóflegum akstri.
27.03.2009 at 23:29 #644622Ég gæti átt 2.4 turbo disel toyota mótor fyrir þig ef þú gefst upp á Rocky 😉
27.03.2009 at 17:39 #644554Hvar fær maður svona og hvað kostar hann?
23.03.2009 at 17:23 #644192Otti, hvað heitir kína spilið þitt? Ég var nefnilega að kaupa mér svona kína spil sem mig minnir að heiti ZHME 12000lbs og kostaði ekki nema 50.000 nýtt. Hef ekki prufað það enn og langar að vita hvort ég geti búist við því að það virki eitthvað.
22.03.2009 at 20:49 #644144Ég myndi bara setja bæði. Ég myndi segja að það muni miklu. Fróður maður sagði mér fyrir helgi að það munar stundum heilum gír, amk. á Hilux.
22.03.2009 at 15:37 #47212821.03.2009 at 20:47 #644074Google sýnir þér það alveg örugglega.
http://images.google.is/images?hl=is&q= … a=N&tab=wi.
Hvað ertu annars að fara að tengja?
21.03.2009 at 20:16 #472120Mér datt í hug að nota þennan þráð þar sem að hann er náskyldur mínu vandamáli.
.
Ég var að skipta um vél í Hiluxnum mínum og er að reyna að finna út hvernig ég á að tengja alternatorinn. Það er þriggja pinna plögg sem lýtur svona út
_
l l Veit eitthver hvað á að tengjast hvar?Nú er ég algjör klaufi í bílarafmagni en mér skilst að það sem að þurfi að tengjast í þetta plögg sé hleðsluljósið, svissstraumur og svo stýrisstraumur?? Hvernig í ósköpunum á að finna út hver er hvað?
21.03.2009 at 16:32 #644036Ég lenti í því að skemma skrúfgang fyrir kerti í Hilux. Ég snittaði bara og startaði svo smá með ekkert kerti í. Það ætti að blása megninu upp.
.
Það er hinsvegar ekkert að marka, Hilux gengur nátturulega á öllu, þar á meðal svarfi.
19.03.2009 at 03:28 #633362Jæja nú er Hilux hrokkinn í gang og gengur á diesel. bara smá frágagnur eftir.
Gaman að spá í það hvað ég hefði getað keypt marga bensín lítra fyrir peninginn sem fór í þetta ævintýri, en þetta var nú ekki gert fyrir budduna svosem.
.
Þakka Ella Ofur, Braga Guðnasyni og Emil Borg fyrir almenileg heit og svör við mörgum spurningumn
03.03.2009 at 15:54 #642292Sæll Villi.
Ég mæli með því að þú kíkjir inná http://www.toyotadieselmadness.com
Þar er allan fróðleik að finna um þessi skipti.Ég held alveg örugglega að þú þurfir að færa til mótorfestingarnar aðeins. Annars eru þær alveg eins útlitandi. Ég veit um eina svona vél til sölu (1KZT úr 90Cruiser en með mekanísku olíuverki).
Kv. Stefán semeralvegaðverabúinnaðskiptaumvélíhilux !
23.02.2009 at 17:09 #641800Ég hef bara heyrt um einn Hilux með 2.8 Patrol mótor og mér skilst að mótorinn sé alltof langur, liggji alveg við hvalbak.
Best er örugglega að finna 2.4 diesel eða 3.0l disel úr 4runner. Það var ein þannig auglýst hér á spjallinu, 1KZT úr 90 cruiser með mekanísku olíu verki.
-
AuthorReplies