FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Stefanía Guðjónsdóttir

Stefanía Guðjónsdóttir

Profile picture of Stefanía Guðjónsdóttir
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 601 through 620 (of 713 total)
← 1 … 30 31 32 … 36 →
  • Author
    Replies
  • 01.02.2007 at 17:03 #577352
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Loksins fékk ég hýsingu fyrir smá vídeo bút. Kvennaferðina miklu.

    Var komin með fráhvarfs einkenni að komast ekki á spjallið.

    Greinilegt að ákveðnir menn eiga mikil ítök í bænum.
    Þar sem myndbandið flæktist við vinnslu þá er aðeins hægt að birta brot af því á meðan verið er að "aflækja" það.

    Þetta eru sko alvörumenn og gott að eiga þá vísa í Þúfuveri.

    kv. stef.
    [url=http://www.trigger.is/fun/LJB.wmv:dos8isoz]">[b:dos8isoz]Kvennaferðin mikla[/b:dos8isoz][/url:dos8isoz]





    29.01.2007 at 23:36 #577330
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú er ég að velta fyrir mér… ef ég vildi setja inn bút úr video klipps á spjall þráðinn… hvernig fer ég að því…

    kv. stef.





    29.01.2007 at 22:56 #577324
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Loksins erum við Jón "skipt um skoðun" sammála. Þetta er meðal annars ástæðan fyrir því að ég skrái mig ekki í kvennaferðina… því konur eiga ekkert erindi einar á fjöll enda kunnum við ekkert að keyra.
    Mér líður mikið betur að vita af ykkur félögum í Þúfuveri konunum til halds og traust.
    Annar ykkar getur hringt á dráttarbíl frá Árborg… hann er með númerið í speed dial… á meðan hinn stendur út á veg og húkkar far í bæinn… puttinn er í æfingu… bara muna að taka gsm símann með í bæinn svo ekki þurfi að auglýsa breytt númer….
    kv. stef. ;->





    27.01.2007 at 23:30 #577644
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Lúdó meðan þú varst á fjöllum þá var ég að skoða bíla m.a. á bílasölu Plúto. Sá einn vínrauðann DC með nestisboxi á toppnum. Sá að JÞJ var búinn að stilla sínum bíl upp… sýndist hann vera "verðlaus" með öllu.
    Bara gott að heyra að þessi dagur skuli hafa gengið vel hjá þér… og öllum hinum ef út í það er farið.
    Takk fyrir greinagóð svör…

    kv. Stef.





    27.01.2007 at 21:47 #577630
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mér sýnist allt vera að gerast í litlu deildinni, alvöru ferð. Týpískt loksins þegar eitthvað er að gerast … þá situr maður heima.
    Þessi ferð ætti að skila "nýliðunum" reynslunni ríkari í bæinn.
    —
    kv. stef. (semaðeralltafaðmissaafeinhverju)





    27.01.2007 at 20:17 #577616
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú er ég með spurningu þar sem að ég kann voða lítið á svona FORD (found on road dead, á malbiki 3 km frá möl). Er það betra eða verra að vera með "laust" framdrifsskaft á svona kraftmiklum bíl… eða er það bara yfir höfuð fyrir….

    kv. stef (hin einfalda)
    sem á bíl með grindargliðnun





    25.01.2007 at 10:20 #576930
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mig langar að koma með tillögu…
    Allir þeir sem eiga svona ofboðslega mikið af peningum og langar að gera vel við klúbbinn… þeir geti bara sent inn frjáls framlög….
    Ég er viss um að Grimmhildur gjaldkeri tekur fagnandi á móti þeim…
    —
    Kv. stef (hin einfalda) ;->





    24.01.2007 at 19:18 #577036
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Bendi ykkur á að skoða síðustu 12 myndirnar hjá Barböru úr miðjuferðinni sem eru teknar á leiðinni frá Setur niður á Kvíslarveituveg.
    kv. stef





    24.01.2007 at 18:49 #574678
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Það er alltaf nauðsynlegt að fá ábót… svo ég bætti inn auka myndum í miðjutúrinn tíðindalausa.

    kv. stef
    p.s leiðréttið mig ef eitthvað er rangt með farið ;->





    23.01.2007 at 13:52 #574676
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Valur þú gætir vonast eftir að fá að ritskoða videoklippurnar hjá mér af þessum hæfilega miklum festum.. áður en þær verða opinberaðar.
    Ég veit að þú átt mikið inni hjá mér eftir helgina og ég skal fara vandlega með þetta.

    Nei annars ég hef aðeins verið að kíkja þessa vídeobúta hjá mér og ég grenja úr hlátri… ég er með harðsperrur í maganum.
    Það eru svo mörg skemmtileg komment þarna…
    Meðal annars sagan af Val nokkrum sem að fór með Dóru konu sinni dag einn í búð…. og fleiri urðu dagarnir ekki.

    kv. stef ;->
    ps. hvað hef ég langan tíma til að breyta þessu.





    23.01.2007 at 12:53 #574672
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Valur mér finnst nú menn vera farnir að opna sig full mikið…

    En eins og þú segir maður þarf smá tíma til að vinna sig í gegnum myndirnar.
    Það er svo erfitt að sjá þær í gegnum … tárin og fer ekkert sérstaklega vel í magann.

    kv. Stef ;->





    22.01.2007 at 21:49 #574666
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Setti inn myndir af því markverðasta úr þessari tíðindalausu miðjuferð… ekki gáfust mörg tilefni til að mynda og enn þá minna til að segja frá…
    Vil ég bara þakka samferðafólki mínu kærlega fyrir ferðina og allan pakkann…
    Nú þori ég bara ekki að segja meir þar sem orð skulu standa… og kveð

    over and out.
    Stef





    10.01.2007 at 10:47 #571878
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Þetta er alveg týpískt…
    …
    Ef að menn gæfu sér tíma til að lesa þráðinn þá tengist mitt innlegg pósti sem að kom kl. 12:10 þar sem var verið að tengja saman kostnað við auglýsingargerð og réttmæti þess að birta auglýsingu. Kostnaðurinn við auglýsinguna frá Ingvari Helgasyni væri of mikill til að réttlætanlegt væri að taka hana úr sýningu.
    …
    Nefndi ég þá dæmi um auglýsingu sem að tekin var úr sýningu af þeim orsökum að hún "fór fyrir bæði brjóstin" á FULLORÐNU FÓLKI.
    …
    Ég geri ráð fyrir því að það hafi verið fullorðið fólk sem hafi tekið ákvörðun um að taka auglýsinguna úr umferð (en ekki börnin) út af þeim ÁHRIFAMÆTTI sem það teldi að hún hefði.

    Hvort það hafi komið fram að barnið hafi stokkið eða áhorfanda látið það eftir að geta í eyðurnar er ekki aðalmálið.
    ….
    Þessi þráður snýst um AUGLÝSINGU frá INGVARI HELGASYNI og hvort hún eigi að vera til sýnis eða ekki, ÁHRIFARMÁTT HENNAR og FORSENDURNAR FYRIR ÞVÍ AÐ HÆTT VERÐI AÐ SÝNA HANA …
    en ekki auglýsingu frá umferðaráði.

    kv. stef (hin mjög svo einfalda)





    06.01.2007 at 05:31 #574030
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Hjúkk Óskar… ég er þá ekki lesblind eftir allt saman.
    kv. stef. (hin einfalda… one wonders)





    06.01.2007 at 01:57 #574024
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Áður en hann Hafsteinn missir sig alveg…
    þá get ég ekki séð að neinn sé að kvarta undan skort á ferðum nema síður sé.
    Fyrir mitt leyti þá var ég að ÞAKKA FYRIR það að það skuli vera búið að birta áætlun fram í tímann.
    Ef það flokkast undir væl þá get ég alveg sleppt því að þakka fyrir það sem gott er gert.

    Það sem ég les úr skrifum Óskars (sennilega er ég lesblind) er ekki að það séu fáar ferðir heldur það að hann sé að pirra sig á því að komast ekki í þær. Og ef menn mega ekki pirra sig á því að komast ekki í ferðir þá er nú farið að harðna í dalnum.

    Kv. stef (hin einfalda)





    06.01.2007 at 00:40 #574014
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Óskar við skulum ekki fara of geyst í einu….
    þá á ég við fyrirsögnina hjá þér sem segir allt sem segja þarf …
    því mér finnst það alveg ótrúlegt… að það sé þó komið plan …og Þakka ég því mikið vel fyrir það. (nú hef ég t.d. tök á þvi að hagræða í minni vinnu með góðum fyrirvara).
    Svo má kannski skoða þetta með dagsetningarnar… góðir hlutir gerast hægt.

    kv. stef (hin einfalda)





    01.01.2007 at 07:08 #573112
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mínar skiptu skoðanir eru þær að ég hef verið leynt og ljóst mikill aðdáandi Ómars Ragnarssonar um langann tíma. Og ef ég gæti valið einn mann til að sýna mér landið þá væri það Ómar… uppfullur af fróðleik… Þetta er maður sem er trúr skoðunum sínum og hefur fylgt þeim á hjara veraldar… sem hafa skilið hann eftir eignarlausan og skuldum vafinn… Þegar fram líða stundir þá verður hans minnst sem einum af merkasta manni aldarinnar… sbr. Jón Sigurðsson… vér mótmælum allir.
    Það sem hins vegar hefur vakið furðu mína er að eins söfnunarglaðir og Íslendingar eru …. safnað fyrir fullt af liði í útlöndum, sem er góðra gjalda vert… þá er okkar Don Kíkote (man ekki hvernig skrifað) að berjast við vindmyllurnar að reyna að bjarga landinu okkar frá því að vera drekkt… þar sem "aurinn" er sparaður (safnað á botni Hálslóns) en krónunni er kastað fyrir erlent fyrirtæki… skilinn eftir með persónulegar skuldir…og skiptar skoðanir… (á honum) já og valinn maður ársins á fleirum en einum vettvangi… það er einungis andlegur stuðningur…er ekki tími til kominn að líta sér nær og safna fyrir einum merkasta íslendingi sem að er kominn á sín efri ár og tryggja honum áhyggjulaust ævikvöld… eins og við erum að gera fyrir fullt af fólki út í heimi… sem að við þekkjum ekki einu sinni.
    Nb. ég hef séð kort hjá Landsvirkjun með framtíðar virkjunaráætlunum og … það voru nánast allar stærri ár inn á því … sem að hefur svo áhrif á hliðarsprænur.
    Það má ekki skilja sem svo að ég sé eitthvað á móti virkjunum … síður en svo en þegar við eru að eyðileggja landið okkar langt umfram þörf okkar … bara fyrir einhverja raforku handa fyrirtæki sem að gæti ekki staðið meira á sama um okkur þá finnst mér nóg komið…
    Það ætti frekar að virkja hugmyndaflugið í landanum því að þetta er ekki að virka.
    Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn.

    kv. Stef (hin einfalda)
    kannski væri betra að Ómar væri stradivarius fiðla… fiðluna heim ;->





    01.01.2007 at 00:13 #572994
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Gleðilegt ár
    Til hamingju félagar… nú er tæpt ár í það að við getum farið að ræða verðlagningu á flugeldum hjá björgunarsveitum aftur…
    Can´t wait….
    Minni samt grútana á að nú fyrir þrettándann geta þeir fengið flugelda með miklum afslætti…. hjá björgunarsveitunum… til hamingju með árangur í ykkar baráttu … máli…
    njótið vel.
    kv. stef (hin einfalda)





    31.12.2006 at 12:51 #572968
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú er ég bara að spöglera eina ferðina enn.

    Þetta fólk sem er að tala um ofur álagningu sem það telur sig vera að borga fyrir raketturnar … er það ekki sama fólkið sem að oft fer í ríkið (ÁTVR) og verslar áfengi fyrir tugþúsundir mörgum sinnum á ári á uppsprengdu verði… og fær ekkert nema þynku í staðinn… og ekki einu sinni öruggt pláss á Vogi í meðferð… nú eða Byrginu fyrir þá sem kjósa það. Margt af þessu fólki fer á skemmtistaði um helgar og kaupir eitt glös á barnum á verði sem að fær mann til að svitna og svo bara móral daginn eftir.
    Björgunarsveitirnar eru með stóra fjáröflun einu sinni á ári sem stendur undir rekstri sveitanna og er aðal spennan í þessum gróðra buissness (alias óþverra buisness) fólgin í því á hvaða tímapunkti á gamlaársdag er farið að rúlla yfir 0 og GRÓÐINN fari að skila sér.
    Þeir selja flugelda sem að öll fjölskyldan og nágrannar geta glaðst yfir sem fjáröflun… Sumum finnst kannski bara skemmtilegra að kaupa bara pappír með númerum á (happdrættismiða) og er það þá stundum líka í boði… Og ef þakið hjá þér er að fjúka eða barnið þitt er týnt þá koma þeir um leið og þú hringir… FRÍTT …(og án aukakostnaðar)… því þeim er sama hvort þú heitir Jón eða séra Jón og hvort þú keyptir flugelda af þeim eða ekki.

    kv. stef (hin einfalda)
    Nb. ekki skot á Ofsann





    27.12.2006 at 15:17 #572692
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég verð nú að segja að mér finnst nú ákaflega gott að vita af ferðunum með smá fyrirvara því vinnan slítur svo í sundur hjá mér daginn og því erfiðara að skipuleggja með stuttum fyrirvara….

    kv. Stef (hin einfalda)





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 601 through 620 (of 713 total)
← 1 … 30 31 32 … 36 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.