Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.02.2007 at 14:40 #581972
Mér finnst þetta bara helv… góð síða.
Hún hugsar fyrir mann og kemur í veg fyrir að maður skrifi inn eitthvað sem að maður sér kannski eftir að hafa sagt… ekki getur maður breytt eftir á því orð skulu standa hversu vitlaus sem þau eru (jafnvel rangar upplýsingar)…
Svo kemur hún í veg fyrir að óæskilegar myndir birtist á síðunni því maður er alveg hættur að nenna að eyða tíma í að setja þær inn…
Og ef maður lumar á vídeobútum þá þarf maður að fá hýsingu út í bæ… og hver nennir því…
Sem sagt getur ekki verið betra.Kv. Stef. sem er bara ánægð með síðuna og nennir ekki neinu. ;->
(hef samt skilning á vanda sjálfboðaliðanna í vefnefndinni, rock on – innan gæsalappa 😉
–
setti inn lítilega ritskoðaðar myndir úr þorrablótinu en engar hreyfimyndir.
[url=http://picasaweb.google.com/stefgud:oga9b6ns][b:oga9b6ns]Þorrablót 2007[/b:oga9b6ns][/url:oga9b6ns]
21.02.2007 at 22:18 #581802Það var nú OFSAlega fjallreynd skálakona…. eða hvort hún var við skál veit ég ekki… sem sagði mér (on camera) að skálinn í Nýadal gengi undir nafninu Klakahöllin og að hún myndi ekki gista þar. Hún er nú kannski týpísk kona… huguð á spjallinu og endar svo í Húsa….. skjóli í Setrinu
kv. stef. ;->
19.02.2007 at 18:21 #580964Ljótt er að heyra… LÚDÍNA skamm. Ég legg til að opnaður verði söfnunarreikningur fyrir þau." save the water bed" og að Jónína verði gerð að söfnunarstjóra… hún er hvort sem er með söfnunaráráttu…(safna einhverjum punktum). Þetta er miklu mikilvægara.
Ég skal leggja til andvirði einnar toyotu með grindargliðnun. Nei annars ég doubla það og legg til 1000 kr.
Og sem sárabót geti þið ábygglega fengið að vera í slúðurdálknum í Setrinu… alveg frítt.Kv. stef.
ps Kaupum Kjalveg.
19.02.2007 at 17:51 #580960Er það ekki rétt að MUSSO inn sé til sölu nú reynir á bílasalann að selja bílinn áður en sambandið gengur til baka.
Var þetta ekki hálfgerð reverse öskubuskuferð gullvagninn breyttist í aftan í vagn.
Annars skilst mér að síðasti bíll sem öskubuska fékk far með hafi komið í bæinn með ónýta hásingu og ekki sést á fjöllum síðan.
Mér finnst nú eðlilegra að paraferðir gangi út á að para fólk saman. Og ef að líkum lætur þá má segja að þessi ferð hafi skilað 100% árangri og kannski er þetta nýtt sóknarfæri hjá klúbbnum til að fjölga meðlimum… (hm) í klúbbnum.
Kv. stef sem veit ekkert um hvað málið snýst ;->
ps. Kaupum Kjalveg
19.02.2007 at 00:40 #579622Frábærar myndir hjá ykkur…
Get ekki beðið eftir að sjá textann við þær…
en ég bíð nú samt ;->
kv. stef.
18.02.2007 at 22:25 #579612Hver braut hvað – hvar…. ekkert víst að ég sjái Setrið.
Hvað klikkaði með dúkkuna er ekki hefð að drekkja svona einota rusli eftir notkun… hm.
Það er samt gott að heyra að allir eru heilir á sál og líkama… alla vega líkama eftir þessa ferð.kv. Stef. ;->
18.02.2007 at 20:09 #579600Ég spyr bara eins og mennirnir í Bratislava hvað er að frétta af þessari ferð?
Var hún yfir höfuð farin?
Er það rétt sem maður heyrir að þetta hafi verið undirbúningsferð fyrir ráðstefnuna SNOW eitthvað umtöluðu sem verður haldin á hóteli hér bæ fljótlega?
Var dúkkan hans Danna full af lofti eða er allur vindur úr henni eftir helgina?
Þurfti kannski að setja tappa í hana?
já og hvernig var færðin?… who care´s um það…
–
Kv. stef ;-> (semaðermeðinnanbæjarsyndrome)
17.02.2007 at 11:53 #580722Verðlaun já…hm ég bíð þér hlut sem er svolítið ofmetinn í dag… heiður.
–
Sæmi þú biður um videó af Alvöru jeppum(Ford) í reddingum í seturs ferðinni …
Það var nú sýnt video á síðasta mánudagsfundi (á miðvikudegi) sem að ég tel nú að hafi verið töluvert photoshopað því þar mátti sjá Ford draga LC80, Ford spila patrol, Ford notaðann í vélsleðaferðir og Ford notaðann til salernisferða í Setrinu.. hm…
Það þarf bara að koma þessu í hýsingu til að setja á netið.kv. Stef.
16.02.2007 at 23:45 #580716Æ já alveg rétt Goggi Karlsdráttur…
ég hélt kannski að ég gæti fengið að vera coari á gámabílnum… ef hann er hvort sem er að fara.
–
kv. stef
16.02.2007 at 23:38 #580712Ég bara roðna við að sjá orðið gáfaður og nafn mitt í sömu setningu… takk.
Og aftur roðna ég þegar ég viðurkenni það hiklaust að ég hef ekki enn átt jeppa sem að hefur verið "fluttur" með gámaflutningabíl í bæinn…
Hins vegar finnst mér ákaflega gott að vita af þér Lúdó (og hjálparsveitinni) því að ég veit að þú ert alltaf boðinn og búinn að koma til hjálpar og kemur ef á þarf að halda…
Lúdína rular.Kv. stef (sem leiðist í bænum og finnst Lúther vera bestur)
16.02.2007 at 23:12 #580704Lúdína ég er að velta fyrir mér… sjá Árborgarmenn um flutning bæði úr bænum og í bæinn…?
Er þetta ekki ákaflega hagkvæmt… s.s. minna slit á legum og þess háttar.
–
kv. stef.
ps. "bara fylgja tækjaslóðinni eftir frænda".
spurt er: hver sagði þetta?
16.02.2007 at 21:56 #579088Ég held að málið sé göng undir Kjalveg kostur nr. 1, 2 og 3. þá þarf ekki að hugsa um veðurspá og friðlönd. Kostur nr. 2 (hm) er kaupum Kjalveg.
–
kv. stef. (sem er alltaf að mæta yarisum á Kili)
16.02.2007 at 21:12 #579596Ef þetta virkar þá held ég að þetta sé bílalýsingin.
–
kv. stef. (sem að er ekki uppblásin dúkka ;->)[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=cars/5236/39892:33hcicqu][b:33hcicqu]Mynd[/b:33hcicqu][/url:33hcicqu]
12.02.2007 at 12:53 #579806Ég fagna því að mútta skuli vera komin heim. Ég skoðaði myndirnar og þar kom fram að það var farið í Húsafell og ekkert meir. Ekki varð ég neitt fróðari um hvert var farið eða um þá sem að tóku þátt. Kannaðist reyndar við einhverja bílanna en það er ekkert sama sem merki með hver keyrði eða hver var coari.
kv. stef veit ekki út á hvað kvennaferðir ganga.
p.s. myndirnar voru samt flottar.
11.02.2007 at 16:52 #579800Lúdína ég veit ekki… það virðist ekki vera að þær séu komnar í bæinn því engar eru fréttir að fá.
Má ég spyrja hver er þessi umræddi jökull? Er hann nálægt Landmannalaugum…..kv. stef. (sem veit ekki neitt)
10.02.2007 at 19:49 #579796Ég var nú bara að velta fyrir mér… þar sem að það er töluvert síðan að ég borðaði kvöldmat… hvort þau sem að fóru í kvennaferðina séu ekki komin í bæinn.
Hvert var farið (áætlanir eiga það til að breytast) og hvernig gekk. Hvað fóru margir og hvernig bílar.
kv. stef. (sem verður að vinna fyrir allskonar hugsanlegum kostnaði)
10.02.2007 at 01:18 #579986Þetta er þessi fágæta tegund ER ta coma og er í eigu Kóngsins og Drottningarinnar. Sjá konunglega myndasafn- kóngurinn.
kv. stef.
10.02.2007 at 00:58 #577356Ég má til með að uppfæra þennan þráð þar sem mál hafa tekið 360° viðsnúning.. eða kannski bara 180°..
Mér skilst að TVEIR af þeim ÞREMUR karlmönnum sem að tjáðu sig á þessum þræði hafi selt bílana sína í snarhasti … fyrir kvennaferðina… áður en þeir féllu í verði. Þriðji bíllinn er aftur á móti erfiðari í sölu því það er ekki alveg klárt hvaða tegund hann er og því síður árgerð. Ef hann er troober -óseljanlegur, toyota 4runner/dobblari-ofmetinn, patti-vanmetinn. Tilboð óskast. er á lítilega slitnum dekkjum (3mm eftir af munstri).
–
"Mér fannst þessi hugmynd þín Lúter um að hafa sérstaka ferð, þar sem kvenfólki verði kennt að hleypa úr og pumpa í góð, okkur til hægðarauka (Jón skipt um skoðun)".Ég verð nú að vera sammála Jóni með að leysa vind getur líklega verið hægðaraukandi… en að fá konurnar til að gera það fyrir sig líka… og þurfa að hafa sér ferð fyrir það…er það ekki hámark letinnar ég bara spyr.
Kv. Stef.(Semvillbarafaraíkvennaferðirmeðkarlmönnum)
09.02.2007 at 22:32 #579778Mr. T
Þú þarft ekki nauðsynlega vera á hliðarlínunni…. bara p… hm (konu) í bílstjórasætið og þá geturðu verið í coarasætinu.kv. stef sem er ALLTAF þæg… bara mismikið.
09.02.2007 at 22:27 #579774Nú er ég að velta fyrir mér hvað eru margar eða margir (hverjir) að fara og hvernig bílar eru að fara, hvað margir.
kv. stef (semlangaraðfylgjastmeð…úrfjarska)
-
AuthorReplies