FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Stefanía Guðjónsdóttir

Stefanía Guðjónsdóttir

Profile picture of Stefanía Guðjónsdóttir
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 713 total)
← 1 … 24 25 26 … 36 →
  • Author
    Replies
  • 08.06.2007 at 02:23 #592024
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mér finnst síðasta innlegg eiga skilið Sófariddarakross fyrir að vera tær snilld.
    kv. stef. ;->





    08.06.2007 at 01:07 #592228
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég mæli með að senda karlinn KLM í þingmannaferð með stjórn… og hefja strax leit að öðrum samgönguráðherra.

    Kv. stef.





    01.06.2007 at 00:02 #591712
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Siggias74
    Ég verð nú að segja það, mikið rosalega lifir þú leiðinlegu lífi ef að þetta er hápunkturinn hjá þér.
    kv. stef.





    19.05.2007 at 13:20 #591044
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    HaffiTopp þú ert maður sem að þorir að taka áskorun til hamingju með það.
    Það sem kom fyrir hjá þér núna er það sem að við köllum á tæknimáli framhjáhlaup. Þetta fær þig til að líða betur í stutta stund en svo fellur allt í sama farið.
    Ég get nú ekki betur séð en að við séum bara nokkuð sammála í aðalatriðunum. Að það sé algjör nauðsyn að það sé nefndarmaður sem að fari fyrir ferðinni á þjóðvegi 1. Því eins og þú segir þá geta bílar bilað og þetta er fólk sem að hefur aldrei á þjóðveg komið. Ég bendi aftur á móti á þá hættu að fólk getur villst á leiðinni því að það er jú ein kröpp beygja á henni inn á afleggjarann. Þannig að ég tel það vera mjög mikilvægt að skoða það hvort að það sé forsvaranlegt að leggja í þessa ferð án þess að nefndarmaður sé með í för. Sé ekki mun á kúk og skít … nema herslumuninn.
    Rétt er það að ég var á tímabili í litlunefndinni en menn verða að kunna að þekkja sín takmörk og stíga til hliðar þegar að mikið hæfara fólk er til staðar en maður sjálfur er og gefa því vinnupláss.
    Vil ég svo þakka þér aftur á móti góð ráð varðandi atvinnu og mun ég taka það til skoðunar. Þakka ég þér einnig það traust sem að þú sýnir mér með að telja mig fullfæra um að hjálpa gamla fólkinu að taka inn lyfin sín því að það er ekki á allra færi.

    Kv. Stef. sem að er "so full of it" ;->





    19.05.2007 at 03:09 #591040
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Andskotinn hafi það strákar… ég sé ekki annan kost í stöðunni en að fella þessa ferð niður (bara af gömlum vana) þar sem að enginn úr nefndinni er til að leiða hópinn ÞJÓÐVEG 1 að tjaldstæðinu. Það er að vísu ein beygja á leiðinni og það er út af þjóðveginum og inn að Stóru-Mörk og þarf að aka um 2 eða 4 km að tjaldstæðinu. Jú ég viðurkenni það að það getur nú verið krítiskt ef að maður missir af þeirri beygju því þá getur maður endað t.d. á Höfn í Hornafirði og það vill enginn. Og það er alls ekki á færi hins almenna félagsmanns að átta sig á þessu. Ég vil bara ítreka það að menn skoði í fyrsta lagi veðurspánna mjög vel áður en lagt er af stað í svona hættuför því að ég sé að í framtíðinni muni koma slæmt veður og kynna sér vel ástand vega.

    Kv. stef.
    p.s. vona að þetta hafi eitthvað hjálpað… og já það er open season skotveiðileyfi á mig takið bara númer… held að vísu að númer 1 og 2 sé upptekið… but be my guest.





    12.05.2007 at 17:39 #590888
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Barbara þú bara opnar húddið og ræður svo hvort þú snýrð þér upp, leggst á bakið eða til hliðar. Muna bara að hafa loftinntakið vel opið…
    kv. stef.





    08.05.2007 at 14:01 #590622
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég verð nú að segja það að þessi könnun kemur skemmtilega á óvart. Þar sem ég er nú með öflugt valminni sem að er ekkert að marka þá minnir mig að þar sem að ég er stuðningsfulltrúi litla mannsins að ég hljóti nú að hafa kosið hann Sverrir þegar honum var hent úr Dátalistanum yfir í frjálslyndaflokkinn. Og nú ætla ég að kjósa Íslandsvininn Ómar Ragnarson. Mér dettur bara ekki neinn í hug sem að þekkir landið jafnvel og hann. Gert jafn mikið og á skilið að fá Thule. Svo að ég tali nú ekki um þessi fínu eftirlaun (sem að ég ætla á þegar ég verð eldri). Ég skil nú bara ekkert í þessari valblindu að framsókn hafi lent í næst neðsta sæti þar sem að ég er nú meiri aðdáandi sjálfstæðisflokksins sem að lenti í neðsta sæti (uniform eru svo flott go Bjössi dáti). Ég held að þessi 50% til samfylkingarinnar sé bara miðjulína notuð til 0 stillingar.

    Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 25%
    Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
    Stuðningur við Samfylkinguna: 50%
    Stuðningur við Vinstri-Græna: 68.75%
    Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 42%
    Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 60%

    Kv. stef sem að er sko aldrei þessu vant ekki með valkvíða. X-ÓMAR.





    07.05.2007 at 22:09 #590568
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Jón Snæland framsóknarpungur.
    Ertu að meina þetta með "enga feimni" á það líka við um þig. Nú vantar mig að fá heimild til að birta raunverulegu ástæðuna fyrir þessum áralöngu síendurteknum misstökum þínum sem að þú gerir við kosningarborðir. Þú viðurkenndir þau nú fúslega sjálfur. Eru þið ekki talsmenn þess að allt sé upp á borðinu.
    kv. Stef. ;->





    06.05.2007 at 20:44 #589104
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Setti inn nokkrar [url=http://picasaweb.google.com/stefgud/ThuleKvoldIMorkinni2007_05_05:2jaj80ex][b:2jaj80ex]Myndir[/b:2jaj80ex][/url:2jaj80ex]
    frá Thule kvöldi í mörkinn. Andinn (vínandinn) sveif þar yfir loftið. Það vantar sumt myndefni sem að mér var bannað að sýna ;-> en það skilar sér bara seinna ef ég skipti um skoðun.
    Kv. stef.
    sem auglýsir eftir lítið notaðri heilsu.





    02.05.2007 at 18:25 #590002
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Hvað með þá sem að eiga VHF og hafa verið að borga af því 2400 af hverju halda þeir ekki því fyrirkomulagi áfram nema það rennur til klúbbsins og ég er viss um að þeir kjafta svo frá hinum sem að eru með "ógreiddar" rásir. Þá þurfa þeir ekki að gráta þessa raunlækkun og staðin fyrir að fá 6000 þá fær klúbburinn 8.400 kr. frá þessum einstaklingum og allir ánægðir.
    kv. stef. (sem að á ekki vhf)
    p.s. svo hef ég spurt um það áður hvort að seðilgjöldin séu innifalin eða ekki í ársgjaldinu… vil fá loka verð ekki – (mínus) vsk





    02.05.2007 at 18:00 #589998
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú langar mig aðeins til að tjá mig um þessi félagsgjöld. Mér finnst þessi hækkun upp í 6.000 kr. svo sem vera í lagi. 6.000 kr er töluverður peningur fyrir mig. Ég er ekki að nota þessa afslætti. Ég hugsa að á þessum sl. 4 árum sem að ég hef borgað í þennan klúbb hafi ég gist í Setrinu 4-5 sinnum. Ég held hins vegar að ég sé ekkert eins dæmi með þetta. En hvað um það þetta er mitt val. Ég er svolítið þreytt á að heyra hvað ég er að græða ofboðslega. Málið er að ég kýs að borga í þennann klúbb af því að ég vil styrkja hann allt hitt sem kemur (ekki) er svo bónus. Þess vegna vil ég segja við þá sem að eiga nóg af peningum látið þið klúbbinn fá frjáls framlög umfram 6.000 kr. ég er viss um að þið getið fengið nöfnin ykkar einhversstaðar birt á netinu með kærri þökk.

    P.s. nú er ég að spöglera minnkar umfang hagsmunamálanna ef að það fækkar í klúbbnum? (er ekki að segja að það muni fækka, bara að spöglera).

    Kv. stef.





    28.04.2007 at 17:50 #589630
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Dabbi ég held að málið sé:
    -Virtual bíll með air condition.
    -Viðeigandi útivistarfatnaður og sólarvörn.
    -Vökva því göngufólk á að drekka mikinn vökva.
    -Áttavita ef það á að rata eitthvað og veski ef það hringir á leigubíl til að bjarga sér.
    -Svo er fólk eindregið hvatt til að kynna sér veðurspá MJÖG VEL en eins og stendur er ákaflega gott veður til útivistar.

    Þetta er það sem ég legg upp með.
    kv. stef. ;->
    svo er bara að mæta





    28.04.2007 at 16:10 #589626
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég sé að Magnum er með staðsetningar á hreinu.
    Vil bara minna fólk á að taka sólarvörnina með sér.
    kv. stef. alltaf í vörn.





    27.04.2007 at 22:10 #589564
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    En svo við förum ekki að missa þennan fína þráð út í einhverja ásakana vitleysu hver pissaði mest hvenær…. þá er spurningin AF HVERJU SKIPTI TRYGGVI UM SKOÐUN…

    Er þessi frambjóði ALLTAF að skipta um skoðun.

    kv. stef. ;->





    27.04.2007 at 21:55 #589558
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Genastrumpur
    Það er eins gott að gæta orða sinna hér. Það er greinilega botnfrosið í húmortankinum.

    Annars er best að taka þetta til baka…þori ekki öðru.
    .muniknatromúh í ðisorfntob agelinierg re ðaÞ
    kv. stef. ;->





    27.04.2007 at 21:22 #589608
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég kem og búin að fá mér coara til aðstoðar þannig að já…. tvö stk mæta á virtual-jeppanum mínum.
    Hlakka til að kyngja verðlaunum…
    Ég hef nú töluverða reynslu af að týnast … er það nokkuð fyrirstaða.

    kv. stef. á virtual-jeppa á 9,8" ;->

    p.s. Hvar er Öskjuhlíðin?
    _
    Hvað með slepjugengið og rugludallana…eða já þeir eru GUNGUR.





    27.04.2007 at 09:16 #587722
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú verð ég að biðja ofsann að hækka aðeins í heyrnatækjunum.
    Nú er Dabbi ekki að "bullumstampast".
    Á opna húsinu mátti sjá þó nokkra frambjóðendur. Bæði fólk sem bíður sig fram í nefndir og til stjórnar.
    Þarna mátti sjá frambjóðendur í tækninefndina Gísla Þór og Einar Sól. Svo var Magnum (Magnús G) sem að bíður sig fram í Umhverfisnefnd. Davíð sem að stefnir á litlu nefndina, Kristinn Fr. sem líka stefnir á litlu nefndina. Síðast en ekki síst voru frambjóðendur til stjórnar þarna þau Barbara og Tryggvi en Tryggvi var með kosningaráróður og bauð upp á góðgæti.
    Ég veit ekki hvort einhverjir fleiri voru þarna sem eru í framboði. Alla vega kynntu þeir sig ekki.

    Kv. Stef.





    26.04.2007 at 18:31 #589308
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mér sýnist ég ekki treysta mér til að taka þátt í þessum skemmtilega leik VEGNA VEÐURS.
    En það er spáðu 20 stiga HITA.
    Jeppinn minn er þó að vísu með MJÖG góðu air condition.

    Kv. stef. sem ferðast um á virtual-jeppa á 9,8" já og með mjög góðu air condition.





    26.04.2007 at 11:15 #589024
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég verð nú að segja það að ég tek nú undir margt sem að á undan er komið s.s. það sem Lúther segir um að hafa möguleikann á að kjósa á milli fólks í stjórn. því að þeir koma til með að sitja þarna í tvö ár ef að líkum lætur. Mér finnst líka allt í lagi að það komi góð rök fyrir því af hverju á að kjósa einn en ekki annan. Mér finnst rökin af því að hann er góður drengur og drífur lítið eða er óánægður með bílaviðskipti vera léleg rök…
    Álíka léleg og að stinga upp á stef í ritnefnd af því að hún getur skrifað (það má deila um það)… Starf ritnefndar snýst um að afla efnis, auglýsinga og svo setja upp og ganga frá blaðinu. Það hefur ekkert með getuna til að skrifa að gera…
    Sama má segja um stjórnina það snýst ekkert um það hvort að einstaklingurinn drífi mikið í snjó eða lítið eða verið óánægður með bílaviðskipti, það þarf tvo til að eiga viðskipti.
    Þetta snýst um að kjósa einstakling sem að er þess verðugur að vera fulltrúi klúbbsins inn á við og út á við. Getu til mannlegra samskipta og takast á við erfið og verðug mál.

    Kv. Stefanía.





    25.04.2007 at 19:32 #589304
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    En erum við ekki örugglega að tala um leik fyrir ALLA og ÓHÁÐ dekkjastærð…

    kv. stef. á virtual-jeppa á 9,8" ;->





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 481 through 500 (of 713 total)
← 1 … 24 25 26 … 36 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.