Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
30.09.2007 at 23:07 #598326
Er það ekki 1. nóvember… þannig að þeir sem þess þurfa geta mætt á negldu á árshátíðina…
kv. Stef…
30.09.2007 at 18:37 #598278Félagsnúmer og Nafn er lámark og á ekki að vera val… Hvað varðar símanúmer þá finnst mér það vera ákveðinn öryggisþáttur að hafa alla vega GSM, NMT og TETRA nr. Ég er t.d. með bara skráð GSM og NMT nr í mínum prófíl. Ég er nánast alltaf með GSM símann á mér en það er hending ef að ég er heima og þá happadrætti hvort að heima síminn sé hlaðinn…. Heima símann má auðveldlega finna í símaskránni … og N.B. ég er Stefanía Guðjónsdóttir nr. 1 (af 2 í skránni) og ég man ekki eftir því að hafa beðið um að fá bannmerki á mig í símaskránni… en einhver hefur beðið um það … og fær sú samt sem áður allar hringingarnar… þannig virkar það nú.
kv. Stef…. sem að er bannfærð
30.09.2007 at 18:14 #598274Mér finnst það nú vera að skjóta sig í fótinn ef að það á að vera val hvort að maður birtist á þessum lista. Mér finnst lámark að það komi fram nafn og félagsnúmer allra og að það sé ekkert option in eða out… annars er hægt að gleyma þessum fjarskiptareglum með þessu félagsnúmerabulli því að kerfið er ekki að virka sem skildi.
Ég get farið einu sinni á ári og skoðað skattaskýrslurnar ykkar ef að ég myndi nenna því en guð minn almáttugur ef að það sæist á innanfélagsvef að þið væruð skráðir félagar í ferðaklúbbnum 4×4.Kv. R-3280 Stefanía Guðjónsdóttir…..
Sem að styður félagsnúmerabullið heilshugar
30.09.2007 at 14:04 #598182Smá pæling… ef að ég ætlaði að kalla í einhvern úr stjórn eða fjarskiptanefnd skv. þessu fína fyrirkomulagi þá gæti ég kallað á Tryggva A-898 í stjórn eða Snorra R-16 í fjarskiptanefnd… hin eru bara heppin ;-> eða ekki með skráð félagsnúmer á 4×4 síðunni.
Þannig að [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=innanfelagsmal/10500#82023:1ibk6yun][b:1ibk6yun]Félagatal [/b:1ibk6yun][/url:1ibk6yun] er málið.kv. Stef..
30.09.2007 at 12:37 #598180Svo langar mig að koma með tillögu um hámarks tímalengd sem að tveir aðilar hafa til að teppa rásir sín á milli…. hef t.d. lent í því að þurfa nauðsynlega að ná sambandi á endurvarpsrás og komst bara ekki að vegna samtala á milli aðila þar sem verið var að ræða hvar ætti að detta í það og hver væri með kúlurass..
kv. stef…
30.09.2007 at 12:18 #598174Ég rak einmitt augun líka í þetta með P & F og sá einmitt ekki tilganginn.
En Dagur þú mátt ekki taka þessu sem svo að það sé verið að skjóta þig í kaf. Það er einmitt mikilvægt að fá svona fram til að menn geti rætt þetta og skipst á skoðunum.kv. Stef…
30.09.2007 at 11:50 #598166já já ég er enn að hjakka í sama farinu…. ég skil ekki enn þá hvernig ég get TRYGGT það að sá sem að talar sé GILDUR og/eða GREIDDUR félagi eða AUÐKENNSIFÉLAGI. Ég hef bara ekki hugmynd um hverjir eru búnir að borga. bara smá pæling.
Og hvað varðar 9. gr. þá er ég með breytingartillögu …. (við hans Dags) Ekki segja neitt í þessa útvarpsstöð sem að þú vilt ekki að fréttist…
kv. stef…
30.09.2007 at 10:33 #598160Þar sem reglurnar kveða á um að maður noti félagsnúmerið sitt sem kallmerki og ekki neitt félagatal komið út þá ákvað ég af samviskusemi minni að finna félagsnúmerið mitt og setja það í prófílinn á síðunni til að auðvelda mönnum leitina þ.e.a.s. ef þeir vilja á annað borð ná í mig, ekki það að ég svari því að þá þyrfti ég að muna númerið. Varð ég nú svolítið hissa… það var ekki boðið upp á dálk til að setja inn félagsnúmerið og þar sem að ég er ekki sú skarpasta þá virðist eini staðurinn sem að ég komi því inn vera undir bíllinn minn og ekki kann ég HTML til að gera það feitletrað.
—
Þar sem klúbburinn hefur ekki enn haldið námskeið í húmor eða lesið á milli línanna sbr. [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=ferdir/10394:xorjyo9e][b:xorjyo9e]þessi[/b:xorjyo9e][/url:xorjyo9e] ótrúlegi þráður þá vil ég taka það fram að ég er ekki að mótmæla reglugerðasetningunum.Kv. Stef….. R-3280 … alveg örugglega hm…
29.09.2007 at 22:23 #598152Þar sem að nú þegar er búið að kommenta um gr. 6 og gr. 4 þá langar mig að nefna gr. 3 annars vegar og gr. 9 hins vegar… og þá eru bara rúmur helmingurinn eftir.
–
3. gr.
Hvernig í veröldinni á ég að geta framfylgt 3 gr. Fyrir það fyrsta man ég aldrei félagsnr. mitt hvað þá allra hinna félagsmanna og langt frá því að ég viti hvert fólkið sé. Og ef að einhver segist vera félagsmaður A 898 og heita Tryggvi er ég einhverju nær um hann almennt. Hann gæti verið hver sem er og hvar sem er.
–
9. gr.
Hana er ég búin að þverbrjóta (oftar en einu sinni með litlu canon ixus druslunni minni) og hefur einn glæpur minn verið m.a. hýstur opinberlega á heimasíðu félagsmanns A 898.
Er ekki einhver staðar hörð refsing fyrir brot á þessum reglum í lögum félagsins.kv. Stef… sem að finnst gott að láta refsa sér ;->
25.09.2007 at 11:04 #597924Siggias74 virðist vita allt … og ekkert. Finnst ekki í lagi að menn komi með krítik en er þó að krítísera sjálfur. Einnig er hann skyggn því að hann veit hvað stór hluti landsmanna er að hugsa um ímynd klúbbsins allt vegna þess hvernig umfjöllun er á netinu en notar samt sjálfur orð sem að ekki eru tilfallin til þess að vera uppbyggjandi og bætandi.
Kv. Stef … ekki sú skarpasta.
24.09.2007 at 15:00 #597892Sæll Skúli
Ég vona að þessar fáu [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5656:em3v1n4v][b:em3v1n4v]myndir[/b:em3v1n4v][/url:em3v1n4v] hjálpi þér eitthvað og svo verður þú bara að nota ímyndunaraflið.Kv. stef…
22.06.2007 at 00:12 #592186Varðandi frétt (link) um Drykkfelldar Rottur fyrr á þræðinum…
Ég fékk ábendingu um að Það virðist vera sem að þessi Rottufaraldur sé beintengdur inn á ritstjórnarborð fréttamiðilsins visir.is því að þeir eru búnir að láta fjarlægja fréttina af netinu um meinta drykkju sína á Indlandi. Talandi um ritskoðun … skyldi sannleikurinn vera sagna sárastur eða ljúfastur… veit ekki…Kv. stef. ekki sú skarpasta ;->
20.06.2007 at 14:41 #592160Þetta er greinilega alþjóðlegt vandamál.
[url=http://www.visir.is/article/20070620/LIFID01/70620075:5oryx6gz][b:5oryx6gz]Drykkfelldar Rottur[/b:5oryx6gz][/url:5oryx6gz]
Eins gott að vera í góðum skóm.kv. stef. ekki sú skarpasta ;->
20.06.2007 at 01:05 #592150Magnum er þetta miðakerfi ekki farið að vinda allt of mikið upp á sig… Það eru hlutfallslega fleiri að passa upp á miðana heldur en voru við löggæslu í bænum á 17. júni.
Mér finnst ákaflega sérstakt að vera í aðra höndina að planta niður trjám og í hinni hendinni fella fleiri, fleiri tré til að búa til einhverja miða…
sleppum miðunum -> sleppum að planta trjánum -> Reynum bara að eta mikið og vera feit og falleg.
kv. Stef. ekki sú skarpasta. ;->
19.06.2007 at 23:51 #592144Mér sýnist miðasölustúlkan (Magnum) vera að fara úr límingunum og farin að heimta alheims yfirráð. Nú vill hún ekki bara stjórna miðasölunni heldur líka skipulagi á tjaldstæði Útivistar…
Alla vega eftir stuttan fjölskyldufund ákvað öll fjölskyldan mín með tölu að mæta inn í Mörk (og Goðaland). Þar sem fjölskyldan þykir vera með eindæmum fyrirferðarmikil og húðlöt þá verður með í för íslensk aupair stúlka, já takið eftir íslensk… sem að er vandfundið Það er að vísu aðeins farið að slá í hana enda á aldur við undirrituðu…En stúlkukindin mun sjá um að vinna öll léttastörf og erfiðisvinnu fyrir fjölskylduna.kv. stef. ekki sú skarpast. ;->
ps. er þetta ekki örugglega bindindisferð… maður bara spyr sig.
19.06.2007 at 23:51 #592142Barb þetta telst ekki vera einelti heldur þjóðaríþrótt…
Ég get ekki betur séð en að ef þið Dagur farið sem teymi þá séu þið búin að uppfylla skilyrðin fyrir veru þinni. 1-2 fullorðinn og 1-2 börn… bara komast að niðurstöðu um hvort ykkar sé barnið…kv. stef. ekki sú skarpasta ;->
15.06.2007 at 23:02 #592104Ég verð nú að segja að mér finnst þessi þráður alveg stórskemmtilegur og með því betra sem hefur komið í lengri tíma. Hann lofar góðu fyrir ferðina.
—
Nú langar mig að koma með smá tillögu handa Barb og Vals. Valur þú gætir kannski hjálpað Barb með það sem á vantar í reiknikúnst hennar og í staðin gæti hún hjálpað þér … að skilja… innleggin á þræðinum og þær kröfur sem lagðar eru á lesandann. Maður má spöglera…
kv. Stef. ekki sú skarpasta.
15.06.2007 at 10:00 #592084Nú er ég aðeins að spöglera… þar sem að ég er nú ekki skarpasta skeiðin í skúffunni… þá þarf ég stundum smá hjálp. Getur verið að Dúkkan (barbara) sem að er gjaldkeri klúbbsins hafi misreiknað sig í reikningskúnstinni. Það er þá ekki í fyrsta skipti á þessum þræði þar sem hún getur ekki einu sinni reiknað út sína eigin fjölskyldustærð. En hvað veit ég kannski eru breyttar forsendur eða rangur misskilningur.
—
Magnum þið í umhverfisnefndinni eruð sniðugir þið platið fjölda manns til að skrá sig á fölskum forsendum og svo dúkkið þið upp með eitthvað miðavesen. Vinna til að fá miða til að fá að borða. Er búið að fá fjárveitingu fyrir þessu miðakerfi?
Kv. stef. ekki sú skarpasta
12.06.2007 at 00:48 #592202Ferlafólk
Ég held nú að ég teljist seint til jeppamanna en hvað um það við þurfum nú kannski öll að vakna einhvern tíman. Alla vega held ég að helgin hafi verið að enda hjá mér.
Ég var að velta fyrir mér hvort að það vanti eitthvað hér á suðvestur horninu sem að er kannski slyddujeppafært er að spá í eins dags túr.
Hefði gaman af að skreppa óvissuferð en annars fer ég bara eitthvað hefðbundið.
Kv. stef.
12.06.2007 at 00:17 #592346Það er svo gaman að upplifa það hvað svona litlar en samt stórkostlegar breytingar geta glatt mann og annann mikið. Það að lenda inn í þræðinum þar sem að hann endar og sleppa við allt skroll er bara brilliant. Hin breytingin að geta skoðað öll innlegg sín og annarra frá upphafi og það á einni síðu er mjög gott … eða var snilld þangað til maður sér þvílíkt bull hefur komið frá manni sjálfum… því maður er svo fljótur að gleyma… ef maður man þá nokkuð yfir höfuð.
Ég vil bara þakka vefnefnd fyrir að hafa hleypt allri þessari gleði inn í hjartað mitt. Takk… p.s. … ef þið skilduð finna það… látið þá vita á netfangið mitt.Takk kærlega kv. stef. sem finnst vefnefnd vera að rokka feitt núna
-
AuthorReplies