FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Stefanía Guðjónsdóttir

Stefanía Guðjónsdóttir

Profile picture of Stefanía Guðjónsdóttir
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 421 through 440 (of 713 total)
← 1 … 21 22 23 … 36 →
  • Author
    Replies
  • 27.10.2007 at 22:30 #601214
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Svar mitt við þessu er að í fyrsta lagi að losa sig við ER TA COMA ….
    Þá fyrst kynnist þú því hvað frelsi er… og getur notið þess að sjá aðra ferðast án þess að finna til vanmáttar…
    Kv. Stef… annáluð láglendispíka… ;->





    27.10.2007 at 21:56 #601198
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú erum við Lella bara 2×1 og vantaði annað 2×1…
    Við erum með nægt eldsneyti sem dugir norður… og til baka… chicken
    Kv. stef…..





    27.10.2007 at 21:52 #601190
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Hvort er enduro 1×2 eða 2×1…
    kv. stef…. sem að féll í algebru





    27.10.2007 at 21:33 #601186
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Gundur
    Þar sem að ég er með eindæmum vitlaus… útskýrðu þá fyrir mér hvernig enduro er 4×4….

    Kv. stef ekki sú skarpasta…





    27.10.2007 at 16:32 #601148
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mér sýnist að Lella þjáist af CRAFT syndromi.
    Can´t Remember A Fucking Thing.

    Kv. stef… með sama heilkenni.





    23.10.2007 at 22:25 #600384
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Þar sem að það liggur svo asskoti vel á mér… og ég hafna sjaldan áskorunum og bý í einföldu glerhúsi með þvílíkum gegnumtrekk og á þar að auki fullt af steinum (sem hefur verið kastað til mín ;->) þá langar mig að spreyta mig á þessu góða tækifæri, skítkasti og að hrauna þrátt fyrir það að ég hafi aldrei verið íþróttalega sinnuð. Mér fannst hins vegar eðlilegast að bíða þangað til að (stjórnar) lýðurinn myndi mæta á mölina áður en að ég færi út í þessa þjóðaríþrótt. Ég verð að vísu að játa það á mig að ég hef eiginlega engin þjóðþrifaverk unnið fyrir þennann klúbb svo að ég muni nema þá helst að vera ekki að þvælast fyrir félagsmönnum á fjöllum enda annáluð láglendispíka. Einnig get ég fullyrt það að klúbburinn er akkúrat ekkert ríkari fyrir það að ég taki þátt í þessu starfi og skil því ekkert í þessu þvílíka bulli …því mér fylgja nefnilega ekkert nema bara útgjöld, það er mitt karma. Ég get ekki betur séð en að upphafsmaður þessa þráðs sé mjög forspár því að eftir því sem að almannarómur hermir þá hafi hann einmitt farið láglendisleið í fólksbíl á puttanum (sjálfsagt fengið ráðleggingar frá Lellu í hjálparsveitinni) á upphækkuðum vegi á Landsfundinn þrátt fyrir þvílíkar leiðarlýsingar af fjallaakstri um landið þvert og endilangt… og ekki fyrsta sinn sem að við fáum beinar lýsingar frá honum af festum og færð úr ferðum sem að stendur til að fara. Einu fréttirnar sem að berast svo af þessum landsfundi eru þær að …. ég missti af árshátíðinni en það gleður mig samt ákaflega að allir skuli hafa skemmt sér svona líka þetta litla vel. Og að það hafi verið spurðar ákaflega stefnumótandi spurningar eins og t.d. HVAR ER PIPARSÓSAN?…
    Ég vona bara að þessi lýður sem að telur það eftir sér að fórna einni fjölskyldu hér og þar, telur krónurnar í tekjutapinu sem að það verður fyrir vegna starfa fyrir klúbbinn og mælir tímann sem það notaði fyrir klúbbinn (með skeiðklukku), sem að kemur aldrei aftur, við að verja hagsmuni jeppamanna fari að hugsa sinn gang því að þetta er jú hagsmunaklúbbur … og þá fer maður að velta fyrir sér hagsmuni hverra… Ég ætla að leyfa lýðnum AÐ NJÓTA VAFANS
    Kv. Stef…. þetta var nú aldeilis skemmtilegt… ég mæli eindregið með þessu ;->





    18.10.2007 at 16:55 #600332
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú átta ég mig nú ekki alveg á í hvaða mission Ella er í. Talandi um ritskoðun. Ég gerði þau sömu mistök og Skúli að þegar ég las innleggið hennar Ellu, vitandi það að hún er nú fyrrverandi stjórnamaður, að ég hélt að þessi þráður sem hún talar um væri undir lokuðum innanfélagsmálum. Fannst það eðlilegast. Ég get í sjálfu sér ekki séð að þetta hafi verið beint ritskoðað, því að engu orðalagi virðist hafa verið breytt en jú vissulega var þráðurinn fluttur til á vefnum þangað sem að hann á heima.
    Hins vegar get ég upplýst það að þegar ég þurfti að fá aðganga til þess að geta tjáð mig á vefnum þá leitaði ég að sjálfsögðu til starfsmanns klúbbsins sem að var snöggur að senda mér email með aðgangsorði. Ég get ekki séð að það sé neitt meira mál fyrir aðra að gera það ef þeir vilja.

    Kv. Stef….





    18.10.2007 at 11:21 #600264
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég skil alveg þetta sem að Halldór er að tala um því að ég hef hugsað eins. Og þau svör sem að hafa farið mest í taugarnar á mér eru t.d. hvað ég er að græða ofboðslega mikið. Ég hef t.d. verið bíllaus nánast síðan í nóvember sl. Og hef því ekki verið að versla eldsneyti, varahluti e.þ.h. hluti og lítið sem ekkert ferðast nema þá á puttanum. Minn gróði hefur einmitt fólgist í því og svo fría tetravagnakortinu mínu. Ekki hjálpar upp á svona svör eins og bara fínt mál ;->.
    Hins vegar held ég að Jón hafi tekið rökin saman í einni línu en ein lína er bara ekki nóg. ,, vinna að hagsmunabaráttumálum þó svo að þau séu ekki alltaf sýnileg,,. Það er nefnilega gríðarleg vinna og tími sem liggur á bak við öll þau hagsmunamál sem að klúbburinn er að vinna að. Fólk (t.d. stjórnin) er hlaupandi úr vinnu á fundi (sem þýðir tekjutap fyrir einstaklinginn) til að standa vörð um hagsmuni okkar. Þ.e.a.s. að ég hafi val til að geta notað góð fjarskipti að þau séu ekki bara lögð niður. Val að geta keyrt gamla og gilda (ferlaða) slóða en ekki að þeim sé lokað af því bara. Að ég hafi aðgang að gistingu á hálendinu og breyttann jeppa til að komast þangað o.s.frv.
    Gallinn er að þetta er ekki mjög sýnilegt þannig að manni finnst oft ekkert vera að gerast. Og þá hugsar maður fyrir hvern andsk. er ég að borga 6.250 kr. (fyrir suma er þetta mikill peningur). En bónusinn er svo misgáfulegar en þó ákaflega skemmtilegar ferðir sbr. miðjuferðin, landgræðslu og stikuferðir, sumarhátíð svo og árshátíð og fleiri atburðir sem að ég get valið um að taka þátt í … eða ekki.
    Ég hefði t.d. viljað sjá tengil (ekki þráð) á síðu f4x4.is sem að myndi kannski heita mál í vinnslu eða eitthvað (sbr. við fréttasíðuna) þar sem að maður sér samantekt á þeim málum sem að eru í vinnslu, hvar þau standa og jafnvel hvað fer mikill tími í þau, fundir hér og þar. Ekki að þessu sé dreift víðsvegar um spjallið.
    Ég gerði það upp með mér að velja að styrkja klúbbinn með því að borga félagsgjöldin og sé ekki eftir einni krónu í það. Ég sé heldur ekki eftir þeim krónum sem að fara í landsfundinn, þetta bara tilheyrir starfi klúbbsins.

    Kv. Stef….
    p.s. þetta voru nú ekki nema 395 orð…





    18.10.2007 at 00:03 #600258
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Auðvitað er eðlilegt að ÓSK AURALAUSA rukki hærri félagsgjöld. [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=innanfelagsmal/10521#83070:2idrszcz][b:2idrszcz]Hér[/b:2idrszcz][/url:2idrszcz] kemur nú fram í hvað peningarnir fara og við verðum að skilja það að hún hefur ekkert alltaf efni á því að borga matinn sinn og hvað þá gistingu. Veistu hvað þetta er dýrt. Ég geri það að tillögu minni að félagsgjöldin fylgi neysluvísitöluverði 1. flokks lambakjöts og gistikaupnáttarvísitölu fyrir eina til tvær dúkkur á KEA hóteli yfir háannatímann.
    Ég skil ekki þessi rök með einhverja hagsmunabaráttu… ekki var stjórnin að hugsa um það þegar hún fór í stríð við litlunefndina.
    –
    Þar fyrir utan sé ég ekki eftir einni kr. í þessi félagsgjöld og hvað þá í einn landsfund þar sem margt er rætt en ekkert er framkvæmt ;->
    Bon appetite ;->

    Kv. Stef…. ekki sú skarpasta





    16.10.2007 at 01:03 #599768
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég vil nú þakka Addakr. Fyrir það að útskýra fyrir okkur hvernig málin horfa frá hans bæjardyrum, takk. Ég hef jafnframt furðað mig á viðbrögðum stjórnar… eða skort á þeim.

    Einar ég get ekki verið meira sammála þér með þennan punkt að þó að fólk eigi óbreytta jeppa að það sé ekki þar með sagt að þeir hafi þá aldrei ferðast. Því kom það mér á óvart hversu niðrandi (að mér fannst) litlunefndarmaður gat talað um væntanlega þátttakendur í ferð sem að þeir voru að standa fyrir sjálfir. Þarna er gefið í skyn að hinn almenni jeppaeigandi sé með öllu ósjálfbjarga á þjóðvegi 1.
    ,,Hvað varðar að láta nefndarmanneskju fylgja hópnum austur fyrir Selfoss er nauðsynlegt því hvað sem er gæti komið upp á leiðinni, bílar bilað og svo framvegis. Hvað á þá að gera, sérstaklega í ljósi þess að margir hverjir sem ferðast með Litlunefndinni eru að ferðast sínar fyrstu jeppaferðir og kunna lítið sem ekkert til verka á bilaða jeppa. Og jeppar geta líka bilað á þjóðvegi 1.,, https://old.f4x4.is/new/forum/default.as … erdir/9885

    Hvað varðar útkomuna úr þessari ferð þá endaði það þannig að einn nefndarmeðlimurinn leiddi annan nefndarmeðlim yfir Krossá upp á móti straumi og þar með fór vélin hjá honum. Það var lán í óláni að þetta voru nefndarmennirnir sjálfir sem að sáu alfarið um þetta sjálfir. Get ég því miður ekki skrifað þetta á neitt annað en reynsluleysi þeirra. Sem að voru jú ein rökin fyrir vantrausti. Ég er þó ekki að segja að það eigi allir að vera hnoknir af reynslu heldur að átta sig frekar á takmörkum sínum, því við höfum þau öll, og sækja þá í reynslu reyndari manna og fá þá til að aðstoða sig og læra af þeim.
    Hvað varðar ummæli á netinu sem varðar ástæðu til vísunar úr nefnd þá hef ég alla vega ekki komið auga á þau og tel þær forsendur á ákaflega gráu svæði.

    Kv. Stef..





    15.10.2007 at 23:11 #599762
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Þá langar mig að spyrja þig Dabbi… finnst þér í lagi yfir höfuð að nefndarmenn geti sjálfir ákveðið að reka samnefndarmann sinn (nefni ekki nefndina) Því að ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að það hafi staðið til ef að nefndarmaðurinn hefði ekki sjálfviljugur hætt. Hver má hvað?
    Spurningin hvort að stjórnin hafi heimild til að fara fram á að einhverjum sé vísað úr nefndinni þá fyndist mér eðlilegra að ef að stjórnin meti það sem svo að það eigi vegna einhvers alvarlegs hlutar að vísa einhverjum úr nefndum… þá á hún sjálf að sjá um það en ekki koma því yfir á aðra.

    Ég vona að þetta svari forvitni þinni.

    Kv. stef.





    14.10.2007 at 16:10 #599720
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Það er alveg ljóst að menn verða bara að reyna að lesa á milli línanna þar sem að stjórnin er bundin trúnaði og þið skammist ykkar of mikið til að segja frá.
    En ég segi bara mína skoðun á málunum eins og þau koma fyrir mér.
    Kv stef.





    14.10.2007 at 15:47 #599716
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Það er í sjálfu sér alveg klárt að litlanefndin lifir, allavega í orði, fram að næsta aðalfundi, fyrr er ekki hægt að breyta henni.
    Það sem vekur athygli mína í öllu þessu er sú hugarfarsbreyting sem að hefur orðið hjá stjórn f4x4 hvað varðar fræðslu og aðkomu nýrra félaga. Þó að þetta sé hagsmunafélag en ekki ferðafélag þá skiptir öllu að hafa stórt bakland (fjölda félaga) til að geta haft sterka samningastöðu í hagsmunamálum og þetta er mjög góð leið að mínu mati til að stækka baklandið, ná í nýja félaga.
    Ef að þessi hugmynd verður að veruleika þá get ég ekki séð þörfina fyrir því að hafa 5 manns í nefnd til að skipuleggja nokkrar ferðir fyrir litla bíla. Mér finnst stundum menn hafa miklað þennan þátt fyrir sér. Og það á og er alls ekki verið að hætta með ferðir fyrir litla bíla. Og segi ég hér fyrr á þræðinum hvaða leið ég myndi vilja fara.
    Hvað varðar breytingar þá heyrði ég eina breytingu, nýja reglu, sem að litlunefndarmennirnir sálugu komu með fyrir þeirra hinstu för í Setrið og hún var sú að bílar sem að ekki voru með millikassa eða eitthvað mættu ekki ferðast með litlunefndinni og var þá (meiningin) búið að útiloka RAV úr ferðum sama hvort það væri sumar/haust/vetur/vor. Ég sagði að svona reglur yrðu að vera háðar færð, veðri og aðstæðum en fékk sko aldeilis að vita það að reglur væru reglur og að þeim yrði ekki breytt. Þannig að nefndarmenn virðast hafa svigrúm til að gera áherslubreytingar.
    –
    En miðað við hvað ykkur fyrrverandi nefndarmönnum er umhugað um þessa nefnd þá er ég hissa á hversu fljótir þið voru að segja ykkur úr henni í stað þess að leita leiða til að vinna úr hlutunum. Einhvers staðar las ég að það sneri um vantraust á nefndina og í staðin fyrir að reyna að vinna úr þessu og sanna hið gagnstæða þá labbið þið út í bíl og segið ykkur úr nefndinni. Veit ekki alveg hvernig ég á að túlka það, en er að spá í að leyfa ykkur að njóta vafans.
    Þannig að ég verð að vísa þessari stöðu mála litlunefndar í dag beint í föðurhúsin.

    Kv. Stefanía R-3280





    13.10.2007 at 22:13 #599652
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Dabbi ég tek undir þetta bara ákveða að það verði farið næsta sunnudag 21/10 það þarf bara að ákveða brottfarartíma og koma á framfæri disclaim það er að þessi ferð er á engan hátt skipulögð á vegum f4x4 og þar með höldum við enn í þann möguleika að geta notað [url=http://www.f4x4.is/new/news/default.aspx?file=383:3utoptnr][b:3utoptnr]miða[/b:3utoptnr][/url:3utoptnr] í non-skipulagðar ferðir. Ég er hins vegar að leggja upp í skipulagaða vettvangsferð yfir í næsta bæjarfélag 201 held ég og mun að sjálfsögðu láta vita um færð og veður… eða ekki. ;->
    "Ég tek það fram að þetta er bara mín privat skoðun og endurspeglar ekki á nokkur máta skoðun né mat þjóðarinnar" ( [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/10577#82788:3utoptnr][b:3utoptnr]heimild dolli[/b:3utoptnr][/url:3utoptnr] )
    k. stef…;->





    13.10.2007 at 19:17 #599822
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Dolli minn nú er ég að spöglera…
    Þú áttir einu sinni L 200 heklu bíl var það ekki. Þú bara verður að leiðrétta misminni mitt en varst þú ekki að segja mér einu sinni á opnu húsi frá ferðalagi þínu um Ártúnsbrekkuna… ég bara man ekki hvort að þú komst brekkuna á enda samdægurs eða daginn eftir. Kannski tengist það því að ég man ekki hvort að það var meðvindur eða mótvindur þann daginn. Minnir að ég hafi í kjölfarið séð bílinn svo "verðlausann" á ónefndri bílasölu.

    Kv. Stef… toyota fan…;->
    sennilega vegna þess að ég man aldrei neitt.





    12.10.2007 at 20:03 #597106
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Skúli oft var þörf en nú er nauðsyn á að þú mætir á árshátíð. Ef þú velur að fara eftir ráðleggingum Lellu þá myndi ég í þínum sporum hafa samband við hana til að fá uppgefið hvaða putti skili bestum árangri…
    Þú gætir lent í erfiðleikum með að ná í hana því að hún er í æfingarferð á leiðinni norður…
    ef þú nærð ekki í hana þá get ég bent þér á fleiri puttalinga sem að eru með mikla reynslu…
    kv. Stef… ;->





    12.10.2007 at 18:19 #599692
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég verð nú að segja að þetta er vinkill sem að ég sá ekki fyrir, en eftir að hafa hugsað þetta þá fagna ég þessu því að mér finnst vera mikill metnaður í þessu.
    Það sem að ég tek eftir í yfirlýsingu nýju stjórnar litlunefndar er að það er hvergi minnst á neina bíla eða stærð af dekkjum. Hvorki stóra né litla þannig að það er ekki verið að útiloka neinn. Þarna er talað um að sinna þörfum þeirra sem að eru nýir í klúbbnum (en nýir eru bæði á litlum og stórum dekkjum)… svo sem að vera með kynningarkvöld þar sem tekið er formlega á móti fólkinu og það kynnist þá í leiðinni. Það að mæta á opið hús sem (nýr) félagi og þekkja engan er álíka spennandi og að vera mættur á biðstofuna hjá tannlækninum.
    Það eru ekki margir nýir að mæta þarna og stór hluti af þessum fáu kemur ekki aftur.
    Ég hef einmitt haft mikinn áhuga fyrir fræðslu og námskeiðum innan klúbbsins. Það að nýliðaferðir sjái um þetta er ekki alveg rétt. Hversu vel staðið er að nýliðaferðum fer eftir fararstjórunum og er ég sammála Stebba í þeim efnum. Og ef að ég fer ekki í nýliðaferð þá er ekkert annað í boði.
    Nýju nefndarmennirnir hyggjast bjóða upp á 2-3 ferðir á ári en taka það fram að starf nefndarinnar eigi að þróast og aðlagast. Og er ég viss um að þeir séu til í að skoða allar góðar hugmyndir. Þetta kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að fara áfram í ferðir með litla bíla. Mín skoðun er sú að þegar starfsáætlun er gerð fyrir næsta starfsár er um að gera að skella inn einhverjum ferðum fyrir litla bíla og fá þá ákveðna umsjónarmenn með hverri ferð fyrir sig og gæti þetta þá verið gert með samstarfi við nýliða nefndina.

    Kv. Stefanía R-3280
    Sem að bíður eftir námskeiði í að velja (og vaða) rétta leið yfir ár.
    –
    P.s. hvernig kemst ég á svona kynningarnámskeið… veitir ekki af er svo illa kynnt…





    11.10.2007 at 23:47 #599634
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú langar mig að gera smá könnun… Kannski þyrfti þetta að vera undir KÖNNUN á forsíðu.
    Þessi hugmynd um sunnudagsbíltúra er góð…
    Það sem að mig langar að vita er hverjir eru að sækjast eftir þessum sunnudagsbíltúrum…
    Þetta er ákaflega einfalt að skipuleggja en þá er ég að spá í hver er markhópurinn. Hverju fólk er að sækjast eftir.
    Eru það óbreyttir/lítið breyttir/mikið breyttir bílar… eða allt í bland…
    þetta hefur ekkert með fordóma að gera heldur að sjá hverjir myndu mæta í svona bíltúra… hvort að hvötin sé bara að fara í skemmtilega ferð með góðum hóp óháð dekkjastærð og jafnvel að fara um söguslóðir sem að maður myndi ef til vill ekki almennt gera eða meiriháttar aksjón…

    Mér þætti vænt um að fá smá viðbrögð hér á þessum þræði og að þeir sem að ekki eru innskráðir á f4x4.is mega gjarnan senda mér póst á stg1@hi.is titill… "sunnudagsbíltúr" …óháð því hvort að þeir séu félagar eða ekki…

    kv. Stefanía
    stg1@hi.is





    11.10.2007 at 14:38 #599562
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Er þetta ekki týpískt…
    blame it on the woman.
    —
    og á þessum nótum…
    þá kann ég einn svona femenískan brandara.

    Vitið þið hvað þarf margar konur til að skipta um ljósaperu???
    —
    —
    sex konur… eina til að skrúfa peruna í og hinar til að mynda stuðningshóp…
    –
    nei… ég bara segi svona…
    Kv. stef…





    11.10.2007 at 08:39 #599552
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég hef það á tilfinningu að þessi þráður sé ekkert að hjálpa honum Bjarka í augnablikinu…
    –
    Davíð skarpasta skeiðin er ekki skarpari en það að hún á 2 bíla og hvorugur er ferðafær en einnig á hún gríðarlegan skort á tíma þannig að þó hún vildi "leiða" þig um Reykjanesið þá bara hef hún ekki tök á því…
    en það koma tímar… vonandi og kannski símaklefar hm…
    Hvað varðar "huldunefndina" þá er þetta nú bara meira upp á grínið en ég hef fulla trú á því að stjórnin leysi þetta enda er allur veturinn fram undan…
    kv. stef ekki sú skarpasta…





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 421 through 440 (of 713 total)
← 1 … 21 22 23 … 36 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.