Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.11.2007 at 00:43 #604478
Tryggvi …
Ég tek þessu þannig að þú sért búinn að veita þitt leyfi fyrir að birta þetta opinberlega…
Ég meina þetta er nú ekkert til að skammast sín fyrir. Það geta allir lent í þessu einhvern tímann. 1 mínúta og 25 sekúndur er nú reyndar ekki langur tími, eiginlega bara mjög stuttur tími. Þetta er nú kannski ekki alveg 15 mín af frægð en samt betra en ekki neitt.
Þér er alla vega boðið á ALHEIMS FRUMSÝNINGUNA á dramanu "þegar Tryggvi fór á fjöll" í mörkinni á föstudagskvöldið…
Kv. stef… ;->
28.11.2007 at 00:30 #604786Þið þarna aurapúkarnir ykkar…
Það sem ykkur stendur meðal annars til boða fyrir 500 kr.
er húsaskjól til að koma sér úr raunveruleikatengslum, það má nú borga talsvert fyrir það.
Svo eru ALHEIMS FRUMSÝNINGAR meðal annars á hinum sorglega dramatíska vídeobút…
–
Þegar Tryggvi fór á fjöll
–
Svo er eitthvað meira í vinnslu…
Ég held samt að það hafi gleymst að láta skemmtinefndina vita af þessu.Kv. NoName
þetta er sem sagt nafnlaus birting…
27.11.2007 at 13:59 #604468Tryggvi
Ég sá að þú settir inn "stríðsmyndir"…
Ég var að spöglera hvort að þú gætir hýst fyrir mig smá videobút úr ferðinni af einhverjum 44" toyota LC í spotta aftan í eldgömlum 38" patrol í 10 pundum… Að vísu var algjör snillingur þar undir stýri, sjálf formannsfrúin hún Benní.
kv. stef….sem vill alltaf launa fyrir lambið gráa.
26.11.2007 at 22:16 #602976Laugi
Ef þér finnst óeðlilegt að fólk sé að spá í afdrifum félaga sinna (félagsmanna f4x4) þá verður þú að eiga það við þig. Ég kem ekki hins vegar auga á þessa hysteriu. Ég get ekki betur séð en að óskir þeirra um að fá ekki aðstoð frá félögum f4x4 hafi verið virt þrátt fyrir að mörgum hafi fundist þetta skrítin ósk. Og ákvörðunin um að hringja í björgunarsveitir er alfarið ykkar að sjálfsögðu. Enda var þessi ferð ekki skipulögð af F4x4 en hvað um það… velkomnir heim strákar… þetta fer bara í reynslubankann ykkar.Kv. stef…
26.11.2007 at 21:57 #604388Kona Dóra
Búa til nýtt myndasafn (albúm), leiðbeiningar:
1 – Skrá sig inn
2 – Velja [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum:q9xzvgc4][b:q9xzvgc4]myndasafn[/b:q9xzvgc4][/url:q9xzvgc4]
3 – Velja flokk sem passar myndefninu undir "Flokkar myndasafnsins"
4 – Velja "Nýtt myndasafn" hægramegin neðst undir "Flokkar myndasafnsins"
5 – Fylla út reitin "Titill" ( gulur reitur verður að setja texta) og síðan "Áfram"
6 – Senda síðan inn myndirnar með "Brows" og "Bæta við" hnöppunum.
7 – Síðan "Áfram" þegar allar myndirnar eru komnar.Alltaf er hægt að breyta og bæta myndasafninu síðar ef þurfa þykir, eða fela.
26.11.2007 at 21:25 #602972smá viðbót
Nú spyr ég… eru þetta mennirnir sem að vildu ekki fá aðstoð frá félögum F4x4… vildu frekar láta björgunarsveitir koma og bjarga sér.[url=http://notes.landsbjorg.is/leitir.nsf/(webAdgerdirOpinberar)/FF058A8D67DCB7EB0025739F006D5C52?OpenDocument:2znco7fl][b:2znco7fl]kannski árbúðaferðin… [/b:2znco7fl][/url:2znco7fl] … maður spyr sig.
kv. stef…
ps. sé að ég og gundur leituðum á svipaðar slóðir
26.11.2007 at 21:00 #602968Ég ætla nú bara að láta vaða…
–
Hvar í fjandanum eru þeir…? Ætla þeir að hafa vetursetu upp á jökli eða eru þeir komnir í bæinn.
–
kv. stef..
26.11.2007 at 01:07 #602946Ef að rétt reynist að þeir séu ekki komnir af jöklí þá get ég sagt þér það að það er aftaka veður inn á Kaldadal og svæðinu þar um kring. Þó svo að ekkert ami kannski að þeim þá veitir þeim líklegast ekki af þeirri hjálp sem að þeir geta fengið…
–
það væri nú gott að þeir myndu melda sig hér inn ef/þegar að þeir eru komnir í bæinn.
Kv. stef…
26.11.2007 at 00:57 #604268Talandi um breytingar í veðri.
Þá komum við í dag keyrandi "skessubásaveg"/ línuveginn frá Haukadalsheið yfir í Kaldadal. Keyrðum við allan tímann í þreifandi byl og hvínandi roki. Þegar við komum á Kaldadalsafleggjarann þá var varla stætt úti (vel yfir 30m/sek myndi ég telja) og sem fyrr blindbylur og vorum við með neyðarstopp til að gera það allra nauðsynlegasta sem að þurfti til að geta haldið áfram s.s. að berja ísingu af klafaruslinu því að öðruvísi var erfitt að stýra bílnum og var þetta allt gaddfreðið. Síðan var ekið áfram í 3-5 km og þá kominn inn á "nýja veginn" sem að er líklega þessi Tröllahálsavegur þá var eins og keyrt væri í gegnum vegg og við tók logn og blíða. Menn gátu bara verið á peysunum við að pumpa í dekkin. Þegar ég leit svo undir framendann á klafabílnum þá var eins og skrúfað hefði verið frá sturtu svo hröð var bráðnunin. Segir þetta okkur hversu skörp skilin eru þarna.
Það skal tekið fram að við vorum á vel útbúnum jeppum með allt sem þarf í vetrarferðir til fjalla og öll helstu fjarskipti sem völ er á.
Ég fullyrði það að ef að einhver yaris gella á pinnahælunum (ekki veitir af í hálkunni, rokinu og blindbylnum) hefði komið að sunnan á leið inn Kaldadal og keyrt inn í þennan vegg, þetta veðravíti þá hefði hún orðið úti á skömmum tíma.
Þessar snörpu veðrabreytingar eru alveg sambærilegar við það sem að gerist á Kjalvegi. Þetta er svona týpískt vetrarveður.
Það að fara að byggja uppbyggða hraðbraut fyrir risa smá bíla eins og yaris eftir endirlöngu hálendinu nota bene á milli tveggja jökla sem að virka eins og vindtrekt er algjört glapræði.
Mér finnst að þessir áhugasömu framkvændaraðilar ættu að velja sér svona týpískt vetrarveður og keyra Kjalveg á risa smábíl. Eini búnaðurinn sem að þeir mættu hafa væri sparifötin og spariskórnir, hugsanlega úlpu eða frakka og val um að vera á nelgdu eða ónelgdum hjólbörðum… þið vitið svifryksmengunin.
Vera útbúnir svona eins og meðaljóninn í 101 rvk. sem ákveður að skella sér á Akureyri.
Ég býð mig svo fram sem starfskraft til að rukka vegatollinn af þeim áður en þeir fara inn á Kjalveg því að þeir koma ekki til með að skila sér á leiðarenda enda er mér er alveg sama um það en peninginn verð ég að fá.
Kv. Stefanía.
26.11.2007 at 00:08 #604462Dagur… og ég sem hélt að við værum vinir.
Ég skil ekki af hverju á ég hleypa úr bara til að hleypa úr… ef ég þarf þess ekki. Ég fór upp Mosaskarðið í 20 pundum, "hratt" í lága drifinu. Þurfti ég svo að bíða heillengi eftir borgarbörnunum.
Eina ástæðan fyrir því að ég lent einu sinni … kannski tvisvar í "meintum" spotta var sú að bíllinn minn var notaður eins og snjóhefill fyrir kviðlágu bílana.
Það sem maður þarf að fórna sér í … og fær til baka að maður sé nísk dráttardrottning… hm
–
Kv. stef… sem ítrekar tilvonandi 9.gr. (???) frjarskiptareglna… ÖLL SAMTÖL Í fjarskiptatæki eru TRÚNAÐARMÁL. (gildir einu hvort um sé að ræða nmt, vhf, cb, tetra, gsm, eða double vision).
–
PS. ég er ákaflega hefnigjörn….;->
24.11.2007 at 19:34 #604448Vorum að lenda í Hrauneyjum eftir frábæran dag… á fjöllum. Rétt er það að Einar fékk spark í afturendann enda veitir ekki af að hrista upp í karlinum öðru hverju.
Það hefur greinilega legið mikil vinna á bak við skipulagið fyrir þessa ferð. Fyrst var það skyndihjálpin – aðkoma að slysi. svo var verklegt í að skipta um dekk. Svo var fólk æft í að bíða… í Hólaskóg eftir vanbúnum Rocky sem að þvældist um suðurlandsundirlendið áður en hann rataðið í skálann. Á leiðinni inn í og við Landmannahelli voru æfðar festur og brekkubrun. Síðan var haldið áfram í átt að Hauneyjum og þá var verklegt í að setja affelgað 29" Rocky amstrong formula dekk aftur á felguna og tappa það líka fyrst að það var á annað borð verið að vesenast með það. Tók þetta dash af tíma en þar sem það hafði verið pantað slatti af tunglskini og logn þá var þetta eins og best verður á kosið.
Næsta verk er að grilla kjötið og eyða svo smá tíma í að horfa á stjörnurnar…. saddur.Kv. Stef….
24.11.2007 at 00:48 #602052Mr. L
Síðast þegar ég vissi þá var brottför kl. 9:00 að staðartíma við shell/select vesturlandsveg…
Ég var einmitt að spyrjast fyrir um hvaða rás ætti að nota og fékk ég svarið 47 ? frá fararstjóra Mr. T. Alla vega var ekki búið að gefa neitt út um það, ætli það verði ekki ákveðið eftir c.a. átta tíma.Kv. stef… sem að er "unplugged" ennþá vegna regntímabilsins.
–
p.s. ef þú ert að fylgja fyrirmælum á rás 48, þá endar þú í strút… ;->
23.11.2007 at 20:57 #604228Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þetta dæmi skyldu sjúkrabúnaður í breytta jeppa. [url=http://www.curioweb.is/webs/frumherji.is/modules/files/file_group_15/BSK/BSK%202504.pdf:11yc3kjw][b:11yc3kjw]Upplýsingar um innihald sjúkrakassa í hópbifreiðir, breyttar bifreiðar og skólabifreiðar[/b:11yc3kjw][/url:11yc3kjw]
Tekið af http://www.frumherji.is
Mér sýnist fljótt á litið að það sem vantar í lista hjálparsveitarinnar er saltvatn og sáraböggull.
Kv. stef…
–
Ps. takið svo eftir að sjúkrakassinn skal vera merktur skráningarnúmeri bifreiðarinnar… geri aðrir betur ;->
23.11.2007 at 19:42 #602192Fararstjóri Einar eik … ég var að spöglera…
Þar sem að ég er með eindæmum veðurblind og það styttist í brottför hjá ykkur þá var ég að velta því fyrir mér hvort að það væri ekki orðið tímabært að koma með skammtíma veðurspánna. Einnig langar mig að heyra hvað er það nýjasta sem að er að gerast í leiðarvali hjá ykkur… er það jökla hor eða láglendis slef.
Stefnir í fullt tungl.Kv. stef… veður1/2viti
p.s. tunglið er 2. kvartil 99% fylling, vaxandi.
22.11.2007 at 11:17 #603192Smá pælingar.
Það er sem sagt hægt að fara og láta uppfæra tveggja ára gamalt kort og þá fyrir 1900 kr. það þarf ekki að kaupa nýtt kort. Hvað með þær rútur og vegpunkta sem að eru inni þeir detta ekkert út er það?
kv. stef.
22.11.2007 at 11:13 #603856Er það rétt að hjálparsveitarmeðlimir hringi ekki einu sinni sjálfir í hjálparsveiti 4×4. hm hvað er málið.
Kv. stef…
22.11.2007 at 11:11 #604182passið bara að gera breið för fyrir smájeppaferðina á 44" og hafa góða kyndingu því að sófariddarar þola illa kulda.
kv. stef.
21.11.2007 at 10:48 #602034Hér er linkurinn inn á lámarks útbúnað í sjúkratösku.
[url=http://www.f4x4.is/new/misc/default.aspx?file=35/29:2vdiaf1g][b:2vdiaf1g]Bæklingar hjálparsveitin sjúkrakassi[/b:2vdiaf1g][/url:2vdiaf1g]sjá neðsta linkinn.
Kv. stef.
21.11.2007 at 10:43 #603988andsk. tvöfeldni.
kv. stef.
21.11.2007 at 10:43 #603986Mín skoðun.
Ég hef farið á nokkrar skoðunarstöðvar í gegnum árin að láta skoða bílinn min. Það sem ég vil fá út úr skoðuninni er að fá að vita nákvæmlega hvað er að bílnum svo að ég geti látið gera við það.Kv stef.
-
AuthorReplies