Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.12.2007 at 21:11 #606132
Lella….
er ekki útkall jólasveinar inn á borðinu hjá hjálparsveitinni…. ætlið þið ekki bara að taka bjórinn og REDDA þessu…
kv. stef…. sem á langt í land með eitthvað jólaskap… en held fast í jólaskvapið frá síðustu jólum…
10.12.2007 at 21:05 #606056Ég hef nú verið að bíða og sjá hvort að vefnefndin taki þessa fyrirspurn til sín… en það er sennilega borin von…
10.12.2007 at 20:59 #606226Fyrir mér er það kostur að það heyrist sem minnst í stöðinni eftir að hafa þurft að skipta um rás vegna gríðarlegs álags á fyrirframákveðinni rás af völdum tveggja samferðarmanna.
Ég myndi nú frekar eyða tíma mínu í að skoða þekjun á sambandi utan 101 rvk heldur en í 101 rvk.
SKiptir mig engu máli hvort að ég nái í Hlöðufell niður á lækjargötu eða spönginni…
en ég er nú ekki heldur skarpasta skeiðin í skúffunni.
kv. stef… ekki sú skarpasta
10.12.2007 at 20:53 #606242hefði ekki verið einfaldara að hirða bara grindina úr bílnum og smíða svo hús yfir heila klabbið…
10.12.2007 at 20:51 #606190Hefur Hlynur engin komment um það að maðurinn skuli fara yfir Lyngdalsheiði inn á kjöl…
10.12.2007 at 18:30 #606126Nú ertu alveg að tapa þér MHN í vitleysunni…
Þetta er spurning um að koma með slatta af tillögum og velja úr bestu 13-16 nöfnin til að nota….
ekki að fara að þylja upp allt stafrófið með mismunandi samsetningu…
–
Annað sem mér finnst týpiskt hérna … ég kem með tillögu sem er ekki einu sinni runnin úr mínum ranni (veit ekki af hverju þetta kom) … og það finnst öllum hún sniðug…
Tryggvi (RM) þeim finnst hugmyndin ÞÍN sniðug…
kv. stef… sem að er ekki þessi sáratýpa…
09.12.2007 at 18:29 #606108Mér finnst nú að þessir nöfn þurfi einmitt að hafa skírskotun í gömlu nöfnin. Þar af leiðandi finnst mér slóðasleikir meira viðeigandi… og bæti hér við Bjórgámur… var að velta fyrir mér tengingu við Sólina.
Og veðurþefur… td. veðurdísin úr keflavík (magnum)
kv. stef….
09.12.2007 at 17:58 #606104þetta er nú það skemmtilegasta sem að ég hef lesið alla helgina… en ég vil nú gera það að tillögu (ekki frá mér komið) að jólasveinarnir verði 4×4 = 16. Þarf ekki hvort sem er einhverja í varahluti/varamenn.
Kv. stef semaðeraðfarastúrleiðindum.
07.12.2007 at 14:40 #604974þetta eru nú bestu upplýsingar sem að ég hef fengið…
þær segja allt sem segja þarf…muchas gracias….stef. ;-> eða what ever
06.12.2007 at 14:12 #605474Tryggvi… ég er um það bil að setja mig í samband við feminista félagið…. (bara ef einhver gæti gefið mér númerið).
Það er ekki nóg með það að um leið og klippt er á naflastrenginn að þá eru börn litgreind í kyn og þar með er búið að móta stúlkur sem undirmálsþegna fyrir lífstíð… Sem betur fer er verið að taka á þessu mikilvæga málefni hjá okkar hæstvirtu þingkonukörlum (vildi ekki gera upp á milli kynjanna).. Ekki myndum við vilja að þau eyddu tímanum í einhverja vitleysu eins og lækkun á olíugjöldum, ó nei.
Kemur ekki svo í ljós að stúlkur duga ekki einu sinni sem skiptimynt í jafn einföldum samningum og upp á 50.000.000 við eitthvað olíufélag… Skilum peningunum strax…Þetta er greinilega mál sem á að fara inn á borð hjá feministunum… Mér finnst að það eigi að starfa feministaráð innan f4x4 Dramaklúbbsins til að taka á svona málum…Kv. stef… ;-> feiministi ..hm
05.12.2007 at 21:52 #605460Fyrst ég er að tjá mig hérna þá vil ég nota tækifærið til að óska stjórninni til hamingju með [b:1ai7t3km]50.000.000 [/b:1ai7t3km] (lenti í smá vandræðum með hvar ég ætti að setja punktana… svo mörg 0, en þetta eru liðlega fimmtíumilljónir í einu orði), sem að munu skila sér til klúbbsins á næstu 5 árum. Ef þið eruð í vandræðum með að eyða þessu þá er ég alveg ágætlega liðtæk í því ;->
Nú er ég að spöglera…
Hvernig er með þau afsláttarkjör sem að hafa verið hjá N1 (bílanaust) eru þau enn í gildi s.s. þjónusta við talstöðvar o.þ.h. enda eru þeir annálaðir fyrir gott viðmót og góða þjónustulund… þó að verðlagningin sé ekki sú hagstæðasta…kv. Stef… ekki sú skarpasta.
05.12.2007 at 13:09 #604856Lella… þar sem að hann virkaði nú samt nokkuð vel á þig um kvöldið, þá verður þú að hugsa um okkur hin. "Take one for the team".
kv. stef…. ;->
04.12.2007 at 00:04 #605080Nú sé ég ekki hendi mér hvernig þetta eftirlit ætti að virka. Þeir sem að eru að senda út ólöglega… er öðruvísi sendingin hjá þeim eða hvernig á að manna þetta eftirlit. Ef ég heyri í einhverjum tala ólöglega… á ég að biðja hann um að halda áfram að senda á meðan græjuð eru tvö hrífusköft og mannssköp (eintala af mannskapur) með handstöð til að miða hann út.
kv. stef… ekki sú skarpasta.
03.12.2007 at 23:56 #604844Það má nú segja að þetta hafi verið bara hin besta skemmtun. Verst þótti mér að það skildi hafa tekið 1 og 1/2 sólarhring (að vísu með 2 tíma í matarhlé) að jafna sig eftir þetta þrátt fyrir að hafa bara drukkið dry sódavatn. Ég þarf greinilega að endurskoða þessi mál eitthvað.
Hlynur Snæland á bestu þakkir skildar fyrir æfinguna á loftdælunni sem að ég ofl. fengum kl. 3 um nóttina en þar sem Gísli Þór neitar allri sök… þá get ég ekki þakkað honum fyrir… nema þá fyrir að halda Hlyni kompaní inn í bíl á meðan… en þeir neituðu að opna fyrr en loft væri komið… í bæði dekkin…
Takk, takk kæru sófariddarar.
kv. stef… ;->
01.12.2007 at 04:57 #605194Það er nú rosalega gott að sjá hvað menn bera mikið traust til stjórnarinnar…
Ég treysti því alla vega að stjórnin viti meira um málið en ég og að þar sem stutt er í félagsfundinn að hún muni þá nota það tækifæri og fara yfir málin með okkur…
kv. stef…
30.11.2007 at 11:51 #604816Pródúsent Lella…
Þú lætur þetta hljóma eins og þetta sé bara einhver Film Festival / kvikmyndahátíð…. Er þetta öll helgin eða hvað????kv. Stef….
29.11.2007 at 14:36 #604920Ég verð nú að tjá mig aðeins um snillingana sem að kallast "Íslendingar". Þetta er þjóðflokkur sem að hefur baráttumálin á hreinu.
1.maí er kröfudagur verkalýðsins en það virðist ekki vera nema um 150 "Íslendingar" sem að teljast til verkalýðsins í landinu… það er alla vega fjöldinn sem mætir í kröfugöngu á þeim baráttudegi fyrir bættum kjörum okkar.
–
Einhver matvöruskattur var lækkaður og "Íslendingurinn" blekktur til að halda að það virkilega skilaði sér til þeirra en svo tóku þeir eftir því að það var ekki að gerast… og þá hugsar "Íslendingurinn"… hvað um það, ég bara borga.
–
Svo risu nú menn upp þegar sökkva átti Hálslóni við Kárahnjúka og milli 10.000 og 15.000 (ef ég man rétt) "Íslendingar" mættu í göngu niður laugaveginn. Enda var þokkalega gott veður. Þetta þótti það mikið afrek að það fer nú sennilega á spjöld sögunar sem slíkt
–
Eldsneytisverð hækkar upp úr öllu valdi og nokkrir "Íslendingar" tjá sig um það á vefnum og hver með sína misgáfulega tillögu um að nú verði að gera eitthvað. Svo sem að setjast einn út í bíl eftir tvo tíma og flauta… það veit bara enginn afhverju… það koma jafnvel hvöss orð í garð stjórnvalda … Reynt að koma sökinni á ástandinu yfir á þá… Og þar með er ekkert meira gert í þeim málum. Á meðan að við "Íslendingurinn" erum ekki að veita stjórnendum landsins aðhald því í veröldinni ættu þeir að breyta einhverju.
–
Svo er haldið ár hvert hinsegin dagar, baráttudagar miskynvísra einstaklinga… og hef ég ekkert á móti þeim… En hvað gerst …jú 80.000 "Íslendingar" mæta á Laugaveginn… þrátt fyrir það að þeir styðji nú ekki einu sinni mörg af baráttumálum þeirra… eru bara að koma og sjá…
–
Kannski er ég sú eina sem að sé eitthvað skrítið í kýrhausnum enda er ég ekki sú skarpasta.
kv. stef…
–
p.s. Disclaimer…ég tel "Íslendinginn" vera allir þeir sem að búa í landinu og eru borgendur… og ég hef ekkert á móti miskynvísum einstaklingum.
28.11.2007 at 22:51 #604488Jæja ég setti inn vel flestar [url=http://picasaweb.google.com/stefgud/2007_11_24NylidaferdSmajeppaIHolaskog:2h0bnnft][b:2h0bnnft]Myndirnar[/b:2h0bnnft][/url:2h0bnnft] sem ég tók í ferðinni í hólaskóg. Tók ég ekki margar myndir að þessu sinni. Það er mikið betra að vera kóari með myndavélina, hitt er ómöglegt alla vega fyrir mig. En vegna skorts á tíma er ekki kominn texti við nema 3 eða 4 myndir.
það eru engir videobútar í þessu.Kv. stef…
28.11.2007 at 09:45 #604484Agnes
Ég vona bara að ég sé ekki að ljóstra of miklu upp um söguþráðinn á videoinu fyrir föstudagskvöldið … en í aðalhlutverki eru einmitt TLC og Patrol…
kv. stef… sumt er geymt en ekki gleymt ;->
28.11.2007 at 00:46 #604790Mr Don Tryggvi.
Ég missti mig aðeins í hrauninu á öðrum þræði líka… Ég þarf sennilega að fara að finna mér einhverja lögfræðinga … get ég ekki bara fengið þinn.
Kv. stef…;->
-
AuthorReplies