Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.12.2007 at 00:19 #605942
Árni baukur aka dunkur það er samþykkt… ég skal reyna að skjóta til þín 4 baukum á fimmtudagskvöldið, ekki málið. Þú ert nú meiri asninn að hafa ekki farið fram á ferðakippu fyrst þú varst að þessu á annað borð ;->
–
Það hvarlaði aldrei að mér að toyota hefði aldrei lent á skjálftavaktinni. Sennilega hefur allt bilað sem bilað getur í toyotum … hm… það sem getur ekki bilað, bilar ekki.
Hins vegar er til svo mikið af þessum kvikindum og ekki síður eigendum með reynslu þannig að ég tel að bilanagreining gæti gengið hraðar fyrir sig hjá veðurvitanum ef hann ætti toyotu nema að mönnum finnist 9 mánuðir ekki langur tími því tími er jú afstæður en í sumum tilfellum eru um 9 mánuðir eðlileg meðganga þannig að lausnin er kannski handan við hornið.
Maggi minn líttu bara á björtu hliðarnar þú átt stærsta "kokteilhristara" í heimi ;->kv. stef…
Ps. er baukurinn kresinn á tegundir? er að prufukeyra eina fyrir þig.
–
psps. naffok… það er bara ágætt að hafa ljósið slökkt…;->
16.12.2007 at 16:48 #605936Maggi ég er með eina hugmynd…
Sjáðu ljósið og seldu bílinn og fáðu þér toyota…
kv. stef…
16.12.2007 at 16:45 #606800Nú er ég að velta fyrir mér þar sem að ég hef ekkert vit á þessu.
vill maður ekki að bíllinn hiti sig sem minnst…
16.12.2007 at 15:27 #606858Benni ég hefði frekar vilja sjá þig beina kröftum þinum (eins og ljón) í staðreyndir… eins og háu eldsneytisverði… og rífa fólk upp af rassgatinu með þér.. fyrir hundruð þúsundir manna heldur en í hugarástand fyrir einhverja fjarskiptavindmyllu fyrir nokkur hundruð manna.
kv. stef…
16.12.2007 at 14:36 #606850Nú verð ég að taka undir með eik… þetta er leiðandi skoðanakönnun.
Leiddi mig til að halda að einhver aumur félagsmaður hefði sett inn skoðanakönnun um val á fjarskiptabúnaði… og var hún svo hökkuð í sig. Kemur svo ekki í ljós að hún er runnin undan rifjum Mr.T (RM). það er greinilegt að rifbeinin eru víða…
Það fær mig samt ekki til að breyta skoðun minni á því að ég var "órugluð" þegar ég svaraði könnuninni… þ.e.a.s. spurningin leiddi mig ekkert inn á einn frekar en annan kost.Kv. Stebba Reykás….
–
p.s. Tryggvi hvernig dettur þér í hug að fara með mömmu að versla heimabíó í Hátækni. það er borðleggjandi þetta er klárlega hagsmunaárekstur..
16.12.2007 at 13:33 #606840Mikið rosalega getið þið flækt annars einfalt mál.
Ég skil þessa könnun þannig að það sé verið að spyrja um… ef ég ætti að velja mér annað fjarskiptatæki þegar nmt leggst af hvað myndi ég vilja sem fyrsta kost. Það er ekki verið að spyrja um hvað ég eigi fyrir (spurning um orðalag)…Þannig að ef að ég ætti gufunesstöð og myndi vilja hana sem fyrsta kost fyrir fjarskiptatæki þá merki ég við það….
Ég get ekki séð í könnunninni að tetra sé skrifað með meira áberandi hætti en irridium…
En ef að það er ekki hægt að koma með einfalda skoðanakönnun án þess að henni fylgir greinargerð þá legg ég það til að þessi liður verði fjarlægður af síðunni því að það þjónar engum tilgangi að hafa hana… ekki einu sinni sem skemmtanagildi. Öðrum kosti að það verði boðið upp á námskeið í að búa til réttritaðar og réttorðaðar spurningar án alls vafa…kv. stef….
Félagsmaður í Dramaklúbb 4×4
16.12.2007 at 12:47 #606828Siggias74 ef ég skil þig rétt… þú ert með vhf .. og vilt fá möguleika á að kaupa þér aðra vhf….
Er ekki verið að tala um nýja möguleika UMFRAM vhf…
annars hvað veit ég … enda bara með konuheila
kv. stef….
15.12.2007 at 17:46 #606716Johnny B. Good…
Það gleður mig að upphafsmaðurinn skuli sýna gott fordæmi. Mér finnst nú bara lámark að nota tækifærið og þakka Jóni einmitt fyrir, fyrir þetta gríðarlega nefndarstarf. Að sjálfsögðu verður væntanlega tekið tillit til þess við gerð starfslokasamningsins… spurningin er hver verður feitastur þá samningurinn… eða Jón.
–
Maggi ég er einmitt búin að vera að dunda mér við að lesa fundargerðirnar frá umhverfisnefndinni… nei nú er ég að rugla enn einu sinni…
–
Og hvað varðar framkvæmdarstjóri vs. launaður starfsmaður… ef að einhver gæti útskýrt það fyrir mig einu sinni enn hvernig það geta orðið svona ofboðslegir hagsmunaárekstrar á milli þessara aðila.
Eigum við að hafa starfsmann og Formann/framkvæmdarstjóra á launum (2 stk). Það er ekki eins og þetta sé Baugsveldið (alla vega ekki ennþá). Hvernig eigum við að leysa þetta. Eða er það ekkert prinsipp mál svona 2 fyrir 1 samningur og spara þannig.
Held að Agnes viti það ekki en ef að hún væri starfandi framkvæmdarstjóri einhver staðar annars staðar… þá grunar mig að við værum að tala um allt aðrar launatölur (þekki samt ekki hennar tölur)… og þá erum við komin aftur og enn einu sinni í feministaumræðuna… er þetta af því að hún er kona.
Nei Stefanía…. nú verð ég að stoppa þig af…
kv. stef….
15.12.2007 at 13:57 #606710Það sem ég hugsaði með ferðanefndina var sú hugmynd einmitt… að útiloka stjórnarmenn ;-> úr nefndinni … þeir mættu aðstoða ef þeir vildu (sem sjálfboðaliðar-bjóða sig sjálfir fram)… en seta í nefndinni… nei takk.
Sé ekki í hendi mér að það sé eitt af því mikilvægasta sem að stjórnin sé að gera… að skipuleggja ferðir eða versla í matinn fyrir þær. Nema að það sé svona lítið að gera hjá henni.Kv. stef. ;->
15.12.2007 at 13:26 #606704Lella….
Nú kemurðu inn á veikan blett hjá mér… orðið sjálfboðastarf… Þetta er nefnilega val hjá fólki að bjóða sig fram (framboð). Að loka fyrir það að fólk geti setið meira en eitt ár í nefnd finnst mér að ætti ekki að vera í lögum klúbbsins. Heldur finnst mér að það ætti að leita annara leiða til að skipta út þaulsetnu fólki sem skilar engu í nefndinni. Td. ef það er 5 manna nefnd og að 1 gerir ekki neitt. þá gæti nefndin rætt við hann um að draga sig úr nefndinni og svo væri hægt á félagsfundi að kjósa annann inn, að það þurfi ekki aðalfund til þess, en að sjálfsögðu er aðalkosningin hátíðleg á aðalfundi. Það myndi einnig auðvelda fólki að draga sig í hlé án vandræða. Þetta hefði held ég auðveldað lausn mála litlu nefndarinnar að einhverju leyti. Það er ekki eins og að þessar nefndir séu að stýra landinu. Og með stjórnina að þá er gott að hafa einmitt varamenn ef að einhver er búinn á því þá geti hann annað hvort tekið sér smá pásu og hlaðið batteríín eða bara … gefist upp og hætt ;->. (en kosning í hana þurfi aðalfund- nú svo auka-aðalfund… ef það tekur því).
–
Laugi…
Ég tel það ekki vera ókostur að starfsmaður og formaður sé einn og sami maðurinn. Hver er betur inn í málunum en einmitt formaðurinn og mörg mál eru þannig að það þarf að sinna þeim í dagvinnutíma.
Litlanefnd… ég er þeirra skoðunar að það ætti að vera 2-3 manna ferðanefnd innan klúbbsins sem að hefði yfirumsjón með ferðum, sjá til þess að það séu ferðir og að finna hæfa fararstjóra í þær. Þessi nefnd ætti að geta hugsað "óháð dekkjastærð". Til hennar gætu svo fólk leitað ef að það langaði til að skipuleggja ferðir sjálft og fengið þá aðstoð við það…kv. stef…
15.12.2007 at 13:05 #606700Nú er ég að velta fyrir mér þar sem að ég þekki nú ekkert til…
Það eru 5 manns í stjórn og svo 2 varamenn = 7 manns (draumatalan hans Jóns). Er eitthvað sem bannar að þeir séu nýttir … ef það er ekki verið að nýta þá. Þeir mega/og ættu að sitja stjórnarfundi en ef ég man rétt hafa ekki atkvæðisrétt (leiðréttið ef vitlaust). Eru ekki einhver verkefni sem að þeir geta unnið að. Eða er málið að menn þurfa titla til að geta tekið af sér verkefni….?
Ég er ekkert að mæla á móti 7 manna stjórn bara að spekúlera og segjum að það verði kosin 7 manna stjórn þá verða menn að gera sér grein fyrir því að það þarf alltaf að kjósa að mínu mati varamenn (lám. 2). Aðstæður hjá fólki eru oft fljótar að breytast nú og eins ef að menn eru að fara í fýlu hægri vinstri eins og gengur og gerist.
–
Hvað varðar blaðið þá hef ég verið smávegis á þeirri skoðun að það væri mögulegt að vera með svona snepill sem að væri gefin út kannski 1 sinni í mánuði eða annan hvern mánuð á Netinu sem að fólk getur svo prentað út ef vill. Þarf ekki að vera stórt heldur samantekt á því sem að hefur verið í umræðunni, hvað er að gerast og svo einhverja ferðasögur. Frekar en að gera ekki neitt.
Bókahugmyndin er líka sniðug og hugsa ég þá aðalega út frá heimildarsjónarmiði og svo ekki síður skemmtanagildi.
–kv. stef…
14.12.2007 at 18:52 #606676Hlynur…
Hvað heldur þú að honum Helga Hóseassyni á Langholtsveginum hafi orðið ágengt í sínum baráttumálum.. þar er einmitt ekki fjöldanum fyrir að fara.
Stærra bakland er betra… svo framarlega sem að forystan sé að virka.
kv. stef….
14.12.2007 at 18:05 #606666Pælingar… veit ekki hvort að þetta séu áhrif gegndarlaus lægðargangs hingað og mónsúnrigninga en þessi umræða kom eins og skrattinn úr sauðalæknum. Ekki verri fyrir það.
–
Leggja niður hjálparsveit: ég kaus gegn því á sínum tíma (ef það var kosið um það). Þar sem valið var um að leggja niður hjálparstarf og fá fræðslustarf í staðinn. Möguleikinn að hafa númer til að hringja í og fá aðstoð finnst mér ótvíræður kostur. Þetta snýst um tengslanet að sá sem svari símanum þó að hann komist ekki sjálfur þá er hann búinn að taka að sér að redda aðstoð og er vel tengdur til þess. Sbr. þessi hugmynd um tengiliðina út á landsbyggðinni. Það síðasta sem að ég myndi vilja þurfa hringja í er 112 af því að ég missti dekk undan eða eitthvað álíka ræfilslegt. Það hvort að hjálparsveit 4×4 hafi mikið að gera eða ekki er ekki aðalmálið. Hún er eins og útfararstofa sem vinnur verk sín í hljóði… ég vil ekki þurfa leita til hennar en gott að vita af henni.
En ég held að það sé samt orðin þörf á því að kannski sameina nefndir og endurskilgreina hlutverk þeirra. Þá á ég ekki við að henda nefndum heldur að sameina hlutverk kannski tveggja í einni nefnd. Þannig að í nýliða og fræðslunefndinni væri aðili sem að myndi sinna þessu tengslahlutverki að geta hringt í hjálparstarfiðið. Þannig að hjálparstarfsmaðurinn á stóra bílnum er ekki endilega skuldbundinn til að sitja í nefnd.–
Er ekki komin stjórnskipuð nefnd með fræðslu og nýliðamál á sinni könnu. Það er þá væntanlega tryggt að þeir aðilar hafi góðan tíma til að sinna þeim málum (af því hún er stjórnskipuð) og fræðslumál séu kominn í góðan farveg.
–
Fjölga í stjórn upp í 7 og enga varamenn. Hvað á að gera ef einhver hættir. Veit til þess annars staðar að rökin fyrir því að fækka úr 7 niður í 5 voru, það er svo erfitt að finna tíma sem að hentar öllum en mín kenning var sú að þetta hafi verið gert til þessa að hafa meiri völd á færri hendum (þarf ekki nema 3 og þá er kominn meirihluti). Ég tel að það þurfi alltaf að kjósa varamenn, mann nr. 1 og mann nr. 2. annars gæti þetta endað sem fámenn stjórnskipuð stjórn (stjórn velur vini og vandamenn sem aðstoðarmenn inn) eða auka aðalfund sem verður svo ekki haldinn … af því að það tekur því ekki.
–
Ef einhver væri til í að rifja upp fyrir mig hvaða stefnu litlanefndin lagði upp með þá væri það gott því að ég er löngu búin að gleyma því.
–
kv. stef…
13.12.2007 at 22:32 #606646Óli nú varð ég hissa… hélt að þetta yrði það síðasta sem að þú myndir gera… skrifa á f4x4…
stef…
sem að er sammála
13.12.2007 at 04:12 #606498Sennilega [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/10939:1a6mefqe][b:1a6mefqe]þessa[/b:1a6mefqe][/url:1a6mefqe] umræðu.
12.12.2007 at 14:58 #606414Er einhver von að þetta myndband verði endursýnt við svipað tækifæri… fyrir þá sem að eru svo lengi að átta sig á svona atburðum og… þá sem komast ekki annað kvöld… Því þetta er á við náttúruhamfarir ef að rétt reynist…
12.12.2007 at 11:16 #606150Nú er ég að spöglera….
Réttarsalur…er það félagsheimili f4x4? Sá að það er boðið upp á [url=http://www.f4x4.is/new/calendar/default.aspx?file=2007-12-15:3nyiumlp][b:3nyiumlp]jólakakó og bingo [/b:3nyiumlp][/url:3nyiumlp] þar á laugardaginn (nema að það sé búið að fella það niður eins og svo margt annað). Vona að það verði eitthvað að borða líka, væri samt meira til í jólahlaðborð.
kv. stebba sísvanga…
p.s. mér finnst nú samt að þú Lella sem Grýla og Þorgeir sem Jeppalúði vera eins og skrifað upp úr gamansögum… ;->
12.12.2007 at 02:23 #606146Lella…
Illur á sér ills von og hef ég breytt bak en ég átti samt ekki von á þessu og síst af öllum frá þér, Lella. Þetta kemur eins og blaut tuska í andlitið á manni og jaðrar við [url=http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=5866:3c872i0x][b:3c872i0x]ærumeiðingar[/b:3c872i0x][/url:3c872i0x] en því miður er hámarks refsing fyrir slíkt einungis tveggja ára fangelsi en eru þó sektir látnar duga sem refsing, hm týpiskt, hefði annars boðið þér á jólahlaðborð á plastbökkum frá Miðfelli.
Að halda því fram að ég sé HÚMORSLAUS er að mínu mati gjörsamlega úr lausu lofti gripið eða mesta lagi af old.f4x4.is. Ég tel mig hafa húmor en virðist samt furðu oft ein um þá skoðun en það þýðir samt ekki að ég hafi rangt fyrir mér…hm. Ég veit að hann er mjög misskilinn og er ekki allra og síst þeirra sem minnst þekkja mig og hef ég greitt mína tíund fyrir það, nokkrum sinnum ef út í það er farið. Orðið helv. þreytandi jafnvel, tekur svo á ;-> Lella, þetta er geymt en ekki gleymt, mundu það.
–
Hvað varðar [url=http://www.julli.is/jol/gryla.htm:3c872i0x][b:3c872i0x]Grýlu[/b:3c872i0x][/url:3c872i0x] þá er hún þekkt sem flagð og það er minnst á hana sem tröllkvendi ([url=http://nhlbisupport.com/bmi/:3c872i0x][b:3c872i0x]BMI[/b:3c872i0x][/url:3c872i0x] yfir 30 sjálfsagt). Orðið sjálft merkir einna helst, ógn, hótun eða hryllingur. Hún er líka alltaf svöng, endalaust hungur sem hrjáir hana. Sumar lýsingar á Grýlu eru svakalegar, jafnvel marghöfða djöflakerling og hafi marga hala (væntanlega skuldahala).Já ég get ekki neitað því að þessi lýsing passar ískyggilega við mig… spáðu í það. En ég segi samt: takk… en NEI TAKK.
–
Kv. Stef…. ekki sú skarpasta ;->
11.12.2007 at 21:00 #606140logimar þín veika von er brostin…
ég tel mig vera einhver… og ég hef akkúrat ekkert gaman að þessu… hafið þið ekkert betra að gera í kringum jólin ;->
kv. stef… sem þolir ekki orðaleiki ;->
–
p.s. í mínum augum er Þorgeir sá almesti jeppalúði sem að ég þekki… þekki að vísu ekki marga…
11.12.2007 at 01:14 #598614Eik… getur verið að það hafi komið tíðniskjálfti í þig við að setja linkinn inn…
Ég þoli illa að láta byggja upp spennu hjá mér… eins og t.d. með von um ódýrt loftnet og síðan ekki söguna meir en það varð smá spennufall þegar ég uppgvötvaði að ég komst ekki lengra en [url=http://www.rffun.com:3us3dyfp][b:3us3dyfp]hingað[/b:3us3dyfp][/url:3us3dyfp]. Smellti ég svo nett feimin á online catalog linkinn en þá tók við valkvíði á háu stigi og síðan man ég ekki meir… er þá ekki takmarkinu kannski náð…maður spyr sig..
Kv. stef….valkvíðasjúklingur
ps. linkurinn virkar ekki… hm
-
AuthorReplies