Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.09.2007 at 13:56 #598116
Eru þetta eitthvað í líkingu við harðkornadekkin? Þau eru eða voru, veit ekki hvort þau eru í sölu ennþá, sóluð. Eru þetta ekki ný dekk? Stefán
29.09.2007 at 13:53 #598128Þú verður að vera innskráður, velja svo smáauglýsingar og flokk þá kemur tenging fyrir nýja auglýsingu. kv Stefán
29.09.2007 at 11:34 #200878Er einhver sem hefur prófað þessi dekk undir óbreittan bíl, er með lc 120 sem ég er spá í dekk fyrir veturinn. Ég hef notað þessi dekk undir subaru og líkaði vel en veit ekki hvernig þau koma út undir jeppa, kanski ekkert síður. Mér líkaði mjög vel við þessi dekk undir fólksbílnum en ef einhver hefur reynslu af þeim undir jeppa þá væri gott að frétta af því, kv Stefán
25.09.2007 at 15:31 #597760Hvernig tekur maður út auglýsingar? Er svo lítill tölvukall, Stefán
22.09.2007 at 14:57 #597594Palli minn, setja bara hnoð og spartsla svo vel yfir og mikið af málningu að lokum!!!!!!!
p.s. gangi þér vel kallinn minn
21.09.2007 at 18:16 #596858Benni, ertu ekki búin að skrá mig? Ég stefni á að mæta ef ég verð í landi!! Kv Stefán + 1
p.s. þarf ekki gistingu
21.09.2007 at 08:17 #597502Takk fyrir þetta, mér reiknast til að ég fái ekki svona lág hlutföll eins og mig vantar. Er þessi blaiser með sjálfskiftingu, minn er nefnilega beinskiftur og mér var tjáð að hann væri með 4,10 en hef aldrei kannað það. Samkvæmt þessum útreikningum mínum þarf ég 6,0 til að komast í orginnal. Ef hins vegar er 3.73 þá er þetta mun skárra eða 5.47. Ég gef mér að hann hafi verið á 30" en er bara ekki viss hver er orginnal stærð undi svona bíl. Ef ég hins vegar gef mér að hann hafi verið á 31 þá er þetta ekki svo slæmt, 4,10 verður 5,81 og 3,73 verður 5,29. Nú er bara að vinda sér í að athuga hvaða hlutföll eru í honum, mbk Stefán
20.09.2007 at 23:55 #596132Hvernig var það, gerðist ekkert í þessari vinnuferð? Eða var hún aldrei farinn eða hvað, það er eitthvað svo hljótt um hana, eins og menn séu ekki til í að deila með okkur hinum sem ekki komust hvað fór fram. Elli Þorsteins eða bara einhver, endilega segið aðeins frá!!! Stefán
20.09.2007 at 23:49 #200824Nú er maður að spá í hlutföll og hvað eigi að taka. Ég er að spá í hvernig maður reiknar út hvaða hlutföll komast næst því sem var fyrir breitingar, það er eins og bíllin var á orginal og og hvernig maður finnur út þau hlutföll sem passa núna. Bíllinn er með 4,10 og ég er búinn að finna 5,13 hlutföll í hann en er það lægra en var eða hærra, hann er á 44″ og með 10 bolta framhásingu og 14 bolta semifloting afturhásingu. Ég vil helst komast sem næst því sem hann var fyrir, hvernig reikna ég þetta út? Mbk Stefán
p.s. Benni Ak, viltu bóka fyrir mig 2 miða á árshátíðina, símasambandi hjá okkur hér við Noreg er lélegt.
20.09.2007 at 10:48 #597460Ég er viss um að það er hægt að finna þessa útleiðslu en ég er bara svo lítið inní þessu og hef eiginlega ekki hugmynd um hvernig maður gerir það, maður fer í þetta einhverntíman þegar maður kemur heim, hvenær svo sem það verður. Sama sagan með árshátíðina, ef maður verður heima.
20.09.2007 at 08:57 #597456Sæll Palli. Ertu búinn að finna hvar leiðir út, góður. Viltu þá ekki skreppa yfir í næstu götu og athuga með minn og finna útleiðsluna þar líka, fínt að þetta væri komið í lag þegar ég kem heim!!! Bara ef þér leiðist í fríinu!! En annars, ertu búin að rífa sílsana undan hinum, og kominn með þann stóra inn? Þú veist að það er nefnilega best að drífa þetta af, maður veit aldrei hvenær kalli á sjóinn kemu!!! Mbk Stefán
p.s. ætlarðu á árshátíð ef þú verður í landi?
18.09.2007 at 22:42 #578626Ja ég er nú bara sveitamaður en vill einhver segja mér hvaða misnotkun getur leitt af að hafa þetta á netinu? Ég er í Eyjafjarðardeildinni sem er með þetta á netinu og veit ekki til að það hafi komið mér neitt ílla. Er reyndar sammala því að hafa þetta bara fyrir félagsmenn en vill kanski einhver upplýsa mig um hvaða misnotkun getur átt sér stað, eru þetta ekki upplýsingar sem hægt er að nálgast annarstaðar líka? Mbk Stefán
16.09.2007 at 19:51 #596130Hvað segi þið strákar, hvernig var ferðin?
Hvernig væri að fá smá skýrslu, hvað var gert, hvernig var veður og færi, er ekki komin smá föl innfrá. kv Stefán
12.09.2007 at 20:02 #596586takk strákar. Nú er haldið út að borða og síðan á barinn, sjáum til hve mikið verður eftir af manni um miðnætti!!!
12.09.2007 at 18:29 #200786Nú var maður að detta á þennan aldurinn og
skal viðurkennast að mann óaði ekki fyri að tíminn myndi líða svona hratt!! Ekki það að maður hafi svo sem ekki vitað hvað væri í vændum en samt er þetta bara einhvernvegin svo óvænt! Ekki er það nú svo samt að ég sé neitt að fara að skæla yfir þessu en manni fynst að tíminn hafi einhvernveginn hlaupið frá manni og varla síðan í gær að maður var tvítugur! Nú er málið, er lífið á niðurleið eða er það rétt að byrja? Maður hefur heirt í mörgum að lífið hafi rétt farið að byrja á þessum aldri en er það svo? (Einn kostur við að vera sjómaður er að maður getur dottið í það í miðri viku án þess að þurfa aðmæta einhversstaðar) Hvaða skoðun, ef einhverja, hafa menn á þessu, er lífið bara rétt að fara í gang hjá manni eða er allt á niðurleið (sumt fer víst eitthvað niður hér eftir)? Bestu ferðakveðjur til ykkar, Stefánp.s. líkjör og koníak skýrir þetta röfl!!
11.09.2007 at 16:48 #596108Því miður lítur allt út fyrir að ég verði á sjó um helgina, komum reyndar í land í gær en verðum að öllum likindum farnir aftur fyrir helgi, ef það breitist þá kem ég kanski og gríp eitthvað á grillið með mér en það verður þa´ekki fyrr en á laugardag, kv Stefán
08.09.2007 at 12:05 #596208Þá veit ég það, þetta eru sem sagt 14 bolta minni og 10 bolta stærri. Ég er semsagt að leita að hlutföllum í þessar hásingar, 488, sem að vísu er hagkvæmast að panta úr Ameríkuhreppi vegna stöðu dollarans. En ef einhvever á eitthvað i þessar hásingar þá má hann láta mig vit í maili srbh@strik.is og ekki væri verra ef einhver myndi lumma á læsingu í aðra hvora eða báðar, kv Stefán
07.09.2007 at 16:05 #200762Er einhver sem lummar á hlutföllum í 14 bolta gm 9,5″ og 10 bolta gm, veit ekki hvaða ennþá er úti á sjó og get ekki athugað það ennþá en er svona að spá í hvort að það eigi einhver eða viti um svona hlutföll það er 4:88. Ég held að þetti 10 bolta sé 8,5″ án þess að vita það alveg. Einhverntímann sá ég í myndaalbúminu mynd af þessum hásingum og hvaða gerð þær væru, ef einhver man hvar þetta er í myndaalbúminu þá má hann alveg setja það inn hér, kv Stefán
07.09.2007 at 10:35 #596092Elli, ég fer í það að tala við Elmar, en eins og þú veist þá á ég eina Toyota og svo einn jeppa. Það vantar bara smá svona aukahluti í hann, Toyotan er fín eins og hun er svo það eru bara amerískir hlutir sem mig vantar, er ekki úttektarheimild fyri svoleiðis? Reiðuleysiskveðjur af sjónum, Stefán
06.09.2007 at 16:48 #596078Elli, mig vantar alltaf pening!!!! Annars svona á alvarlegri nótum þá verð ég nú sennilega á sjó þessa helgi, annars er aldrei að vita hjá Samherja. Minn bíll getur svo sem flutt eitthvað ef ég verð til taks, það mál verðu nú bara að ráðast og ræðst nú sennilega ekki fyrr en rétt fyrir helgina, kv Stefán
-
AuthorReplies