FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Snorri Freyr Ásgeirsson

Snorri Freyr Ásgeirsson

Profile picture of Snorri Freyr Ásgeirsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 320 total)
← 1 … 7 8 9 … 16 →
  • Author
    Replies
  • 27.12.2005 at 23:01 #537272
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    ég skoða þetta 😀

    Jú ég ætla að henda gamla stóra mælinum því að flestir hinir eru orðnir ónýtur og ég þarf hvort sem er að bæta 2 mælum við þannig að þetta varð besta lausnin.

    Kv
    Snorri Freyr og Skátahöfðinginn





    27.12.2005 at 17:55 #196936
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Jæja nú eru endurbætur hafnar á Skátahöfðingjanum og stendur til að skipta um alla mæla í mæaborðinu og verða settir mælar frá auto goge(held að það sé skrifað svona er samt ekki viss), sem er keyptir í Bílanaust en málið er að mig vantar hraðamælir sem er 50mm. Þessir mælar eru með silfruðum hring og svo er hvít þar sem að tölurnar standa á mælunum(vona að þið fattið hvað ég á við).

    Þar sem að ég er ekki tæknilega sinnaður þá er ég ekki góður í að leita á netinu að svona mæli ;-(

    Er einhver þarna sem veit hvar er hægt að fá svona mæli, Bílanaust á ekki svona, hef ekkert fundið hjá Benna heldur.

    Einnig væri gott að komast yfir rafmagnsteikningu af bílnum ef einhver veit um þær, eða hvar þær eru að finna.

    Kv
    Snorri Freyr og Skátahöfðinginn.





    25.12.2005 at 23:46 #536990
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    mæti en þar sem að ljósin á jeppanum eru að stríða mér þessa dagana þa kem ég á fólksbíllnum og er þar af leiðandi ekki með talstöð.

    Kv
    Snorri Freyr





    25.12.2005 at 20:31 #536918
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Hann er með ef ég man rétt 350 tpi 700 ssk veit ekki alveg hvaða millikassa né hvaða hásingar eru undir honum.

    Var eitt sinn í eigu vestmaneyjings, stoð hann fyrir um 2-3 árum á sölu og þá prufaði ég hann og er þetta mjög öflugur og kraftmikill bíll sem er gott að keyra og fann ég ekki mikið fyrir því að hann sé á 44".

    Kv
    Snorri Freyr





    24.12.2005 at 10:03 #536856
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Ég vil senda öllum félögum og fjölskyldum þeirra mínar bestu óskir um GLEÐILEG JÓl

    Jóla kveðja

    Snorri Freyr





    21.12.2005 at 14:04 #536682
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Ég hef ekki áttað mig á því eins og Skúli var að benda á að það er til LaugaRfell og Laugafell.

    Þetta var mín yfir sjón að taka ekki eftir þessu þegar að ég skoðaði myndina sem linkurin er á.

    Ég er s.s að fara í Laugafell með engu R.
    http://ffa.is/?mod=myndir&mod2=view&vie … um=4&id=81

    og eins og ég sagði þá vantaði mig punkta þangað.

    Kv
    Snorri Freyr





    20.12.2005 at 10:59 #536660
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Það var talað um mann ársins en ekki karlmann ársins.

    Seinast þegar að ég vissi þá eru konur líka menn!!!

    Kv
    Snorri Freyr





    20.12.2005 at 10:57 #196896
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Nú er ég að fara í Laugarfell um áramótin en er í smá veseni útaf því. Málið er að ég á enga punkta af leiðinni og ég veit ekki hvar ég get fundið þá.

    Þetta er leiðin sem við ætlu að fara, við ætlum að leggja af stað frá Skagafirðinum og þaðan mun leið liggja að Laugarfelli. síðan er planið að fara þaðan og keyra suður Sprengisand

    Eini punkturinn sem ég á er hvar skálin er.

    Ef það er einhver sem á punkta af þessari leið og vill láta þá þá væri það mjög vel þegið.

    Kv
    Snorri Freyr





    18.12.2005 at 10:37 #536306
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    finnst þessi langflottastur og mun hann verða enn flottari fyrir næsta vetur

    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file … 3952/26477

    Fær hann því mitt atkvæði

    Kv
    Snorri Freyr





    15.12.2005 at 21:54 #196869
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Jæja nú ber ég mig ekki vel þar sem að ég er búin að vera að leita af sólgleraugm með gulum glerjum, sérstaklega eftir að þessi mynd var tekin af mér http://www.gemlingarnir.com/modules.php?name=coppermine&file=displayimage&album=48&cat=0&pos=62 .(mikið búið að gera grín að henni)

    Hvar er hægt að finna svoleiðis er búin að kíkja í Útilíf, Intersport og gleraugna og sólgleraugnabúðir en ekkert fundið .

    Hvar á ég að fara til að kaupa svoleiðis??

    Svona svo ég get bent fólki á að fara þangað til að kaupa jólagjöf handa mér .

    Kv
    Snorri Freyr.





    14.12.2005 at 19:28 #531074
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Til hamingju með að fá bílinn aftur.

    En mér sínist þetta var þær plöntur, það er nóg að gera hjá löggunni á Selfossi þessa dagana.

    Kv
    Snorri Freyr





    14.12.2005 at 08:03 #535872
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Er verið að spá í að fá sér jeppa með grind???

    Kv
    Snorri Freyr





    12.12.2005 at 11:18 #196845
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Sæll öll.

    Ég er með smá hugmynd um þessa síðu til að bæta hana og hún er sú að setja hér á síðuna uppl um skála á hálendinu þ.e.a.s hvað þeir heita, hvar þeir eru og þá staðsetningu á gps og við hverja maður þarf að tala við til að fá þá leigða.

    Þessi hugmynd kviknaði vegna þess að ég og fleiri erum hugsum að fara uppá hálendið yfir áramótin en erum frekar hugmyndasnauðir hvaða skála við eigum að fara í og þá við hverja maður á að tala.

    Var verið að benda mér á skála sem heitir ef ég man rétt Ingólfsskáli, en annars eru ábendingar vel þegnar , vegna þess að ég þekki ekki nöfn eða staðsetningu á svo mörgum skálum á norðanverðu hálendinu eð þá hver er með þá á sínum snærum.

    Ferðaplanið er þetta keyra eftir vinnu á föstudeginum norður í Skagafjörð og ná þar í eina manneskju fara þaðan uppá hálendið, vorum að hugsa um Kellingarfjöll eða Fremstaver en það finnst mér full löng keyrsla svona að kvöldi til og nótti.

    Kv
    Snorri Freyr





    10.12.2005 at 16:48 #196834
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Er einhver sem getur sagt hvað H 78×15 dekk er stór í tommum.

    Málið er að bíllinn minn er skráður á þessi dekk en er og hefur víst verið lengi á 38″ og hefur verið skoðaður á þeim en svo fór ég með hann í skoðun um daginn og þá var sett útá þetta og er ég ekki par sáttur með það að þurfa að standa í því að fá mér hraðamælavottorð og þess háttar þar sem bíllinn er breytingaskoðaður.

    Sá dekk á bílskúrssölunni hjá Benna áðan sem voru Q78x15 og voru þau svipuð og 36″.

    Kv
    Snorri Freyr





    10.12.2005 at 16:37 #535486
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Takk fyrir þetta Kalli.

    Þetta er original vélin þ.e.a.s. iðnaðarútgáfan einu munurinn á scout vélinni og patrol vélinni er víst olíuverkið það er komið bílaverk í patrolinn en hitt er gert til að vera á sama snuning eins og t.d ljósavélar 😀

    Ég er sennilega búin að finna mér bílaverk og ætla að setja það á hann og sjá hvað gerist.

    Kv
    Snorri Freyr





    10.12.2005 at 00:55 #535476
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Ég þakka svörin þetta voru fleiri en ég hefði þorað að vona!!!!

    Sko ég er með 3" púst alveg frá túrbínu og aftúr úr en það er ENGINN hljóðkútur undir bílnum.

    Hann er ekki með intecooler og hann er heldur ekki að reykja neitt, það hef ég ekki séð áður á dísel jeppa en það er önnur saga.

    Ég veit reyndar ekki hvað túrbínan er að blása.

    Eina mér finnst hann heldur latur en hann heldur ferð mun meira en hiluxinn sem ég átti gerði(100 á malbiki í mótvind), ég er ekki með það á hreinu heldur hvað hlutföll eru í bílnum.

    Kv
    Snorri Freyr

    Ps hvað varð eiginlega um Jakan(spyr sá sem ekki veit)





    09.12.2005 at 13:55 #196823
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Ég er með Scout Traveller öðru nafni Skátahöfðinginn og hann er með 3,3 l nissan dísel turbó sem er nú ekki sú sprækasta á markaðinum.
    Málið er að ég ætla að gera hann upp í sumar taka allt ryð í gegn og geri hann flottan og hef verið að velta því fyrir mér að setja aflmeiri vél í bílinn, en ég veit ekki hvað vél ég á að fá mér, þ.e.a.s bensín eða díselvél og þá hvaða vélar.

    Sumir segja að ég eigi að halda þessari sem er í aðrir segja setja 350 sumir 6,2 disel eða þá 6,5 dísel eða svo hef ég verið að horfa á big block vélar.

    Hvernig er t.d big block að koma út í eyðslu? Einn maður sagði mér að 44″ blazerinn sinn eyddi minna en 38″ hilux á fjöllum, annar sagðiað með 6,2 þá fer hann hraðar yfir en eyðslan verður þeim mun meiri, ég veit um chevy van 3500 á 38″ sem er með 6,5 og hefur hann verið að fara með um 50 l á hundraðið á þjóðvegi.

    Allar hugmyndir, fróðleikur, ráðleggingar eða reynslusögur eru vel þegnar.

    Kv
    Snorri Freyr.





    07.12.2005 at 14:35 #535242
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Ég vissi ekki að geitur hefðu fjaðrir en jæja maður veit aldrei, aldrei að segja aldrei!!!

    Kv
    Snorri Freyr 😀





    07.12.2005 at 13:38 #535224
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Ég hef heyrt af nokkrum sem hafa verið stoppaðir en ég veit ekki nákvæmlega hvað var gert, hef heyrt að þeir sem eru stoppaðir er boðið að dæla af tanknum og setja "rétta,, olíu í staðin og málið dautt.

    Ég veit fyrir víst að það er einn maður búinn að finna út hverju maður þarf að blanda í olíuna til að ná litnum úr en skiljanlega er hann ófáanlegur til að segja hvaða efni það er.

    Kv
    Snorri Freyr





    05.12.2005 at 19:22 #196788
    Profile photo of Snorri Freyr Ásgeirsson
    Snorri Freyr Ásgeirsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 486

    Ég fann þetta á netinu og fannst þetta alveg vera frábærar útskýringar á markaðsfræði 😀

    Skýring á „Markaðssetningu.“

    Fólk biður oft um útskýringu á „markaðssetningu.“ Jæja hér kemur hún:

    *Þú ert kona og sérð flottann mann í partýi. Þú ferð upp að honum og segir, „Ég er frábær í rúminu.“ þETTA ER BEIN MARKASSETNING.

    *Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottann mann. Einn af vinum þínum fer upp að honum, bendir á þig og segir, „hún er frábær í rúminu.“ þETTA ER AUGLÝSING.

    *Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Þú labbar upp að honum, færð símanúmerið hans, hringir í hann daginn eftir og segir, „Hæ, ég er frábær í rúminu.“ þETTA ER SÍMAMARKASSETNING.

    *Þú ert í partýi og sérð flottann mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp að honum og réttir honum glasið þitt og segir við hann, „Fyrirgefðu, má ég?“ Lagar bindið hans, nuddar brjóstunum létt utan í hann og segir, „Ó á meðan ég man, ég er frábær í rúminu.“þETTA ER ALMANNATENGSL.

    *Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann labbar upp að þér og segir,“Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu.“ þETTA ER ÞEKKT VÖRUMERKI.

    *Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann langar í þig en þú færð hann til að fara heim með vinkonu þinni. þETTA ER SÖLUORÐSPOR.

    *Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig. þETTA ER TÆKNIAÐSTOÐ.

    *Þú ert á leið í partý þegar þú uppgvötar að það gætu verið flottir menn í öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá. Svo þú klifrar upp á þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og öskrar úr þér lungun, „Ég er frábær í rúminu.“ þETTA ER RUSLPÓSTUR.

    *Þú ert í partýi, þessi vel byggði massaði maður kemur til þín, káfar á brjóstunum á þér og klípur í rassinn. þETTA ER ARNOLD SCHWARZENEGGER.

    *Þér finnst það gott, en 20 árum seinna ákveður lögfræðingurinn þinn að þetta hafi verið kynferðisleg áreitni og undirbýr lögsókn. ÞETTA ERU BANDARÍKIN

    Kv
    Snorri Freyr
    Ps
    Vona að engin verði fúll 😀 og einni glangar mig að vita hvort fólk er hrirfið af því að fá við og við brandar hér inn á spjallið 😀





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 320 total)
← 1 … 7 8 9 … 16 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.