Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.05.2007 at 12:32 #590106
Hann er á 36" DC dekkjum ekkert spes dekkjum s.s. Það er ekkert slag að finna á framhjólalegum. Hann lekur reyndar með liðhúsunum. Turnarnir virðast ekki vera háir á hásingunum en mætt vera styttri á grindinni.
Kv
Snorri Freyr
01.05.2007 at 10:50 #200239Ég er með hilux sem er vægast sagt leiðinlegur í stýri. Þegar maður er að keyra þá allt í einu tekur hann uppá því að vilja beygja. Maður heldur stýrinu þannig að það beygir smá til vinstri og það er allt í lagi, í smá stund, þegar allt í einu hann beygjir til vinstri og það snögglega. Svo réttir maður styrið við ok keyrir beint í smá stund, þá beyjir hann til hægri. Svo byrjar þetta allt aftur.
Það er stýristjakkur undir honum.
Getur millirennsli í tjakknum orsakað svona?Kv
Snorri Freyr
01.05.2007 at 10:45 #589934Ég er ekkert að finna að þessu en ég spyr AF HVERJU leggur stjórninn til þessa hækkun?
Er það vegna þess að félagsgjaldið hefur verið óbreytt í 2 ár?
Er það vegna þess að það er orðið svo dýrt að reka VHF kerfið?
Er það vegna þess að það er orðið of dýrt að reka skálana?
Kv
Snorri Freyr
30.04.2007 at 19:38 #200235Ég var að lesa Setrið yfir hádegismatnum áðan og staldraði aðeins við smá texta. Tillaga stjórnar um að hækka félagsgjaldið í 6000.
Nú spyr ég afhverju?
Og svona til að minna á það, hvað er maður að fá fyrir félagsgjöldin?
Kv
Snorri Freyr
25.04.2007 at 18:36 #589396Hvað með að setja intercomm í runner???
Nei svona að öllu gamni slepptu þá eru til tjörueingarunarlímborðar sem við pípararnir notum undir baðkör. Ég mæli með þeim.Kv
Snorri
13.04.2007 at 08:49 #587830Nú fá björgunarsveitirnar að aka um á litaðri olíu og ekkert um það að segja nema frábært. En þrátt fyrir það eru sumar sveitirnar að kaupa Tacoma eða Tundra og eru þær með bensínvél. Það var t.d ein sveit hér í nágrenni við höfuðborgarsvæðið að kaupa Tundru og lét breyta henni á 44". Munurinn á verði olíunnar og bensins er mun meiri fyrir björgunarsveitirnar en okkur hin. Einhver hlýtur ásæða þess að vera.
Kv
Snorri Freyr
12.04.2007 at 18:21 #200117Er einhver sem getur komið með tölu í efniskostnað við að breyta Land cruiser 90 á 38″.
Kv
Snorri Freyr
12.04.2007 at 12:39 #587778Eins og ég tók fram þá er ég ekki að pæla í stóru díselvélunum því að bílar með þannig mótor eru of dýrir fyrir mig.
Það sem ég er að horfa á er t.d hilx 2,4 tdi eða blazer S10 með Vortec 4,6(tók hann sem dæmi því að það er einna augl hér á síðunni) Svipað stórir bílar annar aflaus og eyðir um 15-18L hin aflmikil (miðað við 2,4 TDI)og eyðir um 20L. Það er þetta sem ég á við.
Kv
Snorri Freyr
12.04.2007 at 11:08 #200114Þar sem disel er nú í sumum tilfellum dýrari en bensín þá fór ég að velta því fyrir mér hvort það sé orðið eins eftirsóknarvert að vera á dísel bíl eins og það var hér einu sinni.
Ég veit það að dísel eyðir kannski aðeins minna en á móti kemur að þú færð mikið meira afl útúr bensín mótor og kannski ekki svo mikla eyðslu i viðbót. Ég átti einu sinni Hilux DC með 2,4 TDI hann eyddi um 15-18 l innabæjar mesta eyðsla sem´ég varð vitni af er rúmir 100 l í dagsferð, keyrðum upp Gjábakkaveg svo í áttina að Hlöðufelli og svo áfram í átt að Kjalvegi og svo þegar þangað var komið þá var keyrt sem leið lá í bæin. Í þessari ferð var ég með mestu eyðsluna og lang síðastur. Það var þarna með 8 gata villis sem keyrði um eins og hann væri vélsleði og hann var með minni eyðslu heldur ein ég.
( í þessum pælingum mínum þá er ég ekki að hugsa um vélarnar í stóru vörubílunum þ.e.a.s Fordunum).Hvaða skoðun hafið þið á þessu?
Er þetta vitlaus hugsun og er ég kannski að reyna að réttlæta það fyrir sjálfum mér að fa mér bensín jeppa eða er eitthvað til í þessu
Bensín og disel kveðjur
Snorri Freyr(hin óákveðni)
05.04.2007 at 10:50 #200075Er einhver sem getur sagt mér hvað kostar að skipta um legur i Izuzu gírkassa með efni og vinnu.
Kv
Snorri Freyr
28.02.2007 at 21:02 #582148Boddýið er illa farið á nokkrum stöðum sem utheimta að skips sé um þá. Svo er alltaf spurnig hvað á að ganga langt í þessu(skynsemin talar hér). Nýjir boddyhlutir kosta um 60.000. kr þá á eftir að sprauta bílinn.
Kv
Snorri
24.02.2007 at 17:49 #582016Hjálaprsveitinn í garðabæ er með einn slíkan og undir honum er víst framköggul sem er svipaður af stærð og aftur köggul úr 80 bílnum. Svin virkar skilst mér.
Kv
Snorri Freyr
24.02.2007 at 17:46 #199783Nú er ég hugsum að skipta um boddy á Scoutinum mínum, ákvað það eftir nánari ath að skoða það mál aðeins betur eftir að vera búinn að liggja undir mínum bíl og sá að boddy ið er frekar illa farið. Hvernig er að setja nytt boddy á Scout grindina?
Er eitthvað boddy sem passar beint á boddy festingarnar sem eru fyrir? Hvernig er með rafmagn er svoleiðis er gert, er það mikið mál að breyta því?Endilega vill ég heyra frá þeim sem kannast við málið. Ég veit að Heiðar er með bílinn sinn þannig.
Kv
Snorri Freyr
20.01.2007 at 08:49 #576432Þar sem ég er ný vaknaður og fattarinn ekki farinn í gang vill einhver útskýra fyrir mér fyrir hvað við eiguð að fara að borga svona mikið og á þetta þá líka við aðildareiningar í Landsbjörg?
KV
Snorri fattlausi??
29.12.2006 at 21:33 #572872Því miður er ekki hægt að bannað einkaaðilum að selja flugelda því að í landinu eru samkeppnislög sem leyfa samkeppni á öllum sviðum.
Mér fynnst augl sem birtist í (minnir mig) morgunblaðinu og stendur stórum stöfuð. HVAÐ GERIR ÞINN FLUGELDASALI FYRIR ÞIG? Vera mjög góð og segir allt sem segja þarf.
Flugelda kveðjur
Snorri Freyr
16.12.2006 at 17:49 #571722eru sem sagt sunnudagsökusauðir og ekkert annað.
Endilega reyna að komast að hverjir þetta eru og svo á að kæra svona menn.Kv
Snorri Freyr
26.10.2006 at 17:56 #565392Ég lenti í því með Scout inn minn að þegar ég fór með hann í skoðun þá var mér sagt að hann væri ekki skráður á 38" dekkjum og fékk því endurskoðun. Málið er bara að hann er búinn að vera á 38" í enhver ár þannig að nú spyr ég hver ber ábyrgðina ég eða skoðunarstöðin??
Þeir sem eru að breyta 38" bílum í 44", eins og í þessu dæmi hér að ofan, og fara með hann í skoðun og það er ekki sett útá það ættu að sjálfsögðu að lát vita ef skoðunarmaðurinn er ekki að sinna sinni vinnu því að henn er ekki að gera neinum greiða með því að spara ykkur 8000 kr sem breytingarskoðunin kostar.Kv
Snorri Freyr
25.10.2006 at 12:53 #564934Vill ég senda fjölskyldu, vinum og vinnufélögum hans mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Guð veri með ykkur.Snorri Freyr
15.10.2006 at 13:37 #563448Hér er [url=http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4284347/2:193g2dok][b:193g2dok]myndbandið[/b:193g2dok][/url:193g2dok]
Kv
Snorri Freyr
24.09.2006 at 17:43 #561182Það er ekkert í gangi hjá mér, ég er bara að forvitnast fyrr aðila sem ég þekki .
En er hægt að setja læsingar í þetta og hverjar þá og er hægt að setja milligír(lóló) í hann?
Kv
Snorri Freyr
-
AuthorReplies