Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.01.2009 at 22:08 #635960
Já, fallegur er hann enda horfði ég á hann út um eldhúsgluggann til tvítugs
01.01.2009 at 18:13 #635956Gleðilegt ár félagar
Átti þessi mynd nokkuð að vera af Öxarárfossi?
Kveðja
Snjókallinn
28.12.2008 at 13:50 #203421Sælir félagar
Kaupfélagið var að panta ljós fyrir jólin. Þar á meðal voru leitarljós sem gaman væri að sjá. Ef einhver sem fékk sér leitarljós væri til í að leyfa mér að sjá herlegheitin væri það vel þegið. Mér skilst reyndar að það hafi staðið tæpt hvort hægt væri að leysa ljósin út fyrir hátíðarnar.
Jólakveðja
Snjókallinn
14.04.2008 at 13:57 #620386Sælir Ægir og Agnar
Fóruð þið Vatnsfell-Jökulheimar að jökli og ef svo er var þá ekki rennifæri í Jökulheima?
Kveðja
Snjókallinn
13.04.2008 at 00:33 #620344Takk fyrir þetta Skúli
Kveðja
Snjókallinn
11.04.2008 at 00:13 #202293Sælir félagar
Búið þið svo vel að eiga til track af Breiðbak og nágrenni? Ég hef bara farið þetta að sumarlagi, er kannski reynt að fylgja slóða að vetri til? Er eitthvað sérstakt sem þarf að varast á þessari leið? Ekki fleiri spurningar í biliAllavega væri vel þegið ef þið getuð sent mér track af þessu svæði.
Kveðja
Snjókallinn
bjv@simnet.is
22.03.2008 at 02:16 #618214Sælir
Við vorum á ferðinni á [url=http://his.origo.is/tripdefault.asp?trippath=20080316eyjafjallajokull&title=Eyjafjallajökull,%2016.%20mars%202008][b:1o6y7tyu]Eyjafjallajökli[/b:1o6y7tyu][/url] um síðustu helgi og færið á jöklinum var frekar þungt, við fórum upp hjá Hamragörðum en fórum ekki alla leið upp. Eins og alltaf er færið fljótt að breytast svo það gæti verið orðið betra núna.
Kveðja
Snjókallinn
21.03.2008 at 00:38 #618114Súper takk
Snjókallinn
20.03.2008 at 20:34 #61811011.03.2008 at 21:00 #605506Sælir félagar
Mér skilst á Tryggva að það eigi ekki að vera seðilgjald á reikningsyfirlitinu (sjá póst 4.des 12:45). Var að fá mitt fyrsta yfirlit eftir að hafa notað viðskiptakortið (hef alltaf notað gráa kortið fram að þessu með góðum árangri) og þá rak ég augun í útskriftargjald 340 kr. Þar sem þetta var óvenjulítið af eldsneyti sem ég tók þá kom þetta frekar illa út þar sem ég var þá að borga meira fyrir líterinn heldur en fulla verðið (sem ég hef reyndar hvergi séð á neinni bensínstöðinni).
Hvernig er það, hafið þið verið að fá útskriftargjald á ykkar yfirlitum?Kveðja
Snjókallinn
04.03.2008 at 21:01 #616134Ég er með.
Kveðja
Bjarki
R-2630
16.02.2008 at 00:11 #614270Sælir
Ég held að Sigurður hljóti að vera að rugla saman fyrirtækjum. Ég hef alltaf fengið afbragðsgóða þjónustu hjá RadíóRaf, mæli með þeim.
Kveðja
Snjókallinn
14.02.2008 at 21:11 #614174Sæll Hlynur
Varstu að skoða myndir af Tacomu á f4x4.is? Í hvaða albúmi var það?Kveðja
Snjókallinn
14.02.2008 at 01:07 #614166Sammála síðasta ræðumanni, það er mun skemmtilegra að hafa smá texta með myndunum.
Svo er líka stundum allt í lagi að velja hvaða myndir eru settar inn t.d. er oftast óþarfi að setja inn fleiri enn eina mynd af sama myndefninu frá sama sjónarhorni.
Flestir eru hættir að setja inn myndir sem ekki eru í "fókus" sem er af
hinu góða.
Sorry tuðiðKveðja
Snjókallinn
22.01.2008 at 19:29 #610766Ég mæti
Kveðja
Bjarki
12.01.2008 at 00:19 #609060nRoute skilur ekki .gdb version 3 format sem MapSource vistar default í. Þú verður að vista í .gdb version 2 til að geta importað í nRoute (á a.m.k. við útgáfur sem fylgja með nýjustu útgáfu að Íslandskortunum). .gdb format er betra en .gpx format að því leiti að skrár verða minni og hraðvirkara er að vinna með þær. Hins vegar er .gpx format á ‘mannamáli’.
Kveðja
Snjókallinn
09.01.2008 at 00:30 #609578Takk fyrir Tryggvi að setja fundargerð á netið. Flott að geta fylgst með ef maður kemst ekki á fundinn.
Kveðja
Snjókallinn
05.01.2008 at 22:21 #609044Er ekki málið að ekki er hægt að nota MapSource til að taka við staðsetningu frá GPS tæki. Það er eingöngu hægt að nota MapSource til að sækja gögn af GPS tæki (trök, punkta, kort og fl.) eða setja inn á það gögn. Það var hægt að fá staðsetningu inn í MapSource frá GPS tæki með eldri útgáfu, nú er einungis hægt að nota nRoute til að móttaka staðsetningu frá GPS tæki.
Kveðja
Snjókallinn
20.12.2007 at 23:03 #581478Takk fyrir þetta Benni.
Jú, kannast við Trausta fyrir og eftir Tacomavæðinu :-), ég skoða málið.
Kveðja
Snjókallinn
20.12.2007 at 20:42 #581474Sæll Benni
Áttu mynd af leitarljósinu og er þetta til með segulfæti? Hvað er verðið á þessum ljósum?
Kveðja
Snjókallinn
-
AuthorReplies