FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Smári Sigurbjörnsson

Smári Sigurbjörnsson

Profile picture of Smári Sigurbjörnsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 12 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 183 total)
← 1 … 4 5 6 … 10 →
  • Author
    Replies
  • 31.07.2007 at 23:47 #594248
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Benni.

    Ég mæli með að þú fáir þér AT gormana að aftan líka, ég er búinn vera mikið á svona Cruiser björgunarsveitarbíl síðustu níu árin og það virðist vera alveg sama hvað maður hleður hann mikið, alltaf virðist fjöðrunin hegða sér eins, og hann sígur mjög lítið við hleðslu.
    Við erum með original demparana með þessum gormum og líkar vel.

    Kv. Smári.





    30.05.2007 at 22:19 #591786
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Húsasmiðjan er að leigja svona kerrur fyrir lítinn pening.

    Kv. Smári.





    12.04.2007 at 07:35 #587650
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Þetta er nú alveg öfugt hjá þér Kristinn, því þetta er Toyota hásing sem búið er að menga með Dana 50 drifi að ég held.

    Gaman að sjá að hann er loksins farinn að standa í hjólin, þá getur maður vonandi farið að bjóða Víkverjum í pissukeppni.

    Kv. Smári.





    25.03.2007 at 07:51 #585200
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Einhversstaðar sá ég gefið upp um 200 hestöfl og 400Nm sem mér finnst nú að hefði mátt vera meira.
    Þessi vél kemur einnig í Landcruiser 200 á næsta ári og þá sem twin turbo og er gefin upp 300 hestöfl og 650Nm sem mér finnst nú miklu áhugaverðara.

    Kv. Smári.





    24.03.2007 at 20:08 #585196
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Nú er einmitt að koma á markað "nýr" 70 Cruiser og þar er einmitt þessi 5 dyra útgáfa í boði.
    Einnig kemur ný 4,5 V8 dísel vél sem uppfyllir Euro IV kröfurnar og vona ég því að hann verði í boði í Evrópu.
    Það má svo deila um hvort breytingin á framendanum hafi verið til bóta.

    [url=http://www.landcruiserclub.co.za/cms/index.php?name=News&file=print&sid=104:yd0ob9mw][b:yd0ob9mw]Myndir[/b:yd0ob9mw][/url:yd0ob9mw] hér.

    Kv. Smári.





    06.03.2007 at 10:44 #583398
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sunnlendingar hvað?

    Erum að prófa þessi dekk undir Patrol björgunarsveitarbíl og líkar ágætlega enn sem komið er. Hafa verið að virka vel í krapanum á meðan þau ná niður úr honum þar sem þau hafa mjög gott grip. Vantar enn alvöru reynslu á hversu gott flot er í þeim en okkur finnst vanta meiri belg á þau.
    Þau eru leiðinleg í hliðarhalla þar sem þau eru há og mjó og leggjast því undan hallanum sem veldur því að bíllinn skríður mikið undan hallanum og erfitt er að ráða við hann.
    Erum með dekkin á 15" breiðum felgum og held ég að þau þoli ekki breiðara þar þar sem vantar alveg belginn, til samanburðar erum við með Landcruiser á 38" og 16" breiðar felgur en þau dekk þola alveg breiðara.
    Dekkin virðast vera laus á felgum en það er hægt að laga með völsun á felgum.

    Kv. Smári sem býr sunnarlega á Suðurlandinu.





    04.03.2007 at 22:53 #583038
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Ég hef alltaf fengið afsláttinn orða laust hjá Frumherja á alla mína bíla, sama hvort það eru Corollur, breyttir eða óbreyttir jeppar. Held að þarna sé um eitthvað einstaklings framtak hjá starfsmanni um að ræða, bara kvarta til Frumherja.

    Kv. Smári.





    04.03.2007 at 22:42 #583264
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Stefán.

    Miðað við óbreyttann bíl þá er hann að eyða 13 og upp úr, fer allt eftir akstri.
    Vélin er bara skemmtileg og vinnur átakalaust og er mjög hljóðlát í öllum venjulegum akstri.
    Er reyndar með 4runner með þessari vél og er mjög sáttur við hana, miklu skemmtilegri en gamla 3.0.

    Kv. Smári





    03.03.2007 at 13:57 #583176
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Atli.

    Þetta er Sonax Hiluxinn sem breytt var fyrir all mörgum árum.
    Það er grein um hann í tímaritinu 3T í maí ´92 þannig að þetta er sennilega einn fyrsti 44" Double Cabinn.
    Gaman að gramsa í þessum gömlu bílablöðum.

    Kv. Smári.





    07.02.2007 at 13:37 #579434
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Hjölli.

    Það er nú yfirleitt notaður þunnur svampur í svona æfingar.
    Þá er bara sprautað kontakt lími á flötinn sem á að klæða og svo einnig á svampinn og hann svo límdur í, sama aðferð er svo notuð á klæðningar efnið, lími sprautað á svampinn og svo á klæðninguna og svo límt upp. Bara vanda sig til að forðast krumpur.

    Kv. Smári.





    16.01.2007 at 23:59 #575952
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Þar sem Gamli Rauður er orðinn tuttugu og fimm ára og vel það taldi ég sjálfsagt að ég fengi á hann fornbílatryggingu en það var nú öðru nær.
    Bifreiðagjöldin féllu sjálfkrafa niður en tryggingafélagið ætlaði ekki að gefa sig þar sem bíllinn væri breyttur.
    Þetta þóttu mér léleg rök þar sem Íslendingar breyttu nánast hverjum einasta bíl sem fluttur var til landsins frá því byrjað var að flytja bíla inn 1904 og langt fram eftir 20. öldinni og minn bíll væri alveg ómetanlegur hluti af bílasögu Íslendinga alveg eins og hinir. Fyrir rest gaf tryggingafélagið sig og fékk ég á hann fornbílatryggingu sem munar miklu.

    Kv. Smári.





    07.01.2007 at 17:11 #574156
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Eyðslan hefur verið frá 13,5 í langkeyrslu og upp í 18 í snattinu. Sá svona árg. 2000 auglýstan á 1.780.000 um daginn, en gangverð á svona er ekki til þar sem þetta hefur ekki verið neitt á markaðnum hér.
    Kv. Smári.





    07.01.2007 at 08:41 #574152
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Það eru nokkrir svona til á landinu og á ég tvo af þeim. Annar þeirra er reyndar ónýtur eftir tjón.
    Það er sami undirvagn og í Lc 90 þannig að það á ekki að vera neitt mál að breyta þeim, var reyndar byrjaður að breyta mínum en það hefur ekki gefist tími til að klára það.
    Þetta eru skemmtilegir bílar og 3.4 vélin vinnur mikið betur en gamla 3.0 vélin sem var í gömlu bílunum.

    Getur séð myndir í albúminu hjá mér þar sem ég hef ekki lag á að setja inn myndir.
    Kv. Smári.





    23.12.2006 at 21:27 #572382
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Kári.

    Erum að brasa við að koma fyrir tökkum í nýja skrjóðinn okkar á Hvols og enduðum á því að rífa sólgleraugna hólfið úr toppnum og ætlum að koma tökkunum fyrir þar.
    Einnig er ágætt pláss fyrir framan gírstöngina líka.
    Þú getur bara rennt til okkar og fengið að skoða.

    Kv. Smári.





    05.12.2006 at 23:31 #570348
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll aftur Trausti.

    Ég hef nú svo sem enga reynslu af klafa Hilux en held að þeir hafi svo sem reynst ágætlega þó sjálfur vilji ég ekki svoleiðis búnað í jeppa.

    En það er alveg öruggt að legunum þarft þú ekki að hafa áhyggjur af, því framhjólalegurnar eru þær sömu og í 80 Cruiser, en það er lengra á milli þeirra heldur en í Cruisernum og því er þetta sterkara í Hiluxnum.

    Ég er búinn að aka Hiluxnum mínum á 15" breiðum felgum síðan ´92 og Patrolum og Landcruiser á 15,5" síðan ´94 án þess að verða var við alla þessa galla sem menn eru að tala um, en allt hafa þetta verið hásingabílar.

    Mér finnst nú Eik hljóma eins og þeir sem sögðu hér í den að engin drifrás ætii eftir að standast Lappadekk, en ég efa samt ekki að hann hefur rétt fyrir sér eins og alltaf.

    Ég held þú verðir ekki fyrir vonbrigðum með Mudder á 16".

    Kv. Smári.





    05.12.2006 at 08:03 #570332
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Trausti.

    Þér er alveg óhætt dekkjanna vegna að fara í 16".
    Þetta er meira spurning um hvort það er pláss í hjólskálum að framan þar sem dekk á svona breiðum felgum þurfa meira pláss.

    Ég er búinn að vera á 15" breiðum felgum í 15 ár og aka mjög mikið bíl á 15,5" felgum og ef ég væri að breikka felgur fyrir mig í dag færi ég í að minnsta kosti 16".
    Bíllinn verður ekkert leiðinlegri í akstri nema ef það er mikið slabb á veginum þá rífur meira í stýrið.
    Hef ekki orðið var við að dekkin rifni neitt frekar og ég held því fram að þau affelgist síður.

    Stærsti kosturinn við svona breiðar felgur er að bílinn verður mikið viðráðanlegri í halla þar sem dekkin bera sig mikið betur með lítið loft.
    Það sem ég hef verið að fara í 2 pundum án vandræða hafa bílar á t.d. 12" verið að basla í 4 pundum þar sem dekkin hafa verið farin að vöðlast inn undir bílinn.

    Kv. Smári.





    10.10.2006 at 17:38 #563010
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll.

    Veit ekki annað en það sé alveg sama kram í þessum bílum.

    Kv. Smári.





    15.08.2006 at 12:10 #557848
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Samkvæmt heimasíðu Nissan í Ástralíu er hann að skila 155 hestöflum og 360Nm í tog.

    Kv. Smári





    31.05.2006 at 08:51 #553434
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Daginn.

    Mér hefur alltaf þótt það svolítið skrítið að í hvert sinn sem sem eitthvað gerist, koma fram menn eins og eik og vilja banna allt sem er hugsanlega hættulegt. Hann yrði líklega fyrstur til að leggja það til að Jeep Cherokee yrði bannaður ef hann fengi svoleiðis bíl í andlitið. Ég held það væri lítið gaman að vera til ef það væri bannað að ganga á Hvannadalshnjúk af því þú gætir lent í snjóflóði, eða bannað að aka í Setrið af því þú gætir keyrt fram af hengju, bannað að fá sér bjór af því þér gæti dottið í hug að fara að keyra og keyrt á ljósastaur, bannað að ausa úr viskubrunnum sínum á f4x4 af því að eik gæti vitað betur og svo fram vegis.

    Ég held að stæstur hluti slysa vegna flugelda sé vegna rangrar meðhöndlunar og sama gildir í umferðinni, þar verða flest slysin vegna rangrar meðhöndlunar ökutækja.

    Kv. Smári.





    24.04.2006 at 09:51 #549958
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Sveinn.

    Þessi Cruiser sem ég vigktaði er Standard bíll sem er ansi hrár og held ég að það sé óhætt að bæta við 150kg ef miðað er við VX bíl.
    En varðandi drifgetu þá drífur þessi bíll helling á 38" og hef ég oft verið undrandi á hversu duglegur hann er þar sem björgunarsveitarbílar eru oft vel lestaðir af mannskap og búnaði og hefur mig oft langað að fara með bílinn á vigt full lestaðan, kæmi mér ekki á óvart þó hann slagaði langt í 4 tonnin.
    Ég held að það sem plagar flesta 38" bílana er að það vantar í þá milligír og eftir er að færa afturhásinguna auk þess sem margir þeirra eru lágir undir kvið.

    Kv. Smári.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 183 total)
← 1 … 4 5 6 … 10 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.