FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Kristján K. Kolbeinsson

Kristján K. Kolbeinsson

Profile picture of Kristján K. Kolbeinsson
Virkur síðast fyrir 9 years síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 103 total)
← 1 … 3 4 5 6 →
  • Author
    Replies
  • 14.10.2011 at 14:54 #220805
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Ég hef undanfarið verið að koma gömlum videóum sem ég hef fengið héðan og þaðan á tölvutæktform.
    Ég er búinn að vera klippa þetta til og setja á youtube svo fleiri geti notið þeirra.

    Hérna er slóðin inná þau, http://www.youtube.com/user/icejeep73?feature=mhsn

    Vonandi kyndir þetta uppí ykkur fyrir komandi vetur





    30.03.2011 at 10:36 #218255
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Ég er búinn að setja slatt af myndum inná síðuna mína http://icejeep.com/album/thumbnails.php?album=lastup&cat=-8 frá sýningunni á laugardaginn.
    Þetta eru allt myndir sem ég fékk hjá Björgvini Ólafssyni á Ak. þar sem vélin mín varð batteríslaus :-(





    24.03.2011 at 13:46 #719246
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Er einhver möguleika að fá að mæta í matinn fyrir norðan ?

    Ég verð á Akureyri um helgina hafði jafnvel áhuga á að kíkja í matinn með ykkur ferðlöngunum.

    Kv. Kristján K. R98 http://www.icejeep.com





    30.04.2009 at 09:03 #646072
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Þetta kort gefur held ég raunhæfari mynd af því hvað er lokað og hvað er opið
    Ég er gefst upp að reyna að tengja þetta beint við.
    Hérna er slóðin.
    http://www.vegagerdin.is/view/common/me … iaTypeID=1





    16.03.2009 at 09:57 #643492
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Ástæðan fyrir þessum mikla verðmun á uppfærslum gæti verið sú að R Sigmundsson átti leyfin fyrir gömlu kortunum en eins og menn vita er þeir ekki lengur með umboðið fyrir Garmin.
    Þannig að nýju kort eru líklega eign Garmin á Ísland. Í því gæti munurinn legið annars veit ég ekkert um þetta mál bara svona hugdetta hjá mér :-)
    Annars hlítur að vera eðlileg skýring á þessu verði, ég er nú ekki vanur því að Rikki sé að svína á manni.





    16.01.2009 at 08:41 #547092
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Hérna er ein gömul festumynd frá árdögum vetrarferða.
    Þessi mynd er held ég tekin um páskana ´82, það eru örugglega margir búnir að sjá mynd af þessu atviki inn á smurstöð hjá Óla trukk en hann var eimitt farþegi í bílnum þegar þetta gerðist.
    Það er til góð grein um þetta atvik í bílablaðinu Bíllinn frá því ´84 eða ´85 eftir Snorra Ingimars, ég á þetta blað heima og er þó nokkuð oft búinn að lesa hana.
    Ég fann þessa mynd inn á http://www.snow.is

    Kv. Kristján K http://www.icejeep.com
    [img:3ucdnbp0]http://snow.is/administrator/components/com_n-gallery2/uploads/vara751.jpg[/img:3ucdnbp0]





    06.01.2009 at 08:36 #636200
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Það er linkur in á þessa umræði hérna fyrir ofan.
    Ég man ekki nákvæmlega hvernig bílinn skemmdist en hann valt held ég aftur fyrir sig og endaði á toppnum, þessi myndataka átti að vera eina af síðustu myndunum í þessari seríu sem Stöð2 var með af breytingunum á þessum Bronco.
    Ég man nú ekki alveg söguna alla, alla vega ekkert nákvæmar heldur en ég skrifaði þarna á torfæruspjallinu enda dálítið langt síðan ég fékk þessa sögu staðfesta en ég var búinn að heyra af þessu stuttu eftir að þetta gerðist.
    Það eru janfvel einhverir hér á vefnum sem að voru á staðnum þegar þetta gerðist, en ég kannaðist við þá sem gerðu við jeppan upp hjá ÁG.

    Kv.Kristján K http://www.icejeep.com





    04.01.2009 at 11:49 #636182
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Ég tók fram úr Pálmari upp á Hellisheiði núna í Nóvember þar sem hann var greinilega að fara með Bronco-inn í geymslu.
    En þetta með ryðið er satt ,hann er eiginlega alveg ónýtur úr ryði en kramið í þessum Bronco er mjög gott er þess vegna algjör óþarfi að henda bílnum bara kaupa nýtt boddý og skella því á grindina.

    Kv. Kristján K. http://www.icejeep.com





    28.11.2008 at 22:15 #633570
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Þetta er ekki gamli Scoutinn sem Ægir átti, Elvar sonur hans velti honum fyrir sunnan Setrið líklegast í kringum ´98. Hann smíðaði svo Travelerinn upp úr honum sem Elvar velti líka, en það var bara óheppni en það er lítið vitað um fyrri veltuna. Ég man vel eftir þessum Scout þegar Ægir var að vinna í honum á Smiðjuveginum við hliðina á gamla renniverkstæðinu, þar voru einnig hvíti Scoutinn sem Tóti fv. formaður átti og hvíti Scoutinn sem Grétar Bakari átti.

    Hérna er mynd af þeim Gráa tekið í Höllinni ´93

    [img:2wfdnteb]http://icejeep.com/album/albums/ymsar_myndir/4×4/normal_Scan10016.JPG[/img:2wfdnteb]





    10.11.2008 at 11:47 #632494
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Þetta eru flottar myndir.
    Ég er með heilan haug af gömlum jeppa myndum inn á heimasíðunni minni http://www.icejeep.com.
    Ég á reyndar eftir að setja hana betur upp, en það stendur til á næstunni.
    Ef þið eigið gamlar myndir sem þið viljið láta mig fá til að setja inn á síðuna mína þá meigið þið send mér póst á cj71977@gmail.com eða bara bjalla á mig.

    Kv. Kristján K R98 [url=http://http://icejeep.com/:3h9784ak]http://http://icejeep.com/[/url:3h9784ak]





    01.10.2008 at 08:17 #629826
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Það eru komnir vel yfir 100 bílar sem verða á sýningunni og ég get alveg staðfest það að það hefur ekki sést eins breið flóra af jeppum á sýningum klúbbsins í langan tíma, líklegast ekki síðan í Reiðhöllinni sælla minninga. Við ætlum ekki að upplýsa um alla jeppana sem við verðum með en einhverir jeppar verða þó auglýstir til að trekkja að. Svo er bara að koma að sjá herlegheitin 10 – 12 okt.

    Kv. Bílavalsnefnd





    23.08.2008 at 19:24 #620230
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Hún verður haldinn 10 – 12 okt í Fífunni.

    Kv. Kristján Kolbeinsson http://www.icejeep.com bilavalsnefnd@f4x4.is





    21.08.2008 at 18:59 #620204
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Þetta er sami bíllinn, hann skemmdist í veltu minnir mig í vetur og var þá farið í þessar breytingar held ég.
    Við í Bílavalsnefndinn erum núna að komast á fullt að velja bíla á sýningunna í haust og erum að byrja að fara tala við menn um að fá hjá þeim bíla á sýningunna en það er ennþá pláss fyrir fleiri tilnefningar þannig að endilega komið með fleiri tilnefningar, það verða vel á annað hundrað bílar félagsmanna sem við stefnum á að sýna.

    Kv. Kristján Kolbeinsson bilavalsnefnd@f4x4.is





    06.05.2008 at 14:35 #622482
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Það má vel vera að ég hafi verið full stórorður þegar ég skrifaði fyrirsögnina á þessum þræði sem umræðir og vera ekki búinn að kynna mér þetta mál með vísindalegum hætti öðrum en þeim sem ég hef heyrt frá jeppamönnum sem ég þekki. Ég verð að viðurkenna að mér datt bara engin betri fyrirsögn í hug, en ástæðan fyrir þessum skrifum mínum var sú að fá einhverja umræðu um þessi mál svona í vertíðarlok og fá menn almennt til að hugsa um þessi mál. Það er alveg rétt hjá þér Benni að ákveðnar ferðir á vegum klúbbsinns hafa haft þennan fyllerís stimpil á sér og eins er ákveðnir fjallaskálar frægir fyllerí eins og t.d. Landmannalaugar, þar voru jafn miklar líkur á að lenda á góði fylleríi eins og að fara á Gaug á Stöng. Allavega var það þannig þegar ég var mest að ferðast og það var helst ástæðan fyrir því að við ferðafélagarnir lögðum mjög sjaldan leið okkar þanngað eins og það er fallegt inni í Laugum á veturna. Ein af fjölmörgum ástæðum fyrir öllum þessum einkaskálum á hálendinu er sú að menn vildu fá frið fyrir drykkjurútunum eða fá að vera drykkjurútar í friði.
    Þessi umræða er þörf með reglulegu millibili.

    Kv. Kristján Kolbeinsson http://www.icejeep.com





    06.05.2008 at 13:02 #622478
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Sæll Benni þú ert væntanlega að tala um mín skrif á þeim þræði. Þó að ég hafi ekki gist á fjöllum í 7 ár þá þýðir það ekki að ég þekki engan sem hefur gist á fjöllum í 7 ár, þannig að ég er ekkert að apa bara eftir fréttamönnum og þetta er það sem ég hef heyrt. Ég þekki þig ekkert og hvar og hvernig þú ferðast enda fórst þú að verða virkur í klúbbnum eftir að ég tók mér pásu frá þessu klúbbastarfi og ferðalögum vegna breyttra aðstæðna og anna í vinnu. Það er bara gott og blessað að þú hafir bæði tíma og peninga til að standa í þessu eins og ég hef lesið hér á netinu og haft gaman af, enda dauð öfunda ég þig :-) enda fátt skemmtilegra en vera á fjöllum á veturna í góðu veðri. En í þessum pistli mínum þá var ég ekki dæma neinn ég var bara að benda á það hvað þetta hljómar illa í eyrum þeirra sem finna okkur allt til foráttu. Ég hef ferðast með mönnum sem hafa ekki kunnað með áfengi að fara og orðið sér til vandræða með ölvunarakstri á fjöllum, meðal annars fyrir 15 árum síðan þegar ónefndur bílamálari var næstum því búinn að keyra niður ljósavélaskúrinn á Hveravöllum og út á hverasvæðið um miðja nótt í júní, þannig að ég þekki þetta alveg, það voru teknar myndir af ummerkjunum eftir þá ökuferð en það var ákveðið að það myndi bara skemma fyrir okkur jeppamönnum þannig þetta var saltað til að þurfa ekki að standa einhverjum fjölmiðlasirkus(reyndar man ég ekki eftir því að þessi maður hafi komið með okkur aftur á fjöll). Það getur verið misjafnt hvað mönnum þykir mikil eða lítil drykkja en fyllerí og sóða skapur í fjallaskálum er bara alls ekki gott mál sama hvort það er mikið eða lítið um það. Menn eiga að getað farið í rekkju kl: 24 og fengið svefnfrið og farið á fætur kl: 8 og ferðbúist án þess að fá yfir sig svívirðingar frá fyllibittum næturinnar eða þurfa koma síðust bittunum í koju þegar maður fer á fætur eins og ég hef þurft að gera.

    Kv. Kristján Kolbeinnson http://www.icejeep.com





    03.05.2008 at 07:34 #622118
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Þegar ég byrjaði að ferðast á veturna að einhverju viti fyrir ca. 17 árum síðan, þá var svona fyllarí í fjallaskálum þekkt og í minni fyrstu vetrarferð inn á Hveravelli þá var sko aldeilis fengið sér í tána, en daginn eftir þegar átti að fara að leggja í hann þá var alveg snarvitlaust veður og ég með hausinn undir hendinni :-( ,pabbi keyrði reyndar bílinn en ég var skel þunnur. Á heimferðinni lentum við í að keyra í snarvitlaus veðri og fór vindhraðinn upp í 54m. sek. og þá var nú skemmtilegt að vera þunnur í farþegasætinu eða þannig :-( . Þarna í minni fyrstu alvöru vetrarferð sannreyndi ég það að fyllerí og vetrarferðir eiga EKKI samleið og liðu nokkur ár þangað til ég tók með mér nokkuð áfengiá fjöll, en í dag þykir mér gott að fá mér 1-2 bjór þegar í skála er komið eftir góðan dag. Þegar við ferðafélagarnir vorum sem mest að ferðast þó forðuðumst við það að gista á þekktum fyllerísskálum eins og Landmannlaugum og Hveravellum, en þegar við gistum á þessum stöðum þá vildi okkur til happs að einn af mínum helstu ferðafélögum er þekktur kraftakall og þorðu menn ekki annað en að fara í koju ef þeim tókst að pirra hann :-). En það er óþolandi að þurfa að rífast við fyllibittur í skálum til að fá svefnfrið það þekki ég sjálfur eftir að hafa verið í skálanefnd í 3 ár fyrir ca. 10 árum síðan. Ég man að þegar þeir sem voru að ferðast með okkur á þessum árum urðu uppvísir af svona hegðun þá voru þeir ekki velkomnir með okkur í ferðalög. Það er ljót að segja það en það eru kominn ca. 7 ár síðan ég svaf síðast í fjallaskála enda ekki búinn að vera mjög virkur í þessum jeppaferðum í ca. 7ár (enda þekki ég ekki nema brot af þessum mönnum sem hér skrifa á þennan vef) og ég hélt satt best að segja að umgengninn af hefði batnað en svo les ég það trekk í trekk hérna á vefnum að umgengni og virðing fyrir eigum annara sé orðin engin til fjalla.

    Kv. Kristján Kolbeinsson http://www.icejeep.com





    03.05.2008 at 06:50 #202396
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Ekki get ég sagt að ég hafi verið mjög glaður í morgun þegar ég var að leggja á stað í vinnunna og náðin í Moggan. Á forsíðu Moggans er talað um ölvunarakstur jeppamanna inni í Landmannlaugum fyrir hálfum mánuðu síðan þar sem einhverjir menn keyrðu jeppa á eitt húsið þar og skemmdu mikið, léti sig svo hverfa með hálfónýtan bíl og tilkynntu engum hjá Ferðafélaginnu þetta. Núna hefst aftur þetta PR. dæmi að reyna sannfæra almúgann um að við séum ekki öll fyllibittur upp til hóp asem hugsum bara um það eitt að detta í það þegar þjóðvegi sleppi. Þessi umræða fer alltaf reglulega á stað og miðað við lýsingarnar á umgengni í fjallaskálum í vetur þá sýnist mér við verða að fara á stað með stóra áróðurherferð um umgengni og virðingu fyrir hálendinu og skálum sem þar eru. Við megum ekki við því að nokkrar „fyllibittur“ eyðileggi ímynd okkar jeppamanna, nóg er nú erfitt að berjast fyrir ferða- og breytingarfrelsinu okkar.

    Kv. Kristján Kolbeinsson http://www.icejeep.com





    03.05.2008 at 06:31 #622000
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Takk fyrir það strákar. Á þess að ætla að stela þessum þræði undir síðuna mína þá er ég búin að vinna með þessa síðu síðan í lok nóvember en hef ekkert verið að auglýsa hana neitt sérstaklega meðal annars vegna þess að ég á eftir laga uppsetninguna á henni en þegar sú vinna er búinn þá mun ég auglýsa síðuna meira. En það er alltaf gaman að fá hrós fyrir síðuna það sýnir bara að maður er á réttri leið.

    Kv. Kristján Kolbeinsson http://www.icejeep.com





    02.05.2008 at 17:18 #621992
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Ég held að þetta sé ekki rétt hjá þér með upphaflegu breiddina Gummi án þessa að ætla eitthvað að rífast um það enda þekki ég engan sem á óslitinn 15 ára gamlan Mödder til viðmiðunar. En það er eins og mig minnir að munstrið hafi verið mjókkað um tæpa tommu fyrir einhverjum 10-12 árum síðan allavega man ég eftir því að menn voru eitthvað að mæla þetta þegar Benni fækk mjórri týpun og átti ennþá gamlar birgðir af hinni týpunni. Mig minnir að þessi breyting hafi verið gerð út af einhverji annari gúmmíblöndu á sýnum tíma. En varðandi hina hlutina sem þú varst að tala um þá get ég vel trúað því að þetta sé satt allavega finnst manni ekki vera sjáanlegur munur á breiddinni þegar Mödderinn eru orðin slitinn. En það getur verið að ég sé að bulla tóma steypu :-)

    Kv. Kristján Kolbeinsson http://www.icejeep.com





    29.04.2008 at 09:52 #619372
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Þessi AT dekkja umræða er alveg mögnuð. Þegar þessi dekk voru hönnuð þá átti að búa til dekk þyldu allan þann böðulgang sem er á fjöllum á veturna, þannig að mér finnst annsi skrýtið að menn sé að tala um að þessi dekk þoli ekki að það sé keyrt á þeim nánast loftlausum í einhverntíma á harðfenni. Ég ætla ekki að fara út í bissneshliðina á þessu máli en mér fannst annsi magnað þegar þessi dekk komi loksinns á markað þá var talað um þessi dekk sem arftaka Möddersinns en reynslan hefur sýnt að Mödderinn er ennþá með vinninginn þrát fyrir að vera 30 ára gömul hönnun. Miðað við það sem ég hef séð í dag þá er MTZ dekkin frá Mickey Thomson kannski kominn sem arftaki Möddersinns, en reynslan á eftir að skera þar um. Ég er búin að keyra á Mödder frá því að ég fór að keyra á fjöllum eða í ca. 18 ár þannig að ég er kannski ekki nógu dómbær á þetta en ég hef aldrei heyrt né séð Mödder springa svona. En flestir mínir ferðafélagar í gegnum tíðina hafa verið á Mödder og er ég búinn að sjá annsi mikla misnotkun á þeim og meðal annars orðið vitni af því að þegar Mödder var keyrt ofan af Þingvöllum í bæinn á 3 pundum á 90 og voru þessi dekk notuð í nokkuð mörg ár eftir þetta á fjöllum en þetta var fyrir 15 árum síðan og það getur verið að Mödder þoli þetta ekki í dag. Sjálfur hef ég keyrt á 140 km. niður Tungnárjökulinn í 3 pundum og keyrði þau dekk í 6 ár eftir það eða þangað til ég varð að henda þeim vegna þess að munstrið var búið Ég hef reyndar ekki verið mikið á fjöllum síðast liðin 7 ár en fór reyndar tvisvar sinnum í vetur og þá á Mödder. Mér finnst fínt að menn séu til á að fórna sér í að finna upp besta vetrar dekkið en þangað til að það er komin einhver almennileg reynsla á betri dekk þá held ég mér við Mödderinn enda íhaldsamur með afbrigðum (þó ég kjósi ekki íhaldið ?).Ég veit vel hvernig Eyþór keyrir og ég verð að segja að miðað við yfirlýsingarnar þegar þessi dekk komu á markaðinn þá hefðu þessi dekk átt að þola það enda engin ekkert meiri böðulskapur þar á ferð heldur en almennt gerist

    Kv. Kristján Kolbeinsson http://www.icejeep.com





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 103 total)
← 1 … 3 4 5 6 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.