FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Einar Lárusson

Einar Lárusson

Profile picture of Einar Lárusson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 207 total)
← 1 … 3 4 5 … 11 →
  • Author
    Replies
  • 10.01.2008 at 00:58 #609788
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    gæti þetta kannski hjálpað. Þarna er að finna ferla og punkta fyrir map source. Þetta er eitthvað sem ég hef safnað saman sjálfur og einnig fengið afhent hjá góðum aðilum. Ég hef ekki sannreynt þetta allt sjálfur en reikna með að þetta sé í góðu lagi.
    [url=http://laxatunga101.blog.is/users/8d/laxatunga101/files/GPS/alltsafnid_4839.zip:2f6lomxd][b:2f6lomxd]SÆKJA GPS SAFN[/b:2f6lomxd][/url:2f6lomxd]





    02.01.2008 at 16:00 #608642
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Takk kærlega fyrir þessi svör, mér skilst að brósi sé að spá í að flytaj inn bíl frá USA, jafnvel í eldri kantinum. Er einhver árgerð sem er betri eða verri en önnur?





    02.01.2008 at 15:17 #201506
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Sælt veri jeppafólkið og gleðilegt ár.

    Ég er með eina fyrirspurn fyrir bróður minn.
    Þekkir einhver hvernig þessir Toyota LC 80 bensín bílar hafa verið að koma út varðandi eyðslu. Hann er að spá í að taka svona bíl og breyta honum fyrir 44 tommu dekk?





    04.09.2007 at 08:40 #595918
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Sælir félagar, fyndið að rekast á þetta. Þannig er mál með vexti að bróðir minn keypti þennan bíl frá Sauðárkróki á sínum tíma og átti hann í amk einn vetur. Síðan skipti hann við Sidda rakara frá Akureyri og hann tók cruserinn hans í staðinn. Fljótlega eftir skiptin þá er Siddi á leiðinni suður og ekki vill betur til en svo að hann dottar undir stýri og bíllinn endar í í kanti. Eftir þetta var hann dæmdur ónýtur og ég hef það eftir einum sem var að spá í að kaupa leifarnar að bíllinn hafi farið á 250 eða 300 þúsund. Í bílnum var Chevi vél og kassi ný 44 DC dekk og eitthvað meira dót, allt vel yfir 300 kr virði. Skelli inn link á þær myndir sem ég er með af bílnum.
    [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/552:818k554d][b:818k554d]Myndir[/b:818k554d][/url:818k554d]
    [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/553:818k554d][b:818k554d]Meiri myndir[/b:818k554d][/url:818k554d]





    30.07.2007 at 00:19 #594056
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Ég var að horfa á þáttinn og þetta er alveg frábær skemmtun. Það væri gaman að fá að vita hvaða Íslendingar voru þarna á ferð ef einhver veit það.





    29.07.2007 at 15:20 #594090
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Það var um Patta að ræða man ekki árgerðina. Það voru búin að vera ansi mikil vandræði með að koma bílnum í gang heitum og það var búið að skoða allt saman og eyða hellings pening í þetta. Síðar kom í ljós að jarðsambandið (mínusinn) frá geyminum var eitthvað illa tengdur við grindina í bílnum. Eigandinn setti nýjan kapal og málið var dautt. Eins og ég segi þá minnir mig að þetta hafi orsakað það að bíllinn var leiðinlegur í gang þegar hann var orðinn heitur.





    23.07.2007 at 08:49 #593792
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Sæll, ég var í svipuðum pælingum fyrir um ári síðan með Patrol sem ég er með og þá var ég að sjá verð í kringum hálfa milljón. Ég gæti bent þér á að tala við Bjart í síma 6961597. Hann málaði fyrir mig í vetur og ég er mjög sáttur við það sem hann gerði.





    19.07.2007 at 20:52 #593716
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Ef það fer ekkert allt of illa með budduna að fara út í beadlock búnað þá er það ekki spurning. Ég hef ferðast nokkrum sinnum með einum á MT dekkjum. Fyrst var hann ekki með beadlock og lennti þar af leiðandi í tilheyrandi veseni. Síðan skipti hann um bíl og fékk sér þá felgur með beadlock. Þessi aðili talaði um mikin mun og hann sagði að hann hefði átt að gera þetta fyrr.
    Síðan hef ég heyrt um að menn fari 5 umferðir með með epoxi grunn á kanntinn á felgunum. Beri þetta á með ofnapensli. Þetta býr til enn betri kannt fyrir felguna og grunnuruinn virkar síðan sem góð líming fyrir dekkin. Þessir aðilar hafa víst aldrei affelgað á 38 tommu dekkjum.





    20.05.2007 at 21:50 #591322
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Takk fyrir þetta kæru félagar. Ég skoða málið núna í sumar, þetta verður að vera komið í bílinn áður en maður byrjar á húsbyggingum.





    19.05.2007 at 09:27 #200335
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Hvar fær maður góð sætis cover? Það sem ég er að leita að er eitthvað sem verður að vera vatnshelt og það væri ekki verra ef það mætti skella því í þvóttavél. Ég er að spá í þetta fyrri Patrol 94 árgerð





    18.04.2007 at 21:37 #588790
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Ég var þarna á mánudaginn við fórum upp á hábungu og það er skemmst frá því að segja að færið var barabrill. Púður ofan á hörðum snjó og einfaldlega frábært spraut færi.
    Kveðja Enar





    07.04.2007 at 13:09 #587330
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Sælir
    Ég fór á fimmtudaginn yfir Mýrdalsjökul og inn í Strút. Fínt færi á jöklinum og inn að Strút. Einnig frétti ég af hóp inni í Hvanngili og þar í kring var mjög gott færi. Við ætluðum að fara inn í Sveinstind í gær en þá brotnaði öxull í einum bíl þannig að við snérum við. Inn við Háölduna rétt fyrir innan Mælifellið var að opnast smá krapi hér og þar en ekkert alvarlegt.
    Við keyrðum svo Eyjafjallajökul heim í gær og þar var færið alger draumur eins og á Mýrdalsjökli, engin þörf á að setja í framdrifið





    02.04.2007 at 16:22 #586818
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Ég frétti af einum á 49 Liner sem var að aðstoða kvikmyndatökufólk um helgina uppi á Langjökli. Bílinn fór víst upp fyrir miðja hurð í krapa á völdum stöðum upp að jöklinum. En færið á jöklinum var víst mjög gott





    29.03.2007 at 23:38 #586484
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Ég var í sömu vandræðum. Í mínu tilfelli þá var það keisingin (held að það sé rétta heitið) orðin illa farinn. Þetta gerði það að verkum að lásinn tollir ekki á þ.e. um leið og átak kom á hann þá skoppaði lásin upp úr keisingunni og var þar af leiðandi ekki að virka. Ég var búinn að skipta um vacum pung frammi í hvalbak, fara yfir allar leiðslur og endaði á að tengja síðan bara slöngu beint frá vacum frammi í húddi og aftur á hásingu. Er ekki bara besta leiðin, sem er reyndar tímafrekust að opna drifið og skoða hvað er í gangi. Ef þetta er vacum pungurinn aftur á hásingunni þá á ég eitt stykki handa þér þar sem verið er að setja loftlás að aftan hjá mér.





    29.03.2007 at 08:09 #586396
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    … og mér fannst þetta vera skemmtileg upptalning á því sem er búið að taka í gegn. Ég er alveg sammála því að fyrir reynsluboltana þá er þetta ekkert nýtt.
    Ástæðan fyrir nýjum öxlum er sú að annað framhjólið brotnaði undan síðasta sumar þegar að hjólalega gaf sig.
    Það er eitt sem ég klikkaði all svakalega á eftir að ég kaupi bílinn það var að fara ekki í gegnum allar legur og þetta dót, en núna veit maður betur.
    Ég er alveg salla rólegur yfir þessu og er farinn að brosa svo gott sem hringinn. ætli maður nái ekki að klára að brosa hringinn þegar ég fer næst á fjöll.





    28.03.2007 at 11:33 #586380
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Alvag sammála þér Erlingur, þetta er fíkn og veiki. En ég held að það sé ekki til lækning við þessari veiki það er einungis hægt að reyna að halda henni í skefjum og læra svo að lifa með henni. Ég get lifað með þessa veiki en það er spurning með betri helmingnn. Sem betur fer þá hefur þetta brölt allt saman hlotið mikinn skilning heima fyrir.





    28.03.2007 at 10:23 #586376
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Bara passa að nota staðdeyfingarlyf fyrir hesta eða jafnvel fíla, þá sleppur þetta 😉





    28.03.2007 at 09:56 #586370
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Eitthvað hefur þetta farið öfugt út úr mér. Ég er ekki að kvarta, væla og/eða vola yfir neinu. Ég tók þennan lista bara saman í gærkvöldi til að fara yfir það sem búið er að lagfæra í bílnum og síðan datt mér í hug að deila þessu með ykkur og vonandi er eitthvað gagn af þessu :)





    28.03.2007 at 09:31 #586362
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Mér finnst tilhugsunin að vita lítið sem ekki neitt um jeppann ekki vera spennandi. Það er einmitt það sem maður fær út úr svona viðhaldi, breytingum og lagfæringum, maður þekkir svo gott sem hvern krók og kima á bílnum. Síðan er maður náttlega að þessu til að geta notað jeppan og haft þetta í lagi næstu árin.
    Þetta er mjög einfalt mál, þetta dót verður að virka þegar að áreynir.





    28.03.2007 at 09:09 #586358
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Ég ætlaði nú ekkert að vera að fæla fólk með þessu og ég held að allir sem eiga jeppa kannist alveg við þetta. Það eina sem ég vildi kannski fá fram með þessu væri bara að telja upp hvað þyrfti hugsanlega að gera eftir að jeppi af eldri gerðinni hafi verið keyptur. Í mínu tilviki hef ég verið mjög heppinn með aðstoð og hef getað gert slatta af þessu sjálfur m.a. að taka afturdrifið í gegn sem er mitt nýjasta project. Síðast en ekki sist þá finnst mér þetta bara mjög gaman.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 207 total)
← 1 … 3 4 5 … 11 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.