Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.10.2010 at 15:02 #705890
Vá var að detta inn á vefinn eftir langa fjarveru, yndislegt að sjá hvað menn eru alltaf jákvæðir hérna
17.08.2010 at 10:57 #214031Jæja ætli að þetta sé endanleg ákvörðun http://www.bb.is/?PageID=26&NewsID=152348.
Það er nú búið að gefa það út nokkrum sinnum áður að NMT kerfinu verði lokað. Það er kannski loksins núna komin forsenda til þess þar sem GSM og 3G samband er orðið mun betra en það var fyrir 2-3 árum
03.08.2010 at 12:35 #699238Eftir að ég lét smíða nýtt drifskaft að framan í 44" pattan minn þá tók ég eftir því í fyrsta skipti sem ég setti hann í 4×4 að mér leið eins og ég væri að keyra yfir rúlluhlið, eða mjög fínt þvottabretti.
Það kom svona víbringur, en ekki þessi klassíska jeppaveiki sem hafði hrjáð bílin um stund líka.
Ég tók skaftið undan og fór með það í Stál og stansa og þeir stilltu það fyrir mig og allt varð eins og blómstrið eina.
18.04.2010 at 15:43 #690798Þeir fljúga bara sjálfir, enda kunna þeir þetta allt saman miklu mun betur en einhverjir blýantnagarar í Eurocontrol
16.04.2010 at 18:39 #690788Þessi forræðishyggja er komin út fyrir alla skynsemi.
Þrír vinnufélagar mínir eru fastir hérna í Belgíu vegna þess að það má ekki fljúga. Ég veit að þeir eru miklu klárari og betri en þetta lið sem er í flugumferðastjóraleik og bannar fólki að fara í loftið. Þeir hafa oft þurft að hjálpa fólkinu hjá flugfélögunum við að koma farangri um borð og hafa oft lánað þeim penna.
Vi’ð erum búnir að vera að horfa upp í loftið og það er enga ösku að sjá.
Best að setja broskall við þetta
15.04.2010 at 09:21 #690672Alltaf í boltanum
12.04.2010 at 08:49 #212052Þessi er nokkuð stór, hvernig ætli sé að keyra þetta ferlíki
http://www.aftonbladet.se/bil/article6928091.ab#mouseCursor
11.04.2010 at 09:57 #690202Þetta er allt sama brotajárnið og þar af leiðandi er þetta allt saman jafn mikið drasl.
Ætli það sé ekki best að setja einn broskall á þetta til að fría mig allri ábyrgð á þessum skrifum
p.s. ég verð bara að vona að vef(skila)nefndin taki ekki út broskallinn
kv
Einar
Fyrverandi Patrol eigandi, núverandi Volvo 850 station eigandi í Svíþjóð
10.04.2010 at 21:31 #689822Þetta apríl gabb hjá Svandísi er aðeins of seint á ferðinni
08.04.2010 at 11:34 #689748HAHAHAHAHAHA
Baggalútur klikkar ekki, mér kæmi það nú ekki á óvart að Svandís reyndi að stoppa þetta gos og skipa því síðan að fara í sameiginlegt umhverfismat með Kötlugosi.
04.04.2010 at 15:16 #688990Einn punktur fyrir þig Atli, björgunarsveitir nefna aldrei kostnað við þær aðgerðir sem þær taka þátt í. Það er mjög oft reynt að gera það að fréttaefni ef um stóra aðgerð er að ræða. Í augum björgunarsveitanna þá er kostnaðurinn eitthvað sem enginn spáir í per se, það sem skiptir mestu máli er að sú aðgerð sem verið er að framkvæma heppnist vel.
Síðan eins og fram hefur komið hérna þá finnst misjafnt fólk í öllum röðum þjóðfélagsins og þar er engin undanskilin.
Síðan er annað sem er vert að komi fram, í fjölmiðlun fljótlega eftir að fólk fór að streyma á gosstöðvanar var viðtal við framkvæmdastjóra Landsbjargar og sagði hann að 99,99% væri vel út búið og væri til fyrirmyndar í alla staði, það sama sagði fulltrúi almannavarna.
Mér finnst bara vert að réttar staðreyndir komi fram, það er ekki rétt þegar að talað er um að björgunarsveitr, lögga, almannavarnir séu að finna öllum allt til foráttu sem fara að skoða gosið. Voru ekki ca 25.000 manns sem fóru að skoða gosið fyrstu helgina, það er ca 8% þjóðarinnar.
Við skulum ekki gleyma því að þarna er eldgos í gangi og það er fólk sem þarf að taka ábyrgð og ákvarðanir er varða öryggi og jafnvel líf fólks. Það er auðvelt að sitja á hliðarlínunni og gagnrýna þegar að maður getur talað án þess að þurfa að taka eina einustu ákvörðun eða ábyrgð á neinum nema sjálfum sér,
Auðvitað væri langbest ef allir væru fullkomnir og alltaf myndi allt ganga eins og í sögu, raunveruleikinn er bara ekki þannig.
Verum jákvæð, njótum þess að skoða þessa náttúrudýrð, berum virðingu fyrir náttúrunni og umfram allt verum ekkert að pirra okkur þó á vegi okkar verði fólk sem af einhverri ástæðu fer í tauganar á okkur.
04.04.2010 at 11:32 #689142Sæll
Ég hef reynslu af nokkrum tækjum og yfir nokkra ára tímabil. Það sem að mér persónulega finnst skipta miklu máli er skjárinn og aðhann geti virkað við mismunandi birtustig. Ég byrjaði að nota Garmin 128 minnir mig og það virkaði t.d. ekkert rosalega vel í mikilli sól. Ég hef svo einnig reynslu af Garmin 192C [img:1a4e9hdu]https://static.garmincdn.com/en/products/010-00431-00/g/cf-lg.jpg[/img:1a4e9hdu]. Þetta tæki fannst mér mjög gott. Góður skjár, gott stýrikerfi, stórt minni fyrir ferla, leiðir og punkta.
Ég mæli með því að þú kíkir einfaldlega á Rikka og skoðir hvað er í boði í dag. Ég held að það sé hætt að framleiða þessi 192C tæki þannig að það er kannski ekki í boði í dag.
kv
Einar
02.04.2010 at 22:38 #688928Svona svara björgunarsveitinar fyrir sig, láta verkin tala
[url:3dxeyanm]http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/04/02/smala_folki_af_gossvaedinu/[/url:3dxeyanm]
02.04.2010 at 19:31 #688922Heyr heyr, sammála síðasta ræðumanni.
Ég mæli með að allir sem eru svona rosalega klárir og geta gangrýnt allt saman og gert allt mun betur en aðrir ættu einfaldlega að láta verkin tala. Það er til fullt af tækifærum til að láta ljós sitt skína á margvíslegum vetvangi.
Ég veit að eftir þessa aðgerð sem nú er í gangi á Fimmvörðuhálsi þá verður farið í saumana á öllu saman, hvað gekk vel, hvað gekk ekki vel, hvað má laga, hvað er hægt að læra af þessu o.s.frv.
Ég skilgreini þetta ekki sem uppbyggilega og gagnrýna umræðu, þetta er meira pirringur og tuð.
kv
Einar Lárusson
Svíþjóð
02.04.2010 at 07:46 #688882Þetta kalla ég málefnalega umræðu
18.03.2010 at 18:02 #678762Hvað er slóðin á spottið hjá Skúla?
18.03.2010 at 10:12 #678748Þetta er snilld, ég fylgist spenntur með þessu héðan frá Svíþjóð.
Góða ferð og góða skemmtun
kv
Einar jeppalausi í Svíþjóð
25.01.2010 at 10:33 #678234Fullt af snjó hérna í Svíþjóð, og menn leika sér á vélsleðum, fjórhjólum og krossurum
09.09.2009 at 14:03 #656728Veit ekki með hásingar og annað, en vélin er orginal 2,8 og hann er með lógír
Hann Heimir sagði mér það á Vestfjörðunum í vetur að eina sem hann gæti sett út á að vera með þessa vél væri að bíllinn mætti vera aflmeiri á malbikinu. Hann sagði að vélin hefði aldrei háð honum til fjalla í snjókeyrslu, en að hann stefndi samt að því að skipta um vél
kv
Einar
12.08.2009 at 13:10 #653830Patrol
kv Einar
-
AuthorReplies