FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Ásgeir Jóhannsson

Ásgeir Jóhannsson

Profile picture of Ásgeir Jóhannsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 20.04.2008 at 20:14 #620910
    Profile photo of Ásgeir Jóhannsson
    Ásgeir Jóhannsson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 14

    Ok eins og ég sagði í hinum þræðinum þá vantar hér aðila sem sjá um að framfylgja þeim reglum er gilda um þennan spjallvef. Barnaland er brandara samanburður btw.

    Reglurnar þurfa að vera skýrari og mun nákvæmari um hvað "ákveðnar ástæður" fyrir lokunum er. Gagnrýni er eitthvað sem allar stjórnir þurfa að lifa við. Og það er annars vegar hægt að svara henni og útskýra málin (fatta ekki hvað allt þarf að vera mikið leyndó í stjórnunarmálum) eða þagga allt saman niður og taka Kínverska háttinn á þetta og banna allt og alla og leggja vefinn niður.

    En já það vantar hér óháða stjórnendur sem fylgja reglunum og eru ekki að bera skjöld fyrir einn né neinn.

    Veit í sjálfu sér ekki hvernig málunum er háttað núna en sýnist það vera bara þegar menn eru látnir vita af einhverju rótttæku eða eftir geðþótta að brugðist er við einhverju og þá bara skellt í lás á þá aðila sem þeim sýnist.

    Stjórnin er ekki hlutlaus hvað varðar þessi mál (bregðast við gagnrýni) og það lítur mjög illa út þegar þau eru að banna fólk.





    20.04.2008 at 19:59 #620846
    Profile photo of Ásgeir Jóhannsson
    Ásgeir Jóhannsson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 14

    Vá þetta er alltaf jafn skemmtileg umræða, íslenska aðferðin notuð, þagað allt í hel.

    En það er alltaf jafn merkilegt hvað svona mál verða að drama. Lokun á aðgangi vegna þess að einhver segir eitthvað sem misbýður eða kemur illa við stjórnendur á ekki að teljast sem tilraun til valdaráns og því að réttlæta lokun á aðgang og sviptingu réttinda.

    Ég er nú einn af nokkrum moderatorum á stórum vef þar sem að meðal aldurinn er um eða yfir 20 árum hið mesta og verð að segja að vinnureglur skilmálar og allt sem viðkemur því er í betra ásigkomulagi en hér OG þeim er fylgt af stjórnendum og eigendum vefsins sem og notendum.

    Bæði vantar hér á vefinn stjórnendur sem fylgja eftir reglunum sem og skýrari reglur um hvað má og hvað ekki og réttlát viðbrögð við brotum.

    Túlkanir eftir atburðum er vonlaus leið í svona málum. Annars vegar hunsað eða hins vegar barinn með flugnaspaða eftir því hvaða tími mánaðarins er hjá ráðamönnum…

    Hef annars enga skoðun á þessari tilteknu lokun, veit ekkert um málavexti…





    07.03.2008 at 03:42 #616760
    Profile photo of Ásgeir Jóhannsson
    Ásgeir Jóhannsson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 14

    Hægt að lesa um þetta dæmi [url=http://www.gpsmagazine.com/2008/01/spot_satellite_messenger_perso.php]
    hér[/url]

    Það virðist sem að hér sé bara um áskrift að ræða, ca. 700 kr á mánuði.





    25.02.2008 at 03:20 #615022
    Profile photo of Ásgeir Jóhannsson
    Ásgeir Jóhannsson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 14

    Ég verð að segja að miðað við stöðuna í dag, þá er VHF ennþá betri kosturinn hvað varðar fjarskipti í ferðum á hálendinu. Mun meiri reynsla og þetta kerfi er sveigjanlegra. Og MUN ódýrara auðvitað.

    Hins vegar þá er ég búinn að fá smá nasaþef af TETRA og hvað varðar Björgunarsveitir og neyðarþjónustur þá er þetta bara snilld. Einfaldar (ATH getur líka flækt) samskipti í leitum, símvirknin er líka góð. En hér höfum við líka tæki sem er dýrt, í innkaupum sem og í rekstri að það virðist vera.

    Þetta virðist ætla að verða svona annað CB vs VHF dæmi eða CB vs Gufunes stöðvarnar nema bara mun minna sem ber í milli.

    Þessi kerfi eru bæði fullkomlega nothæf en það er nokkuð til í því að ákveðin skipting gæti átt sér stað þegar þetta fer að byrja meira í útbreiðslu og hinir efnameiri eiga TETRA en hinir sitja eftir með VHF.

    Það sem ég skil ekki er þessi takmörkun eftir 5000 notendur, í hverju hún er fólgin og af hverju hún er ekki bara gerð strax fyrst að hún á að eiga sér stað á annað borð?

    Er verið að redda sér BETA testurum til að vinna út gallana eða?

    Í lokinn þá held ég að maður ætti að benda á það að það sem virðist hræða menn mest er hversu "tölvukenndar" þessar stöðvar eru og því álitnar flóknar og óviðráðanlegar ef eitthvað kemur fyrir eða stillingum er ruglað.

    Ég er hrifinn en kostnaðurinn stendur í mér ennþá. Sérstaklega þar sem að kostirnir eru ekki yfirgnæfandi.





    14.02.2008 at 17:30 #613982
    Profile photo of Ásgeir Jóhannsson
    Ásgeir Jóhannsson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 14

    Já þetta er sama og venjulega. Það er mikið talað um þetta á milli manna en það vantar þessa almennu hneykslun út í samfélagið. Íslendingar eru bara orðnir svo vanir því að láta okra á sér að þér gera aldrei neitt. Við búum í landi þar sem að það er almennt talið hallærislegt að mótmæla.

    Við erum orðin vön því að sama fólkið stjórni okkur og segi bara "neih" þegar við biðjum um aðgerðir.





    27.01.2008 at 00:56 #611814
    Profile photo of Ásgeir Jóhannsson
    Ásgeir Jóhannsson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 14

    Verð að segja ARB loftlás einnig af þeirri ástæðu að helv. rafur-magns dótaríið bilar mun frekar.





    27.01.2008 at 00:46 #611272
    Profile photo of Ásgeir Jóhannsson
    Ásgeir Jóhannsson
    Member
    • Umræður: 0
    • Svör: 14

    Ég er nú nokkuð nýlegur félagi þannig að ég þekki ekki mjög vel til þessarar stjórnar. En eftir að hafa spurt mann og annan þá virðist álit fólks á henni almennt vera nokkuð neikvætt.

    Eins og ég segi þá veit ég ekkert um þetta fólk, þekki það ekkert og hef aldrei spjallað við það. En þetta er viðhorfið sem ég hef skynjað hjá eldri meðlimum.

    Hef fengið að heyra sögur um harðorð bréf, símhringar o.s.frv. Svo náttúrulega þetta miðjuferðardæmi, lokun aðgangs fólks að spjallinu. Þetta eru bara þau dæmi sem ég hef talið trúanleg. Svo núna afsögn tveggja stjórnarmeðlima vegna persónulegs ágreinings.

    Afsögn tveggja stjórnarmeðlima er ekki einkamál stjórna og nefnda þannig að ég tel að þessi birting sem á sér hér stað sé í fínu lagi. Auk þess að þetta er á innanfélags spjallinu þannig að við erum ekki að tala um hættu á slæmu "PR" fyrir klúbbinn.

    Annars verð ég nú að minnast á það að spjallið hérna er verra heldur en unglingaspjallið þar sem að ég er einn af nokkrum stjórnendum. Krakkarnir kunna grundvallar kurteisi og sýna hana þar. Annað væri ekki "kúl", held að fullorðna fólkið hér ætti almennt að geta það líka.

    En hvað varðar þetta stjórnarmál, og það sem fólk vill meina að það sé sífellt skítkast í gangi þá getur alltaf verið að skítkast eigi rétt á sér. Og eins og ég sagði þá leiddi mín skoðun á málinu það í ljós að ég heyrði fátt jákvætt. Og ef að þetta er það álit sem almennt er við lýði varðandi núverandi stjórn þá er eitthvað mikið að.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.