FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Sigurður Magnússon

Sigurður Magnússon

Profile picture of Sigurður Magnússon
Virkur síðast fyrir 9 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 126 total)
← 1 2 3 … 7 →
  • Author
    Replies
  • 23.04.2011 at 19:47 #727855
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Ég átti KIA Sportage og var í tómum vandræðum með allar lagnir að aftan. Fyrsta bremsulagnir. Tankurinn tekinn niður með tilheyrandi veseni. Síðan bensínrörin frá tanki en samt hægt að laga án þess að taka tankinn niður. Dugði ekki lengi. Síðan bensínrörin frá tanki og fram í og tankurinn tekinn niður. Skipt um allar lagnir að tanki og framm í (slapp vel með það en orginal rörin kostuðu ekki mikið). En þá var allt í kringum dæluna ryðgað og þá passaði þessi lýsing en sérstaklega þegar lítið var í tankinum kom maður bílnum varla af stað. Þá þurfti aftur að taka tankinn niður en þá gafst ég upp. En þá þurfti að skipta um bensíndæluna og allt stykkið en það var selt allt í einu stykki (kannski hægt að mixa).

    Þannig að ég er að mæla með ef þú tekur tankinn úr að skoða vel allt annað sem ekki er hægt að komast að nema að taka tankinn niður. Bara til að þurfa ekki að taka tankinn aftur niður.

    Spurning hvort að ryðmyndunin sé sérstaklega slæm þarna að aftan á þessum asíu bílum?

    KV. SHM





    05.04.2011 at 21:06 #725973
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Áin heitir Dynjandi og er því talað um Dynjanda yfir fossinn. Hins vegar er einn af smærri fossunum kallaðu Fjallfoss en það hefur valdið ágreiningu um hvað á að kalla fossinn einhverntíma í forneskju þ.e. Dynjanda eða Fjallfoss. Vestfirðingar eru samt vissir um að fossinn heitir Dynjandi þó að einn hluti fossins hafi verið kallaður Fjallfoss en þetta getur verið viðkvæmt fyrir sanna vestfirðinga. Minni líka á að býlið við fossinn hét Dynjandi.

    Góðar stundir.

    SHM





    18.03.2011 at 14:18 #723688
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Gísli er jarðaður í Selárdal. Kynntist honum aðeins og reyndar Sigurð bróðir hans betur. Merkiskallar á þó ólíkan hátt. Var þarna í sveit í eldgamla daga.

    Kv. SHM





    15.03.2011 at 10:48 #723612
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Það er slatti að upplýsingum um herslu á felguboltum. Eru samt mest með ft/lb.

    Sýnist 70 – 80 ft/lb algengt eða 95 – 108 Nm.

    Er þá ekki ca. 100 Nm alveg nóg. Hef miðað við það en er reyndar bara á 29" dekkjum með 12×1,25 mm rær. Hef aldrei lent í því að missa rær né bolta.

    Svo fer þetta eftir tegundum en Toyota miðar t.d. við 80 ft/lb sem er 108 Nm.

    Kv. SHM

    Sjá netslóðir hér að neðan og breytitöflur.

    http://www.discounttire.com/dtcs/infoWheelTorque.dos

    http://www.tirerack.com/wheels/tech/tec … techid=107

    ft/lb NM
    1 1,35582
    10 14
    20 27
    30 41
    40 54
    50 68
    60 81
    70 95
    80 108
    90 122
    100 136
    110 149
    120 163
    130 176
    140 190
    150 203

    Nm ft/lb
    1 0,73756
    10 7
    20 15
    30 22
    40 30
    50 37
    60 44
    70 52
    80 59
    90 66
    100 74
    110 81
    120 89
    130 96
    140 103
    150 111
    160 118
    170 125
    180 133
    190 140
    200 148





    19.12.2010 at 13:26 #713850
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Á jeppaspjallinu er minnst á mann sem geti lagað silikon kúplingar. Sé ekki að númerið sé skráð svo ég tilgreini það ekki. Ef ekki er hægt að laga þessar kúplingar þarf líkla að skipta um þær.

    Þetta er greinilegt þekkt í nokkrum tegundum bíla t.d. Cherokee.

    Er þá ekki bara að google og reyna að finna einhvern sem getur og kann að laga þessar kúplingar þ.e. að bæta silikoni við og þétta.

    Kv. SHM





    18.12.2010 at 11:23 #713840
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Er ekki silikon kúpling í þessum bílum? Þarf ekki bara að skoða það og bæta silikoni í ef þarf.

    Kv. SHM





    12.11.2010 at 19:45 #709950
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Sé líka á rúðuvökvanum sem ég kaupi dýrum dómi að þar er notaður 33% etanól en því ekki þá bara að nota Vodka eða eitthvað álíka. Spurning um hlutfall? Ef maður hefur mælir til að mæla frostþolið (sem sennilega er til) þá er er ekkert mál að gera þetta sjálfur. Fékk reyndar þá ráðleggingu á bensínstöð af reyndum starfsmanni að gott væri að setja uppþvottalög í litlum skömmtum í rúðupissið.

    Kannski er bara ódýrara að kaupa þetta tilbúið.

    Kv. SHM





    12.11.2010 at 18:46 #709948
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Kíktu á þetta! –

    http://www.leoemm.com/brotajarn27.htm

    Rúðuvökvi
    Ég set einn lítra af venjulegum óblönduðum (bláum Comma) frostlegi (mono-etýlen-glýkol) út í 10 lítra plastbrúsa, bæti út í hann 2 matskeiðum af uppþvottalegi (sápu) og fylli síðan með hreinu köldu vatni. Þennan vökva, sem þolir allt að 10 stiga frost, nota ég á rúðusprautukerfi bílsins. Blár Comma frostlögur kostar hjá N1 (7/2/09) 3935 kr. 5 lítra brúsi eða 78,70 kr/lítrinn. Rúðuvökvinn kostar því innan við 80 kr. lítrinn (algengt verð í verslunum er 180 kr./l eða meira).





    05.11.2010 at 21:47 #709100
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Blessaður!

    Tja ég á reyndar nýlegan Suzuki sem er eignlega ekki jeppi og varla jepplingur heldur meira fólksbílll með jepplingaeiginleika (gat t.d. fsamt arið á Rauðasand í sumar út á sandinn á mínum orginal 29" tommu dekkjum í lágadrifinu) en litli bróðir minn hefur átt eldri gerðir af Suzuki sem eru meiri jeppar og á 33" dekkum hefur hann farið meira en stærri og dýrari jeppar hafa farið. Svo að ég er ekki með Suzuki formdómar. Þetta snýst meira um hvað þú kemur stórum dekkjum undir. Því stærri því betra upp á flot. Svo er það spurning hvort þú ert að hugsa um komast það sem þú vilt eða þarft??

    Get því miður ekki mælt með neinum sérstökum dekkjum sem henta að hleypa mikið úr en ég keyri allt árið á BF Goodrich sem mér líkar vel við en ég veit ekki hvað þau endast við að keyra á litlum loftþrýstingi.

    Kv. SHM

    Set svona dæmi um stærðir á dekkjum miðað við svipaða hæð og breyta um stærð á felgum.

    225/75 16 29,3
    245/75 15 29,5
    265/75 15 30,6





    05.11.2010 at 12:49 #709096
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Góðan daginn!

    Er ekki aðalatriðið að finna dekk sem eru með passilega hæð.

    Get sent þér excel skjal þar sem þú getur reiknað út hvað dekk passar þér útfrá hæð dekkja sem þú getur notað.

    Alveg rétt að með minni felgu færðu meiri hæð á dekki. Svo vita dekkjaverkstæðin sennilega allt um þetta.

    Set nokkur dæmi hérna fyrir neðan.

    Kv. SHM

    Slá inn stærð af dekkjum og stærð felgu

    Dekk Felga í " Hæð í "
    A. 225/70 16 28,4

    B 225/70 16 28,4
    C 235/70 16 29,0
    D 235/70 15 28,0
    E 235/75 15 28,9
    F 235/80 15 29,8
    G 205/60 16 25,7
    G 235/60 15 26,1





    28.10.2010 at 12:31 #705902
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Einu sinni var stolið radarvara úr bíl sem var á verkstæði og hafði verið geymdur utandyra yfir nótt. Ég fékk hann bættan. Kannski ekki alveg á fulluverði en því sem næst.

    Svo að svo virðist sem að ökutæki á verkstæði séu á þeirra ábyrgð þó að þau séu geymd utandyra.

    Kv. SHM





    17.10.2010 at 18:50 #706606
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Alveg rétt..

    Zink!

    Biðst velvirðingar á þessu.

    Klumparnir voru bræddir með stálplötu og þegar allt var harðnað þá var auðvelt að sjóða þessa klumpa (og stundum erfitt að losa þá af) á stálhluta t.d. botnstykki á skipum.

    Kv. SHM

    P.s. Ég fékk smá skot um að fara til fagaaðila en ég hef einmitt misjafna reynslu af "fagaðilum" og best ef maður getur og kann sjálfur að gera hlutina sjálfur en stundum er samt best að mæla með því að fara til fagaðila svo að enginn sé að prófa eitthvað sem getur valdið skaða.





    16.10.2010 at 01:07 #706598
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Það má aldrei tengja saman málma af mismundandi tegund því að þá breytist oxunaröðin (heitir tæring/ryðmyndun) og því má aldrei tengja stál við ál því að þá ryðgar stálið hraðar en álið (hægt að bjarga því með að setja annað efni á milli t.d. gúmmí). Þeir sem vilja hindra ryðmyndun í stáli nota hinsvegar blý og setja blýhlúnka á stál. Þekkist mjög vel í skipaiðnaðnum og líka hjá fornbílaeigendum og líka sem eiga ryðbíla s.s. pallbíla (ætlaði að segja Toyota en fannst það ekki viðeigandi) þá gæti það dugað út af afturhleranum.

    Þannig að ef bílinn er í lagi og ryðmyndunin er bara á einum stað minnkar það möguleikann á ryðmyndun á fleiri stöðum (skv. kenningunni).

    Varðandi festingu á bensíntanki þá ætti það að vera ljóst að festa frekar lítiln massa (tankur + eldsneyti) við enn sterkari massa (t.d. grind- sem er mun fleiri kg. ) þá myndast sterkir kraftar á milli þessara hluta og þá þarf að nota málma með mikinn sveigju styrkleika sem álið hefur ekki. Þá er einmitt farið að nota annað efni t.d. plast í bílum og nota upphengjur (er líka notað fyrir málmtanka). Lausnin er þá að nota áltanka með að nota upphengjur við þá til að losna við auka spennu á festingar.

    Man í gamla daga að þá voru lagaðir bensíntankar en þeir voru þunnir úr járni og þá voru settir í þá vatn og þá voru þeir lóðaðir (stórhættulegt að sjóða þá). þannig að þeir voru mjög þunnir.

    En að sjálfsögður er bara best að tala við fagaðila og þau verkstæði sem þekkja þetta.

    Raus kvöldsins lokið,

    Kv. SHM





    20.05.2010 at 21:09 #693608
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Er þessi þráður ekki bara tómt grín :)

    Ég held að um sé að ræða bolta í tommum en að vera með 17 mm boltahaus er líka sérstaklt þegar þessir tommuboltar sem ég á eru með 5/8 hausa (ca. 16 mm =>nákvæmlega 15,88 mm) en næsta í tommustærð er ca. 19 mm.

    Það væri gaman að fá úr þessu skorið.

    Góðar stundir.

    SHM





    20.05.2010 at 18:25 #693606
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Eftirá að hyggja þar sem þessir boltar sem ég minntist á eru úr einhverju eldgömlu dóti og ég veit ekki hvaðan þeir koma þá held ég að þetta séu tommuboltar 7/16 og því er þvermálið 11,11 mm en ekki bara 11 mm.

    Kv. SHM





    20.05.2010 at 18:03 #693604
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Ég hélt að 11 mm boltar væru alls ekki notaðir í Toyota. Frekar eitthvað meira staðlað.

    Ég hef verið að taka til og sé þá að ég á 11 mm bolta sem eru 25 mm langir (meira með haus) og sýnist að gengjurnar séu 125.

    Veit ekki hvort það passar. Ég er bara með 4 stk. en kannski er hægt að finna fleiri.

    Afhverju er verið að nota svona óvenjulega stærð??

    Kv. SHM





    27.04.2010 at 10:21 #681780
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Sé líka að stundum er betra að taka bensín hjá Orkunni frekar en AO en reyndar þar sem mesta samkeppnin er á Smiðjuveginum er verð með afslætti mjög nálægt því sama.

    Þegar ég tek bensín hjá Orkunni nota ég 4X4 kortið sem búið er að tengja afslætt 4X4 og þannig fæ ég 5 kr. afsláttinn. Veit ekki hvort hægt er að fá lykil tengdan afslætti 4X4 en allavega eru dælurnar þannig að bæði er hægt að nota "viðskipta" kort eða lykil.

    Kv. SHM





    18.04.2010 at 21:50 #691126
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Er ekki bara spurningin að láta dufthúða þær. Það er allavega eitthvað sem endist. Lét fyrir stuttu gera svona fyrir reyndar stálfelgur hjá polyhudun.is fyrir ca. 42.þ.kr. og er mjög ánægður með það. (þær eru þá líka sandlásnar). Það er líka boðið upp á að gera það sama fyrir álfengur.

    Man í gamla daga þegar maður var að gera þetta sjálfur en endingin var ekki svo góð. Held reyndar að slípa upp, grunna og lakka álfengur geti verið snúið og flóknara en að gera það við stálfelgur.

    Ef það á að gera þetta á sem ódýrastan hátt þá er kannski að tala við verslanir sem selja málingarvörur og fá ráð hjá þeim og gera þetta þá að sem allra ódýrastan hátt og sjá svo bara til hver endingin verður.

    Kv. SHM





    17.04.2010 at 21:08 #690876
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    [quote="arnarbaldvins":3hxnuddn]Búinn að laga, takk fyrir þetta.[/quote:3hxnuddn]

    Og ?

    Hvað er málið. Varla leyndarmál.

    Kv. SHM





    17.04.2010 at 21:06 #690978
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Ef ökutækið er orðið gamalt og verið er að skoða vatnslásinn þá er sennilega best bara að skipta um hann því að því eldri sem bílinn er þá þarf hvort sem er að fá nýja pakkningu (þær eru orðnar morknar). Vesen að reyna að mixa aðra pakkningu.

    Kv. SHM





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 126 total)
← 1 2 3 … 7 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.