Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.01.2010 at 17:49 #679066
Hef átt 35 tommu Patrol í 9ár og hefur hann aldrei bilað og reynst mér ótrúlega vel, hef skrölt á honum út um allt en ekki kannski farið mikið í vetrarferðir. Hugsið ykkur að eiga bíl í níu ár og aldrei þurft að gera neitt nema skipta um púst og hjöruliði í fyrra og bremsudiska einu sinni. Skil ekki þegar menn eru að tala illa um þessa bíla en það er annað mál. Nú ætla ég að endurnýja og spurning hvort maður eigi að stíga skrefi lengra en er 38tomman kannski ekki að gera í praxis mikið meira? svona pæling með þetta. Ég er ekki að sjá mig fara í 44tommur, er ekki alveg í þeim gír.
Sigurður
23.01.2010 at 23:52 #679050Patrol 2007 með common rail. pæling hvort maður eigi að fara í 35 eða 38 tommur? Er ég að fara miklu meira á 38 tommu eða er ég að fara í 38 að óþörfu?
23.01.2010 at 22:23 #210161Er mikill munur á 35 tommum versus 38 tommum á Patrol, skilar það miklu?
21.01.2010 at 22:14 #210116Væri gaman að vita hvort tölvukubbur hafi mikið að segja í common rail vélina í Nissan Patrol. Er hægt að sjá hvað það þýðir í togi og hestöflum. Er það rétt að þrjár 3.0 vélar eru í gangi í þessum bílum. Sú fyrsta og svo kom öflugri útgáfa og síðan common rail í lokin en án nokkurra aflaukningar.
Væri þakklátur ef einhverjir sérfræðingar gætu rakið þetta fyrir mig
05.06.2009 at 00:06 #648036góð hugmynd en ég prófaði og GPSgate þekkir ekki tækið mitt nýja sem er Oregon 300. Hvað á ég eiginlega að gera nú? Er í bölvuðum vandræðum með þetta.
03.06.2009 at 19:26 #648030en ef ég er með nýtt GPS tæki sem er bara með USB út en forritið vill Serial. Get ég keypt snúru sem er usb úr gps tækinu en serial á hinum endanum og látið tengjast svona serial adapter?
21.05.2009 at 17:58 #204422Hef notað VisIt frá Landmælingum og tengt við gps tækið mitt gegnum serial. Nú er ekkert serial á nýju fartölvunni og forritið vill tengjast gegnum serial. Hvað er til ráða?
30.03.2009 at 01:51 #204138Gaman væri að heyra í fróðum mönnum varðandi þessa bíla. Nú er ég búinn að eiga sama Patrolinn í 8-9ár og er hann núekinn um 110þús kílómetra. Þetta er bíll með 3.0 vél sem var skipt um á 1. eða 2. ári bílsins. Nú er maður oft að heyra um eitthvert vesen um þessar vélar, aðallega um hedd ig olíuverk en ég hef aldrei lent í neinum vandræðum með bílinn enn. Á maður að hafa áhyggjur af því að nú fari eitthvað að gerast?
Er eitthvað vit í því að skipta um hedd svona í forvarnarskyni. Hvað segið þið spekingar um þetta. Væri gaman að fá vitræn svör en ekkert karp um tegundir. Þökk
Sigurður
-
AuthorReplies